Morgunblaðið - 05.05.2007, Page 8

Morgunblaðið - 05.05.2007, Page 8
8 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Opið í Smáralind Lokað í Lágmúla 8 (heimilistæki) og Síðumúla 9 (hljómtæki og skrifstofutæki) í maí, júní og júlí á laugardögum laugardaga frá kl. 11:00-18:00 sunnudaga frá kl. 13:00-18:00 ELDHÚSPAKKINN AEG 66030 K-MN - Keramikhellur - Fjórar hraðhitahellur - Snertirofar - Tímastillir á öllum hellum - “Automax“ stilling: byrjar á að fara á mesta hita, en lækkar síðan á valda stillingu - Fjögurra þrepa eftirhitagaumljós KR. 73.579.- AEG COMPETENCE B 4101-4-M - Veggofn, stál - Fjölvirkur ofn með 9 aðgerðum − Undirhiti, blástur, blástur m/elem, blástur + undir og yfirhiti + grill, grill, ljós, undir og yfirhiti, yfirhiti + grill. - “ISOFRONT“ þrefalt gler í ofnhurð, auðveldar þrif - kaldari framhlið - Sökkhnappar KR. 104.194.- Airforce F3 / AIRF 3 - Til uppsetningar á vegg - Fyrir útblástur eða kolafilt KR. 23.053.- TILBOÐSVERÐ ALLUR PAKKINN 129.900,- AEG LAVAMAT 64810 ÍSLAND 6 kg Vindingarhraði : 1400/1000/600 snúningar á mín. Verð: 91.290 kr HELGARVERÐ 69.900,- 202.048,- Hvít háglans/4000 GRUNDIRNAR grænka með hverj- um deginum og kylfingar eru farn- ir að munda kylfurnar. Á völlum Golfklúbbs Reykjavíkur hefur tals- vert borið á því undanfarin ár að slegið sé á vallarstarfsmenn þegar þeir eru að sinna vinnu sinni á golf- vellinum. Til þess að koma í veg fyrir að það verði stórslys á völlum Golfklúbbs Reykjavíkur hafa verið sett blikkljós á öll tæki. Þau virka þannig að meðan kveikt er á ljósinu þá er þeim kylfingum sem eru á við- komandi braut óheimilt að slá. „Það er mjög vont að fá í sig golfbolta eins og þeir sem hafa lent í vita og þess vegna viljum við með þessu koma í veg fyrir að fleiri vall- arstarfsmenn lendi í því,“ segir Ágúst Jensson, vallarstjóri á Korp- úlfsstöðum á heimasíðu GR. „Mjög vont að fá í sig golfbolta“ INNRITUN í framhaldsskóla fer fram dagana 14. maí til 11. júní. Þann 14. maí verður opnað fyrir raf- ræna innritun á skólavef mennta- málaráðuneytis, menntagatt.is. Allar umsóknir um nám í dag- skóla eru rafrænar. Sótt er um á net- inu og berast umsóknirnar beint til upplýsingakerfa framhaldsskól- anna. Frá og með 15. júní geta um- sækjendur opnað umsóknir sínar aftur og fylgst með afgreiðslu þeirra. Innritun í nám í kvöldskóla, fjarnám og annað nám en í dagskóla verður með hefðbundnum hætti. Nánari upplýsingar má finna á menntagatt.is. Innritun í fram- haldsskólana GISTINÓTTUM á hótelum í mars fjölgaði um 19% milli ára og var fjölgun í öllum landshlutum nema á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem þeim fækkaði um tæp 2%. Aukn- ingin var hlutfallslega mest á Aust- urlandi. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði gistinóttum um 11.900, úr 52.200 í 64.100 sem er 23% aukning. Gistirými á hótelum í marsmánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3.656 í 3.866. Hótel sem opin voru í mars síðastliðnum voru 72 en 73 í sama mánuði árið 2006. Fleiri gistinætur VEGNA framkvæmda við veitulagnir í borg- inni verða Sægarðar lokaðir við gatnamót að Sæbraut og að Vatna- görðum frá 5. maí til 26. maí 2007. Umferðarljós á gatnamótunum verða látin blikka á gulu ljósi. Á Sæbraut til norðvest- urs verður aðeins ein akbraut á 50 metra kafla. Aðkoma frá Sæbraut að fyrirtækjum á hafnarsvæðinu verður um Holtaveg og Sunda- garða. Nánari upplýsingar er að finna á vef Framkvæmdasviðs . Loka Sægörðum FJÖLDI fólks var samankominn í Brandskjólunum á Hólmavík eitt kvöld í vikunni. Fólkið hamaðist við að leggja þökur á íþróttavöll í sjálf- boðavinnu, tæplega 30 manns á öll- um aldri. Fyrr á árum var þarna malarvöllur, en nú er verið að þökuleggja og gera lítinn fótbolta- völl til að yngri kappar á svæðinu geti æft þarna og leikið sér. Strandabolti ALLAR geymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa fyllst af reiðhjólum í vetur og er nú svo komið að halda þarf uppboð á hjól- um til að rýma geymslurnar. Verða 400 reiðhjól boðin upp í dag, laug- ardag kl. 13.30, í húsnæði Vöku að Eldshöfða 4 í Reykjavík. Lögreglumennirnir Benedikt Benediktsson og Jóhannes Guð- jónsson voru í óðaönn að undirbúa uppboðið þegar ljósmyndara bar að garði. Reiðhjólin hafa verið hirt upp á víðavangi í umdæmi lögregl- unnar og eigendur ekki gefið sig fram. Mörg þeirra eru í góðu ásig- komulagi og má búast við fjölmenni á uppboðið í dag. Reiðhjól hafa safnast upp hjá lögreglunni í vetur sem aldrei fyrr Morgunblaðið/Júlíus. 400 hjól verða boðin upp í dag Eftir Andra Karl andri@mbl.is KÆRUNEFND jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að sýslumaðurinn á Húsavík hafi brotið gegn ákvæðum laga um jafna stöðu og jafn- an rétt kvenna og karla við ákvörðun launa handa kvenkyns sýslumannsfulltrúa sem starfar við embættið. Í niðurstöðu álitsins segir m.a. að sýslu- manninum hafi ekki tekist að sanna að hlutlægar og málefnalegar ástæður hafa ráðið þeim kjara- mun sem var á milli fulltrúans og karlkyns fulltrúa sem starfar við sama embætti. Konan óskaði eftir því í nóvember á sl. ári að nefndin kannaði og tæki afstöðu til þess hvort mis- munur á launagreiðslum til hennar og karlmanns í sambærilegu starfi bryti í bága við ákvæði jafn- réttislaga en í 1. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla segir að markmið laganna sé að koma á og viðhalda jafnrétti og jöfnun tækifær- um kvenna og karla og jafna þannig stöðu kynjanna á öllum sviðum samfélagsins. Sam- kvæmt 14. gr. sömu laga skulu konum og körlum sem starfa hjá sama atvinnurekenda greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir jafnverðmæt og sambærileg störf. Í janúar árið 2002 hóf konan störf hjá embætt- inu og hafði umsjón með opinberum málum, sifja- málum, þinglýsingum og firmaskrá. Maðurinn hóf störf í júlí 2004 og var falið að sinna opinberum málum og sifjamálum auk umsjónar með dánarbú- um og fjárnámum. Konan taldi sér vera mismunað þar sem henni hefðu verið greidd lægri laun og hefði muninn ekki verið hægt að skýra með öðru en kynferði. Sýslumaðurinn hélt því fram við meðferð máls- ins að störf konunnar og mannsins hefðu ekki ver- ið sambærileg og jafnverðmæt og var m.a. bent á að karlmaðurinn hefði jafnframt gegnt stöðu stað- gengils sýslumanns. Einnig byggði sýslumaðurinn vörn sín á að vinnuframlag og umfang starfs mannsins hefði verið meira en kæranda og á því hefði launamunur m.a. grundvallast auk annarra atriða, s.s. að gerð stofnanasamnings hefði ekki verið lokið. Við mat nefndarinnar var m.a. litið til þess að bæði störfuðu þau sem lögfræðingar hjá embætt- inu auk þess sem ekki lægi fyrir formleg tilnefning karlmannsins í stöðu staðgengils – enda þótt fall- ist væri á að hann hefði gegnt stöðu staðgengils, skýrði það aðeins hluta þess munar sem væri á kjörum aðilanna. Mismunað vegna kynferðis Kærunefnd jafnréttismála hefur komist að þeirri niðurstöðu að sýslumaðurinn á Húsavík hafi brotið gegn jafnréttislögum við ákvörðun launa starfsmanna sinna Í HNOTSKURN »Kvenkyns sýslumannsfulltrúi við emb-ætti sýslumannsins á Húsavík óskaði eftir að kærunefnd jafnréttismála tæki af- stöðu til þess hvort mismunur á launa- greiðslum til hennar og karlkyns sýslu- mannsfulltrúa bryti í bága við jafnréttislög. »Niðurstaða nefndarinnar er að sýslu-manninum hafi ekki tekist að sanna að hlutlægar og málefnalegar ástæður hafi ráðið kjaramuninum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.