Morgunblaðið - 05.05.2007, Qupperneq 30
Draumur Svart/hvítt með
kvartsermum, 7.990 kr. Cosmo.
tíska
30 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Gulur, rauður, grænn og blár, svartur, hvítur, fjólublár! Það er þessi gamla, góða litaþula
sem er móðins í sumar. Undir sólríkum himni er ekkert sumarlegra en mynstraðir skyrtu-
skokkar og skæði í regnbogans litum. Stelpur! Fagnið litunum, klæðist og finnið í þeim
geislandi sumarorkuna. Það er allt önnur tilfinning að klæðast skyrtuskokk sem er með
sundlandi mynstri en bara svörtum. Prófið bara! Þessir sem blómstra eru líka sérstaklega
skemmtilegir ásamt japönsku stemmningunni. Láréttar línur, stórir og litlir hringir í bland
við ferhyrninga falla undir svöl „retro“ mynstur.
En það besta er enn eftir: Skyrtuskokkarnir eru einstaklega klæðilegar flíkur. Þeir eru
margir úr blöndu af bómull, næloni og lycra, sem bæði er þægilegt að klæðast og fellur vel
að líkamanum. Flegið hálsmálið, oft v-laga, og lindinn undir brjóstunum, dregur fram kven-
legar línur líkamans, mitti og brjóst. Dags dagslega eru skyrtuskokkarnir töff við svartar
eða bláar gallabuxur jafnt sem leggings við strikaskó sem sandala. Á björtum og jafnvel
roðagylltum sumarkvöldum er hægt að breyta hversdagsfatnaðinum, líkt og með töfra-
sprota, í svalan kvöldklæðnað með því einu að bregða sér í stutt pils við, galla eða svart,
fara í hælaháa skó og setja á sig stóra eyrnalokka. Litfagrir skór er annað sem allar sannar
sumarstelpur ættu að láta eftir sér, þegar sólin fer loksins að skína. Það er önnur, dásamleg
tilfinning að standa á silfruðum, hælaháum skóm, rauðum glansskóm, nú eða þá bara vel
fylltum og skínandi túrkísbláum sandölum. Þá nánast skiptir ekki máli þótt sólin skíni bara
ekki neitt! Regnboginn er líka fallegur …
uhj@mbl.is
Morgunblaðið/G.Rúnar
Sumarstemmning! Fagnið litunum, klæðist og finnið sumarorkuna, 2.950 kr. Gallabuxnabúðin.
Silfraðir Sjúklega
flottir og fínir,
12.990 kr. Shoe
Studio.
Retromynstur Líflegur, stutt-
erma skokkur, 3.500 kr. Eik. Blómamynstur Sparilegur skyrtu-
skokkur, 8.990 kr. Warehouse.
Stutterma Í anda sjötta
áratugarins, 7.290 kr. Next.
Hlíralaus Flottur á sumarkvöldi,
5.990 kr. Grand Collection.
Ballfær Glæsilegur bakhluti,
5.900 kr. Grand Collection.
Í regnbogans litum
Skyrtuskokkar og skærlitir skór slá í gegn í sumar
Hvítir Sjúklegir
sumarsandalar,
9.950 kr. Valmiki.
Gylltir Krúttlegir sumar-
skór, 4.995 kr. Valmiki.
Túrkísbláir Sandalar
með fylltum botni, 9.900
kr. Shoe Studio.
Himinbláir Hælaháir
sandalar, 12.990 kr.
GS skór.
Rauðir glans og glamúr,
8.990 kr. GS skór.