Morgunblaðið - 10.05.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 2007 31
steinþagað allan tím-
ann.
Ef Víkverji hefði
leikstýrt myndbanda-
laginu hefði hann látið
aðalsöguhetjuna
þreyta Drangeyjar-
sund, Grettir var jú
rauðhærður líka, frá-
bær skírskotun í ís-
lenskan sagnaarf.
Ef við slysumst til að
vinna keppnina í Finn-
landi, krefst Víkverji að
Íslendingar haldi
keppnina í Skagafirði.
Héraðið er þrungið
sögu ýmissa stórmenna
og -viðburða. Og enga
bensínháka á svæðið, takk fyrir.
Skagfirsk hross undir liðið og ekkert
múður. Og flosmjúka geitamjólk út í
kaffið.
x x x
Hvers vegna þarf alltaf að talaum „bardaga“ þegar minnst er
á hnefaleika? Þetta eru engir bar-
dagar. Í bardögum eigast yfirleitt
ekki við vopnlausir menn. Þegar
tveir hnefaleikarar mætast í hringn-
um eru þeir að keppa í íþróttaleik.
En væntanlega hafa einhverjir þörf
fyrir að upphefja þessa íþrótt og
sækja sér líkingar í stríðsmál. Enska
orðið fight getur líka þýtt rifrildi.
Eiríkur Haukssoner söngheppinn
keppnismaður og hef-
ur fengið meðbyr í
Finnlandi undanfarna
daga. En Víkverja
finnst þetta framlag
hálfslappt og minnir
óþægilega mikið á
Show Must Go On með
bresku hljómsveitinni
Queen í upphafi tíunda
áratugarins. Og mynd-
bandið er vægast sagt
hrikalegt. Þarna var
enn einu sinni dreginn
fram vænn bensín-
hákur og farið syngj-
andi á rúntinn með
toppinn niðri. Er svona óskaplega
gaman að syngja framlög í eyðslu-
frekum blæjubíl? Sjáið til, Toyota
Avensis fjölskyldubíll losar 1,5 kg af
koldíoxíði af því einu að aka um 7 km
vegalengd. Hver skyldi mengunin
vera frá þessum 2 tonna ameríska
myndbandalagsbíl? Er þetta fram-
lag íslensku þjóðarinnar til barátt-
unnar gegn losun gróðurhúsa-
lofttegunda? Viljum við ávarpa
Evrópu svona í upphafi vetnisaldar?
Gat framlagasöngvarinn ekki notað
Toyota Avensis ef það þurfti að nota
bíl í atriðinu yfirhöfuð? Og af hverju
var svona mikið af fólki með? Vík-
verji sá ekki betur en það hefði
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
BRITISH Airways (BA) býður nú
farþegum sínum ný legusæti á við-
skiptafarrýminu Club World.
Hægt er að leggja sætin alveg flöt
niður og eru þau þá 64 sentímetra
breið.
BA hefur boðið upp á legusæti á
viðskiptafarrými síðan árið 2000 en
þau voru hörð og þröng auk þess
sem ekkert geymslurými var fyrir
skó og aðra persónulega muni.
Nýju sætin eru mun mýkri og
breiðari en þau gömlu og þau hafa
sérstaka skúffu fyrir fartölvu og
skó. Mjúkur koddi og þykk værð-
arvoð fylgir með í kaupunum.
Norska vefritið forbruker.no
kannaði þægindi nýju Club World
sætanna og staðhæfir að fyrir þá
sem eru vanir þröngum og hörðum
sætum á almennu farrými séu
legusæti BA sem draumur. Til að
mynda er hægt að teygja úr fót-
unum og hagræða sér í þeim.
Auk nýju legusætanna er BA
með nýtt afþreyingartilboð um
borð sem felur í sér 100 bíórásir,
70 útvarpsrásir og alls kyns tölvu-
leiki og er það í boði fyrir alla far-
þega. Á viðskiptafarrýminu getur
fólk valið úr snarli og drykkjar-
föngum úr bar sem fylgir sætinu.
Eins og gefur að skilja eru þæg-
indin ekki alveg ókeypis. Breyt-
anlegur miði fram og til baka milli
Óslóar og New York kostar um
250 þúsund krónur. Hægt er að fá
miða sem ekki má breyta fyrir um
164 þúsund krónur.
Skipta þarf um vél í Lundúnum
því nýju sætin eru til að byrja með
aðeins í boði á leiðum BA milli
London og New York. Hins vegar
er stefnt að því að þau verði að
finna í öllum langferðum flug-
félagsins þegar fram líða stundir.
Ekki veitir af því eftirspurnin eftir
þeim ku vera mikil.
Rými Það kynnu líklega flestir að meta að geta teygt úr sér í háloftunum.
Sofandi í háloftunum
Fréttir á SMS
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
8
1
3
1
SKRÁÐU
ÞIG NÚNA
ÞEIR SEM SKRÁ SIG FYRIR
17. JÚNÍ FÁ 10.000
GLITNISPUNKTA!
VILDAR
KLÚBBUR
GLITNIS