Morgunblaðið - 05.04.2007, Side 28

Morgunblaðið - 05.04.2007, Side 28
neytendur 28 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Krónan Gildir 4. apr.–11. apr. verð nú verð áður mælie. verð Móa veislufugl m/fyllingu ..................... 764 899 764 kr. kg Grísalundir m/sælkerafyllingu ............... 1.898 2.626 1.898 kr. kg SS VSOP helgarsteik ............................ 1.478 1.848 1.478 kr. kg Krónu grísahnakkasneiðar, kryddaðar .... 1.238 1.548 1.238 kr. kg Móa kjúklingalæri, Sole Mio.................. 788 1.125 788 kr. kg Hóla bayonneskinka............................. 1.196 1.594 1.196 kr. kg Hóla hamborgarhryggur m/beini ........... 956 1.594 956 kr. kg Eðalf. Búkona graflax/reyktur, bitar........ 1.179 1.688 1.179 kr. kg Vínber, rauð......................................... 199 247 199 kr. kg Hvítlauksostur ..................................... 116 145 773 kr. kg Bónus Gildir 4. apr.–8. apr. verð nú verð áður mælie. verð Mccain pitsur, 352–390 g .................... 98 198 98 kr. stk. KF hrásalat, 350 g ............................... 98 159 280 kr. kg KF kartöflusalat, 350 g......................... 98 159 280 kr. kg Ali hamborgarhryggur m/beini .............. 1.171 1.505 1.171 kr. kg KF kofareykt úrb. hangilæri ................... 1.520 2.280 1.520 kr. kg KF lambalæri, einiberja ........................ 1.069 1.603 1.069 kr. kg Reyktur lax .......................................... 1.125 1.501 1.125 kr. kg Grafinn lax .......................................... 1.125 1.501 1.125 kr. kg Bónus graflaxsósa, 350 ml ................... 159 179 454 kr. ltr Fjarðarkaup Gildir 4. apr.–7. apr. verð nú verð áður mælie. verð Kjúklingabringur frá Ísfugli .................... 1.487 1.906 1.487 kr. kg Lambahryggur, frosinn.......................... 998 1.275 998 kr. kg Lambalæri, frosið................................. 898 1.087 898 kr. kg FK hamborgarhryggur úr kjötborði.......... 1.098 1.498 1.098 kr. kg Góu páskaegg nr. 6.............................. 995 1.298 880 kr. kg Lamba rib-eye úr kjötborði .................... 2.398 2.798 2.398 kr. kg Fk jurtakryddað lambalæri .................... 1.198 1.744 1.198 kr. kg Fersk jarðarber, 250 g .......................... 249 389 996 kr. kg Svínalundir úr kjötborði ........................ 1.598 1.878 1.598 kr. kg Svínahnakkasneiðar úrb. úr kjötborði..... 898 1.228 898 kr. kg Hagkaup Gildir 5. apr.–09. apr. verð nú verð áður mælie. verð Svínalundir úr kjötborði ........................ 1.798 2.392 1.798 kr. kg Lambainnralæri úr kjötborði.................. 1.998 3.095 1.998 kr. kg Kokkalandsliðs páskalamb ................... 1.439 1.799 1.439 kr. kg Humar, lausfrystur................................ 1.268 1.585 1.268 kr. kg Ali hamborgarhryggur, úrbeinaður.......... 1.733 2.166 1.733 kr. kg Ali hamborgarhryggur, m/beini.............. 1.339 1.674 1.339 kr. kg Jói Fel kalkúnafylling ............................ 569 712 569 kr. kg Kalkúnn, frosinn .................................. 749 872 749 kr. kg Ferskur kalkúnn ................................... 843 937 843 kr. kg Nóatún Gildir 4. apr.–11. apr. verð nú verð áður mælie. verð Lamba rib eye kjötmeistarans ............... 2.298 3.189 2.298 kr. kg Nóatúns grísahamborgarhryggur ........... 1.298 1.498 1.298 kr. kg Nóatúns bayonneskinka ....................... 839 1.398 839 kr. kg Móa veislufugl m/fyllingu ..................... 764 899 764 kr. kg Sólfugl kalkúnabringa m/apríkósum...... 1.998 2.598 1.998 kr. kg Eðalfiskur graflax, bitar ......................... 1.970 2.627 1.970 kr. kg Eðalfiskur reyktur lax, bitar.................... 1.899 2.532 1.899 kr. kg Nóatúns þurrkr. grísahnakkasneiðar ...... 1.278 1.598 1.278 kr. kg Nóatúns þurrkr. lærissneiðar ................. 1.726 2157 1.726 kr. kg Pepsi max, 2 l...................................... 99 176 50 kr. ltr Þín verslun Gildir 5. apr.–11. apr. verð nú verð áður mælie. verð Nescafe Red, 100 g ............................. 239 299 2.390 kr. kg Nescafe Gull, 100 g ............................. 329 399 3.290 kr. kg Nesquick, 800 g .................................. 399 579 499 kr. kg Milba Muffins, 100 g............................ 89 110 890 kr. kg Malt, 0,5 l ........................................... 89 125 178 kr. ltr Appelsín, 2 l........................................ 169 199 85 kr. ltr Pepsí max, 4x2 l .................................. 469 0 59 kr. ltr Höfðingi, blár, 150 g ............................ 249 279 1.660 kr. kg Gullostur, 250 g .................................. 379 439 1.516 kr. kg Stóri Dímon, 250 g .............................. 399 459 1.596 kr. kg helgartilboðin Kalkúnn, humar og hamborgarhryggur Morgunblaðið/Kristinn M argir og vonandi flestir reyna að kaupa holl matvæli til þess að auka heilbrigði og halda réttri líkamsþyngd. Og oft eru mat- væli merkt sem „holl“ án þess að hægt sé að sýna fram á það. Óleyfi- legt er með öllu að segja að mat- væli séu holl eða hafi heilsu- samlega eiginleika nema fram komi að þau séu hluti af heilsusamlegu eða hollu mataræði, að sögn Jónínu Þ. Stefánsdóttur, sérfræðings á matvælasviði Um- hverfisstofnunar. Ekki eru svo mörg ár síðan flest- ir gerðu sinn mat heima, bökuðu, sultuðu, ræktuðu kartöflur, frystu grænmeti og kjöt til vetrarins. Fólk ákvað sjálft hvað var sett í matinn og vissi hvað hann innihélt. Takmörk á upplýsingaflóðið „Nú kaupum við tilbúin matvæli í stórum stíl. Úrvalið er mikið og allt á að vera klárt í ofninn og á pönn- una. En það getur verið flókið og tímafrekt að velja á milli matvæla á grundvelli innihaldsupplýsinga því letrið er oft mjög smátt og jafnvel þarf að leita að því á pakkningunni innan um mörg tungumál. Hins- vegar er framhlið pakkninga notuð til að draga athygli neytenda að vörunni og þar eru gjarnan myndir og aðrar merkingar, sem gylla vör- una í augum kaupandans. En það eru takmörk fyrir því hve langt má ganga, svo að upplýsing- arnar verði ekki villandi. Það er skýrt tekið fram í lögum um mat- væli að ekki má blekkja kaupendur matvæla. Þrátt fyrir að við séum að mestu hætt að vinna matinn frá grunni heima viljum við samt að matvælin séu fersk, náttúruleg, án aukefna og af miklum gæðum. Þetta vita framleiðendur og selj- endur matvæla og sumir ganga langt í að nýta sér það. Þannig kemur fyrir að matvæli eru merkt sem „náttúruleg“, „ekta“, „lúxus“ og „fersk“ án þess að geta staðið undir því. Það er til dæmis spurn- ing hve lengi er hægt að kalla app- elsínusafa „ferskan“,“ segir Jónína. Neytendur eiga rétt á því að mat- vælin innihaldi það sem gefið er upp eða gefið er í skyn. „Vörur eins og ávaxtafrostpinni á að innihalda ávexti eða ávaxtasafa. Og ef umbúð- ir eru skreyttar með myndum af ávöxtum, eiga matvælin að inni- halda ávexti. Samkvæmt reglum á að merkja magn hráefna, í þessu til- felli ávaxta, ef verið er að undir- strika mikilvægi þeirra. En svo er hægt að benda á að vara sem sam- kvæmt hefð inniheldur ákveðin hrá- efni svo sem guacamole, sem er avocadosósa, stendur varla undir því heiti ef hún inniheldur einungis 0,6% af þurrkuðu avocado. Danskt paté ekki danskt Dæmi má finna um vöru þar sem gefið er í skyn að vara innihaldi ákveðin hráefni, en gerir það ekki samkvæmt innihaldslýsingu, svo sem hunangskjöt án hunangs, síld í hvítlauksósu án hvítlauks, kex með jarðarberjakremi, sem er án jarð- arberja en með bragðefni,“ segir Jónína. Margir neytendur vilja vita upp- runa matvæla, sérstaklega á það við um kjöt og grænmeti og önnur hrá- efni. „Einhver brögð eru að því að innflytjendur vara reyni að láta þær líta út fyrir að vera íslenskar. Við erum vön því að vörur séu kenndar við lönd eða svæði án þess að verið sé að gefa í skyn að varan sé fram- leidd í viðkomandi landi, s.s. fransk- ar kartöflur, vínarbrauð og danskt paté. En það getur líka verið vill- andi í öðrum tilvikum. Síðan má benda á að það eru fáar reglur um upprunamerkingu matvæla og ekki er skylt að gefa upp á umbúðum framleiðanda vörunnar en eingöngu er skylt að gefa upp ábyrgðaraðila á Evrópska efnahagssvæðinu sem ber ábyrgð á vörunni og merkingum hennar og því að rekjanleikinn sé tryggður,“ segir Jónína. Kynningar ganga líka of langt Það eru ekki bara merkingarnar á matvælunum sjálfum sem geta verið villandi, heldur líka kynningar og auglýsingar. Flestir hafa ein- hvern tíma orðið vitni að því að þeir, sem eru að kynna eða selja vöru, ganga langt í að kynna og selja sína vöru. Hitaeiningalaus orkudrykkur eða hitaeiningalaus próteindrykkur eru dæmi um það, en prótein er eitt af orkuefnunum og hvert gramm gefur fjórar hita- einingar svo að fullyrðingin getur alls ekki staðist. Nú er eftirlitsverkefni í gangi hjá heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga og Umhverfisstofnun þar sem skoðað er sérstaklega hvort merkingar, kynningar og auglýsingar matvæla séu villandi eða líklegar til að vera það. Því mun ljúka síðar á árinu með leiðbeiningum sem munu nýt- ast bæði fyrirtækjum og heilbrigð- iseftirliti, að sögn Jónínu. Hve lengi er hægt að kalla appelsínusafa ferskan? Morgunblaðið/Golli Merkingar Ólöglegt er að fullyrða að vara sé gædd heilsusamlegum eiginleikum nema hægt sé að sýna fram á það. Sum matvæli eru merkt sem náttúruleg, ekta, lúx- us og fersk án þess að geta staðið undir merkj- um. Jónína Þ. Stefáns- dóttir, sérfræðingur á matvælasviði Umhverfis- stofnunar, sagði Jóhönnu Ingvarsdóttur að óheim- ilt væri að villa þannig um fyrir kaupendum. Í HNOTSKURN »Í lögum um matvæli segirm.a. að tilgangur þeirra sé að tryggja, eins og kostur er, að merkingar og aðrar upplýs- ingar um matvæli séu réttar og fullnægjandi og að óheimilt sé að hafa matvæli á boðstólum eða dreifa þeim þannig að þau blekki kaup- anda að því er varðar uppruna, tegund, gæðaflokkun, samsetningu, magn, eðli eða áhrif. »Orðið villandi hefur sömumerkingu og orðið blekkj- andi. »Merkingar eru víðtækt orðog í reglugerð um merk- ingu matvæla stendur: „Merk- ing er orð, upplýsingar, vöru- merki, sérheiti, myndefni eða tákn, sem tengj- ast matvælum og eru sett á umbúðir, skjöl, tilkynningar, merkimiða, hringi eða kraga, sem fylgja matvælunum eða vísa til þeirra. Þetta er þriðja greinin af nokkrum í greinaflokki, sem er samstarfs- verkefni matvælasviðs Umhverf- isstofnunar og Morgunblaðsins. Jónína Þ. Stefánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.