Morgunblaðið - 05.05.2007, Page 30

Morgunblaðið - 05.05.2007, Page 30
Draumur Svart/hvítt með kvartsermum, 7.990 kr. Cosmo. tíska 30 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Gulur, rauður, grænn og blár, svartur, hvítur, fjólublár! Það er þessi gamla, góða litaþula sem er móðins í sumar. Undir sólríkum himni er ekkert sumarlegra en mynstraðir skyrtu- skokkar og skæði í regnbogans litum. Stelpur! Fagnið litunum, klæðist og finnið í þeim geislandi sumarorkuna. Það er allt önnur tilfinning að klæðast skyrtuskokk sem er með sundlandi mynstri en bara svörtum. Prófið bara! Þessir sem blómstra eru líka sérstaklega skemmtilegir ásamt japönsku stemmningunni. Láréttar línur, stórir og litlir hringir í bland við ferhyrninga falla undir svöl „retro“ mynstur. En það besta er enn eftir: Skyrtuskokkarnir eru einstaklega klæðilegar flíkur. Þeir eru margir úr blöndu af bómull, næloni og lycra, sem bæði er þægilegt að klæðast og fellur vel að líkamanum. Flegið hálsmálið, oft v-laga, og lindinn undir brjóstunum, dregur fram kven- legar línur líkamans, mitti og brjóst. Dags dagslega eru skyrtuskokkarnir töff við svartar eða bláar gallabuxur jafnt sem leggings við strikaskó sem sandala. Á björtum og jafnvel roðagylltum sumarkvöldum er hægt að breyta hversdagsfatnaðinum, líkt og með töfra- sprota, í svalan kvöldklæðnað með því einu að bregða sér í stutt pils við, galla eða svart, fara í hælaháa skó og setja á sig stóra eyrnalokka. Litfagrir skór er annað sem allar sannar sumarstelpur ættu að láta eftir sér, þegar sólin fer loksins að skína. Það er önnur, dásamleg tilfinning að standa á silfruðum, hælaháum skóm, rauðum glansskóm, nú eða þá bara vel fylltum og skínandi túrkísbláum sandölum. Þá nánast skiptir ekki máli þótt sólin skíni bara ekki neitt! Regnboginn er líka fallegur … uhj@mbl.is Morgunblaðið/G.Rúnar Sumarstemmning! Fagnið litunum, klæðist og finnið sumarorkuna, 2.950 kr. Gallabuxnabúðin. Silfraðir Sjúklega flottir og fínir, 12.990 kr. Shoe Studio. Retromynstur Líflegur, stutt- erma skokkur, 3.500 kr. Eik. Blómamynstur Sparilegur skyrtu- skokkur, 8.990 kr. Warehouse. Stutterma Í anda sjötta áratugarins, 7.290 kr. Next. Hlíralaus Flottur á sumarkvöldi, 5.990 kr. Grand Collection. Ballfær Glæsilegur bakhluti, 5.900 kr. Grand Collection. Í regnbogans litum Skyrtuskokkar og skærlitir skór slá í gegn í sumar Hvítir Sjúklegir sumarsandalar, 9.950 kr. Valmiki. Gylltir Krúttlegir sumar- skór, 4.995 kr. Valmiki. Túrkísbláir Sandalar með fylltum botni, 9.900 kr. Shoe Studio. Himinbláir Hælaháir sandalar, 12.990 kr. GS skór. Rauðir glans og glamúr, 8.990 kr. GS skór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.