Morgunblaðið - 05.05.2007, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 59
Í DAG er þátturinn Orð skulu
standa sendur út frá Ísafirði. Gestir
eru Finnbogi Hermannsson fyrrver-
andi fréttamaður og Ingunn Ósk
Sturludóttir kennari og söngkona. Á
milli þess sem þau velta fyrir sér
m.a. „vanillu“ og „apaeista“ botna
þau þennan fyrripart:
Á Vestfjörðum er vorið svalt
og vindar blása kaldir.
Í síðustu viku var fyrriparturinn
dónaskapur um vestfirska heiðurs-
menn:
Nú vantar Hermann og Hannibal
og helvítin Karvel og Matta.
Í þættinum botnaði Ólína Þor-
varðardóttir:
Hérna er karla- og kvennaval
sem kjósendur eru ekki að fatta.
Davíð Þór Jónsson:
Slæmt er að eiga ekki val
um andskota, djöfla og skratta.
Halldór Hermannsson botnaði
tvisvar í þættinum:
Það var nú kjarnmikið karnival
með karla eins og þessa skratta.
Þá var á mannfundum mergjað tal
og mælt var á íslensku bratta.
Úr hópi hlustenda botnaði Hall-
berg Hallmundsson, „úr því farið er
að blóta“:
Manni gefst varla minna val
en milli fjanda og skratta.
Valur Óskarsson hélt áfram með
vestfiska stjórnmálamenn:
Mig fýsir líka að færa í tal
frjálslyndan, þéttvaxinn skratta.
Halldór Ármannsson:
Og langömmu blessaða í Búðardal
er bakaði flatbrauð og klatta.
Auðunn Bragi Sveinsson sendi tvo
botna:
Nú er magurt mannaval,
en margt um kríli og patta.
Nú er hart um hetjuval,
en harðla margt um patta.
Halldór Halldórsson:
Mikið er okkar mannaval
og munum því jafna um þá patta.
Og loks Benedikt Gestsson:
Ef helgaðist pólitískt hanagal
hágæða fengjum við skatta.
Orð skulu standa
Kaldir
vindar
Vestfjarða
Hlustendur geta sent sína botna í
netfangið ord@ruv.is eða bréfleið-
is til Orð skulu standa, Ríkis-
útvarpinu, Efstaleiti 1, 150 Reykja-
vík.
HARPA Dröfn Skúladóttir og Sigurbjörg
Halldórsdóttir unnu til verðlauna í hár-
greiðslukeppni IAHS sem fram fór dagana
26.–30. apríl í Gautaborg í Svíþjóð. IAHS
eru alþjóðleg samtök hársnyrtiskóla og í
Gautaborg voru samankomnir nemendur og
kennarar frá ýmsum hársnyrtiskólum í Sví-
þjóð, Noregi, Finnlandi, Danmörku, Eng-
landi, Íslandi, Kóreu og Ástralíu til að kynn-
ast innbyrðis og keppa í fjórum greinum
hársnyrtifagsins. þær Harpa Dröfn Skúla-
dóttir og Sigurbjörg Halldórsdóttir fóru
ásamt einum kennara, Ragnheiði Bjarna-
dóttur úr hársnyrtideild Iðnskólans í
Reykjavík. Harpa Dröfn keppti í tískuklipp-
ingu og lit herra (street fashion) og hreppti
2. sætið en Sigurbjörg keppti í Jackie Bour-
nes’ Avant Garde Design, sem eru miklar og
tígulegar uppgreiðslur á síðu hári, og lenti
hún í 3. sæti.
Íslenskir hársnyrtar
í 2. og 3. sæti
Morgunblaðið/G.Rúnar
Stolt Baldur Gíslason, skólameistari Iðnskólans, Ragnheiður Bjarnardóttir, brautarstjóri hár-
snyrtideildar ásamt þeim Sigurbjörgu Halldórsdóttur og Hörpu Dröfn Skúladóttur.
MYNDBAND af
leikaranum David
Hasselhoff í annar-
legu ástandi fer nú
sem eldur í sinu um
Netið. 16 ára dóttir
leikarans tók mynd-
irnar af honum þeg-
ar hann var dauða-
drukkinn og setti
þær á Netið, honum
til áminningar. Has-
selhoff sendi frá sér
fréttatilkynningu í
kjölfarið og kenndi
meðal annars skiln-
aði um hegðun sína.
Hann hefur áður
lent í vandræðum
vegna drykkju.
Drukkinn strand-
vörður á Netinu
David Hasselhoff
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
3
53
62
0
4
/0
7
V-
RO
DHarley6x
+ 3 milljónir
í bakpokann
á tvöfaldan miða!
+ 6,3 milljónir í skottið
á tvöfaldan miða!
6xLexus GS 300
-vinningur í hverri viku
Hringdu núna í síma 561 7757
Kauptu miða á www.das.is
Átt þú miða?
50 þúsund vinningar dregnir út á árinu!
40 aðalvinningar á 2 milljónir hver eða
4 milljónir á tvöfaldan miða.
DREGIÐ
EFTIR
3 DAGA!
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111