Morgunblaðið - 05.04.2007, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. APRÍL 2007 63
Nýr þáttur í dag þar sem landsliðskokkarnir
Ragnar og Bjarni Gunnar matreiða spennandi
laukkryddað lambalæri að Suður-Afrískum hætti,
og galdra einnig fram skemmtilega ostaþrennu.
Þú sért uppskriftirnar á Vefvarpi mbl.is
FYRIR ekki svo mörgum árum
hefði verið óhugsandi að Hugleiki
Dagssyni – höfundi teiknisagnanna
umdeildu sem var safnað saman í
bókinni Forðist okkur – yrði hleypt
upp á svið Þjóðleikhússins. Hvað þá
að sýrðustu tónlistarmenn samtím-
ans (lesist sem hól), Flísfélagar,
færu þangað með honum. En svona
er staðan í dag; fulltrúar hinna
„æðri“ lista míga sem mest þeir
mega utan í „lágmenningarliðið“ og
vilja með því fá hlutdeild í stuðinu.
Þeir Helgi Svavar Helgason, Dav-
íð Þór Jónsson og Valdimar Kol-
beinsson hafa undanfarin ár, líkt og
Hugleikur, storkað viðteknum
reglum í list sinni. Þeir félagar eiga
rætur í djassi og heldri menn þar
klóra sér fast í hausnum yfir „vit-
leysisganginum“, finnst hæfileikum
hreint og beint kastað á glæ. Stað-
reyndin er hins vegar sú að hér fara
einhverjir framsæknustu – og fær-
ustu – tónlistarmenn landsins, þar
sem bullandi sköpun og linnulaus
ævintýraþrá vísar veginn.
Tónlistin við Leg er þó því miður
ekkert sérstaklega gott dæmi um
þetta. Flís eru að leika sér með
söngleikjatónlist og tekst svona og
svona upp. Best er þegar djöflasýr-
an fer upp úr öllu valdi, eins og t.d. í
„Garðabær!“, „Rainbows in my
Pants“ og „Hitler var grafískur
hönnuður“. Síðastnefnda lagið minn-
ir á tölvusteypuna sem Davíð og
Helgi voru að leika sér með á plöt-
unni Drunk is Faster, þá undir nafn-
inu Helmus und Dalli. Mörg laganna
eru þó eins og hver önnur söng-
leikjatónlist, og hvorki verri né betri
en annað sem úr þeim ranni kemur.
Platan sem slík hefði virkað betur
ef Flís-liðar hefðu hert enn frekar á
brjálæðinu, en stendur líkast til
ágætlega sem minjagripur um sýn-
inguna.
Meiri
sýru?
TÓNLIST
Flís og Hugleikur Dagsson – Leg
Arnar Eggert Thoroddsen
Hljómsveitin Flís
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn