Morgunblaðið - 05.05.2007, Page 28
|laugardagur|5. 5. 2007| mbl.is
daglegtlíf
Gaman Íris Kramer lemur húðir og skemmtir sér vel í leiðinni.
Skriður á sviði Þessar ákveðnu konur tóku sig óneitanlega vel út á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður. Hér
sjást þrjár Skriðnanna: Ylfa syngur, Elenor leikur á gítar og Helga Vala spilar á bassann.
Við erum sjö valkyrjur úrBolungarvíkinni semskipum þessa hljómsveit.Þetta eru allt sterkar
konur og ákveðnar. Innan sveit-
arinnar leynist skólastjóri, tónlist-
arkona, héraðslæknir, athafnakona
og bæjarstjórafrú svo eitthvað sé
nefnt,“ segir Helga Vala Helga-
dóttir sem er bassaleikari í
kvennahljómsveitinni Skriðunum
frá Bolungarvík.
„Við erum allar dálítið ráðríkar
og þegar stefndi í fyrsta giggið hjá
okkur á tónlistarhátíðinni Aldrei
fór ég suður á Ísafirði, þá var
mjög margt sem þurfti að ræða
innan hópsins og það var þó nokk-
urt átak að fá svona margar
ákveðnar konur til að vera sam-
mála. Það var frekar fyndið.“
Skriðurnar eru kornung hljóm-
sveit sem byrjaði að spila um síð-
ustu áramót. „Þessi hljómsveit
varð til einfaldlega vegna þess að
það er svo gaman í Víkinni. Ef það
eru til hljóðfæri þá er ekkert verið
að spyrja að því hvort einhver
kunni að spila, ef fólk er í stuði þá
eru því allir vegir færir í Bolung-
arvík. Svo einfalt er það.“
Prófin tefja fyrir æfingum
Þetta er í fyrsta sinn sem Helga
Vala er í hljómsveit og hún kunni
ekkert á bassa þegar hún byrjaði.
„Ég vissi ekki einu sinni hvernig
ætti að halda á honum, en núna er
ég orðin ógeðslega góð. Grímur
maðurinn minn er bassaleikari og
hann kenndi mér. Svo sat ég bara
heima og plokkaði kvöld eftir
kvöld eftir kvöld. Hinar konurnar í
bandinu eru sprenglærðar tónlist-
arkonur, en þær eru afskaplega
umburðarlyndar gagnvart mér,
amatörnum.“
Helga Vala er í háskólanámi í
lögfræði og er fyrir sunnan í próf-
um þessa dagana. „Ég hef ekki
komist á æfingar í heilan mánuð
og er skíthrædd um að ég verði
rekin úr hljómsveitinni þegar ég
kem aftur heim í Bolungarvík að
loknum prófum.“
Í skúrnum fram á nótt
Konurnar sjö þurftu að æfa dag
og nótt fyrir tónlistarhátíðina
Aldrei fór ég suður. „Við vorum
ákveðnar í því að gera þetta með
stæl og ætluðum ekkert að láta
taka okkur í bólinu þar. Við erum
orðnar geðveikt góðar og þetta
fyrsta gigg gekk alveg rosalega
vel og upp úr því fór að rigna yfir
okkur símhringingum þar sem
óskað var eftir að við kæmum
fram og spiluðum. Meðal annars
spiluðum við með heimsfrægum
tónlistarmönnum eins og Lay
Low, Pétri Ben og Ólöfu Arnalds á
tónleikum sem Rás 2 stóð fyrir í
Bolungarvík og voru hluti af ferða-
lagi þeirra þar sem þau plokkuðu
hringinn. Grímur hljóp í skarðið
fyrir mig á bassann af því ég var í
prófum.“
Helga Vala segir að í Bolung-
arvík geti fólk hitt nágranna sína
miklu oftar en í stórborginni
Reykjavík. „Fólk kemur oft í kaffi
og þessi hljómsveitarhugmynd
varð einmitt til í kringum eldhús-
borðið af því við vinkonurnar vor-
um svo þyrstar í að spila í hljóm-
sveit. Þetta er svo hryllilega
gaman. Oft er þetta þannig hjá
okkur að maður fer kannski í mat-
arboð en endar svo í skúrnum að
spila fram á nótt. Sumir fara að
elda mat og drekka vín en við spil-
um á hljóðfæri.“
Eiginmenn í Grjóthruni
Helga Vala segir að svolítil deila
hafi risið í upphafi um hver ætti
að spila á hvaða hljóðfæri og það
er aldrei að vita nema þær róteri
þeim hlutverkum eitthvað seinna.
Í Skriðunum sjá Pálína og Ylfa
Mist um sönginn, Soffía spilar á
hljómborð, Íris og Elenor leika á
gítar, Íris Kramer lemur trommur
og Helga Vala plokkar bassann.
Hljómsveitarnafnið Skriðurnar
segir Helga Vala að hafi komið
þannig til að hin hljómsveitin í
Bolungarvík heitir Grjóthrun.
„Reyndar er sú hljómsveit að
mestu skipuð mönnunum okkar
sem erum í Skriðunum, þannig að
þetta er hálfgerður hjónaklúbbur
og ég komst náttúrlega í Skrið-
urnar í gegnum bullandi klíku.“
khk@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Vígaleg Helga Vala mundar bassann sem hún hefur plokkað bæði daga og nætur frá því hún byrjaði í Skriðunum.
Bolvískar val-
kyrjur láta vaða
Hljómsveitir eingöngu skipaðar konum eru allt of fáar
á Íslandi en nokkrar vinkonur í Bolungarvík bættu úr
því. Kristín Heiða Kristinsdóttir spjallaði við Helgu
Völu, bassaleikara í Skriðunum.
Þessi hljómsveitar-
hugmynd varð einmitt
til í kringum eldhús-
borðið af því við vinkon-
urnar vorum svo þyrstar
í að spila í hljómsveit.
Ljósmynd/ Páll Önundarson
Guðmunda Elíasdóttir söng-
kona kann vel við sig á Vest-
urgötunni og vill raunar hvergi
annars staðar búa. »32
innlit
Munstraðir skyrtuskokkar og
skór í öllum regnbogans litum
eiga eftir að setja svip sinn á
sumartískuna. »30
tíska