Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 50

Morgunblaðið - 05.04.2007, Page 50
50 FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Í bókinni um „Skáldið frá Fagra- skógi“ út- gefinni 1965, má lesa um þann sérstæða at- burð sem lá að baki sálmsins. Það er sr. Pétur Sigurgeirsson biskup, sem þá var sóknarprestur á Ak- ureyri, sem fær skáldið til þess að leysa frá skjóðunni. Hann er í heimsókn hjá skáldinu og varpar fram spurn- ingunni um tilurð sálmsins. Og Davíð segir honum að að- eins einn maður hafi áður spurt sig og það hafi verið Ásgeir Ásgeirsson forseti. Látum nú skáldið tala: „Ég var þá í Nor- egi.“ Hann talar hægt og virðulega með áhersluþunga. „Það var á litlu hóteli skammt frá Ósló. Þetta var um páska- leytið. Á föstudaginn langa vor- um við, gestir hótelsins, stödd við dögurð að venju. Meðal gest- anna var móðir með barn, litla telpu, svo bæklaða, að hún gat ekki gengið. Við matborðið veitti ég því eftirtekt að telpan þrábað móður sína að fara með sér til kirkju. Mér fannst móðirin ekki gefa barninu þann gaum sem það átti skilið og var í þörf fyrir. Ég fann til með telpunni, kenndi í brjósti um hana. Ég gaf mig á tal við konuna og bauðst til að fara með barnið. Hjálp mín var vel þegin. Ég tók telpuna í fang mér og bar hana til kirkjunnar. Guðsþjónustan var látlaus og há- tíðleg. Þegar við komum aftur heim á hótelið dró ég mig í hlé – og sálmurinn „Ég kveiki á kert- um mínum“ varð til. Sr. Pétur var frá sér numinn af frásögninni. En skáldið heldur áfram: „Þeir hafa tekið nokkur erindi inn í sálmabókina. Það var of mikið að taka þau öll. Og mér líkar vel hvernig þeir hafa val- ið.“ Erindin eru 8 í ritsafni Davíðs Stefánssonar, Að norðan, og bera yfirskriftina: „Á föstudag- inn langa.“ Það eru erindin nr. 3, 4, og 5, sem hefur verið sleppt. Þau hljóða svo: Ég bíð uns birtir yfir og bjarminn roðar tind. Hvert barn, hvert ljóð sem lifir, skal lúta krossins mynd. Hann var og verður kysstur. Hann vermir kalda sál. Þitt líf og kvalir, Kristur er krossins þögla mál. Þú ert hinn góði gestur og guð á meðal vor, – og sá er bróðir bestur, sem blessar öll þín spor og hvorki silfri safnar né sverð í höndum ber, en öllu illu hafnar og aðeins fylgir þér. Þú einn vilt alla styðja og öllum sýna tryggð. Þú einn vilt alla biðja og öllum kenna dyggð. Þú einn vilt alla hvíla og öllum veita lið. Þú einn vilt öllum skýla og öllum gefa frið. Tónskáldum okkar hafa þótt kvæði Davíðs ljóðræn og vel fall- in til söngs. Þrjú íslensk tón- skáld hafa samið lög við sálminn sem hér er fjallað um: 1) Sig- valdi Kaldalóns, og er það lag í gömlu kirkjusöngsbókinni, 2) Páll Ísólfsson og 3) Guðrún Böðvarsdóttir. Lög Páls og Guð- rúnar eru í Viðbæti við kirkju- söngsbókina frá því um 1970. Sálmurinn er kominn í sálma- bókina frá 1954 og er þar nr. 174. Í sálmabókinni frá 1972 og þeirri nýju frá 1997 er hann nr. 143. Merkileg saga er að baki lags Guðrúnar, og fer hún hér á eftir: Guðrún Böðvarsdóttir (Dúna Böðvars) var dóttir séra Böðvars Bjarnasonar, prests á Hrafns- eyri við Arnarfjörð, og fyrri konu hans, Ragnhildar Teits- dóttur frá Ísafirði. Þegar for- eldrar hennar skildu flutti Guð- rún með móður sinni til Reykjavíkur. Tvo bræður átti hún, þá Ágúst og Bjarna. Allt var þetta mikið tónlistarfólk og er Bjarni þeirra þekktastur (Bjarni Bö). Þær mæðgur voru mjög samrýndar. Guðrún veikt- ist af berklum og milli þess sem hún var á Vífilsstöðum dvaldi hún heima hjá móður sinni og dó þar rúmlega þrítug að aldri. Nokkru eftir dauða hennar dreymir móður hennar að Guð- rún (Dúna) kemur til hennar og segir: „Mamma, ég var að semja lag.“ Svo syngur hún lagið fyrir mömmu sína. Er konan vaknaði dreif hún sig að píanóinu. Hún spilaði laglínuna nokkrum sinn- um til þess að festa sér hana í minni. Að því búnu náði hún í nótnapappír og skrifaði lagið nið- ur. Þetta er hið vinsæla lag: „Ég kveiki á kertum mínum.“ Frá- sögn þessa heyrði ég fyrir um 60 árum af vörum mágkonu minnar, Bryndísar Böðvarsdóttur, en hún var hálfsystir Guðrúnar Böðvarsdóttur. Golgata sigurdur.aegisson@kirkjan.is Einhver þekktasti og áhrifamesti sálmur okkar Íslendinga er „Ég kveiki á kertum mín- um“ eftir Davíð Stefánsson. Sigurður Ægisson fann sögu hans á vef ellimálanefndar þjóðkirkj- unnar, skráða af Guðrúnu Jörgensdóttur. HUGVEKJA STÆRÐFRÆÐIKEPPNI grunn- skólanemenda var haldin fyrir skömmu. Keppnin er í þremur stig- um, fyrir 8. bekk, 9. bekk og 10. bekk. Verðlaunaafhending fór fram á hátíðarsal Menntaskólans í Reykjavík. Nemendur í 10 efstu sætunum á hverju stigi fengu viðurkenning- arskjal frá skólanum. Þrír efstu fengu peningaverðlaun. Í 10 efstu sætunum í 8. bekk urðu: 1. Karl Þorláksson, Landakots- skóla. 2. Anton Geir Andersen, Hagaskóla. 3. Björn Orri Sæmundsson, Val- húsaskóla. 4. Sunnefa Gunnarsdóttir, Valhúsa- skóla. 5.–8. Jón Áskell Þorbjarnarson, Hagaskóla. 5.–8. Hildur Þóra Ólafsdóttir, Foldaskóla. 5.–8. Emil Hjaltason, Valhúsaskóla. 5.–8. Benedikt Blöndal, Austurbæj- arskóla. 9. Birta María Gísladóttir, Valhúsa- skóla. 10.–11. Jóhannes Bjarki Tómasson, Hagaskóla. 10.–11. Ásgeir Tómas Guðmunds- son, Háteigsskóla. Í 10 efstu sætunum í 9. bekk urðu: 1.–2. Sebastian Kristinsson, Haga- skóla. 1.–2. Auður Tinna Aðalbjarn- ardóttir, Hagaskóla. 3. Torfi Karl Ólafsson, Hagaskóla. 4. Valgerður Bjarnadóttir, Háteigs- skóla. 5.–6. Sigrún Hrönn Ólafsdóttir, Ár- bæjarskóla. 5.–6. Hólmfríður Hannesdóttir, Hagaskóla. 7. Sverrir Páll Sverrisson, Austur- bæjarskóla. 8.–9. Magnús Rúnar Hjartarson, Árbæjarskóla. 8.–9. Hallgerður Helga Þorsteins- dóttir, Hagaskóla. 10. Guðrún Elín Jóhannsdóttir, Há- teigsskóla. Í 10 efstu sætunum í 10. bekk urðu: 1. Paul Joseph Frigge, Landakots- skóla. 2. Hildur Hjörvar, Hagaskóla. 3. Áslaug Haraldsdóttir, Háteigs- skóla. 4. Daníel Kári Snorrason, Haga- skóla. 5. Ásgeir Valfells, Hlíðaskóla, 8. bekk. 6. Marta Ólafsdóttir, Árbæjarskóla. 7. Bergsteinn Már Gunnarsson, Há- teigsskóla. 8.–10. Trausti Einarsson, Landa- kotsskóla. 8.–10. Heiða Kristín Ragnarsdóttir, Valhúsaskóla. 8.–10. Haukur Barri Símonarson, Hlíðaskóla. Keppnin er haldin í samstarfi við Flensborgarskóla. Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis er fjár- hagslegur stuðningsaðili keppn- innar, og hann leggur til verðlauna- féð. Skólinn kann honum bestu þakkir fyrir, segir í tilkynningu. Morgunblaðið/ÞÖK Sigurvegarar Verðlaunaafhending að stærðfræðikeppninni lokinni fór fram í hátíðarsal MR. Stærðfræðikeppni meðal grunnskólanemenda Röng mynd LEIFUR Þorsteinsson, Nausta- bryggju 32, Reykjavík, ritaði net- grein á blog.is, lth.blog.is, og birtist útdráttur úr greininni í blaðinu í gær. Þau mistök áttu sér stað að mynd af alnafna hans, Leifi Þor- steinssyni líffræðingi, var birt með útdrættinum í blaðinu. Morgunblaðið biður hlutaðeigandi velvirðingar á mistökunum. Rangt föðurnafn Í Digraneskirkju á páskadag syngur Auður Guðjohnsen, ekki Guðjóns- dóttir, einsöng ásamt fleiri. LEIÐRÉTT PÁSKAEGGJALEIT verður við gömlu Rafveitustöðina í Elliðaár- dalnum laugardaginn 7. apríl kl. 14. Leitað verður að fagurlega skreyttum eggjum og börnin fá súkkulaðiegg. Leiktæki og hopp- kastali verða á staðnum. Það eru Sjálfstæðisfélögin í Breiðholti og Árbæ sem standa fyrir þessum at- burði og eru allir velkomnir. Páskaeggja- leit í Elliða- árdalnum Á DÖGUNUM afhentu fulltrúar World Class í Laugum starfsemi Meðferðarheimilisins á Laug- arásvegi 71 og Endurhæfingarheim- ilisins á Reynimel 55 aðgang að heilsuræktaraðstöðu World Class í Laugardalnum. Þessi aðgangur er liður í samstarfsverkefni heilsu- ræktarstöðvarinnar World Class og starfseininganna tveggja en í ofan- greindum þjónustueiningum á geðsviði Landspítala háskólasjúkra- húss er í gangi mikið þróunarstarf sem lýtur að endurhæfingu ein- staklinga með geðrænar raskanir. Í þessu nýja samstarfsverkefni munu einstaklingar sem innritaðir eru í endurhæfingu geta nýtt sér að- stöðu World Class í Laugum að fullu ásamt því að fá virka aðstoð í heilsu- átaksuppbyggingu. Björn Ásgeir Björgvinsson stuðningsfulltrúi hefur verið skipaður sérstakur umsjón- araðili starfseininganna í samstarfs- verkefninu og mun verða tengiliður við starfsemina í Laugum. Endurhæfing Efri röð: Stígrún Ása Ásmundsdóttir, Björn Ásgeir Björg- vinsson, Magnús Ólafsson, Daði Óskarsson og Jenný Níelsdóttir. Neðri röð: Gígja Þórðardóttir og Björn Leifsson Samstarfsverkefni World Class og LSH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.