Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 23

Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 23
Alcan á Íslandi þakkar Hafnfirðingum fyrir öfluga þátttöku í íbúakosningu um deiliskipulag og stækkun álversins í Straumsvík. Við þökkum starfsfólki okkar og stuðningsmönnum úr röðum samstarfsaðila og birgja fyrir mikið og fórnfúst starf í aðdraganda kosninganna. Þeim ríflega sex þúsund kjósendum sem studdu stækkunaráform álversins þökkum við kærlega fyrir stuðninginn og traustið. Álverið verður ekki rekið með óbreyttu sniði í langan tíma. Það mun heldur ekki stækka í takt við þau áform sem uppi hafa verið um margra ára skeið. Það verkefni bíður nú eigenda og stjórnenda álversins að rýna í tækifæri morgundagsins miðað við þann raunveruleika sem nú blasir við. Í þeirri vinnu verður einskis látið ófreistað til þess að finna nýjar leiðir þar sem saman fara hagsmunir álversins, starfsfólks þess, íbúa í Hafnarfirði og íslensks samfélags. Kærar þakkir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.