Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 38

Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Hinn 25. mars sl. voru liðin 50 ár frá undirritun Rómarsáttmálanna sem lögðu grunn að Efnahags- bandalagi Evrópu og síðar Evrópu- sambandinu eins og við þekkjum það í dag. Almenningur, einkum á Norðurlöndunum, setur ESB oftast í samhengi við efna- hagslegan samruna. Meginskýringin er ef- laust sá árangur sem náðst hefur með því að koma á fót sameig- inlegum innri markaði og með upptöku evru. Á einungis þremur áratugum höfðu Evr- ópubúar orðið vitni að eyðileggingu og hörm- ungum tveggja heims- styrjalda. Forvíg- ismenn Evrópusamrunans voru ákveðnir í að koma á fyrirkomulagi þar sem ákvarðanir um framleiðslu á kolum og stáli, sem áður var undirstaða hergagna- framleiðslu, yrðu tekn- ar sameiginlega. Efna- hagslegur samruni var leið til að ná pólitískum markmiðum um frið, stöðugleika og virðingu fyr- ir mannréttindum í álfunni allri. Þannig hefur Evrópusambandið einnig átt stóran þátt í að festa lýð- ræði í sessi í þeim ríkjum Suður- og Austur-Evrópu sem áður bjuggu við einræði en í dag eru meðlimir í ESB. Íslendingar þekkja vel til innri markaðarins en grunnurinn að hon- um var lagður með Rómarsáttmál- unum. Það kom hins vegar fljótt í ljós að reglugerðir og staðlar í aðild- arríkjunum komu í veg fyrir að frelsi í fólksflutningum, þjónustu- starfsemi, fjármagns- og vöruflutn- ingum næði fram að ganga. ESB ákvað því árið 1985 að hrinda í fram- kvæmd metnaðarfullum kerf- isbreytingum til að ryðja úr vegi þessum hindrunum. Með breyt- ingum á stofnsáttmálum ESB var sambandinu gert kleift að taka ákvarðanir með auknum meirihluta í stað einróma samþykkis. Annar stór áfangi í sögu sam- bandsins var innleiðing sameig- inlegs gjaldmiðils. Árangur af upp- töku evrunnar hefur verið mikill en er oft vanmetinn. Afraksturinn hef- ur ekki einungis skilað sér til al- mennings sem sífellt ferðast meir, heldur einnig aukið stöðugleika í rekstrarumhverfi fyrirtækja. Án þess stöðugleika hefði ríkjum Evr- ópu gengið erfiðar að fást við áskor- anir hnattvæðingarinnar. Aukið samstarf í utanríkis- og öryggismálum Fyrir 15 til 20 árum hefði það þótt óskhyggja að ESB yrði í náinni framtíð mikilvægur gerandi í utan- ríkis- og öryggismálum. Samt sem áður hefur ESB í æ ríkara mæli tal- að einni röddu á alþjóðavettvangi. Í umdeildum stjórnarskrársáttmála, sem líklegt er að verði lagður fram í breyttri mynd á árinu 2009, var gert ráð fyrir að ESB hefði eigin „utan- ríkisráðherra“, þar sem störf fram- kvæmdastjóra utanríkismála og talsmanns ESB í utanríkis- og ör- yggismálum rynnu saman í eitt. Ásýnd ESB yrði þá skýrari og sýni- legri á alþjóðavettvangi. Öryggishugtakið hefur á und- anförnum árum fengið breiðari merkingu samfara nýjum og breyttum ógnum. Hættur sem stafa af hryðjuverkum, man- sali og ólöglegum inn- flytjendum hafa leitt til þess að samstarf á sviði innanríkis- og dómsmála hefur verið sett á oddinn. ESB fæst einnig við hættur sem eiga rætur að rekja til fátæktar (ESB er stærsti veit- andi þróunaraðstoðar í heiminum), umhverf- ismengunar, loftslags- breytinga og alvar- legra farsótta. Auk þess hefur ESB komið á fót 15 smærri her- deildum sem hægt er að senda með litlum fyrirvara til að stilla til friðar á átakasvæðum. Fyrirmynd að samstarfi á öðr- um svæðum í heiminum? Öryggisnálgun ESB, sem byggist að miklu leyti á jákvæðri hvatningu til að koma á breytingum („mjúkt vald“), hefur orðið ríkjum á öðrum svæðum í heiminum fyrirmynd að svæðabundnu samstarfi. Afríku- sambandinu svipar til ESB hvað varðar sameiginlegar stofnanir og pólitísk markmið. Í Rómönsku Am- eríku og Suðaustur-Asíu hafa einnig verið gerðar tilraunir til að fara svipaðar leiðir og ESB hefur farið. Það er augljóst að á ólíkum svæðum henta ólíkar lausnir en efnahagsleg og pólitísk grundvallarmarkmið ESB eiga erindi alls staðar. Að bregðast við stærstu áskoruninni Á leiðtogafundi ESB um miðjan mars náðu aðildarríkin sögulegu samkomulagi um aðgerðir til að tak- marka losun gróðurhúsaloftteg- unda. Með samkomulaginu hefur ESB tekið forystu á alþjóðavett- vangi í þessum mikilvæga mála- flokki. Samkomulagið felur í sér lagalegar skuldbindingar sem munu krefjast fórna. Ég er þess fullviss að sú stefna mun skila árangri, því fólk veit að það eru engar einfaldar lausnir á svo flóknu vandamáli og það væntir þess að ESB sé metn- aðargjarnt og skipi sér í forystu- sveit. Ísland og ESB Leiðir Íslands og ESB liggja sam- an á mörgum sviðum og einkum í gegnum EES-samninginn en hann tryggir Íslandi aðild að innri mark- aði ESB. Ísland hefur einnig smátt og smátt gerst þátttakandi á öðrum samstarfssviðum ESB, t.d. á sviði innanríkis- og dómsmála með aðild að Schengen-samkomulaginu. Í ný- útkominni skýrslu Evrópunefndar er bent á ýmsar gagnlegar leiðir til að styrkja samstarf Íslands og ESB enn frekar. Á Íslandi virðast menn almennt sammála um að EES- samningurinn hafi haft mjög jákvæð áhrif á efnahagsþróun í landinu. Þó svo Ísland sé ekki aðili að ESB, þá er það án efa hluti af „stór- fjölskyldu“ Evrópusambandsins, ásamt hinum EFTA-ríkjunum. Þess vegna tel ég að Íslendingar hafi einnig tilefni til að gleðjast á 50 ára afmæli Rómarsáttmálans. Sögulegt samstarf í 50 ár Percy Westerlund skrifar um 50 ára afmæli Rómarsátt- málans » Pólitísktsamstarf er byggt á efna- hagslegum sam- runa. Percy Westerlund. Höfundur er framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi. STARF sem dagforeldri í heima- húsum felur í sér spennandi og krefjandi verkefni með litlum börn- um. Til að gerast dagforeldri þarf viðkomandi að hafa ríka ábyrgðartilfinn- ingu og geta veitt börnum góða umönn- un, öryggi og hlýju. Dagforeldrar þurfa ekki að hafa aðra menntun en grunn- námskeið fyrir dag- foreldra og taka þátt í skyndihjálp- arnámskeiðum og öðrum námskeiðum og fræðslu sem boðið er upp á hverju sinni. Dagforeldrar starfa sem sjálfstæðir verk- takar en starfsleyfi og eftirlit er í höndum bæjarfélaga. Dagfor- eldrar sinna verkefni sem hefur mikla sam- félagslega þýðingu og því mikilvægt fyrir bæjarfélög að styðja vel við starfsemina. Aðstöðugreiðslur Í Garðabæ hefur bæjarráð Garðabæjar samþykkt að greiða dagforeldrum fjárhæð til þess að bæta að- stöðu á heimilum dagforeldra með tilliti til þarfa og öryggis þeirra barna sem þeir vista. Um er að ræða eingreiðslu sem greidd er við leyfisveitingu. Bæjarstjórn Garða- bæjar ákveður fjárhæð hverju sinni að fenginni tillögu leikskóla- nefndar. Árið 2007 eru greiddar kr. 50.000 með hverju barni. Greiðsla til starfandi dagforeldra er háð út- tekt Forvarnahúss og daggæslu- fulltrúa en Garðabær hefur samið við Forvarnahús um áhættuskoðun á heimilum dagforeldra og næsta nágrenni þess. Heimilin verða skoðuð ítarlega samkvæmt þar til gerðum gátlista, kannað verður hvort að eldvarnir séu í lagi, sjúkra- kassar og öryggisferlar verða skoð- aðir og kannað verður hvort að ör- yggi sé í lagi á lóðum dagforeldra. Skilyrði fyrir greiðslu aðstöð- ugreiðslna til dagforeldra er að hlutaðeigandi dagforeldri hafi leyfi til daggæslu barna í heimahúsi og að dag- foreldrið starfi að lág- marki í eitt ár eftir að greiðsla fer fram. Gert er ráð fyrir að greiðsl- an renni til þeirrar að- stöðu sem unnið er í. Þjónustusamningur Í Garðabæ hefur verið gerður þjónustu- samningur milli dag- foreldra, foreldra og bæjarfélagsins. For- sendur hans eru þær að gera dvöl barna hjá dagforeldrum að raun- hæfum valkosti fyrir ung börn. Vistun hjá dagforeldri eða vistun í leikskóla eru ólíkir kostir en aðeins með því að jafna kostnað foreldra getur þjón- usta dagforeldra orðið raunverulegur kostur við leikskóla. Því var ákveðið að ganga út frá því að foreldrar greiði sömu upphæð fyrir vistun barns hjá dag- foreldri og fyrir vistun barns í leikskóla. Foreldrar geta þannig valið þann kost sem þeir telja að henti sínu barni best óháð kostnaði. Í reglum um greiðslur vegna barna úr Garðabæ sem eru í daggæslu í heimahúsum er gefin upp hámarksupphæð sem Garða- bær greiðir fyrir 4–8 stunda vistun, einnig er gefið upp hámarksgjald hjá dagforeldrum fyrir 4–8 stunda vistun. Fari mánaðargjald hjá dag- foreldri upp fyrir það hámark, sem upp er gefið, fellur samningurinn úr gildi. Ár er síðan þjónustusamn- ingur þessi tók gildi í Garðabæ og ánægjulegt er að sátt náðist strax við dagforeldra í bænum, um að starfa samkvæmt honum. Það kem- ur öllum hlutaðeigandi til góða. Fræðsla Í Garðabæ hafa dagforeldrar fengið starfsdaga til jafns á við þá starfsdaga sem teknir eru í leik- skólum. Eru þeir nýttir til símennt- unar og til skipulags á starfinu. Félag foreldra með börn í dag- gæslu hjá dagforeldrum. Í haust stendur til að stofna félag þeirra foreldra í Garðabæ sem vista börn sín hjá dagforeldrum og fær fulltrúi þeirra sæti í leikskólanefnd sem áheyrnarfulltrúi. Spennandi starf Starf sem dagforeldri í heima- húsum felur í sér spennandi og krefjandi verkefni með litlum börn- um. Um 92% þeirra sem svöruðu könnun um viðhorf sitt til dagvist- unar barna hjá dagforeldrum í Garðabæ segjast annaðhvort vera ánægð eða mjög ánægð með vistina. En það vantar fleiri dagfor- eldra til starfa í Garðabæ. Garða- bær býður upp á gott starfsum- hverfi fyrir dagforeldra. Greitt er fyrir grunnnámskeið, dagforeldrum er veittur frír aðgangur að leik- fangasafni og geta m.a. fengið þar lánaðar fjölburakerrur og mat- arstóla. Einnig er dagforeldrum veittur aðgangur og afnot af gæslu- velli í Garðabæ. Verið er að þróa samstarf við leikskóla í Garðabæ, m.a. með því að bjóða dagforeldra velkomna á lóð leikskóla með börn- in sín. Í Garðabæ er mikil virðing borin fyrir starfi dagforeldra og teljum við mikilvægt að foreldrar yngstu barnanna eigi raunhæft val á milli daggæslu í heimahúsum sem er studd og styrkt af sveitarfélaginu og góðra leikskóla. Það hentar mörgum ungum börnum vel að vera á leikskóla í stærri hópum en öðr- um betur að vera í 4–5 barna hópi í heimilislegu umhverfi og þess vegna er mikilvægt að eiga val. Notalegur dagur hjá dagforeldrum Hulda Ósk Gränz fjallar um dagvistunarmál í Garðabæ Hulda Ósk Gränz » Í Garðabæ fádagforeldrar styrk til að bæta aðstöðu sína til gæslu barna. Foreldrar greiða sömu upphæð fyrir vistun hjá dag- foreldri og leik- skóla. Höfundur er daggæslufulltrúi í Garðabæ. Í nýlegri skoðanakönnun Frétta- blaðsins kom fram að velferð- armálin voru talin mikilvægust af sex málefnum sem fólk var beðið að gefa einkunn. Þetta kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Áhugi fólks á velferð- armálum er mikill og í komandi kosningum munu fjölmargir kjósa þann stjórnmálaflokk sem vill setja þennan málaflokk á oddinn. Það er vissulega erfitt að segja að einn mála- flokkur sé mikilvægari en annar. Hitt er víst að eigi fólk við vandamál að stríða, félagsleg, persónuleg eða vandamál sem tengjast fjölskyldunni á einhvern hátt þá hefur sú vanlíðan sem af því leiðir margföldunaráhrif. Almenn grunnvelferð einstaklings og fjöl- skyldu er undirstaða þess að hægt sé að njóta alls þess góða sem okkar þjóðfélag býður að öllu jöfnu upp á. Velferðarmál hafa skipt Sjálf- stæðisflokkinn máli eins og aðra stjórnmálaflokka. Það má best sjá ef litið er til umbóta undanfarinna ára. En af nógu er að taka. Um leið og einn anginn hefur verið lagaður og breytt til hins betra bíður sá næsti. Hugmyndafræðin sem mér finnst mest heillandi þegar kemur að þessum málaflokki er sú að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft. Að gefa fólki þau „tæki og tól“ sem það þarf til að takast á við og leysa sín eigin mál. Hornsteinn slíkrar hug- myndafræði er fræðsla. Ekki dugir að einskorða fræðslu við skóla og skólagöngu. Þótt megnið af ung- mennum fari í framhaldsskóla og háskóla er einnig dá- góður hópur sem af einhverjum ástæðum kýs að fara aðrar leið- ir. Það er heldur ekki sjálfgefið að allir eigi þess kost að alast upp með sterkar og já- kvæðar fyrirmyndir að leiðarljósi. Sú fræðsla sem ég tel að nýtist einna best samfélaginu í heild er hrein og klár fjölskyldufræðsla. Slík fræðsla felur í sér fræðslu um uppeldis- og samskiptamál til verðandi for- eldra og til foreldra barna og ung- linga. Fjölskyldan er eins og hvert annað fyrirtæki sem eðlilegt er að maður þurfi að læra að reka eigi það að skila hagnaði. Því fyrr sem foreldrar kynna sér almenna upp- eldistækni og hver kjarni góðra samskipta er, því betra. Eins og staðan er núna kvarta sumir for- eldrar yfir því að þeir viti ekki hvert þeir eigi að leita til að fá svör við spurningum og vangaveltum þessu tengdum. Skólasálfræðingar gera sitt besta til að sinna þroska- greiningum, aðstoða við agavanda- mál í bekk og leiðbeina foreldrum. Málefnafjöldi sérhvers skólasál- fræðings telur oft á tíðum hundruð barna. Það segir sig því sjálft að skólasálfræðingar geta ekki annað öllum fyrirspurnum og beiðnum. Það sama má segja um fé- lagsráðgjafa barnaverndar og fé- lagsþjónustunnar. Þeir hafa venju- lega nóg á sinni könnu. Ættu þeir jafnframt að afgreiða alla þá for- eldra sem þarfnast fræðslu í upp- eldismálum er ekki víst að þeir næðu að sinna lögbundnum verk- efnum sínum. Eftir stendur þá að leita til sjálfstætt starfandi fagaðila. Sú leið er þó heldur ekki nægj- anlega greið eins og stendur. Sál- fræðinga skortir sumstaðar úti á landsbyggðinni. Síðan er það hið gamla vandamál að sálfræðiþjón- usta utan stofnana er ekki nið- urgreidd af hinu opinbera trygg- ingakerfi eins og tíðkast hefur hjá mörgum öðrum heilbrigðisstéttum s.s. geðlæknum. Loks má nefna að ýmis námskeið hafa verið sett á laggirnar sem sannarlega hafa kom- ið mörgum vel sem þau hafa sótt. Að mörgu er að hyggja í þessu efni. Miklu máli skiptir að foreldrar og fjölskyldur hafi greiðan aðgang að fagfólki án tillits til efnahags og búsetu og geti á öllum tímaskeiðum barna sinna sótt sér markvissa fræðslu og þjálfun í uppeldis- og samskiptafræðum. Takist vel til er hér um að ræða ódýra leið til að styrkja forvarnir. Útkoman er aukning á fjölskylduhagnaði. Fjölskyldan og arðsemi hennar Kolbrún Baldursdóttir skrifar um velferðarmálin »Hugmyndafræðinsem mér finnst mest heillandi þegar kemur að þessum málaflokki er sú að hjálpa fólki til að hjálpa sér sjálft. Kolbrún Baldursdóttir Höfundur er sálfræðingur.                           

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.