Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 30
ferðalög
30 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Hin gamla höfuðborg Ítalíu,Tórínó, er án ef ókrýndhöfuðborg bragðlauk-anna. Á Ítalíu er jú nán-
ast sama hvert maður fer, alls staðar
er góður matur, en auðvitað leynast
gloppur þar eins og annars staðar og
varast ber hina alræmdu „túrista-
staði“, þar sem oft er bæði boðið upp
á lélegan mat og túristinn er einnig
látinn borga annað verð fyrir matinn
en hinir innfæddu.
Piemontehérað er ákaflega auðugt
af matarfjársjóðum og menn eru afar
stoltir af afurðum sínum. Slow Food
samtökin eru staðsett í héraðinu og
hin mikla matarsýning Salone del
Gusto er haldin annað hvert ár í Tór-
ínó. Borgin er orðin eins konar bæki-
stöð og talsmaður hágæðamatvæla
og þeirra sem vinna að því að berjast
fyrir verndun bragðgæða og upp-
runavottun matvæla. Nýjasta skraut-
fjöðurin í matarhatt Tórínóborgar er
Eataly. Um er að ræða stærsta mat-
væla- og vínmarkað í heimi sem var
opnaður 27. janúar sl. þar sem hægt
er að versla hágæðamatvöru, taka
þátt í smökkunum, námskeiðum og
stúdera mat og vín í hæsta gæða-
flokki.
Ekki bara fyrir fáeina útvalda
Eataly er í stuttu máli paradís sæl-
kerans, en heimspekin að baki mat-
armiðstöðinni er mjög í anda Slow
Food. Um allan heim er að finna litla
matvæla- og vínframleiðendur sem
bjóða upp á vörur í mjög háum gæða-
flokki sem oft er því miður erfitt að
nálgast nema e.t.v. í litlum sérversl-
unum þar sem þær eru seldar á upp-
sprengdu verði sem fjöldinn getur
ekki leyft sér að greiða. Segja má að
Eataly sé eins konar viðleitni til þess
að afsanna að fyrrnefndar afurðir (á
ítölsku oft nefndar „di nicchia“ eða
klettasylluafurðir til merkis um hve
erfitt er að nálgast þær) séu einungis
fyrir fáa útvalda.
Á Eataly getur almenningur nálg-
ast umræddar afurðir á mjög viðráð-
anlegu verði. Margir smærri mat-
væla- og vínframleiðendur sameinast
hér undir verndarvæng Slow Food-
samtakanna og bjóða vörur sínar til
sölu og mottó þeirra er: „Aflið fæst
með sameiningu!“en eitt af slag-
orðum Eataly er: „Að borða er land-
búnaðarathöfn – neytandinn leggur
línuna í landbúnaði með því að velja
það sem hann borðar.“
Hér koma saman bestu afurðir á
Ítalíu og sérvalið úrval frá fleiri Evr-
ópulöndum á verði sem áður er
óþekkt. En hvernig tekst að halda
niðri vöruverðinu? Það er einfaldlega
gert með því að fækka dreifing-
armilliliðum varanna eins og mögu-
legt er, enda koma flestar vörurnar
milliliðalaust frá framleiðendum til
sölu á Eataly. Slow Food-samtökin
heilluðust af framtakinu og koma að
því sem gæðaráðunautur, þ.e. sam-
tökin taka að sér almennt gæðaeft-
irlit: að gæði matvaranna haldist en
hraki ekki með aukinni eftirspurn.
Fræðslumiðstöð um leið
Eataly er þó ekki bara markaður,
heldur er þar hægt að fá nánari upp-
lýsingar um vörurnar, uppruna
þeirra og notkunarmöguleika og eins
er boðið upp á ótal matreiðslunám-
skeið þar sem fremstu mat-
reiðslumeistarar héraðsins miðla af
reynslu sinni og visku. Einnig er boð-
ið upp á smakkanir, „aperitivo“ (for-
drykk) með vínframleiðendum, ýms-
ar uppákomur og ferðir tengdar
afurðum Piemontehéraðs og svo er
sérhæft bókasafn og bókabúð á
staðnum.
Stórt svæði fer svo undir veit-
ingastaði sem skipt er upp í eftirfar-
andi flokka: fiskur, kjöt, kjötálegg og
ostar og pasta. Allir sitja við sama
borð sem ýmist er í hring utan um
eldunaraðstöðuna eða endilangt og
hér er boðið upp á nokkra rétti dags-
ins, glas af eðalvíni eða bjór á vægu
verði, en brauð og vatn getur hver
fengið að vild og einnig er hægt að
kaupa tilbúna rétti til að taka með
heim.
Eataly er í stuttu máli sagt há-
gæðamatur og -menning á allra færi!
Það er líka erfitt að lýsa Eataly, hvort
sem er í máli eða myndum: sjón, ilm-
ur og smakk eru einfaldlega sögunni
ríkari.
Ostar Vörur koma beint frá framleiðendum. Að hætti meistaranna Fylgst með skurði á spænskri Iberico-skinku. Freistandi Á markaðnum fást bestu afurðir á Ítalíu.
Sælkeraparadísin Eataly
Nýjasta skrautfjöðurin í matarhatt Tórínóborgar er
Eataly. Um er að ræða stærsta matvæla- og vínmark-
að í heimi. Hanna Friðriksdóttir brá sér í heimsókn.
Ljósmynd/ Hanna Friðriksdóttir
Að snæðingi Allir sitja við sama borð á Eataly.
Lesið meira á heimasíðum Eataly
(síðurnar eru enn bara á ítölsku,
en munu verða þýddar og þess má
geta að til stendur að opna útibú
Eataly m.a. í New York).
www.eataly.it
www.eataliytorino.it
Bloggsíða sem segir frá Tórínó í
máli og myndum og þ. á m. Eataly.
http://torinodailyphoto.blogs-
pot.com/2007_02_01_arc-
hive.html
Orlando Homes For Sale
If you have ever considered buying a home in Florida,
Now is the time!
Don't miss the opportunity to purchase a home in this great buyer's
market... it won't last forever! If you are visiting Orlando this spring,
call or email Meredith Mahn for an appointment to see some of these
outstanding resort communities.
Now through May 31, 2007, receive 1% cash back
on all new home purchases!
For more information, visit us at:
www.LIVINFL.com
Domus Pro Inc. Vacation Home Sales Division
001-321-438-5566
Vika á Spáni
13.200 kr. - ótakmarkaður akstur, kaskó, þjófavörn, flugvallargjald og skattar.
Huyndai Getz eða sambærilegur
522 44 00 • www.hertz.is
frá
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
3
69
19
0
4/
07
Bókaðu bílinn heima fyrir 1.maí
- og fáðu 1.000 Vildarpunkta
Kæru landar
Óskum ykkur gleðilegra páska og
hlökkum til að sjá ykkur í sumar.
Helga Þóra Eder og fjölskylda.