Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
SAMKVÆMT rekstrarniðurstöðu
fyrir árið 2006, sem var staðfest af
stjórn Norðlenska í gær, hefur orð-
ið umtalsverður bati í rekstri fyr-
irtækisins milli ára.
EBITDA-hagnaður, fyrir fjár-
magnsliði, skatta, afskrift fasta-
fjármuna og viðskiptavildar, er
268,7 milljónir kr., 40 millj. meira
en samsvarandi tala var 2005.
Heildartekjur fyrirtækisins 2006
námu 3.034 milljónum kr. og er það
í fyrsta skipti sem ársvelta Norð-
lenska er yfir þremur milljörðum
kr. Hagnaður fyrirtækisins eftir af-
skriftir og vexti var 18,6 milljónir.
„Afkoman er mjög í takt við okk-
ar væntingar og áætlanir,“ segir
Sigmundur E. Ófeigsson, fram-
kvæmdastjóri.
Sigmundur segir nokkra óvissu í
kjötvinnslu vegna afléttingar tolla
og aukins innflutnings landbún-
aðarvara. „Það eru framleidd á
annað þúsund fleiri tonn af lamba-
kjöti en innlendi markaðurinn hef-
ur tekið við. Hins vegar eru vin-
sældir lambakjötsins aftur að
aukast og því er að minnka bilið á
milli framleiðslu og neyslu lamba-
kjöts.“ Töluverðar birgðir lamba-
kjöts voru í landinu um áramót en
hann segir stöðuna geta breyst
fljótt ef veður verður gott í sumar.
„Hagstætt sumar þýðir mikla
neyslu á grillkjöti og þar með
aukna sölu á lambakjöti.“
Morgunblaðið/Skapti
Bati í rekstri
Norðlenska
MIKIÐ er um að vera á Akureyri yf-
ir hátíðina sem nú fer í hönd, ekki
síst á menningarsviðinu; í myndlist,
tónlist og leiklist. Á laugardaginn er
svo á dagskrá skemmtileg skíða-
keppni í Hlíðarfjalli þar sem fram-
bjóðendur stjórnmálaflokkanna
reyna með sér og hafa sér til full-
tingis landsþekkta skíðakappa, nú-
verandi og fyrrverandi. Keppnin er
hluti af afmælishátíð Íslenskra verð-
bréfa, sem eru 20 ára.
Rósa Sigrún Jónsdóttir opnar
sýningu í Gallerí BOX kl. 16 í dag þar
sem hún sýnir m.a. postulínsverk.
Rósa Sigrún útskrifaðist úr Listahá-
skóla Íslands 2001. Hún hefur tekið
þátt í ýmsum sýningum innan lands
og utan. Síðustu þrjú ár hefur hún
verið formaður Myndhöggvara-
félagsins í Reykjavík.
Jónas Viðar opnar árlega
páskasýningu í eigin galleríi í Lista-
gilinu í dag kl. 15. Jónas kallar sýn-
inguna Mosalandið, en það er svæði
sem hann heillaðist af, í grennd við
álverið í Straumsvík. Sýningin er op-
in alla páskana frá 13-18.
Helgi Þorgils Friðjónsson
sýnir í Populus tremula í Lista-
gilinu. Opið er alla helgina kl. 14-17.
Þórarinn Stefánsson píanóleik-
ari heldur hádegistónleika í Deigl-
unni á morgun, föstudag, kl. 12.15.
Aðalsteinn Svanur Sigfússon
opnar sýningu í Deiglunni kl 14 á
laugardaginn.
Hlynur Hallsson sýnir nú á
VeggVerk á mótum Strandgötu og
Glerárgötu verkið Drulla - Scheisse -
Mud. „Verkið er óður til álrisanna og
þakklæti fyrir allt álið sem þeir hafa
fært okkur...“ segir Hlynur.
Aðalsteinn Þórsson, sem starf-
ar í Hollandi, opnar sýninguna Mána
málverkin á Café Karólínu á laug-
ardaginn kl. 14.
Vinnustofur listamanna á efstu
hæð Listasafnsins (gamla Punktin-
um) verða opnar á laugardaginn milli
kl. 11 og 16. Halldóra H. Helgadótt-
ir, sem nú sýnir í Ketilhúsinu, Jónas
Viðar og Óli G. Jóhannsson verða
með opnar vinnustofur og Svartfugl
og Hvítspói, gallerí og vinnustofa,
Brekkugötu 3 b þar sem Anna Gunn-
arsdóttir verður að vinna og sýnir
gestum það sem þar fer fram.
Hátíð verður í Hlíðarfjalli á
laugardaginn á milli kl. 16 og 17 í til-
efni 20 ára afmæli Íslenskra verð-
bréfa. Stjórnmálamenn keppa á
skíðum, sem fyrr segir, Óskar Pét-
ursson tekur lagið og Karíus og Bak-
tus skemmta yngstu kynslóðinni.
Boðið verður upp á heitt súkkulaði
með rjóma.
Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands er með tónleika í dag í Gler-
árkirkju. Fjallað er um þá á bls. 20.
Ál, postulín, mosi og
pólitíkusar á skíðum
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Postulín Rósa Sigrún Jónsdóttir er ein margra listamanna sem sýna verk
á Akureyri um hátíðina. Rósa Sigrún sýnir m.a. þessi postulínsverk.
Í HNOTSKURN
»Þórarinn Stefánsson leik-ur Næturljóð eftir Frédér-
ic Chopin, Sónötu í C-dúr á há-
degistónleikunum á morgun.
»Þrjár sýningar eru á veg-um Leikfélags Akureyrar
um helgina; Lífið – notk-
unarreglur, Best í heimi og
Ausa Steinberg.
TILLAGA þess efnis að íbúar bæj-
arins kjósi um framtíð Akureyrar-
vallar samhliða alþingiskosningum í
vor var felld á fundi bæjarstjórnar á
þriðjudag. Það var Jóhannes G.
Bjarnason, bæjarfulltrúi Framsókn-
arflokksins, sem lagði þetta til, í um-
ræðum um starfsáætlun íþróttaráðs.
„Undanfarnar vikur og mánuði
hafa sífellt fleiri Akureyringar lýst
yfir mikilli óánægju með að Akur-
eyrarvöllur verði aflagður og keppn-
ishald flutt á íþróttasvæði KA og
Þórs. Þessar skoðanir hafa m.a.
komið fram í viðtalstímum bæjarfull-
trúa, undirskriftalistum sem og í
skoðanakönnunum á heimasíðum
íþróttafélaganna,“ sagði Jóhannes í
bókun.
Enn fremur segir í bókun Jóhann-
esar: „Í ljósi yfirlýsinga meirihluta-
flokkanna fyrir síðustu kosningar
um aukið íbúalýðræði er hér kjörið
tækifæri að kjósa um framtíð Akur-
eyrarvallar samhliða alþingiskosn-
ingum í maí. Því geri ég það að til-
lögu minni að samhliða
alþingiskosningum í vor fái Akureyr-
ingar tækifæri til að segja álit sitt í
þessu umdeilda máli.“
Tillaga Jóhannesar var borin upp
og felld með 7 atkvæðum meirihluta
Sjálfstæðisflokk og Samfylkingar
gegn 4 atkvæðum Framsóknar-
flokksins, VG og L-listans.
Bæjarfulltrúar Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs, Baldvin H.
Sigurðsson og Kristín Sigfúsdóttir
létu á fundinum bóka mótmæli við
því „að hvergi sjái þess stað í starfs-
áætlun íþróttaráðs, að endurnýjun
fari fram á gólfefnum Íþróttahallar-
innar og Íþróttahúss KA.“
Fellt að
íbúar kjósi
um völlinn
Morgunblaðið/Ásdís
Gamalt Húsið Laugavegur 4 var byggt 1890. Þar var eitt sinn prentsmiðja.
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
„EF menn vilja að þetta elsta tímabil
verði sýnilegt í umhverfi Laugavegar
þá er þarna tækifæri til verndunar,
en það kostar heilmiklar breytingar.
Það er búið að veita þarna leyfi fyrir
heilmiklu byggingarmagni,“ segir
Pétur Ármannsson arkitekt, sem
sæti á í rýnihóp um Laugaveg. Hóp-
urinn er nú að fara yfir tillögur sem
fela í sér að húsin Laugavegur 4 og 6
og Skólavörðustígur 1a verði rifin og
þriggja hæða hús með risi verði
byggð á reitnum.
Í deiliskipulagi fyrir þennan reit er
gert ráð fyrir að hús á reitnum víki
og byggð verði í staðinn þriggja
hæða hús með risi. Sú tillaga sem nú
liggur fyrir felur því ekki í sér breyt-
ingu á deiliskipulagi heldur umsókn
um byggingarleyfi.
Húsin eru frá lokum 19. aldar
Skólavörðustígur 1a er hús sem
byggt var 1938 og hækkað 1947.
Engar kvaðir um friðun hvíla á hús-
inu. Hin húsin eru mun eldri og eru
háð lögum um húsafriðun eins og öll
hús sem byggð voru fyrir 1918.
Húsið Laugavegur 4 er byggt árið
1890. Fyrsti eigandi þess var Halldór
Þórðarson bókbindari, en hann
byggði Laugaveg 2, sem þykir einkar
fallegt hús. Það hús hefur verið frið-
að og endurgert í upprunalegum stíl.
Laugavegur 4 var upphaflega
byggt sem atvinnuhúsnæði og í upp-
hafi var prentsmiðja í húsinu. Búið er
að breyta húsinu mikið, rífa úr því
hliðina og setja á það kvist.
Húsið Laugavegur 6 er byggt
1871. Það er timburhús af dansk-ís-
lenskri gerð. Það er hluti af elstu
húsum sem standa við Laugaveg.
Það er búið að breyta mikið götuhlið
hússins. Upphaflega voru þar smáir
gluggar, en nú eru þar stórir búð-
argluggar. Form hússins og þak-
mynd hefur hins vegar haldist.
Í umsögn Árbæjarsafns um húsin
er talað um að húsin mætti stækka
og „láta bera ummerki um sögu
sína“. Safnið segir koma til greina að
leyfa nýbyggingar á lóðinni að því til-
skildu að þær standist einróma mat
rýnihóps.
Pétur Ármannsson arkitekt segir
að þetta séu gömul hús. „Þessi kafli
götunnar er í rauninni elsti hluti
hennar og það má segja að þessi þrjú
hús, þ.e. 2, 4 og 6, séu eini kafli
Laugavegarins sem minnir á Lauga-
veginn eins og hann var alveg í byrj-
un. Húsin voru bara ein hæð og ris.
Húsin eru af þessari dönsk-íslensku
hefð sem svo er kölluð.“
Pétur sagði að kaupmenn við
Laugaveg hefðu lagt áherslu á að það
þyrfti að auka gæði verslunarrýmis-
ins, gera það aðgengilegra og fal-
legra. Það væri ekki víst að starfsemi
á efri hæðum húsa, íbúðum eða hót-
elherbergjum, myndi bæta götuna,
sérstaklega ef skuggamyndun myndi
aukast í henni.
Húsaröð sem tilheyrir
elsta hluta Laugavegar
Í HNOTSKURN
»Á Laugavegi 6 var lengiLitla kaffistofan sem
Hannes Kristinsson rak. Stað-
inn sóttu m.a. sjómenn og
skáld eins og Örn Arnarson,
Stefán frá Hvítadal, Krist-
mann Guðmundsson og Hall-
dór Laxness. Þar deildu menn
um bókmenntir og pólitík.
SÍÐUSTU daga fyrir páska voru
Afríkudagar í Tjarnarskóla í
Reykjavík, en þemadagar í skól-
anum þykja alltaf skemmtileg til-
breyting í skólastarfinu.
Nemendur þjálfast heilmikið í
mannlegum samskiptum og í því
að vinna saman í hóp sem er lífs-
reynsla út af fyrir sig. Þemavinna
gefur einnig mörgum tækifæri til
að láta hugmyndaflugið og list-
ræna hæfileika njóta sín. Svo
finnst þeim ekki amalegt að fá að
hafa aðeins meira frelsi en venju-
lega og einnig á sér stað heilmikil
þjálfun í að taka sameiginlegar
ákvarðanir.
Nemendur stóðu einnig frammi
fyrir því að panta tíma fyrir viðtöl
hjá mismunandi hjálparsamtökum,
koma sér á staðinn og vinna úr
viðtölum. Þeir kynntu sér átta Afr-
íkuríki og jafnmarga aðila sem
stunda hjálparstarf í þróunarlönd-
unum. Einnig áttu nemendur að
reyna að gera sér í hugarlund
hvernig lífi þeir lifðu ef þeir hefðu
fæðst í Afríku.
Afrakstur þemadaganna var
mjög fjölbreytilegur; sumir gerðu
veggspjöld, aðrir glærusýningu.
Einn hópur skilaði sínu verkefni í
bókarformi, annar í blaðaformi og
ýmsir afrísku þjóðfánar litu dags-
ins ljós. Í tengslum við þemadag-
ana tóku nemendur einnig þátt í
söfnun á vegum ABC-hjálp-
arstarfs.
Afríkudagar í
Tjarnarskóla
Afríka Stefán, Sóley, Björgvin, Róbert og Matthías, nemendur í Tjarn-
arskóla, vinna að verkefni sínu um Afríku ásamt Sigurborgu kennara.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ