Morgunblaðið - 05.04.2007, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.04.2007, Qupperneq 34
34 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐANdaglegt líf Leikskólabörn í Hafnarfirðihéldu sérstakan íþrótta-dag í fyrradag og fengu tilþess aðgang að öllum íþróttahúsum bæjarins. Dreifðu leikskólarnir sér á íþróttahúsin og stunduðu holla hreyfingu frá dag- málum til nónbils. Íþróttahátíðin var haldin með svipuðu sniði í fyrra í fyrsta skipti og þótti takast það vel að sjálfsagt þótti að endurtaka leikinn þetta árið. Settar voru upp sérstakar þrauta- brautir og skipulagðir leikir af ýmsu tagi, en hugmyndin sprettur upp samhliða vakningu leikskólastigsins um holla lífshætti barna. Alls tóku 1.400 börn af 14 leik- skólum Hafnarfjarðar þátt í hátíð- inni og komu foreldrar sumra barna til að fylgjast með. Morgunblaðið/Ásdís Gaman Krakkarnir fóru í marga skipulagða leiki og tóku þátt í ýmsum spennandi þrautum. Íþróttahátíð fyrir leik- skólabörnin í Hafnarfirði Margir Krakkarnir sem tóku þátt komu frá fjórtán leikskólum og voru um 1.400 talsins. Dugleg Stúlkan fer auðsjáanlega létt með þessa þraut. Þuríður Björg Þorgrímsdóttir | 4. apríl Heppin! ÉG ER mjög heppin kona. Ég er í góðu sambandi við fjöl- skylduna. Ég fékk tækifæri til að mennta mig og notaði það. Ég er í öruggu starfi. Launin gætu að vísu verið hærri, en ég lifi af og hef jafnvel efni á að fara til út- landa af og til. Efnislega skortir mig ekkert. Til þess þarf ég að vísu að vinna eins og þræll. Ég á hús, því ég var svo heppin að hin íbúðin í gamla timburhúsinu þar sem ég keypti fyrst íbúð losnaði á réttum tíma. Ég var heppin að þá voru vextir á hús- næðislánum í lágmarki. Ég var líka heppin að ættingjar mínir gátu að- stoðað mig fjárhagslega. Ég á sjö ára gamlan, heilbrigðan son. Heppin þar. En ég á ekki mann. Óheppin. Meira: thuridurbjorg.blog.is Víðsvegar um heim gæðir fólk sér á súkkulaði á páskunum. „Níu af hverj- um tíu segja að þeir elski súkkulaði. Sá tíundi lýgur einfaldlega“, segir Guido Gobino þar sem hann stimplar og pakkar inn Tourinot súkkulaðinu sem búið er til á Ítalíu. Sætindin eru búin til úr hreinu kakói, sykri, vanillu og heslihnetum og þykja mikið lost- æti. Sala á góðu, dökku súkkulaði hefur aukist gífurlega og Guido Gobino hafði í nógu að snúast nú fyrir páskana við að anna eftirspurn vand- látra viðskiptavini víðsvegar um heim. Súkkulaðitími framundan Gott Hjá konfektgerðinni Felicitas eru páskakanínurnar handgerðar og í hverja kanínu fara um tvö kíló af súkkulaði. Benedikt S. Lafleur | 4. apríl Myndun regnhlífarsam- taka þverpólitískra framfaraafla UNDANFARIN misseri hafa ýmsir þjóðfélagshópar sam- einast í óánægju sinni í garð íslenskra vald- hafa. Ólíkt því sem áð- ur var beinist óánægj- an í dag ekki eingöngu gegn stefnu stjórn- valda í efnahagsmálum, heldur að þeirri brotalöm sem hefur orðið á lýðræðislegri hefð Íslendinga, æva- fornri virðingu landans fyrir náttúr- unnar helgi og ræktun friðsællar ut- anríkisstefnu. Meira: lafleur.blog.is Gísli Hvanndal Jakobsson | 4. apríl Sorglegur og hættu- legur leiðtogi MÁLSHÁTTURINN „Betra er seint en aldr- ei“ á ekki við í dag þeg- ar talað er um George W. Bush forseta Bandaríkjanna. Það sem heimsbyggðin hef- ur talað um og vitað í nokkur ár hef- ur George W.Bush loksins við- urkennt að hluta til, fyrir heiminum. Það er mjög sorglegt að heyra hr. Bush nú fyrst viðurkenna mistök sín og þá miklu óreiðu og ringulreið sem hefur skapast í Írak. Meira: gislihvanndal.blog.is Sigurður J. Hafberg og Valgeir Ólafsson | 3. apríl Opið bréf til Hafnfirðinga KÆRU Hafnfirðingar! Erindið er að kanna hug ykkar til þess hvort og þá hvernig við Flateyringar gætum átt samleið með ykkur í næstu fram- tíð. Forsagan er sú, að við Flateyr- ingar tókum þá frjálsu ákvörðun um mitt ár 1996 að ganga til samein- ingar við sveitarfélögin Ísafjarð- arkaupstað, Suðureyrarhrepp, Þing- eyrarhrepp, Mýrahrepp og Mosvallahrepp. Sameiningin var gerð í þeirri góðu trú, að hún yrði öllum til góðs í stærri og sterkari heild. En – því miður er málum þannig háttað nú um stundir, að nú- verandi stjórnendur sveitarfélagsins eru margir þeirrar skoðunar, að til þess að halda sjó skuli gripið til þess örþrifaráðs að herða ólina á jað- arbyggðunum. Meira: sigurdurhafberg.blog.is Jakob Björnsson | 4. apríl Er baráttan við gróð- urhúsavána ekki al- mannahags- munir? Á FORSÍÐU Morg- unblaðsins 23. febrúar s.l. er haft eftir um- hverfisráðherra að hann „gæti ekki séð að samfélagsleg nauðsyn eða almannahagsmunir kölluðu á eignarnám vegna virkjana í neðri hluta Þjórsár“. Og eftir ein- um þingmanni Sjálfstæðisflokksins er haft um sama málefni: „Það kalla engin almannaheill á það þótt ein- hvern tíma hafi menn talið það í upp- hafi rafvæðingar á Íslandi“. Meira: jakobbjornsson.blog.is Netgreinar á blog.is er vettvangur fyrir aðsendar greinar. Morg- unblaðið áskilur sér rétt til þess að vista innsendar greinar á þessu svæði, undir nafni greinahöfunda, hafi ekki tekist að birta greinarnar í blaðinu vegna plássleysis innan tveggja vikna frá því þær voru sendar. Netgreinar - Umræðan á blog.is Önundur Ásgeirsson | 3. apríl Tilvísunarkerfið ÞEIR sem enn muna millistríðsárin geta minnst þess að skopblaðið Spegillinn birt þá mynd af strák að elta kött með skýr- ingunni: „Mamma barði pabba og pabbi barði mig en bíddu bara þangað til eg næ í köttinn.“ Það er ekkert nýtt að skopast sé að framkvæmd lýðræðisins á Íslandi. Nýlegt dæmi er að Davíð tilnefndi Halldór sem síðan tilnefndi Geir Haarde sem síðan tilnefndi Valgerði og Jón Sigurðsson sem síðan hefir mótmælalaust og í framhjáhlaupi tekið sæti á Alþingi. Hann á þó eftir að sanna sig í kosningunum í vor. Meira: onundurasgeirsson.blog.is Ingólfur Sigurðsson | 3. apríl Að eiga andrá ÞEGAR karl og kona hittast fyrsta sinni eiga sér oft stað frumtengzl, þegar hrif eru til staðar. Sumir hafa talað um það að íslenzkuna skorti lýsingarorð og nafnorð fyrir þessi hrif og frumkynni, en þó hygg ég ekki svo vera. Rétt er að rifja upp ýmis hugtök og einnig eru hér ný- yrði nokkur. Meira: ingolfursigurdsson.blog.is Rúnar Kristjánsson | 3. apríl Að lenda í þessu! NOKKUÐ hefur borið á því að þeg- ar menn hafa farið illi- lega út af sporinu og gleymt löglegum að- ferðum við að koma málum sínum fram, sé talað um það sem eitt- hvað sem viðkomandi hafi lent í, sennilega þá fyrir slysni! Meira: undirborginni.blog.is Skúli Magnússon | 3. apríl Ál eða fiskur? NÝLEGA hef ég verið að lesa bók um stjórnmálasögu Egyptalands: Egypt – politics and Society 1945–1984. Hún kom út hálfum öðrum ára- tug eftir að Aswan- virkjunin var fullgerð. Þar er fjallað um ávinning og fórn- arkostnað af þeirri stóru fram- kvæmd. Egyptar fengu frá henni rafmagn sem full þörf var fyrir, en það fylgdi böggull skammrifi. Fram- burður Nílar sest nú fyrir á botni uppistöðulónsins sem frjóvgar nú ekki lengur akurlendi Nílardalsins. Meira: skulimagnusson.blog.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.