Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Halldóra Jóns-dóttir fæddist á
Ólafsfirði 17. ágúst
1924. Hún andaðist
á Sjúkrahúsi Vest-
mannaeyja 28. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Margrét Sigurð-
ardóttir og Jón
Friðrik Bergsson.
Þau eignuðust tíu
börn og eru þau öll
látin.
Halldóra giftist
árið 1950 Halldóri
Jóni Jónssyni, d. 26. september
1999. Þau eignuðust þrjár dætur,
þær eru: Margrét Jóna, gift Þor-
bergi Ólafssyni, þau eiga þrjá syni
og fjögur barna-
börn, Ólöf Þórey,
gift Einari Sigurðs-
syni, þau eiga þrjú
börn og þrjú barna-
börn, og Eyja Þor-
steina, gift Finn-
boga Halldórssyni,
þau eiga þrjú börn
og sex barnabörn.
Halldóra fluttist
frá Ólafsfirði til
Vestmannaeyja árið
1947 og bjó í Vest-
mannaeyjum allan
sinn búskap.
Útför Halldóru verður gerð frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 7. apríl og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Mig langar að minnast hennar
Höllu, ömmu minnar, í nokkrum orð-
um nú þegar hún er fallin frá.
Um 10 ára aldurinn fóru sumir
skólabræður mínir í sveit en ég naut
þeirra forréttinda að fá að fara til
Vestmannaeyja part úr sumir til
ömmu, afa og Bergs frænda.
Þar átti ég ógleymanlega tíma þar
sem ég hafði nóg að gera alla daga,
æfði fótbolta með Tý, fór að veiða, og
eyddi mörgum dögum sem sérlegur
aðstoðarmaður afa í sundlauginni
þar sem vinnudagurinn endaði ávallt
með bryggjurúnti áður en við mætt-
um heim til ömmu í heimsins besta te
og ristað brauð og kannski kíktum í
nammiboxið sem amma geymdi uppi
í skáp.
Eina skemmtilega sögu man ég
sem gerðist þegar amma var í
Reykjavík og kom að heimsækja
okkur Mögnu í Grafarvoginn og
þurfti til þess að ganga upp á 3. hæð.
Þegar hún var komin upp spurði ég
hana hvort hún væri ekki þreytt eftir
gönguna svaraði hún 80 ára gömul
„þetta var ekkert mál,“ og brosti.
Svona minnist ég ömmu, blíðrar
og góðrar og með lúmskan húmor.
Amma var síðastliðin jól og ára-
mót um mánaðarskeið hér í Reykja-
vík og hittumst við þá oft og vorum
saman yfir hátíðarnar, nú er maður
þakklátur fyrir þann tíma. Sérstak-
lega minnist ég sl. nýársdagsmorg-
uns þegar við sátum saman í stofunni
í Stekkjarselinu, ég og amma ásamt
börnum mínum Margréti og Arnari
og spjölluðum um alla heima og
geima og ég myndaði ykkur í bak og
fyrir, ógleymanleg stund.
Ég kveð þig núna, elsku amma
mín, minningin um þig mun lifa með
okkur um ókomna tíma.
Takk fyrir allt.
Elmar Þorbergsson.
Elsku Halla mín.
Þú varst alltaf jafn glæsileg kona,
þú varst frábær og góð frænka. Ég
er mjög þakklát fyrir það að hafa átt
þig sem frænku, gæti ekki hugsað
mér betri frænku en þig.
Mig langar svo að þakka þér fyrir
að hafa alltaf tekið svona vel á móti
mér og við fjölskylduna mína.
Ég man eftir því þegar ég var lítil
stelpa að það var svo gaman að heim-
sækja þig. Á svo margar góðar minn-
ingar um þig, þær minningar munu
alltaf verða til og ég mun varðveita
þær. Ég man alltaf eftir því þegar ég
fór með Hólmfríði ömmu að heim-
sækja ykkur. Amma bað mig um að
halda á blómunum í flugvélinni. Mér
fannst svo asnalegt að þurfa að fara
með blómin í flugvélina. Skildi ekki
alveg út af hverju við keyptum bara
ekki blómin þar sem þú áttir heima.
Ég var svo lítil að ég vissi ekki betur,
að það var engin blómabúð þar sem
þú bjóst. Það er líka ein minning sem
er erfitt að gleyma. Það var þegar ég
var hjá ykkur og gisti þar uppi í her-
bergi. Þá vaknaði ég um miðja nótt
og ég var dreginn að glugganum til
þess að sýna mér eldgosið. Mér
fannst þetta mjög fallegt en síðan
áttaði ég mig á því hvað þetta var. Þá
var allt í einu komið eldgos og við
þurftum öll að flýja. Það var mjög
sárt að sjá ykkur missa húsið og allt
eyðilagt. Það var svo gaman að sjá
hvað þið voru dugleg að byggja allt
upp á nýtt. Það hefur örugglega ver-
ið mjög erfitt að missa allt, bæði sorg
og gleði. Hvíldu í friði.
Ég sakna þín og hugsa oft til þín.
Ég votta ykkur öllum samúð mína.
Kveðja, frænka.
Jóna Pálsdóttir.
Halldóra Jónsdóttir
✝ Steinunn Sess-elja Steinþórs-
dótti fæddist 29.
mars 1921. Hún
andaðist 25. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Steinþór Pálsson, f.
1882, d. 1937, og
Sveinbjörg Péturs-
dóttir, frá Helgu-
gerði á Húsavík, f.
1895, d. 1963. Al-
systkini Steinunnar
eru Þórhallur, f. á
Hermundarfelli í
Þistilfirði 1914, d. 1986, og Frið-
björg, f. í Flögu í Þistilfirði 1917.
Sammæðra eru Lilja Kristjáns-
dóttir, f. á Hermundarfelli í Þist-
ilfirði 1929, Fjóla Kristjánsdóttir,
f. á Þórshöfn 1931, d. 1975, og
Pálmi Kristjánsson, f. í Hvammi í
Þistilfirði 1933, d. 1997. Steinunn
ólst upp á Hermundarfelli í Þist-
ilfirði hjá móður sinni til 8 ára
aldurs. Þá flutti hún að Hóli við
Raufarhöfn og dvaldi þar hjá föð-
ur sínum í 2 ár. Þá flutti hún aftur
að Hermundarfelli.
Eiginmaður Steinunnar var
Leó Jósepsson, f. í Fjallalækjaseli
í Þistilfirði 1913, d. 2000. Á fyrsta
ári flutti hann með
foreldrum sínum að
Kúðá í sömu sveit
og ólst þar upp. Í
raun ólust þau upp
sem leiksystkin, því
stutt er á milli þess-
ara bæja í Þistilfirði
og hófust því kynni
þeirra á unga aldri.
Þau hófu búskap á
Ytra-Álandi í Þist-
ilfirði 1937. Þau
voru gefin saman á
Skeggjastöðum í
Bakkafirði 1939.
Vorið 1941 fluttu þau búferlum að
Kúðá. Árið 1946 fluttu þau í
Hagaland. 1949 fluttu þau enn og
nú í Svalbarðssel. Árið 1966
hættu þau hjón búskap og fluttu
til Þórshafnar.
Börn Steinunnar og Leós eru
Dóra Björk, f. 1938, Ólína Ingi-
björg, f. 1940,
Jósep, f. 1944, Friðbergur Þór,
f. 1946, Svandís, f. 1948, Lára, f.
1951, Björg, f. 1954, Hrönn, f.
1955, Steinunn, f. 1958 og Fjóla, f.
1959, d. 2005.
Útför Steinunnar var gerð frá
Þórshafnarkirkju 31. mars. Jarð-
sett var á Svalbarði.
Elsku amma, það voru sorglegar
fréttir sem ég fékk af þér á sunnu-
dagsmorgun, ekki trúði ég því að
þú yrðir tekin frá okkur svona
fljótt. Þegar ég hitti þig síðast, sem
var 30. desember síðastliðinn,
varstu hress, sagðir að þér liði vel
og hefðir ekki yfir neinu að kvarta.
Mikið er ég fegin að ég loksins kom
að heimsækja þig, ég kom alltof
sjaldan og ekki var nú löng leiðin á
milli okkar.
Ég á margar góðar minningar frá
því að ég var lítil stelpa og kom í
heimsókn til þín og afa. Oftast lá afi
í sófanum að lesa ástarsögur eða
reykja pípu, ef hann var þá ekki að
prjóna sokka eða vettlinga. Þú sast
oft í stólnum á móti afa með handa-
vinnuna þína ef þú varst þá ekki í
eldhúsinu að steikja kleinur eða
baka pönnukökur, þú bjóst til bestu
kleinurnar. Partur af undirbúningi
jólanna var að koma til ykkar og
bretta upp á laufabrauð. Þá vorum
við barnabörnin oft í keppni um
hver gæti skorið nafnið hans afa
best út í laufabrauðsköku og afi
hafði gaman af. Ég veit að nú ert þú
komin til afa og Fjólu og ert á góð-
um stað. Ég sagði við Áslaugu Dóru
að nú væri Steina amma hjá guði og
englunum hans, hún taldi að vind-
urinn hefði farið með þig þangað.
En nú var þinn tími kominn, ég
mun hugga mig við góðar minn-
ingar um ykkur og kveð þig nú,
Hrafnhildur F. Ævarsdóttir.
Steinunn S.
Steinþórsdóttir ✝ Hafsteinn MárSigurðsson
fæddist í Reykjavík
18. maí 1940. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
mannaeyja föstu-
daginn 30. mars
síðastliðinn. Kjör-
foreldrar hans voru
Þórey Sigurð-
ardóttir, f. 1. des-
ember 1909, d. 16.
maí 1968, og Sig-
urður Hafsteinn
Hreinsson, f. 26. júlí
1913, d. 24. febrúar
1975.
Eiginkona Hafsteins Más er
Ásta Aðalheiður Sigurbjörns-
dóttir, f. 5.1. 1940. Þau eiga þrjú
börn, þau eru: a) Sigurður Þór, f.
30.10. 1963, kvæntur Auði Karls-
lengst af í Vestmannaeyjum.
Fyrst í Bergholti, síðan í Höfða og
byggðu sér hús á Höfðavegi, síð-
ustu árin bjuggju þau í Folda-
hrauni. Lífsstarf Hafsteins Más
frá 13 ára aldri var sjómennska,
ýmist á bátum eða togurum. Báts-
maður varð hann 18 ára gamall á
síðutogurum. Hafsteinn eignaðist
bátinn Jökul 1967 ásamt Ólafi
Guðmundssyni en síðar keypti
Eiður Marinósson hlut Ólafs og
1978 eignaðist Hafsteinn Jökul
einn og gerði út til ársins 1991.
Eftir það gerði hann út smábát í 2
ár. Hafsteinn vann síðustu árin á
grafskipinu Vestmannaey eða þar
til hann þurfti að láta af störfum
vegna heilsubrests.
Útför Hafsteins Más verður
gerð frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum laugardaginn 7. apr-
íl og hefst athöfnin klukkan 10.30.
dóttur, f. 4.1. 1963,
þau eiga tvær dætur.
Fyrir átti Sigurður
tvær dætur. b) Sæ-
dís, f. 11.9. 1965, í
sambúð með Vilberg
Kristni Kjartanssyni,
f. 18.10. 1973, þau
eiga tvö börn. Fyrir
á Sædís fjögur börn.
c) Einar Oddberg, f.
4.10. 1967, kvæntur
Rut Hlíðdal Júl-
íusdóttur, f. 15.11.
1965, þau eiga tvo
syni. Fyrir átti Ásta
eina dóttur, Unni
Dagmar Kristjánsdóttur, f. 12.5.
1959. Hafsteinn Már og Ásta ólu
upp dóttur Sædísar, Hafdísi Ósk
Ólafsdóttur 25.7. 1983, frá 7 ára
aldri.
Ásta og Hafsteinn bjuggju
Mig langar minnast Hafsteins
mágs míns með örfáum orðum.
Þar sem þau bjuggu í Vestmanna-
eyjum, Hafsteinn og Ásta systir, var
ekki mikill samgangur á milli okkar,
en árið 1970 bjó ég hjá þeim í 2–3
mánuði, þannig að ég kynntist þeim
aðeins betur.
Hafsteinn var rólegur að eðlisfari
og ég held algjör andstæða systur
minnar svo þau hafa sennilega vegið
hvort annað upp.
Þau áttu hundinn Seppa og ég
man þegar ég var í heimsókn hjá
þeim einhvern tímann, þá eftir
kvöldmat, settist Hafsteinn í stólinn
sinn og hundurinn við hliðina á hon-
um eins og ævinlega. Ásta færði Haf-
steini kaffi og hundinum líka – það
mátti ekki gera upp á milli þeirra.
Ef ég hringdi til að spyrja frétta
og Hafsteinn svaraði, og ég spurði
hvað hann væri að gera, var svarið
oftast „Ég er svo latur, ég nenni ekki
neinu“, en rólegheitin kallaði hann
„leti“.
En hann var fljótur að hlaupa til
þegar einhvern vantaði hjálp eða að-
stoð. Þá var nú ekki „letinni“ fyrir að
fara.
Hafsteinn hafði mikið gaman af
tónlist og í veikindum hans fyrra
sendi Már, maðurinn minn, honum
blúsplötur sem hann bað um og
gladdist hann mjög yfir því.
Alltaf var stutt í gamanið hjá hon-
um, „Á ég að syngja fyrir þig?“ kom
oft hjá honum í lok símtala en stund-
um hafði ég ekki tíma til að hlusta á
hann, því miður.
Ég er viss um að hann er núna að
syngja fyrir alla ættingjana sem
horfnir eru yfir móðuna miklu en
þetta eru skemmtilegar minningar
sem ég á um hann.
Elsku Ásta systir, Siggi Þór, Sæ-
dís, Beggi og Hafdís, ég veit að þetta
eru erfiðir tímar en söknuðurinn
dvínar smátt og smátt en hverfur þó
aldrei. Ég sendi ykkur mínar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Fríða Einars.
Kæri vinur!
Á kveðjustund viljum við þakka
þér órofa vináttu í áratugi. Við biðj-
um Guð að styrkja Ástu, börnin þín
og ástvini alla.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem.)
Þó í okkar feðrafold
falli allt sem lifir,
enginn getur mokað mold
minningarnar yfir.
(Höf. ók.)
Kristín og Gísli.
Hafsteinn Már Sigurðsson
✝
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar
ástkæra
EIRÍKS M. ÞÓRÐARSONAR,
Fjarðarstræti 2,
Ísafirði.
Sá mikli samhugur og öll sú aðstoð sem okkur
hefur verið veitt verður seint fullþökkuð.
Guð blessi ykkur öll.
Pálína Þórarinsdóttir og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og jarðarför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
FJÓLU JÓNSDÓTTUR
frá Víganesi.
Sérstakar þakkir fær hjúkrunar- og starfsfólk
Skógarbæjar fyrir góða og kærleiksríka umönnun.
Guðbjörg Eiríksdóttir, Lýður Hallbertsson,
Jensína Guðrún Eiríksdóttir,
Sæunn Eiríksdóttir,
Jón Eiríksson, Guðrún Sigvaldadóttir,
Guðný Eiríksdóttir, Þorsteinn Ólafsson,
Sigrún Eiríksdóttir, Haraldur Tryggvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
FRIÐRIKU JÓHANNESDÓTTUR,
Háteigsvegi 28,
Reykjavík.
Þorkell Guðbrandsson, Magna Fríður Birnir,
Friðrik Kristján Guðbrandsson, Sóley Sesselja Bender,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upp-
lýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er ekki
unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar