Morgunblaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 05.04.2007, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 61 Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is Hátíð íslenskra heimildarmyndaverður haldin í fyrsta skipti íSkjaldborgarbíói á Patreksfirðihvítasunnuhelgina 25.-28. maí. „Við erum fjórir sem stöndum að þessu, það er ég, Hálfdán Petersen, Greipur Gísla- son og Huldar Breiðfjörð,“ segir Patreks- firðingurinn Geir Gestsson sýningarstjóri í Skjaldborgarbíói um hátíðina. „Um seinustu Sjómannadagshelgi sýndi ég gamalt myndefni frá Patró, sem ég hafði safnað saman, í bíóinu þá rambar Hálfdán inn og segir að það væri sniðugt að koma af stað viðburði þar. Stuttu síðar hringir hann í mig og er kominn með þessa hugmynd um að vera með hátíð sem yrði tileinkuð ís- lenskum heimildarmyndum, þar sem þær fá ekki mikla athygli, og erum við búnir að vera að vinna í þessari hátíð síðan.“ Auk þess að frumsýna nýjar íslenskar heimildarmyndir er hátíðinni ætlað að vera vettvangur fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildamyndir til að hitt- ast og skipast á skoðunum. Í lok hátíð- arinnar verður besta heimildarmyndin valin af áhorfendum. Breiðavíkurmyndin frumsýnd Í bland við stærri og dýrari myndir sem verða sýndar á Skjaldborgarhátíðinni verð- ur að finna heimildarmyndir sem fáir vissu að hefðu yfirleitt verið gerðar. Geir segir að nú séu komnar 22 myndir til sýningar og séu þær frá því að vera ör- stuttar og upp í fulla lengd og með fjöl- breyttum efnistökum. Sem dæmi má nefna: Kvikmyndafélagið Lortur fylgir Sigur Rós á tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar í Evr- ópu. Hugleikur Dagsson skoðar hlutverka- leiki í mynd sinni um Dungeons and Dra- gons. Í Frönsku Rivíerunni eftir Huldar Breiðfjörð er ísbílstjóri eltur um Austfirði og fylgst með því hvernig gengur að selja bændum ís. Myndin Íslenski herinn eftir Bjarna Massa segir frá því þegar gömul fallbyssa er flutt eftir þjóðvegum landsins. Og í myndinni Syndir feðranna sem Berg- steinn Björgúlfsson hefur unnið að und- anfarin fimm ár er ítarlega fjallað um barna- og unglingaheimilið á Breiðuvík. „Þema Skjaldborgar í ár verður kvik- myndagerðarmaðurinn Þorsteinn Jónsson en á hátíðinni verða sýndar sex heim- ildamyndir sem Þorsteinn gerði á 8. ára- tugnum og verður hann sjálfur viðstaddur hátíðina,“ segir Geir. Verður árleg ef vel gengur Skjaldborgarhátíðin verður sett föstu- dagskvöldið 25. maí en kvikmyndasýningar fara fram á laugardeginum og sunnudeg- inum sleitulaust frá hádegi og fram á kvöld. Af öðrum dagskrárliðum hátíðarinnar má nefna pallborðsumræður um íslenska heim- ildarmyndagerð og spjall við leikstjóra fyrir og eftir sýningar á tilteknum myndum. Jafnframt því bjóða heimamenn upp á skoð- unarferð um sveitina, siglingu, sjóstanga- veiði, grillveislu og á sveitaball. Spurður hvort fótur sé fyrir slíkri hátíð á Patreksfirði segir Geir það koma í ljós að lokinni þeirri fyrstu en ef áhuginn verður mikill mun þessi heimildamyndahátíð verða haldin á hverju ári. Skjaldborgarbíó var byggt 1931, þar er Geir með bíósýningar einu sinni til fjórum sinnum í viku og segir þær vel sóttar af bæjarbúum. „Þótt bíóið sé gamalt er það ekki gamaldags, það er nýuppgert, býr yfir fullkominni sýningaraðstöðu, nýju Dolby digital hljóðkerfi og tekur 175 manns í sæti.“ Hátíð íslenskra heimildarmynda á Patreksfirði Skjaldborg hýsir heimildarmyndir Morgunblaðið/Golli Áhugaverð Á hátíðinni verður sýnd heimildarmynd þar sem Sigur Rós er fylgt eftir í tónleika- ferðalagi um Evrópu, m.a er sýnt frá tónleikunum á Miklatúni seinasta sumar. Ljósmynd/Ingimundur Óðinn Sverrisson Stjórinn Geir Gestsson er sýningarstjóri í Skjaldborgarbíói og einn af aðstandendum hátíðar íslenskra heimildarmynda. www.skjaldborgfilmfest.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.