Morgunblaðið - 05.05.2007, Qupperneq 68
LAUGARDAGUR 5. MAÍ 125. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2650 HELGARÁSKRIFT 1600 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Sextíu milljóna lóðir
Einbýlishúsalóðir í Urriðaholti í
Garðabæ munu kosta frá 18 til 60
milljónir króna, allt eftir stærð og
staðsetningu þeirra. Sala lóðanna
mun hefjast 15. maí næstkomandi og
ljúka hinn 24. sama mánaðar. »For-
síða
Utan sýnisviðs
Kannað verður hvort hægt er að
bæta eftirlit í Sundlaug Kópavogs
eftir að 15 ára piltur fannst meðvit-
undarlaus á botni laugarinnar. Stað-
urinn þar sem pilturinn fannst er ut-
an sjónsviðs eftirlitsmyndavéla
sundlaugarinnar. »2
Vinstri grænir tapa fylgi
Vinstri grænir hafa misst um tíu
prósentustiga fylgi frá 20. mars síð-
astliðnum miðað við niðurstöðu
skoðanakannana en fylgi flokksins
er þó langt yfir fylgi hans í síðustu
kosningum. »Miðopna
Geta minnkað mengun
Ríki heims hafa næga fjármuni og
þekkingu til að bregðast við lofts-
lagsbreytingum. Er þetta nið-
urstaða fimm daga langrar ráð-
stefnu SÞ um loftslagsmál sem
haldin var í Taílandi. »16
SKOÐANIR»
Ljósvaki: Sumir klikka – aðrir ekki
Staksteinar: Ókeypis kostar
Forystugreinar: Falskt öryggi |
Hvað gera eigendur flutningabíla?
UMRÆÐAN»
Geta allir kosið?
Börn og umferðin
Ekkert óeðlilegt við spillingu
Fjármögnun heilbrigðisþjónustu
Leitin að líkamsl. Egils Skallagr.s.
Frjótt samstarf
Að duga eða drepast
Teiknað á hnöttinn Jörð
LESBÓK»
0
!9#
, )
!
:
/ 28
828
28 2 2 8 28 8 2 2 2
82
28 28
+ ; '6 #
8 2 2 2 8 28 <=>>4?@
#AB?>@1:#CD1<
;414<4<=>>4?@
<E1#;;?F14
1=?#;;?F14
#G1#;;?F14
#7@##1/H?41;@
I4C41#;AIB1
#<?
B7?4
:B1:@#7)#@A4>4
Heitast 10° C | Kaldast 1° C
Norðaustan 8–15
m/s. Rigning sunn-
anlands en annars
stöku skúrir eða él.
»10
Dean Ferrell, bassa-
leikari í Sinfóníunni,
heldur óvenjulega
tónleika í Kaffi
Hljómalind á upp-
stigningardag. »58
TÓNLIST»
Óvenjulegir
tónleikar
FÓLK»
Guðlaug Elísabet er í
íslenskum aðli. »62
Eyjólfur Kristjáns-
son er ekki sáttur
við framlag Íslands í
Evróvisjón og hon-
um finnst lagið leið-
inlegt. »61
SÖNGVAKEPPNIN»
Finnst lagið
leiðinlegt
TÓNLIST»
Hljómsveitin Blur kemur
saman að nýju. »61
NETIл
Ellý Ármannsd. er vin-
sælasti bloggarinn. »58
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Ellý hissa á bloggvinsældum
2. Garðar Thor ber dýran kross
3. Myndar útúrdrukkinn föður sinn
4. Æfa hraðakstur í herstöð
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
SÍÐASTA ár var mikið Megasarár –
ýmist voru gamlar plötur með hon-
um gefnar út aftur, endurbættar og
auknar eða aðrir
listamenn túlk-
uðu verk hans,
gömul og ný.
Á þessu ári
fáum við svo að
heyra nýja músík
frá meistaranum
því ekki aðeins
samdi Megas tón-
list við leikverkið
Lífið – notk-
unarreglur heldur er hann nú önnum
kafinn við að hljóðrita breiðskífu
með hljómsveit sem skipuð er
Hjálmunum Guðmundi Kristni Jóns-
syni, Sigurði Halldóri Guðmunds-
syni, Nils Turnqvist og Mikael
Svensson og Guðmundi Péturssyni
en einnig koma við sögu á plötunni
ýmsir aðrir hljóðfæraleikarar.
Upptökum er reyndar lokið en
hljóðvinnsla stendur yfir og lýkur á
næstu dögum.
Sena gefur plötuna út í haust en
nasasjón fæst af henni í Kastljósi
Sjónvarpsins á mánudagskvöld þeg-
ar Megas flytur þar nýtt lag. Ekki er
þó allt upp talið, því svo mikið var
tekið upp af lögum að út úr flóði og
því verður gripið til þess ráðs að gefa
út stuttskífu með fjórum til fimm
lögum sem kemur út á næstu vikum.
Ný músík
frá Megasi
Megas
„FYRIRFRAMGEFNAR nið-
urstöður í fornleifauppgrefti sam-
ræmast ekki lögboðinni vernd forn-
leifa sem þjóðminja.“ Þetta segir
Margrét Hermanns Auðardóttir sem
gagnrýnir harðlega að Jesse Byock,
norrænufræðingi við Kaliforníuhá-
skóla, hafi verið veittur 24 milljóna
króna styrkur úr menntamálaráð-
urneytinu til þess að halda áfram
uppgrefti að Hrísbrú í Mosfellsdal.
Byock leitar að gröf og líkams-
leifum Egils Skallagrímssonar og
segir Margrét hann byggja rann-
sóknina á frásögn í Egilssögu sem sé
hæpin sagnfræðileg heimild. Í raun
gefi hann sér niðurstöðuna áður en
uppgröfturinn er gerður.
Margrét segir að Byock hafi rask-
að kirkjugrunni og gröfum í Kirkju-
hólnum að Hrísbrú þótt í þjóðminja-
lögum frá 2001 segi, að þeim
menningararfi þjóðarinnar sem m.a.
fornleifar geymi „verði skilað óspillt-
um til komandi kynslóða“. | Lesbók
Gagnrýnir
uppgröft
að Hrísbrú
ÍSLENSKU Evróvisjón-fararnir með Eirík Hauksson
í broddi fylkingar héldu til Helsinki í Finnlandi í
gær.
Að sögn Halldóru Þorsteinsdóttur í Helsinki er
góð stemning í hópnum og veitir ekki af því dag-
skráin næstu daga er þétt. Fyrsta æfingin á Hart-
wall-leikvanginum fer fram strax í dag og svo verða
stífar æfingar fram að undankeppninni sem fer
fram á fimmtudaginn, 10. maí. Fari svo að Eiríkur
og félagar komist upp úr undankeppninni, keppa
þeir til úrslita laugardaginn 12. maí.
Halldóra segir að keppnin setji mikinn svip á
Helsinki um þessar mundir og sem dæmi má nefna
að ýmiss konar varningur tengdur keppninni er til
sölu á götum borgarinnar.
Á myndinni má sjá þá Hauk Hauksson, fararstjóra
íslenska hópsins, og Eirík Hauksson á Vantaa-
flugvellinum í Helsinki í gær. | 64
Morgunblaðið/Eggert
Rokkarinn lentur í Helsinki
Íslenski Evróvisjón-hópurinn fór til Finnlands í gær
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgis@mbl.is
BRÆÐURNIR Sverrir og Einar
Þorsteinssynir ætla fyrstir Íslend-
inga að fara hringinn í kringum jörð-
ina á mótorhjólum og gera ráð fyrir
því að það taki 90 daga. Þeir leggja í
hann á þriðjudaginn, 8. maí, kl. 10 og
taka Norrænu næsta dag frá Seyð-
isfirði. Frá Skandinavíu verður hald-
ið í austur, um víðáttur Síberíu og
Mongólíu meðal annars.
Mjög spenntir
Sverrir segir þá bræður spennta
fyrir ferðinni. „Það er nú ekki hægt
annað,“ segir Sverrir. Aðalatriðið sé
ekki dagafjöldinn sem ferðin tekur
heldur að reisan sjálf. „Við höfum
safnað reynslu í mörg ár. Þar fyrir
utan skiptir gott skipulag máli, að
vera í góðu líkamlegu formi og að
þekkja vel tæki og tól.“
Hjólin eru ekki af kraftmestu gerð
að sögn Sverris en kraftmikil þó. „Við
erum viðbúnir því að það geti hvað
sem er gerst, hvar sem er. Þegar
maður fer í svona ferð, við erum bara
tveir, þá verður maður að vera viðbú-
inn öllu hreinlega,“ segir Sverrir.
Hvort sem maður eða hjól bili.
Sverrir segir sérstakt að fara
Sverrir segir sérstakt að fara hring-
inn í kringum hnöttinn í einum
áfanga. Bræðurnir ákváðu sjálfir
hvaða leið þeir ætluðu að fara en þeir
fara ekki um ófriðarsvæði. Sverrir
segir þá þó búna undir að ribbaldar
og ræningjar verði á vegi þeirra, sem
og einhverjar skepnur.
Þeir bræður kynna ferðina kl. 12 í
dag, í verslun MotorMax að Klett-
hálsi 13. Þar verða mótorhjólin og
önnur tæki og tól bræðranna til sýnis.
Leggja í langferð
Bræðurnir Sverrir og Einar Þorsteinssynir ætla fyrstir Ís-
lendinga að fara hringinn í kringum jörðina á mótorhjólum
♦♦♦