Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 1

Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 121. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is SKRIÐURNAR LEMJA HÚÐIR, SYNGJA OG PLOKKA OG ALVEG GEÐVEIKT GÓÐAR >> 28 HVAÐ FELST Í ÞVÍ AÐ VERA ÍSLENDINGUR? HÖNNUN ÍSLENSK EINKENNI >> 22 FRÉTTASKÝRING Eftir Ólaf Þ. Stephensen olafur@mbl.is VINSTRI grænum virðist hafa fatazt flugið á endaspretti kosningabaráttunnar, miðað við niðurstöður síðustu skoðanakönnunar Gallup fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Fylgi flokksins hjaðnar og áhugi kjósenda á stjórnarsetu Vinstri grænna sömuleiðis. Í könnunum í marz fékk VG tvisvar tæp- lega 28% fylgi. Í apríl fór fylgið að minnka og mælist nú minna en frá upphafi kosninga- baráttunnar, 17,6%. Það er tíu prósentustiga tap frá 20. marz, þótt VG sé enn langt yfir kjörfylgi sínu í síðustu kosningum. Þriðjungur vill sömu stjórn Þegar spurt er um áhuga kjósenda á stjórnarsamstarfi hefur sú breyting orðið frá því um miðjan marz, að vinsælasti kosturinn er ekki lengur samstarf VG og Samfylk- ingar. Þvert á móti hefur stuðningur við áframhaldandi samstarf núverandi stjórn- arflokka – sem hafa meirihluta samkvæmt sömu könnun – aukizt verulega, úr 24% í tæplega 32%. Áhugi á samstarfi Sjálfstæðisflokksins og VG hefur dvínað verulega og þegar skoðuð er nánari greining á tölunum kemur í ljós að það eru stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins sem hafa misst áhugann á samstarfi við VG, því að í röðum stuðningsmanna síðarnefnda flokksins hefur áhugi á samstarfi við sjálf- stæðismenn vaxið. Miklu fleiri kjósendur Sjálfstæðisflokksins vilja halda núverandi stjórnarsamstarfi áfram en þegar spurt var í marz. Eilítið færri stuðningsmenn VG segjast nú vilja samstarf við Samfylkinguna en í marz. Hins vegar hefur áhugi á samstarfi við VG minnkað verulega í hópi stuðningsmanna Samfylkingarinnar. Nærtækasta skýringin á þessu breytta gengi VG er að í kosningabaráttunni hefur flokkurinn þurft að ræða fleiri mál en um- hverfismálin, sem hann sló sér upp á fyrr á árinu. Stefna forystumanna flokksins í t.d. varnarmálum, skattamálum og efnahags- málum eru líkleg til að fæla marga kjós- endur Sjálfstæðisflokks og raunar einnig Samfylkingar frá hugmyndum um stjórn- arsamstarf með VG. Þó er hugsanlegt að dvínandi áhugi sam- fylkingarfólks á stjórn með VG en verulega aukinn áhugi á stjórn með Sjálfstæðisflokki sé til vitnis um raunsæi kjósenda; þeir sjái að stjórn vinstriflokkanna eigi ekki möguleika á meirihluta.                        VG fatast flugið Fylgi minnkar við flokkinn og þátttöku hans í ríkisstjórn  Hvað gerist? | Miðopna Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is EINBÝLISHÚSALÓÐIR í Urriðaholti í Garðabæ munu kosta frá 18 til 60 milljóna króna, allt eftir stærð og staðsetningu viðkom- andi lóða. Gert er ráð fyrir um það bil 1.630 íbúðum í hverfinu og að þar muni búa um 4.400 manns. Þar að auki er gert ráð fyrir verslunar- og atvinnuhúsnæði. Íbúðir í fjölbýli munu kosta 7–9 milljónir króna, raðhúsalóðir 9–11 milljónir og parhúsa- lóðir 12–15 milljónir. Boðið verður upp á tvenns konar einbýlishúsalóðir, annars vegar um 600 fermetra lóðir sem kosta munu um 18–29 millj- ónir króna og hins vegar 2.000 fermetra lóðir sem kosta munu 50–60 milljónir króna en á þeim verður heimilt að byggja allt að 900 fermetra hús. Er því um að ræða töluvert hærra verð en Reykjavíkurborg mun innheimta fyrir nýjar lóðir. Þar mun einbýlishúsalóð kosta 11 millj- ónir króna, svo dæmi sé tekið. Halldóra Hreggviðsdóttir hjá Alta ehf., sem séð hefur um skipulag svæðisins, segir Urriða- holtið hins vegar einstakt hvað varðar þá vinnu og hugsun sem liggi að baki skipulagi hverf- isins. Segir hún áherslu lagða á að skapa fjöl- skylduvænt umhverfi, með gnægð af göngu- og hjólreiðastígum. Þá séu götur hannaðar þannig að bifreiðar komist greiðlega leiðar sinnar, en þó þannig að hraða sé haldið í skefjum. „Í raun höfum við reynt að skapa anda gam- algróins samfélags í nýju hverfi. Fjölbreytileiki hvað varðar húsastærðir, tegundir og hönnun verður sem mestur auk þess sem mikil vinna hefur verið lögð í að skipuleggja Urriðaholt með það fyrir augum að íbúar fái sem best notið úti- vistar og nálægðar við Urriðavatn og Heið- mörk. Grænir geirar mun t.d. ganga í gegnum hverfið og þjóna sem útivistarsvæði, gönguleiðir og skjólbelti trjáa,“ segir Halldóra. Einbýlishúsalóðir boðnar á 18–60 milljónir króna Óvenjumikil vinna sögð liggja að baki skipulagi Urriðaholts sem ætlað er að bera svipmót rótgróins samfélags með miklum fjölbreytileika í húsagerð vökulu auga landnámsmannsins, hans Ingólfs Arnarsonar, og kannski var strákurinn fremst á myndinni að líkja eftir framgöngu hans í lif- anda lífi. VORIÐ er komið og grundirnar gróa segir í vísunni og börnunum finnst gaman að sletta úr klaufunum, ekki síður en kálfum og kúm. Þessir kátu krakkar voru að leika sér á Arnarhólnum í gær undir ár- Morgunblaðið/Ásdís Vorfiðringur SVO getur farið að Grímseyingar verði án ferjusamgangna við meginlandið í allt að mánuð en Grímseyjarferjan bilaði í fyrra- dag og er ekki enn ljóst hve við- gerðin mun taka langan tíma. Brynjólfur Árnason sveitarstjóri segir að bilun hafi komið upp í gír ferjunnar og að finna þurfi varahlut áður en hægt verði að sigla henni á ný. „Varahlutinn verðum við að fá að utan og er ekki enn komið á hreint hve lang- an tíma það mun taka. Mér skilst að hætt sé að framleiða varahluti eins og þann sem okkur vantar og er því verið að athuga hvort hægt sé að finna hann notaðan.“ Segir Brynjólfur að finnist ekki notaður varahlutur geti tekið allt að mánuð að fá nýjan hlut sér- smíðaðan. Þetta er bagalegt enda hefur orðið bið á því að hægt sé að taka nýju Grímseyj- arferjuna í notkun, hún er enn í slipp í Reykjavík. Í gær sigldi Þorleifur EA88 milli eyjar og lands en mestu skiptir að koma fiski frá Grímsey til meginlandsins. | 4 Grímseyingar ferjulausir Málið í biðstöðu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.