Morgunblaðið - 05.05.2007, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 5. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
NEXT kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára
BLADES OF GLORY kl. 2 - 4 - 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12 ára
THE MESSENGERS kl. 8 B.i. 12 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:50 - 4 LEYFÐ DIGITAL 3D
MEET THE ROBINSONS ÓTEXTUÐ m/ensku tali kl. 6:10 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
SPIDER-MAN 3 kl. 12 - 3 - 6 - 9 - 12 B.i.10.ára
SPIDER-MAN 3 VIP kl. 12 - 3 - 6 - 9 - 12
BLADES OF GLORY kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára
SHOOTER kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára
BREACH kl. 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i.12.ára
THE GOOD SHEPERD kl. 10:10 B.i.12.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:30 - 2 - 3:30 - 4 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 8 B.i.7.ára
BECAUSE I SAID SO kl. 6 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
BECAUSE I SAID SO
BESTA MAMMA Í HEIMI
GETUR LÍKA VERIÐ ERFIÐASTA MAMMA Í HEIMI
Diane Keaton Mandy Moore
ee
H.J
eee
V.J.V. TOPP5.IS
eee
Ó.H.T. RÁS2
eee
S.V. MBL
eee
V.J.V. TOPP5.IS
FYRSTA STÓRMYND SUMARSINS
HEIMSFRUMSÝNING
WWW.SAMBIO.IS
eee
L.I.B, Topp5.is
Íslensku þátttakendurnir lentuí gær og voru flestir, þar ámeðal Eiríkur Hauksson, að
koma í fyrsta sinn hingað til
lands. Stemningin í hópnum er
góð og menn eru tilbúnir í slag-
inn, enda þétt dagskrá fyrir hönd-
um. Ljóst er að hver og einn
hyggst halda af fullum krafti í
undanúrslitakeppnina á fimmtu-
daginn næstkomandi.
Fyrsta æfing Íslendinganna áHartwall-leikvanginum verð-
ur í dag en æfingar annarra kepp-
enda í undanúrslitunum eru þegar
hafnar. Á vettvangi kennir ýmissa
grasa, þar má sjá skipuleggj-
endur, tæknimenn og örygg-
isverði, blaðamenn og ljósmynd-
ara, flytjendurna sjálfa og síðast
en ekki síst aðdáendurna. Hverju
þátttökulandi er heimilt að hafa
allt að tíu aðdáendur með í föru-
neyti sínu og setja þeir óneit-
anlega svip sinn á atburðinn allan.
Keppnin er heldur betur farinað gera vart við sig í Hels-
inki. Hvarvetna má sjá litríka
blómamynstrið sem prýðir alla
umgjörð keppninnar og varning
tengdan henni, það þekur meira
að segja heilan sporvagn sem ek-
ur um í miðbænum. Þeir sem vilja
áþreifanlega minningu um þennan
sögulega atburð geta svo saumað
sér gluggatjöld með samsvarandi
flúri, því hið góðkunna fyrirtæki
Marimekko hyggst prenta nær 3
km af slíku efni.
Í Finnlandi tíðkast að hlutirnirséu á réttum stað á réttum
tíma. Til að enginn týnist og þeim
seinki í kjölfar þess, eru á að-
albrautarstöðinni æpandi skilti
sem vísa vegfarendum á hvaða
leiðir liggi til Evróvisjón. Ekki
veitir af, því á götum borgarinnar
má heyra æ fleiri tungumál úr
munni ferðamanna með götukort í
höndunum og jafnvel hliðartöskur
með mynstrinu góða.
Í miðbænum er einfaldlega alltkrökkt af hlutum tengdum
Evróvisjón. Opinber aðdáendamið-
stöð keppninnar, svokallaður Eu-
roclub, er í Gamla stúdentahúsinu
í hjarta borgarinnar. Þar er þegar
hafin heljarinnar Sing Star keppni
sem rímar vel við gríðarlegan ka-
raoke-áhuga Finna. Handan göt-
unnar er Lasipalatsi, þar sem
aðdáendur í sjálfboðavinnu selja
öðrum aðdáendum alls kyns varn-
ing tengdan keppninni, auk þess
að veita ýmsar upplýsingar. Rétt
handan við hornið er svo Evr-
óvisjón-þorpið svokallaða sem
styrktaraðilar keppninnar standa
fyrir. Þar verður á boðstólum
margs konar tónlistarflutningur,
bæði fulltrúa ýmissa landa úr
keppninni og þekktra finnskra
hljómsveita og listamanna. Á með-
al flytjenda er einmitt Eiríkur
Hauksson, en hann mun troða upp
í dag að lokinni æfingu.
Hinir dagfarsprúðu Finnar eru
nýbúnir að halda sína helstu partí-
daga, sem eru í kringum 1. maí,
en mannhafið á götum Helsinki þá
dagana jafnast á við 17. júní í
Reykjavík. Nú er rétt svo tími til
að anda áður en næsta veisla
gengur í garð. Það er spenna í
loftinu en um leið ánægja með
langþráðan og óvæntan sigur í
Aþenu fyrir ári síðan. Sjálfstraust
þjóðarsálarinnar hefur eflst, Finn-
ar geta sigrað nágranna sína í
Svíþjóð í fleiru en farsímaiðnaði
og íshokkí. Finnska ríkissjón-
varpið hefur lagt mikinn metnað í
starf sitt sem keppnishaldara og
borgaryfirvöld keppast við að
róma viðburðaríkt listalíf Hels-
inki. Enginn efast um að keppnin
verður glæsileg og vel heppnuð og
Finnar halda ótrauðir áfram að
úrslitakvöldinu eins og þeim ein-
um er lagið, hægt en örugglega.
» Í miðbænum er ein-faldlega allt krökkt
af hlutum tengdum Evr-
óvisjón.
Við RÚV Eiríkur leggur í hann.
halldt@hi.is
FRÁ HELSINKI
Halldóra Þórsdóttir
Morgunblaðið/Eggert
Mættur Eiríkur var í miklu stuði þegar hann steig út úr flugvélinni á Vantaa-flugvellinum í Helsinki í gær.
Helsinki í
Evróvisjónblóma
Í Leifsstöð Hópurinn við brottför.