Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 26
Eftir Guðbjörgu R. Guðmundsdóttur
gudbjorg@mbl.is
A
llt sem þarf til að gera
páskalegt eru nokkrar
páskaliljur eða falleg
trjágrein í vasa sem
hægt er að skreyta
með eggjum eða litlum ungum. Þar
að auki er svo hægt að verða sér
úti um nokkra túlípanalauka eða
aðra páskalega lauka sem hægt er
að skreyta með því sem hverjum
og einum finnst fallegt,“ segir Ey-
dís Ósk Ásgeirsdóttir sem hefur
undanfarin ár unnið við blóma-
skreytingar hjá Breiðholtsblómum.
Það tekur hana ekki langan tíma
að töfra fram fallega skreytingu úr
gulum túlípanalaukum á meðan við
spjöllum og þetta virðist bara
nokkuð viðráðanlegt, jafnvel fyrir
þá sem ekki eru mjög lagnir við
skreytingar.
Gott að hafa steina með
„Það tekur enga stund og er allt-
af gaman að skreyta með laukum
því þeir lifa lengur en afskorin
blóm og standa svo fallega eftir að
þeir springa út. Galdurinn er að
hreinsa vel moldina af þeim og
stytta rótina þegar þeir eru notaðir
í skreytingu. Laukarnir eru svo
skolaðir og settir í fallega glerskál
eða vasa. Þeim er raðað eftir
smekk en það er mjög gott að hafa
steina með í botninum svo lauk-
arnir sitji ekki á kafi í vatni. Þá
geta þeir myglað. Vatnið á rétt að
bleyta rótina og því þarf að hugsa
svolítið vel um skreytinguna. Þegar
búið er að koma laukunum fyrir
getur oft verið fallegt að skreyta
með stráum nú eða fallegum ung-
um eða öðru páskalegu skrauti sem
fólk á.“
Páskaliljur njóta sín í vasa
Eydís segir að vissulega sé alltaf
tíska í páskaskrauti eins og öðru og
nú sé það klassíski guli liturinn
sem eigi vinsældum að fagna.
„Svart hefur átt upp á pallborðið
undanfarið og það er mjög fallegt
að hafa smávegis af svörtu með
gula litnum. En svarti liturinn er á
undanhaldi og hann er bara not-
aður í litlum mæli og þá með þess-
um gula.“
Hvað um hefðbundnar skreyt-
ingar þar sem afskorin blóm eru
notuð?
„Þær standa alltaf fyrir sínu þar
sem blómunum er þá stungið í svo-
kallað óasis. En undanfarin ár hafa
laukarnir verið vinsælli í skreyt-
ingar og afskornu páskaliljurnar
eða túlípanarnir njóta sín alltaf vel
í vasa.“
Sætt Páskaliljulaukar eru settir í fallegan gler-
vasa og skreytt með gulu sem til er á heimilinu.
Hugmyndaflug Þegar búið er að setja laukana í botn á vasa má skreyta
með fallegum stráum og jafnvel bútum af trjágrein.
Morgunblaðið/Ásdís
Páskalegt Eydís Ósk Ásgeirsdóttir var ekki lengi að töfra fram fallega
skreytingu á meðan staldrað var við hjá henni í blómabúðinni.
Gult og einfalt
um páskana
Auðvelt Steinar settir í botn vasa og túlípanalaukar ofaná.
Skreytt með stráum.
|fimmtudagur|5. 4. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Sum matvæli eru merkt sem
náttúruleg, ekta eða fersk án
þess að geta staðið undir
merkjum. » 28
neytendur
Leikskólabörn í Hafnarfirði
héldu sérstakan íþróttadag í
fyrradag og stunduðu krakk-
arnir holla hreyfingu. » 34
börn
Danuse Steinová minnisþjálfari
kom hingað til lands og kynnti
hvernig aldraðir geta nýtt sér
minnisaðferðir. »32
heilsa
Eataly í Tórínó á Ítalíu er
stærsti matvæla- og vínmark-
aður í heimi og þar kennir ým-
issa grasa. » 30
matur
Samtök tileinkuð umhverf-
ismálum hafa verið dugleg að
aðstoða við skipulag umhverf-
isvænnar ferðamennsku. » 31
ferðalög