Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 25
AUSTURLAND
Norðvesturland | Stjórn Lög-
reglufélags Norðvesturlands hef-
ur sent frá sér ályktun þar sem
lýst er yfir alvarlegum áhyggjum
vegna aukins ofbeldis og virðing-
arleysis í garð lögreglumanna og
löggæslunnar í heild sinni.
Nefnt er að nýleg dæmi af fé-
lagssvæðinu sanni að lífi og lim-
um lögreglumanna og fjölskyldna
þeirra, sem og annarra saklausra
borgara, sé alvarlega ógnað og
einskis svifist í þeim efnum af
ófyrirleitnum aðilum sem virðist
því miður ekki aðlagast hinni
daglegu siðfræði þjóðfélagsins.
„Þess er krafist að málum sem
þessum verði mætt afdráttarlaust
og af fullri einbeitni hvað varðar
rannsóknarþáttinn og síðan af
hálfu ákæruvalds og dómstóla,“
segir ennfremur í ályktun stjórn-
ar lögreglufélagsins.
Lýsa áhyggjum
vegna ofbeldis í
garð lögreglu
LANDIÐ
Grindavík | Grindavíkurbær og Bláa
Lónið bjóða upp á menningar- og
sögutengda gönguferð í samstarfi
við leiðsögumenn Reykjaness, á ann-
an dag páska. Gangan hefst kl. 13 á
bílastæði heilsulindar og er áætlað
að hún taki um tvær og hálfa
klukkustund.
Gengið verður m.a. um mosagróið
Illahraun, framhjá Rauðhól, haldið
austur með suðurhlíðum Þorbjarn-
arfells og inn á Baðsvelli. Þar er ætl-
unin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og
forn sel. Þá verður gengið yfir að
svæði Hitaveitu Suðurnesja og um
hið litskrúðuga lónssvæði og endað í
heilsulind. Þeir sem vilja geta farið í
Bláa Lónið á tilboðsverði.
Gengið um Illa-
hraun, Baðsvelli
og Bláa Lónið
Þingeyri | Tekin hefur verið í notk-
un reiðhöll á Söndum í Dýrafirði,
skammt frá Þingeyri. Hesta-
mannafélagið Stormur á Vest-
fjörðum stóð fyrir byggingunni.
Fjöldi fólks var viðstaddur vígsl-
una. Höllin hefur fengið heitið
Knapaskjól.
Að hestamannafélaginu Stormi
standa hestamenn af svæðinu frá
Bolungarvík að Patreksfirði og er
mótssvæðið á Söndum miðsvæðis á
félagssvæðinu.
Undirbúningur að reiðhall-
arbyggingu á vegum Storms hefur
staðið í marga mánuði. Vinna
hófst fyrir alvöru þegar fé-
lagsmaður í Stormi, Árni Erlings-
son, hrossaræktandi á Laugarbóli í
Arnarfirði, bauðst til að leggja 10
milljónir kr. til verksins.
Heildarkostnaður við höllina er
áætlaður um 40 milljónir kr. og
auk framlags Árna, Ísafjarð-
arbæjar og hestamanna, styrkir
landbúnaðarráðuneytið verkefnið.
Áformað er að stofna einkahluta-
félag um rekstur reiðhallarinnar
en fram kom við vígsluathöfnina
að fjármögnun rekstrarins er þeg-
ar tryggð.
Styrkir ferðaþjónustu
Aðstaða til mótshalds hesta-
manna á Vestfjörðum eflist til
muna með tilkomu reiðhallarinnar,
þar sem öll önnur aðstaða er fyrir
hendi. Þá mun þessi framkvæmd
styrkja ferðaþjónustu á svæðinu,
auk þess sem aðstaðan nýtist til
reiðkennslu fyrir grunnskóla- og
framhaldsskólanemendur. Hug-
myndir eru uppi um að nýta reið-
höllina í tengslum við þá uppbygg-
ingu menningartengdrar
ferðaþjónustu sem stendur yfir í
Arnarfirði og Dýrafirði þar sem
Víkingar á Vestfjörðum eru að
þróa verkefni á söguslóðum Gísla
Súrssonar.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Knapaskjól Reiðhöllin Knapaskjól í Dýrafirði var vígð við athöfn sem fram
fór síðastliðinn föstudag. Fjöldi gesta var viðstaddur viðburðinn.
Framlag einstak-
lings var kveikjan
Húsavík | Fyrsti formlegi fundur fé-
lagsins „Samvinnusýningin á Húsa-
vík“ var haldinn í Safnahúsinu á
Húsavík fyrir skemmstu. Á fundin-
um undirrituðu þeir Guðsteinn Ein-
arsson, formaður stjórnar Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga, og
Tryggvi Finnsson, stjórnarformaður
Kaupfélags Þingeyinga, stofnsam-
þykktir félagsins.
Í nýskipaðri stjórn félagsins eiga
sæti þau Tryggvi Finnsson sem er
formaður, Guðsteinn Einarsson,
Haukur Halldórsson, Guðni Hall-
dórsson og Erla Sigurðardóttir.
Guðni Halldórsson, forstöðumað-
ur Safnahússins, segir að fyrirhug-
aðri sýningu, þar sem hugmyndin er
að rekja á nútímalegan hátt sögu
samvinnuhreyfingarinnar og áhrif
hennar í Þingeyjarsýslu og á þjóðfé-
lagið í heild, sé ætlað rými á hluta af
miðhæð Safnahússins. Þar er nú
bókasafnið á Húsavík til húsa og
óvíst hvenær húsrýmið losnar enda
undir ákvörðunum sveitarstjórnar
Norðurþings komið hvar bókasafn-
inu verður fundinn staður í framtíð-
inni.
Guðni segir mikla vinnu varðandi
sagnfræðirannsóknir og heimildar-
leit framundan og fyrsta verk stjórn-
ar verði að snúa sér til Helga Skúla
Kjartanssonar sagnfræðings varð-
andi hluta þeirrar vinnu.
Segja sögu sam-
vinnuhreyfingar
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Samvinna Tryggvi og Guðsteinn
undirrita stofnsamþykktir.
Ölfus | Fyrirhuguð raflýsing þjóð-
vegarins um Þrengsli til Þorláks-
hafnar er háð mati á umhverfisáhrif-
um, að því er fram kemur í úrskurði
Skipulagsstofnunar.
Orkuveita Reykjavíkur hyggst
lýsa upp þjóðvegi 38 og 39 úr Svína-
hrauni, um Þrengsli og til Þorláks-
hafnar. Verða reistir um 450 tíu
metra háir ljósastaurar á þessari leið
sem er um 24 kílómetrar að lengd.
Sveitarfélagið, Vegagerðin og
fleiri umsagnaraðilar töldu ekki þörf
á að fram færi umhverfismat. Nið-
urstaða Skipulagsstofnunar um
matsskyldu byggist á því að um sé að
ræða óvissu um hvaða áhrif fram-
kvæmdin muni hafa. Sérstaklega eru
nefnd neikvæð áhrif á umferðarör-
yggi miðað við núverandi aðstæður
og sjónræn áhrif sem gera þurfi
betri grein fyrir.
Raflýsing um Þrengsli
sett í umhverfismat
Neskaupstaður | Brynja Dröfn
Þórarinsdóttir, tvítug Fáskrúðs-
fjarðarmær, var um helgina kjörin
fegurðardrottning Austurlands að
viðstöddu fjölmenni í HótelEg-
ilsbúð á Neskaupstað. Brynja
Dröfn verður fulltrúi Austurlands
í
keppninni um fegurstu stúlku
Íslands. Til gamans má geta þess
að Símon Ólafsson sem lenti í öðru
sæti í Herra Ísland á þessu ári er
kærasti Brynju Drafnar.
Keppnin þótti hin glæsilegasta.
Átta keppendur komu fram í
tískusýningu, nærfatasýningu og í
kvöldkjólum. Sigurjón Egilsson
var kynnir.
Annar fulltrúi Austurlands í
Ungfrú Ísland verður Helga Jóna
Guðmundsdóttir, nítján ára, frá
Fáskrúðsfirði, en hún var valin
ljósmyndafyrirsæta Austurlands.
Alls tóku átta stúlkur þátt í
keppninni. Úr hópnum völdu
stúlkurnar sjálfar Elísabetu Mar-
en Guðjónsdóttur frá Seyðisfirði
vinsælustu stúlkuna. Hallveig
Karlsdóttir frá Borgarfirði
eystra var Tigi-stúlka Gallerí
Hárs og Alexandra Tómasdóttir
frá Neskaupstað var bæði kjörin
sportstúlkan og netstúlkan.
Það voru sem fyrr Guðrún
Smáradóttir og Kolbrún Nanna
Magnúsdóttir sem áttu veg og
vanda af skipulagi keppninnar og
þjálfun stúlknanna.
Fáskrúðsfjarðarmær vann
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Fegurðardrottning Brynja Dröfn Þórarinsdóttir fegurðardrottning
Austurlands 2007 og Símon Ólafsson unnusti hennar.
Djúpivogur | Á hverju ári efna eldri
og yngri bekkjardeildir Tónskóla
Djúpavogs til tónleika fyrir bæj-
arbúa.
Fyrir skemmstu héldu yngri
nemendur sérstaka tónleika í kirkj-
unni á Djúpavogi undir heitinu Sól-
artónleikar. Eldri nemendurnir
hafa hins vegar undanfarin ár
haldið tónleika undir heitinu Musik
Festival. Tónlistarhátíðin var nú
sem áður haldin á Hótel Framtíð
og þar skemmtu hinir ungu og
efnilegu nemendur bæjarbúum
með stórkostlegri framkomu.
Skólastjóri Tónskóla Djúpavogs
er Svavar Sigurðsson, en hann
þykir hafa náð frábærum árangri
með nemendum skólans á und-
anförnum árum, eins og sann-
arlega kom einnig í ljós að þessu
sinni.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Innlifun F.v. Helgi Týr, Aron Daði, Dagbjört og Kjartan.
Rokkað við voginn
Reyðarfjörður | Sex austfirsk fyr-
irtæki hafa sameinast um stofnun
nýs fyrirtækis og hefur það hlotið
nafnið Launafl. Þetta er gert til að
hafa bolmagn til að bjóða Alcoa
Fjarðaáli þjónustu í vélaviðgerðum,
málmsmíði og rafmagnsvinnu vegna
tækja og kerfa álversins. Jafnframt
hefur Launafl gert samstarfssamn-
inga við önnur fyrirtæki og getur
þannig boðið Alcoa þjónustu í máln-
ingu, múrvinnu og trésmíði. Hjá
Launafli starfa nú 20 manns sem
munu vinna fyrir álverið í upphafi,
en reiknað er með að þeim fjölgi í allt
að 50 þegar viðhald verður reglu-
legra. Eyjólfur Jóhannsson er fram-
kvæmdastjóri Launafls.
Fyrirtæki sameinast til
að þjónusta nýtt álver
Neskaupstaður | Oddsskarðsgöng
stórskemmdust í gærdag eftir að
gámabíll frá fyrirtækinu Hringrás
ók um þau með illa frágenginn brota-
járnsfarm.
Rakst farmurinn í báðar renni-
hurðir ganganna auk þess að rífa
niður klæðningu úr lofti.
Í brotajárnsfarminum var m.a.
skurðgröfuarmur og hafði hann
færst til í gámnum með þeim afleið-
ingum að hann stóð tæplega fimm
metra upp fyrir bílinn.
Armurinn rakst fyrst upp í renni-
hurðina norðanmegin í göngunum en
þá var bíllinn að koma frá Norðfirði.
Svo virðist sem ökumaðurinn hafi
látið það sig litlu varða, hann hélt
áfram akstrinum inn eftir göngunum
þar sem armurinn hélt áfram að
valda usla og reif niður einangrun og
öryggisnet sem á að varna grjót-
hruni úr lofti hinna rúmlega hálfs
kílómetra löngu ganga. Loks rakst
armurinn upp í suðurhurðina þegar
ökumaður ók út úr göngunum áleiðis
yfir á Eskifjörð.
Lögregla stöðvaði gámabílinn á
Reyðarfirði eftir að Vegagerðin
hafði farið fram á að för hans yrði
stöðvuð og má ökumaðurinn búast
við sekt vegna laklegs frágangs á
farminum.
Viðgerð á Oddsskarðsgöngum
hófst í gær og varaði Vegagerðin við
grjóthruni þar. Ekki er ljóst hverju
tjónið nemur, en Vegagerðin segir
það umtalsvert.
300–500 bílar fara að jafnaði um
Oddsskarðsgöng á sólarhring og um-
ferð stórra flutningatækja hefur
snaraukist þar undanfarin síðustu
misseri.
Skeyt-
ingarlaus
bílstjóri