Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 54

Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 54
54 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Húsnæði óskastBílar URAL SPORTSMAN 750 árg. 2005, ek. 50 km. Hliðarvagn með drifi. Bakkgír. Uppl. í síma 892 8380. Toyota Hilux 2,5 dísel beinskiptur, árg. ‘06, ek. 8.500 km., 33", beisli, hús, filmur. Áhv, lán, verðhugmynd 3.400 þús. Uppl. í síma 856 0640. Toyota ek. 243 þús. km. Til sölu Toyota 4runner á 38 tommu hálfslitn- um dekkum. Góður bíll, þarfnast smá aðhlynningar fyrir skoðun. Uppl. í síma 898 9836. SUZUKI GRAND VITARA ljósgrár (silfur), á götuna 30.09.2003. Ekinn aðeins 43 þús. km. Mjög vel með farinn. Aðeins einn eigandi. Sími 892 5941 og 863 6663. Renault árg. '99 ek. 240 þús. km. Renault Megan Senic til sölu, ný skoðaður, ný upptekin vél, fæst á yfirtöku á láni, ca. 16.000 kr. mán-greiðsla. Uppl. sími 846 0151. Range Rover árg. '04, ek. 99 km. Range Rover New 3.0 dísel, einn með öllu. Verð 7.590, lán 5.077. Skoða skipti. Nánari uppl. í síma 691 4441. Til sýnis og sölu hjá bilasalan.is. Sími 533 2100. MITSUBISHI GALANT ÁRG, 2003. USA týpa. Ekinn 67 þús. Gullfallegur og vel með farinn bíll. Perluhvítur. Sjálfskiptur m. öllu. Listaverð 1600 þús. Söluverð 1250 þús strax. Uppl. í síma 895-3040 MCC ÁRG. '04 EK. 25 KM fallegur bíll 17" álfelgur, spoiler CD. Ásett verð 1390. TILBOÐ 1050. 100% Lán 17 á mán. BILASALAN.IS Stórhöfði 24 533-2100 866-5354 Honda HRV Sport árg. 2000 ek. 70 þús. til sölu. Glæsilegt eintak. Bíll í toppstandi frá A-Ö fjórhjóladrif, heilsárs-loftbóludekk o.m.fl. Verð 1200 þús. Uppl. í síma 868 1616. - Gullmoli - Án efa besta eintakið á Íslandi. BMW520i, glertoppl., álfelg- ur, innfl. nýr af umboði. Ek. aðeins 59.000 km! Sími 849 8373. FORD F-150 Til sölu árg. 2005, ekinn 27.000 km. Verð tilboð, áhv. 2800 þús. Ath. öll skipti. Upplýsingar í síma 8671335. Dekurbíll Cadillac Escalade Árgerð 2004, ekinn aðeins 17 þús. km. Einn með öllu. Verð 6,5 millj., 5,9 millj. stgr. Upplýsingar í síma 899 2857/852 0748. Volkswagen Touareq (dísel) R5 TDI, árg. 10/04, ek. 80 þús., loftpúðafjöðrun, leðursæti, naviga- tion, fjarlægðarskynjarar, 6d ma- gasín, zenon-ljós o.m.fl. Einn með öllu. Verð 5,9. Uppl. í síma 868 1616. Vantar íbúð á Akureyri. Óska eftir 4ra herb. íbúð helst nálægt VMA. Reglusöm með 3 börn. Öruggar greiðslur. Uppl. í s. 844 7040. Reglusamt og reyklaust par nýkomið úr háskóla vantar íbúð til leigu á höfuðborgarsv. frá 1. júní. Vin- samlegast hafið samband við Sigrúnu í s. 695 0600 á milli 17 og 22. Bílar óskast Sendibílar og húsbílar óskast á 0-100 þús. Mega vera klesstir, bilaðir og ljótir en ekki skilyrði. Skoða allt. 691 4441 eða bilar@internet.is. Þjónusta Móðuhreinsun glerja! Er komin móða aða raki milli glerja? Móðuhreinsun Ó.Þ. Sími 897 9809. Byggingar TILBOÐ Á RAFSTÖÐVUM 4.5kw 1f. disel m/rafstarti 119.000.00 án vsk 19 kw 3f.disel vatnskæld 490.000.00 án vsk. LOFT OG RAFTÆKI Vesturvör 30B.Kópavogi S.5643000 www.loft.is Byggingavörur Einangrunarplast-takkamottur. Framleiðum einangrunarplast, takkamottur fyrir gólfhitann, fráveitu- brunna Ø 400, 600 og 1000 mm, vatnslásabrunna, vatnsgeyma, sand- föng, olíuskiljur, fituskiljur, rotþrær, vegatálmar. og sérsmíðum. Verslið beint við framleiðandann, þar er verð hagstætt. Einnig efni til fráveitulagna í jörð. Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími 561 2211, Borgarplast, Mosfellsbæ, sími 437 1370. Heimasíða : www.borgarplast.is Fellihýsi Fellihýsi til sölu Palomino colt 9 feta árg 2005. Fylgir fortjald, svefntjöld, grjótgrind, festing fyrir tvo gaskúta. Sími 892 9614, 567 0394. Íbúð óskast í sumar. Óska eftir íbúð í júní, júlí og ágúst á höfuðborg- arsvæðinu. Lágmark 4 herb. og helst með húsgögnum. Vinsamlegast hafið samband í síma 863 3113. Íbúð óskast. Að leigjanda þið leit- ið?/Litla íbúð feðga vantar/ Stöðugum seðlum heitið/Skilvís engir vankantar. Helst í hverfi 105 vegna skóla barns. Uppl. í s. 865 9290. Íbúð eða einbýli óskast. Verðandi hjón með 2 chihuahua hunda og einn kött bráðvantar húsnæði á 301 svæðinu til leigu. Helst í dreifbýli í ca 6 mnd-1 ár á meðan byggingu á húsinu okkar klárast, ef til vill lengur. M. von um skjót svör: diljapalmer@hotmail.co Námskeið Veiði Veiðikort Til sölu veiðikort sem gildir fyrir eftir- farandi staði sumarið 2007: Kvíslárveitur, Þórisvatn og Fellsenda- vatn. Frábærir staðir sem þekktir eru fyrir væna veiði. Verð 35.000 kr. Takmarkað magn. Pantanir og upplýsingar á vatnaveidi@gmail.com Hjólhýsi Til sölu Tabbert Vivaldi árg. 2006. Kom nýtt á götuna í september 2006. Klárt í ferðalagið, hlaðið aukabúnaði, áhvílandi 2,2 miljónir. Upplýsingar í síma 896-8257/898-1285. Til sölu mjög lítið notað LMC hjólhýsi 500 RBD 2006, markísa, sólarsella, heitt og kalt vatn, gólf- teppi, útvarp með cd, sjónvarpsloft- net, auka lestarlúga, grjótgrind. Einnig Combi Camp með íslenskum undirvagni. Upplýsingar í símum 568 9898 og 892 0002. Tabbert Pusini 4/2006. Smá útlits- gallað, kostar nýtt 3.800. Eitt með öllu. Tilboð 2.700. Sími 691 4441. Hobby hjólhýsi 720 UML, árg. 04/2005. L. 9150 cm, br. 2500 cm. Svefnpláss f. 6. Verð 2.500 þús. Áhv. ca 2 millj. Glæsilegt hús. Sími 892 8380 og 552 3555. Húsbílar Stangir fyrir markísu Stangir með gormum fyrir awning (markísu) fyrir ameríska bíla. Verð 30 þús. Upplýsingar í síma 897-4213. Glæsilegur húsbíll Chevrolet 1994, sjálfskiptur, dísel turbo 6,5 ekinn 49 þús km. Rafstöð, 2x 100 v sólarrafhlöður, 220v rafkerfi. Leðurinnréttingar, halagon lýsing. Einn sá flottasti. Sjón er sögu ríkari. Upplýsingar í síma 897-0490. Captains stólar 2 nýjir leður Captains stólar með snúning. Verð aðeins 160 þús. Upplýsingar í síma 897-0490. Tennishöllin opnuð Skemmtileg byrjendanámskeið í tennis fyrir fullorðna í sumar. Sumarskráning hafin. Verð frá 8.900 kr. Upplýsingar í síma 564 4030. Tennishöllin og TFK. 2ja-3ja herb. íb. m. sérinngangi. Rvk & nágrenni. Reglus., reykl. & skilvíst par. Sérinng., jarðh. t.d. neðri h., einbýli. Langtímaleiga, dýrahald leyft. Sími 692 3840. *Meðmæli*. Skoðum allt! Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl FRÉTTIR GUÐJÓN Ólafur Jónsson, alþingis- maður, sendi eftirfarandi yfirlýsingu frá sér á fimmtudagskvöld: „Í tilefni af fréttaflutningi DV í dag, sem m.a. var vísað til í fréttum Ríkissjónvarpsins í kvöld, tel ég nauðsynlegt að taka eftirfarandi fram: Lýsing á því hvernig staðið var að meðferð og afgreiðslu mála í undir- nefnd allsherjarnefndar Alþingis, þ.m.t. talið þess máls sem fréttin fjallar um að öðru leyti, er röng. Nið- urstaða undirnefndar allsherjar- nefndar í hverju tilviki um hvort lagt skuli til að ríkisborgararéttur verði veittur eða ekki er sameiginleg nið- urstaða þeirra þriggja þingmanna sem þar sitja, eftir atvikum að und- angengnum umræðum. Umrætt til- vik var í engu frábrugðið öðrum að því leyti. Beitti ég umrædda nefnd- armenn hvorki þrýstingi við af- greiðslu málsins né var beittur þrýstingi af þeim eða öðrum. Ég ítreka það sem áður hefur ver- ið haft eftir mér, Bjarna Benedikts- syni og Guðrúnu Ögmundsdóttur að umrætt mál fékk að öllu leyti eðli- lega og sambærilega afgreiðslu í allsherjarnefnd eins og öll önnur mál um ríkisborgararétt sem þar voru til umfjöllunar fyrir þinglok. Hefur það og verið staðfest með tölfræðilegum gögnum frá allsherjarnefnd að af- greiðsla málsins var á engan hátt sérstök og efnisleg rök að baki veit- ingu ríkisborgararéttar sambærileg fjölda annarra tilvika. Þrátt fyrir að það sé utan verk- sviðs allsherjarnefndar er rétt að nefna að til viðbótar hefur verið stað- fest af hálfu dómsmálaráðuneytis og Útlendingastofnunar að afgreiðsla umræddrar umsóknar var sambæri- leg við afgreiðslu annarra umsókna sem berast ráðuneytinu skömmu fyrir þinglok. Ég dreg ekki í efa að veiting rík- isborgararéttar með lögum frá Al- þingi sé réttmætt umfjöllunarefni fjölmiðla. Slík umfjöllun má þó ekki einkennast af dylgjum og rakalaus- um fullyrðingum.“ Yfirlýsing frá Guðjóni Ólafi Jónssyni Í TILEFNI af alþjóðadegi hjúkr- unarfræðinga býður Félag ís- lenskra hjúkrunarfræðinga upp á dagskrá á Grand Hóteli mánudag- inn 7. maí klukkan 16:30 – 18:00. Dagskráin er helguð starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga með áherslu á tækni í heilbrigðisþjónustu. Í fréttatilkynningu frá FÍH segir m.a.: Þróun heilbrigðisþjónustu í vestrænum ríkjum kallar stöðugt á nýja þekkingu, þjálfun og skilvirk vinnubrögð heilbrigðisstarfsmanna. Íslenskt heilbrigðiskerfi hefur ekki farið varhluta af þessari þróun. Tímaskortur og aðstöðuleysi draga úr gæðum þeirrar þjónustu sem þekking og faglegar kröfur heil- brigðisstarfsmanna bjóða upp á. Hjúkrunarfræðingar hafa áhyggjur af gæðum þjónustu og öryggi sjúk- linga. Rannsóknir hafa sýnt að gott starfsumhverfi heilbrigðisstofnana hefur jákvæð áhrif á gæði þeirrar þjónustu sem veitt er. Alþjóðasamtök hjúkrunarfræð- inga munu á komandi árum halda áfram baráttu sinni fyrir bættu starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga í heiminum og hafa af þeim sökum stofnað alþjóðlega miðstöð fyrir mannafla í hjúkrun (International centre for human resources in nurs- ing). Markmið samtakanna er stuðla að gæðum innan heilbrigð- isþjónustunnar með því að hvetja til uppbyggingar á góðu starfsum- hverfi fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Heimasíða samtakanna er www.ichrn.ch. Á ráðstefnunni flytur Lovísa Baldursdóttir, hjúkrunarfræðingur á Landspítala-háskólasjúkrahúsi, ávarp. Framsöguerindi flytja Þor- björg Sóley Ingadóttir, hjúkrunar- fræðingur á LSH, Þórður Helga- son, verkfræðingur á LSH, Kristrún Þórkelsdóttir, gæðastjóri á LSH, og Vigdís Hallgrímsdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Félagi ís- lenskra hjúkrunarfræðinga. Drengjakór Hallgrímskirkju syngur fyrir gesti að dagskrá lok- inni. Dagskrá á alþjóðadegi hjúkrunarfræðinga MORGUNGÖNGUR FÍ verða farn- ar dagana 7.–11. maí. Þá verður gengið á fjöll í nágrenni Reykjavík- ur fyrir fyrsta hanagal og komið í bæinn aftur fyrir vinnu. Fyrsta gangan er á Helgafell, því næst Vífilsfell, Grímannsfell, Keili og endað með ferð í Viðey á föstu- dag. Morgungöngur FÍ voru fyrst árið 2005 en síðan hefur þátttak- endum fjölgað jafnt og þétt. Allir eru velkomnir í morgungöngurnar og er þátttaka ókeypis. Lagt er af stað frá Mörkinni 6 kl. sex. Gott er að hafa með sér nestis- bita og góðan búnað. Göngurnar hefjast með örstuttri morgunleik- fimi, á toppnum er síðan lauflétt spurningakeppni og ferðin endar með liðkandi teygjuæfingum. Á fjöll við fyrsta hanagal STEFNA stjórnmálaflokkanna í mannréttindamálum verður til um- ræðu á morgunverðarfundi mánu- daginn 7. maí, kl. 8:30–9:30, í Blómasal Hótels Loftleiða. Fram- bjóðendur svara fyrirspurnum um stefnu flokka sinna í helstu málum er snerta mannréttindi: Fulltrúar flokkanna verða Atli Gíslason Vinstri grænum, Ágúst Ólafur Ágústsson Sam- fylkingu, Ásgerður Jóna Flosadótt- ir Frjálslynda flokknum, Birgir Ár- mannsson Sjálfstæðisflokki, Jónína Bjartmarz Framsóknarflokki og Lárus Vilhjálmsson Íslandshreyf- ingunni. Aðgangur er öllum opinn. Að fundinum stendur Mannréttinda- skrifstofa Íslands. Mannréttindi á morgunfundi HINN árlegi bókamarkaður Lions- klúbbs Seltjarnarness verður nú í 18. sinn á Eiðistorgi, Seltjarnarnesi í dag kl. 10-16. Á boðstólum verður ótrúlegur fjöldi bókatitla á gjafverði og má því gera reyfarakaup um leið og stutt er við góð málefni sem klúbb- urinn vinnur að. Bókamarkaður á Eiðistorgi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.