Morgunblaðið - 05.05.2007, Síða 29

Morgunblaðið - 05.05.2007, Síða 29
daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 29 bendir til þess, að ís- lenzkt æskufólk sé hraust til líkama og sál- ar. Þessi þróun meðal unga fólksins hlýtur að auka bjartsýni um framtíð þessarar þjóð- ar. Víkverja finnst að með einhverjum hætti eigi að verðlauna æsk- una fyrir þennan frá- bæra árangur. Hann er líka vísbending um að neikvæðar fréttir af vímuefnaneyzlu ungs fólks, og margvíslegum afbrotum í tengslum við slíka neyzlu, gefi alls ekki rétta mynd af veruleikanum í þessum efn- um. Það er aðeins lítill hópur ís- lenzks æskufólks sem þar á hlut að máli, miðað við niðurstöður þessarar könnunar. Kannski skilar það mikla starf, sem unnið hefur verið á heimilum, í skólum og í íþróttafélögum og öðr- um félögum þessum frábæra ár- angri. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra á að hafa for- göngu um að sýna æsku Íslands ein- hvern þann viðurkenningarvott sem sýnir hversu mikils íslenzka þjóðin metur þessa þróun. Óskaplega eru þaðánægjuleg tíðindi að vímuefnaneyzla hef- ur farið minnkandi meðal ungs fólks, ef marka má niðurstöður evrópskrar vímuefna- rannsóknar, sem Morgunblaðið skýrði frá í gær. Í fyrsta lagi er ljóst að þeim unglingum fækkar stöðugt sem reykja. Nú er talið að rúmlega 11% unglinga í 10. bekk reyki miðað við 20,8% árið 1995 og talið er að milli 30% og 40% unglinga hafi reykt fyrir tveimur áratugum. Þetta er stórkostlegur árangur. Þá er ljóst að þeim fækkar í þess- um aldursflokki sem reykja hass eða hafa reykt hass. Þeim hefur fækkað stórlega á 12 árum sem hafa orðið drukknir síð- ustu 30 daga og þeim fækkar á sama tímabili verulega sem hafa orðið drukknir um ævina. Og loks sýnir þessi rannsókn að þeim fjölgar umtalsvert sem hafa aldrei reykt hass um ævina. Þetta eru einhver beztu tíðindi af íslenzkri æsku, sem hafa borizt þjóð- inni í langan tíma. Þetta er mikill árangur og hann           víkverji skrifar | vikverji@mbl.is MEÐ hækkandi sól eykst löngun fólks í grillmat og margir eiga góðar stundir á pallinum, úti á svölum eða í sumarbústaðnum þar sem glóðuðu kjöti er rennt niður með góðri lyst. En eftir tíðahvörf ættu konur að varast að borða mjög mikið af grill- uðu kjöti en leggja meira upp úr ferskum ávöxtum og grænmeti, því mikil neysla á grillkjöti og reyktu kjöti getur tvöfaldað líkurnar á því að þær fái brjóstakrabba. Frá þessu er sagt á vefmiðli MSNBC. Rann- sókn vísindamanna leiddi þetta í ljós og studdi auk þess enn frekar þær þekktu staðreyndir að ferskt græn- meti og ávextir eru fyrirbyggjandi að þessu leyti og full ástæða fyrir konur að gefa því gaum. Einng er talið æskilegt fyrir þess- ar konur að draga úr kjötneyslu og þá ekki aðeins grillkjöts eða reykt kjöts, heldur líka soðins kjöts, því rannsóknin leiddi í ljós sterk tengsl milli brjóstakrabba og kjötneyslu al- mennt hjá konum eftir tíðahvörf. Viss efni finnast í öllu kjöti sem eld- að er við háan hita, grillað eða reykt. Þær konur sem tóku þátt í rann- sókninni og borðuðu slíkt kjöt oftar en einu sinni í viku voru 47 prósent líklegri til að fá brjóstakrabba en þær sem borðuðu þess háttar kjöt sjaldnar en einu sinni í viku. Þær konur sem bæði borðuðu grillkjöt eða reykt kjöt og borðuðu auk þess mjög lítið af grænmeti og ávöxtum voru 74% líklegri til að fá brjósta- krabba. Líkur á brjóstakrabba juk- ust aftur á móti ekki hjá þeim kon- um sem borðuðu grillað fuglakjöt og/eða glóðaðan fisk. Grillaður matur eykur líkur á brjóstakrabba Morgunblaðið/Golli Grillmatur Eftir tíðahvörf ættu konur að varast að borða grillað kjöt í miklu magni. VILT ÞÚ KOMA Í HÓP ÁNÆGÐRA NEMENDA? TJARNARSKÓLI er fyrir nemendur í 7.-10. bekk grunnskóla. EINSTAKLINGSMIÐAÐ NÁM Kennslufyrirkomulagið gerir ráð fyrir því að hver og einn vinni miðað við eigin getu. Keppt er að hámarksafköstum fyrir hvern og einn. HEIMANÁM INNI Í STUNDASKRÁ Nemendur fá góða aðstoð við heimanámið í skólanum og oftast tekst nemendum að ljúka því á skólatíma. Nemendur fá einnig þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum. MANNRÆKTIN Í FYRIRRÚMI Lögð er áhersla á að rækta það besta í hverjum nemanda, góð mannleg samskipti og nemendum er leiðbeint við að taka góðar ákvarðanir. NOTALEGT NÁMSUMHVERFI Áhersla er lögð á að öllum líði vel í Tjarnarskóla. Skólaeiningin er lítil og allir þekkja alla mjög vel. VEL FYLGST MEÐ HEIMANÁMI OG VAKAÐ YFIR NÁMSFRAMVINDU HVERS OG EINS Upplýsingar um heimanám, námsframvindu og fleira eru reglulega sendar til foreldra og nemenda. LÆKJARGÖTU 14B www.tjarnarskoli.is Tjarnarskóli - lítill skóli með stórt hjarta! Hafðu samband í síma 551-6820 / 562-4020 eða tölvupósti tjarnar@ismennt.is til að fá nánari upplýsingar eða panta heimsóknartíma hjá okkur. Við tökum vel á móti þér. Fréttir í tölvupósti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.