Morgunblaðið - 05.05.2007, Page 4

Morgunblaðið - 05.05.2007, Page 4
4 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SVEITARSTJÓRN Grímseyj- arhrepps hafnar því að kröfur Grímseyinga hafi orðið til að hleypa upp kostnaði við endurgerð notaðs skips sem nota á til siglinga til eyj- arinnar. Bendir hún á að hún hafi frá upphafi vakið athygli á kostum þess að láta smíða nýtt skip. Tillaga full- trúa Samfylkingarinnar um að Rík- isendurskoðun yrði falið að skoða málið var felld á fundi samgöngu- nefndar Alþingis í gærmorgun. Fram kom í viðtali við Kristján L. Möller, þingmann Samfylking- arinnar, í Morgunblaðinu á dög- unum að kostnaður við breytingar á nýrri Grímseyjarferju væri orðinn að minnsta kosti 500 milljónir og að minnst 100 milljónir ættu eftir að bætast við. Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra sagði aftur á móti að þær fullyrðingar væru út í loftið. Vegagerðin birti í framhaldi af því upplýsingar um að áætlaður kostn- aður við kaup og endurbætur á nýrri Grímseyjarferju hefði í upphafi árs- ins verið, og væri enn, um 350 millj- ónir kr. Er það umfram það, sem áætlað var, þegar ákveðið var árið 2005 að kaupa notaða ferju frá Ír- landi og samið um útboð á end- urbótum í kjölfar útboðs. Tekið er fram í tilkynningu Vegagerðarinnar að hluta aukakostnaðar megi rekja til óska Grímseyinga um end- urbætur, þar hafi verið um að ræða nýja yfirbyggingu, viðbætur og end- urnýjun á íbúðum áhafnar, gagn- gerar breytingar á efri og neðri far- þegasal, perustefni og fleira. Vantaði sjálfsagðan búnað Í yfirlýsingu frá sveitarstjórn Grímseyjarhrepps er á það bent, að allar þessar kröfur Grímseyinga hafi legið fyrir þegar verkið var boðið út og væru þarf af leiðandi inni í samn- ingsupphæðinni eftir útboð. Þegar Grímseyingar hefðu hins vegar orðið þess áskynja að ferjan væri ekki bú- in ýmsum búnaði sem sjálfsagður þætti í farþegaferjum, hefðu verið gerðar kröfur um það. Nefnt er að þess hafi verið krafist að farþegar gætu hlustað á útvarp og horft á sjónvarp á siglinu, að skipið væri bú- ið góðum öryggis- og siglingarbún- aði og keyptir yrðu nýir farþega- stólar í stað þess að eyða peningum í að gera upp þá gömlu. Eins hefði þess verið krafist að skipið yrði búið kælingu í lest þar sem fiskflutningar væru uppistaðan í vöruflutningum milli Grímseyjar og lands. Í fréttatilkynningu Vegagerð- arinnar segir, að ákvörðun um að kaupa notað skip hafi meðal annars byggst á því að nýtt skip hefði kost- að 700–800 milljónir kr. samkvæmt könnun ráðgjafa Vegagerðarinnar. Sveitarstjórnin efast um að nýtt skip hefði kostnað svo mikið og nefn- ir 400 til 500 milljónir sem líklegri tölu. Í því sambandi bendir hún á að nauðsynlegt sé að taka tillit til lengri endingartíma nýs skips en notaðs og þar með árlegra afskrifta. Lætur sveitarstjórn það koma fram að hún hafi bent samgönguráðuneytinu á þann þátt áður en ákveðið var að kaupa notað skip frá Írlandi. Upphaflega átti endurbótum á Grímseyjarferjunni að ljúka 31. október sl. Í tilkynningu Vegagerð- arinnar kemur fram að í byrjun þessa árs hafi verið áætlað að end- urbótunum lyki 25. maí en afar ólík- legt sé að verktakinn geti staðið við þá tímasetningu. Hafna úttekt Samgöngunefnd Alþingis kom saman til fundar í gærmorgun til að ræða málefni Grímseyjarferjunnar, að ósk fulltrúa Samfylkingarinnar. Á fundinn komu fulltrúar Vegagerð- arinnar og Ríkiskaupa. Felld var til- laga um að Ríkisendurskoðun færi ofan í saumana á útboði Grímseyj- arferjunnar og málavöxtum öllum. Guðmundur Hallvarðsson, for- maður samgöngunefndar, segir að allar upplýsingar hafi komið fram í útboðslýsingu og meirihlutinn telji ekki ástæðu til rannsóknar á þessu stigi. Mikilvægast sé að ganga í það af fullum krafti að ljúka verkinu. Neita því að hafa hleypt upp verði ferjunnar Morgunblaðið/RAX Umdeilt skip Endurbótum á ferjunni, sem keypt var frá Írlandi, átti að ljúka 31. okt sl. haust en óvíst er hvenær hún getur hafið siglingar. ÚTFÖR Péturs Péturssonar, fyrrverandi útvarpsþular, var gerð frá Dómkirkjunni í Reykja- vík í gær að viðstöddu miklu fjöl- menni. Séra Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í Neskirkju, jarð- söng. Í ræðu sinni minnti Örn Bárður á að allir landsmenn hefðu þekkt hina hljómmiklu rödd Péturs. „Hún var órjúfanlegur hluti af ís- lenskri menningu á liðinni öld þegar útvarpið var eitt og menn- ingin ein, áður en allt leystist upp í póstmóderníska ringulreið. Á sínum tíma var Pétur í viss- um skilningi þjóðareign. Á heim- ilum víða um land var mynd af Pétri á vegg. Sjómenn sögðu frá því er þeir nálguðust landið og náðu útvarpinu og heyrðu í Pétri. Þá var þeim borgið.“ Hér sést kista Péturs borin úr kirkju, líkmenn voru þau Krist- ján Stefánsson, Ragnheiður Jón- asdóttir, Jón B. Jónasson, Stein- unn Pálsdóttir, Ámundi Ámundason, María Knudsen, Árni Daníel Júlíusson og Nellý Pétursdóttir. Pétur Pétursson þulur kvaddur Morgunblaðið/Brynjar Gauti SIGURÐUR Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu svonefnda, hefur kært frávísanir Héraðsdóms Reykjavíkur á tíu ákæruliðum til Hæstaréttar. Hér- aðsdómur komst að þeirri nið- urstöðu á fimmtudag að ákærulið- um 2–9, sem snúa að meintum ólögmætum lánveitingum Jóns Ás- geirs Jóhannessonar, bæri að vísa frá dómi þar sem refsiheimild í hlutafélagalögum hefði ekki verið nægilega skýr. Liðum tíu og nítján var einnig vísað frá dómi en vegna galla á ákæru. Sigurður hefur hins vegar ekki ákveðið hvort málinu verði áfrýjað. Hæstiréttur sker úr um ákæru á hendur Jóni Gerald Saksóknari hefur jafnframt ákveð- ið að kæra frávísun ákæru á hendur Jóni Gerald Sullenberger til Hæsta- réttar. Jón, sem ákærður er fyrir aðstoð við rangfærslu bókhalds Baugs og fyrir að stuðla að bók- haldsbroti, naut að mati héraðsóms ekki þeirra réttinda sakbornings við lögreglurannsókn málsins sem lagaákvæði áskilja, og gat ákæra því ekki verið reist á henni. Frávísun kærð til Hæstaréttar NOKKUR dæmi eru um að ein- staklingar hafi ekki getað tekið sæti í stjórnum hlutafélaga eða gegnt störfum framkvæmdastjóra vegna refsidóma sem þeir hafa hlotið. Skv. ákvæði hluta- félagalaga mega einstaklingar sem hlotið hafa refsidóma í tengslum við atvinnurekstur ekki gegna stjórnarmennsku eða störf- um framkvæmdastjóra hluta- félaga þremur árum eftir að dómur féll. Fram hefur komið að ef Hæstiréttur staðfestir nýfall- inn dóm héraðsdóms yfir Jóni Ás- geiri Jóhannessyni og Tryggva Jónssyni gæti það haft áhrif á störf þeirra. Hlutafélagaskrá hefur eftirlit með að þessu ákvæði hluta- félagalaga sé fylgt. Skv. upplýs- ingum sem fengust hjá Hluta- félagaskrá undirrita stjórnarmenn og framkvæmda- stjórar yfirlýsingu um að þeir uppfylli hæfisskilyrði áður en til- kynningar eru sendar Hluta- félagaskrá. Ef tilkynningar upp- fylla ekki formskilyrði laganna ber Hlutafélagaskrá að gera at- hugasemdir. Hlutafélaga- skrá getur gert athugasemdir REYKJAVÍKURBORG hefur ákveðið að kaupa Alliance-húsið svo- kallaða að Grandagarði 2, en borg- arráð samþykkti á fimmtudag drög að kaupsamningi þar að lútandi við Reykjagarð ehf, núverandi eiganda fasteignarinnar. Kaupverð er 925 milljónir króna. Ekki stendur til að borgin yfirtaki rekstur fasteignarinnar heldur er ætlunin að endurselja húsið og reit- inn þar sem tryggt verður að húsinu verði sýndur fullur sómi og borgin beri ekki kostnað af breytingunum. Í samtali við Morgunblaðið segir Björn Ingi Hrafnsson, formaður borgarráðs, nokkurn aðdraganda hafa verið að kaupunum en mikill vilji hafi verið fyrir hendi til að vernda Alliance-húsið. „Töluverð vinna hefur verið unnin innan borg- arkerfisins þar að lútandi og má til dæmis nefna að á nýlegum fundi skipulagsráðs var fjallað um tillögu að breytingu á deiliskipulagi svæð- isins þar sem gert er ráð fyrir því að Alliance-húsið geti staðið áfram við Mýrargötuna,“ segir Björn Ingi. Hann leggur áherslu á að ekki standi til að Grandagarður 2 verði lengi í eigu borgarinnar, heldur sé markmiðið að finna kaupanda að eigninni, en tryggja um leið verndun á ytra byrði hússins, enda muni það tryggja enn betra skipulag og um- hverfi á svæðinu, takist að sameina uppbyggingu á lóðinni og endurnýj- un hússins. Miklir möguleikar Penninn hf. hefur þegar lýst yfir áhuga á því að kaupa fasteignina við Grandagarð 2. Hefur Kristinn Vil- bergsson, forstjóri Pennans, lagt fram formlegt erindi um að hitta yf- irvöld til að ræða framtíð eignarinn- ar. „Við teljum að með því að hefja starfsemi í húsinu höfum við aukið verðmæti þess og komið fólki í skiln- ing um notagildi þess,“ segir Krist- inn í samtali við Morgunblaðið. „Við viljum gjarnan halda áfram þeirri starfsemi sem nú þegar er í húsinu og stækka jafnvel verslun og skrif- stofurými Pennans. Eigninni fylgir byggingarréttur og teljum við húsið búa yfir miklum möguleikum.“ Borgin kaupi Alliance- húsið á 925 milljónir króna Penninn lýsir yfir áhuga á að halda áfram rekstri í húsinu að Grandagarði 2 Morgunblaðið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.