Morgunblaðið - 05.05.2007, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 55
Skartgripir
Fjallkonunnar
Reynomatic
Café Mílanó
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Opið hús í dag kl. 13–17, hand-
verks- og listmunasýning, kaffisala, heimabakaðar
kökur og smurt brauð. Ingvar Hólmgeirsson verður
með nikkuna. Kl. 14.30 sýna dömur úr fé-
lagsstarfinu föt frá tískuversluninni Smart. Allir vel-
komnir.
Breiðfirðingabúð | Félag breiðfirskra kvenna. Mun-
ið fundinn mánudaginn 8. maí kl. 20. Rætt verður
um vorferð, vonast til að sjá sem flesta.
Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu- og
skemmtifundur og jafnframt aðalfundur í Ásgarði í
Stangarhyl 4 hefst kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Vorsýningarnar opnar í
Gjábakka og Gullsmára í dag kl. 14–18. Hefðbundið
vöfflukaffi. Allir velkomnir.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Kl. 10 ganga. Vor-
sýning á hand- og listverki eldri borgara verður
laugardag og sunnudag. Opið kl. 14–18 báða dag-
ana. Vöfflukaffi.
Hæðargarður 31 | Líttu inn í morgunkaffi, skoðaðu
dagskrána, líttu í blöðin og skrafaðu við skemmti-
legt fólk. Alltaf eitthvað nýtt á döfinni. Fastir liðir
eins og venjulega. Ókeypis tölvuleiðbeining þriðjud.
og miðvikud. kl. 13–15. Allir velkomnir. S. 568-3132.
asdis.skuladottir@reykjavik.is.
Kvenfélagið Fjallkonurnar | Síðasti fundur vetr-
arins verður þriðjudaginn 8. maí kl. 20 í safnaðar-
heimili Fella- og Hólakirkju. Kvenfélag Langholts
kemur í heimsókn. Skemmtidagskrá, happdrætti.
Mætið með hatta. Kaffiveitingar.
Lífeyrisþegadeild Landssambands lögreglu-
manna | Síðasti sunnudagsfundur deildarinnar
þennan veturinn verður á morgun, 6. maí, kl. 10 á
Grettisgötu 89. Félagar fjölmennið.
70 ára afmæli. Hinn 6. maíverður sjötug Lilja
Soffía Jónasdóttir. Af því til-
efni verður hún með heitt á
könnunni á afmælsidaginn fyr-
ir ættingja og vini frá kl. 15 í
Hvammi, Suðurgötu 15–17,
Keflavík.
50 ára afmæli. ÓlafurÓlafsson héraðsdóm-
ari á Akureyri er fimmtugur í
dag, laugardaginn 5. maí.
Hann fagnar þessum tímamót-
um með fjölskyldu og vinum.
Hlutavelta | Þessi föngulegi hópur tók sig til og hélt tombólu til styrktar Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra. Þau söfnuðu 30.639
krónum. Þau heita frá vinstri: Arndís Ármann Halldórsdóttir, Björn Ármann Halldórsson, Elma Sól Snæhólm, Fannar Freyr Sig-
hvatsson, Herborg Vera Leifsdóttir, Ísak Hallmundarson, Lára Margrét Pálsdóttir og Þórdís Rafnsdóttir. Styrktarfélagið þakkar
þeim kærlega fyrir sendinguna.
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
dagbók
Í dag er laugardagur 5. maí, 125. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.)
Samtökin ’78 efna til kosninga-fundar í dag, laugardag.Fundurinn er haldinn í Regn-bogasalnum í húsnæði Sam-
takanna ’78 á Laugavegi 3, 4. hæð og
hefst kl. 14.
Frosti Jónsson er formaður Samtak-
anna ’78: „Við bjóðum til okkar fulltrú-
um allra flokka, bæði til að heyra hvað
flokkarnir hafa upp á að bjóða, en ekki
síður til að eiga samræður við fram-
bjóðendur og kynna sjónarmið okkar,“
segir Frosti. „Samkynhneigðir eru fjöl-
breyttur hópur með margbreytilegar
skoðanir. Það er mikilvægt að raddir
samkynhneigðra fái að heyrast og því
viljum við umfram allt kalla eftir sam-
ræðum um þau mál sem okkur varða.“
Mikið hefur unnist í réttindabaráttu
samkynhneigðra á Íslandi á síðustu ár-
um: „Þrátt fyrir miklar framfarir með
breytingum á lögum er okkar starfi
hvergi nærri lokið hér á landi. Samkyn-
hneigðir þurfa stöðugt að minna bæði
sjálfa sig og aðra á réttindi sín og
skyldur,“ segir Frosti. „Þess þarf einn-
ig að gæta að þær réttarfarslegu bætur
sem orðið hafa skapi ekki tómarúm, að
það gleymist að halda sýnileika og rétt-
indum samkynhneigðra á lofti. Okkur
er stundum hætt við að telja björninn
unninn með lagabreytingum, en það er
alls ekki svo. Fordómar hverfa því mið-
ur ekki af sjálfu sér og eitt af verk-
efnum okkar er að efla fræðslu sem
skilar miklu í þeirri baráttu.“
Frosti nefnir einnig að íslenskir
stjórnmálamenn geti haft mikil áhrif á
réttindabaráttu samkynhneigðra á al-
þjóðavettvangi: „Víða um heim er brot-
ið gróflega á samkynhneigðum og er
mikilvægt að stjórnmálamenn kynni
sér slík mál og færi þau í tal við fulltrúa
ríkja sem þeir sækja heim, eða heim-
sækja okkur.“
Samtökin ’78 eru hagsmuna- og bar-
áttusamtök homma, lesbía, tvíkyn-
hneigðra og transgender fólks: „Allt
frá stofnun árið 1978 hafa Samtökin
barist fyrir sýnileika og fullum rétt-
indum þessa hóps án undantekninga
eða skilyrða,“ segir Frosti.
„Samtökin ’78 starfrækja menning-
ar- og þjónustumiðstöð á Laugavegi 3
og á vettvangi Samtakanna starfa fjöl-
margir starfshópar að ýmsum mál-
efnum. Einnig bjóða Samtökin ’78 upp
á ráðgjafarþjónustu sem hefur reynst
mörgum ómetanleg hjálp við að stíga
sín fyrstu skref andspænis sjálfum
sér.“
Finna má nánari upplýsingar á slóð-
inni www.samtokin78.is.
Mannréttindi | Kosningafundur í dag kl. 14 hjá Samtökunum ’78
Baráttunni ekki lokið
Frosti Jónsson
fæddist 1972 og
ólst upp á Kirkju-
bæjarklaustri.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá
Menntaskólanum á
Akureyri 1992,
B.A. prófi í sál-
fræði frá Háskóla
Íslands 1998 og M.A í hagnýtum hag-
vísindum frá Háskólanum á Bifröst
2005. Frostri hefur starfað að mark-
aðsmálum um langt skeið, sem ráð-
gjafi hjá Birtingahúsinu frá 2005.
Hann hefur verið formaður Samtak-
anna ’78 frá mars 2007.
Tónlist
Angelo | Hetjur hylltar 2 – Tommi &
biggo: Tommi White hefur á ferli sín-
um stimplað sig sem helsta kennileiti
House á Íslandi. En það er bara topp-
urinn því Tommi hefur verið að hasla
sér völl um heim allan með útgáfu á
eigin efni. Nú seinast með laginu
Every Sunday þar sem Seth Sharpe
fer hreinlega á kostum.
Salurinn, Kópavogi | Laugardagur 5.
maí kl. 16. Emilíana Torrini kemur
fram ásamt gamla kórnum sínum,
Skólakór Kársness, undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur. Örfá sæti laus.
Aukatónleikar kl. 20. Miðaverð:
2.000/1.600 kr.
Söngfélag Skaftfellinga | Tónleikar
Söngfélags Skaftfellinga verða í
Laugarneskirkju sunnudaginn 6. maí
kl. 14. Kaffi fyrir eldri Skaftfellinga í
Laugarneskirkju sunnudaginn 6. maí
kl. 16.
Myndlist
Gallerí Fold | við Rauðarárstíg.
Arakne nefnist sýning Guðrúnar Öya-
hals í Hliðarsalnum. Þar sýnir Guðrún
málverk og skúlptúra. Guðrún stund-
aði nám í MHÍ og Burg Giebichen-
stein í Halle, Þýskalandi og útskrif-
aðist vorið 1997. Einnig lauk hún
kennslufræði við Listaháskóla Ís-
lands vorið 2005.
Gallerí Lind | Guðmunda Kristins-
dóttir er listamaður maímánaðar.
Hún sýnir afstrakt olíumálverk sem
unnin eru á þessu ári. Sýningin
stendur til 11. maí.
Listasafn ASÍ | Kl. 15 verður opnuð
samsýning fimm norrænna textíl-
listamanna: Önnu Þóru Karlsdóttur
og Guðrúnar Gunnarsdóttur frá Ís-
landi, Marianne Mannsåker frá Nor-
egi og Agnetu Hobin og Kristiinu
Wiherheimo frá Finnlandi. Tónlist
Paola Livorsi. Opið nema mánudaga
kl. 13–17. Aðgangur ókeypis. Til 27.
maí.
Listasalur Mosfellsbæjar | Í dag kl.
14 opnar Freyja Önundardóttir sýn-
inguna Eiginleikar í Listasal Mosfells-
bæjar. Málverkin eru allt frá hugrenn-
ingum um tengsl manna og náttúru
yfir í að sýna náttúruna án mannsins.
Á sýningunni er kafað ofan í svörðinn
og eiginleikar landsins kannaðir.
Salfisksetur Íslands | Guðrún Helga
Kristjánsdóttir opnar myndlistarsýn-
ingu í dag, laugardaginn 5. maí, sýn-
ingin stendur til 17. maí. Saltfisk-
setrið er opið alla daga kl. 11–18.
Skriðuklaustur | Sumaropnun hefst í
dag, laugardaginn 5. maí. Þá verður
einnig opnuð sýning á verkum banda-
rísku listakonunnar Ruth Boerefijn í
Galleríi Klaustri. Verkin eru unnin
með blandaðri tækni en sýninguna
kallar hún Interior Landscapes. Sýn-
ingin stendur til 27. maí.
Söfn
Víkin – Sjóminjasafnið í Reykjavík |
Grandagarði 8. Síðustu dagar sýn-
ingarinnar Úr ranni forfeðranna
verða helgina 5. til 6. maí. Á sýning-
unni gefur að líta stærstan hluta
þeirra 700 gripa sem hjónin Hinrik
Bjarnason og Kolfinna Bjarnadóttir
hafa gefið safninu. Opið um helgina
kl. 13–17.
Uppákomur
Hitt húsið | Bland í poka laugardag-
inn 5. maí kl. 11–16. Þar sýna og selja
meðal annars starfsmenn Ásgarðs
handverk sitt. Verk unnin í opnu tóm-
stundastarfi Tipp topp og 40+ verð-
ur til sölu. Opið kaffihús verður í
kjallara hússins.
Fyrirlestrar og fundir
Kringlukráin | París – félag fyrir þá
sem eru einir. Maí-fundur félagsins
verður í dag kl. 11.30. Nýir félagar
velkomnir.
Maður lifandi | Borgartúni 24. Opinn
hláturjógatími Hláturkætiklúbbsins
verður í dag, laugard. 5. maí, kl.
10.30. Góð upphitun fyrir alþjóðlega
hláturjógadaginn, 6. maí. Nýútskrif-
aðir hláturjógaleiðbeinendur sjá um
tímann. Allir velkomnir. Tíminn kostar
1.000 kr.
Fréttir og tilkynningar
Dvalarheimilið Ás | Basar verður í
Föndurhúsinu á Dvalarheimilinu Ási,
Frumskógum 6b, Hveragerði, sunnu-
daginn 6. maí kl. 13–18. Kaffi og vöffl-
ur seldar á staðnum.
Frístundir og námskeið
Málaskólinn LINGVA | Haustdagskrá
skólans er komin út á Netið. Lærðu
að tala spænsku, ensku, ítölsku,
þýsku og fleiri mál hjá okkur. Skrán-
ing hafin á www.lingva.is eða í síma
561-0315.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum
sínum að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og
mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is,
eða senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja lið-
inn „Senda inn efni“.
Einnig er hægt að senda
vélritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Í TILEFNI Kópavogsdaga verður
Kópavogsdeild Rauða krossins
með kynningarbás í Smáralind
laugardaginn 5. maí kl. 12–16.
Ungmenni og sjálfboðaliðar í En-
ter og Eldhugum sýna skapandi
verkefni sín og kynna starfið, en
Kópavogsdagar í ár eru tileinkaðir
menningu barna og ungmenna.
Sýndar verða teikningar ungra
innflytjenda af uppáhaldsstað
þeirra í Kópavogi og ljósmynda-
sýning Eldhuga „Vinátta og virð-
ing í Kópavogi“. Eldhugar hafa
hannað Kópavogsbúann árið 2057
sem lítur dagsins ljós og tímariti
Eldhuga verður dreift. Nokkrir
krakkar úr Enter taka þátt í
menningardagskrá á sviði í
Smáralindinni kl. 14–15.
Eldhugar eru 13–16 ára ung-
menni af íslenskum og erlendum
uppruna sem vinna saman að hug-
sjónum Rauða krossins um betra
samfélag án mismununar og for-
dóma. Ungmennin hittast vikulega
í sjálfboðamiðstöð Kópavogs-
deildar Rauða krossins.
Verkefnið Enter er fyrir 9–12
ára krakka af erlendum uppruna
og er unnið í samstarfi við nýbúa-
deild Hjallaskóla. Krakkarnir
koma einu sinni í viku eftir skóla í
sjálfboðamiðstöð Kópavogsdeildar
og fá meðal annars málörvun í
fjölbreyttum leikjum og fræðslu
um tómstundastarf í Kópavogi í
gegnum kynningar og vettvangs-
ferðir.
BYKO er bakhjarl Eldhuga og
Enter og verkefnið Eldhugar hef-
ur auk þess fengið styrk frá ESB-
áætluninni Ungt fólk í Evrópu.
Ungmenni sýna á
Kópavogsdögum
BÁTADAGAR hjá R. Sigmundssyni
í Ánanaustum 1 verða haldnir um
helgina, 4.-5. maí. Þessar sýningar
eru orðnar árviss viðburður hjá R.
Sigmundssyni og áður hjá Vélasöl-
unni, og draga alltaf að mikinn
fjölda fólks.
„Nú er einmitt rétti tíminn til að
fara að huga að bátunum, hvort
sem fólk er að hugsa um að kaupa
nýjan eða lappa uppá þann gamla.
Augljóslega hefur áhugi fólks á
bátasportinu aukist mikið á Íslandi
á undanförnum árum og virðist
ekkert lát vera á því,“ segir í frétt
frá versluninni.
Á sýningunni um helgina verður
einnig hægt að skoða ýmislegt
fleira en báta. R. Sigmundsson býð-
ur einnig uppá siglinga- og fiskileit-
artæki í miklu úrvali, utanborðs-
mótora, talstöðvar, björgunar-
búnað og margt fleira.
Bátadagar R. Sigmundssonar
verða haldnir í versluninni í Ána-
naustum 1, og verður opið kl. 10-18
á laugardaginn og kl. 12-18 á
sunnudaginn.
Bátasýning
um helgina
FUNDUR hefur verið boðaður á
sunnudaginn kl. 17 um atvinnu-
ástandið í Bolungarvík. Fundarboð-
andi er Guðmundur Halldórsson,
fyrrverandi formaður smábáta-
félagsins Eldingar.
Fundurinn verður haldinn í Ráð-
húsi Bolungarvíkur. Frummælandi
verður Anna Eðvarðsdóttir, forseti
bæjarstjórnar Bolungarvíkur.
Þingmönnum kjördæmisins hefur
verið boðið á fundinn. Hann er öll-
um opinn.
Atvinnumál rædd
í Bolungarvík