Morgunblaðið - 08.06.2007, Page 25
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 25
„Íslenskar trjáplöntur
eru aðlagaðar okkar veðráttu.“
Björn Sigurbjörnsson, garðyrkjumaður.
Í áratugi hafa íslenskir garðyrkjubændur unnið að því að byggja upp
og rækta úrval af garðplöntum fyrir íslenska veðráttu.
Nýttu þér dýrmæta þekkingu og reynslu íslenskra garðyrkjubænda.
VELDU ÍSLENSKAR TRJÁPLÖNTUR, SÉRMERKTAR ÞÉR.
Húðflúr og hljómlist
Gera má ráð fyrir því að litadýrð og skrautleg mynstur ráði ríkjum á
Grand Rokk um helgina en þar hefst Icelandic Tattoo Festival í kvöld. Húð-
flúrmeistarar frá Bandaríkjunum og Danmörku munu í slagtogi við innlenda
sérfræðinga sýna og bjóða upp á tattú fyrir gesti og gangandi.
Opið verður frá 11:00-22:00 og í kvöld leika hljómsveitirnar Weapons og
Atómstöðin. Annað kvöld troða Wolfgang og Vicky Pollard upp.
Sjómennska á Seltjarnarnesi
Seltjarnarnesið, sjórinn og útgerð eru viðfangsefni menningarhátíðar
Seltjarnarness sem hefst í dag. Á hátíðinni mætir fortíð framtíð í hinum
ýmsu uppákomum. Má þar nefna ljósmyndasýninguna Systir með sjóhatt
sem verður á Bókasafni Seltjarnarness, morgunverð með útgerðarstemn-
ingu á Eiðistorgi á laugardagsmorgun þar sem börn verða í aðalhlutverki,
lifandi tónlist, gjörning og Müllersæfingar í Sundlaug Seltjarnarness, fjöru-
tónleika í Bakkavör og listamessu í Seltjarnarneskirkju auk þess sem vinnu-
stofur listamanna verða opnar víðsvegar um Nesið. Menningarhátíðinni lýk-
ur með tónleikum Valgeirs Guðjónssonar og Jóns Ólafssonar á
sunnudagskvöld í Félagsheimili Seltjarnarness.
Við flygilinn í stofunni
Ljóð Nóbelskáldsins verða meðal viðfangsefna á stofutónleikum á
Gljúfrasteini á sunnudag en þar munu Signý Sæmundsdóttir og Þóra Fríða
Sæmundsdóttir flytja ljóðaperlur fyrir gesti. Auk ljóða Laxness verða á dag-
skránni ljóð eftir Davíð Stefánsson og Johann Wolfgang von Goethe en tón-
listin er eftir Jón Þórarinsson, Jakob Hallgrímsson og Franz Schubert.
Blóm og orkusteinar
Á morgun opnar hollustu- og hamingjumarkaður í Skólastræti en til
stendur að starfrækja markaðinn þar um helgar í sumar. Þar verður hægt
að krækja sér í lífrænt grænmeti, kryddjurtir, orkusteina og blóm svo eitt-
hvað sé nefnt. Lokað verður fyrir bílaumferð í Skólastrætinu á morgun svo
búast má við líflegri stemningu verði veðurguðirnir markaðshöldurum hlið-
hollir.
Heimsklassatónlist í Hveragerði
Aðeins 40 mínútur tekur að aka frá höfuðborginni til Hveragerðis þar sem
tónlistarhátíðin Bjartar sumarnætur verður haldin í Hveragerðiskirkju um
helgina. Flytjendur á tónleikum á föstudag, laugardag og sunnudag eru
Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari, Peter Máté
píanóleikari, mezzósópransöngkonan Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, píanó-
leikarinn Víkingur Heiðar Ólafsson, Greta Guðnadóttir fiðluleikari og Guð-
mundur Kristmundsson víóluleikari.
Tískan á Sturlungaöld
Hvaða föt þótti Sturlungum fín eða ófín og hvað stjórnaði litavali þeirra?
Þessum spurningum og fleirum er varða klæðnað þessara vösku víkinga
verður leitast við að svara á Minjasafninu á Akureyri kl. 14 á morgun. Helgi
Þórsson og Beate Stormo, áhugafólk um forn fræði og miðaldafólk ætla þá
að veita gestum safnins innsýn í klæðað Sturlunga.
Hæglátir á krossgötum
Ævintýralegir hlutir og fagrir verða á sýningunni Óslípaður Demantur
sem opnar á morgun í Gallerí Tukt í Hinu Húsinu. Hlutirnir hafa orðið til í
höndum 16-24 ára fólks á hönnunarverkstæði Fjölsmiðjunnar en listamenn-
irnir eiga það sameiginlegt að standa á krossgötum. Með þolinmæði, hæg-
læti og listrænu innsæi hefur það breytt verðlausu drasli í gersemar.
mælt með...
Reuters
Morgunblaðið/ÞÖK
Morgunblaðið/Þorkell
veginn og er almennt
opnara og glaðlegra.
Fólk treystir frekar
þeim sem eru með
hund.
x x x
Víkverji er að hug-leiða að bæta fjár-
hagsstöðuna með út-
gáfu bókarinnar The
Dog Diet – The Uli-
mate Lifestyle Choice.
Hún myndi að sjálf-
sögðu slá í gegn og má
búast við því að sjá Vík-
verja í framhaldinu í
þáttum Rachael Ray og
Opruh Winfrey.
x x x
Í öðrum hundafréttum er það helstað Reykjavíkurborg var að senda
út hundaleyfismerkimiða ársins. Á
honum stendur talan 2007 og á hann
að vera á hálsól hundsins ásamt
Reykjavíkurmerkinu og upplýs-
ingum um hundinn og eiganda.
Merkingin var send í pósti og var
ekkert annað í umslaginu. Varla
hefði það kostað borgina of mikinn
pappír að senda með stutt skilaboð
með áminningu um að hundurinn
eigi að bera þetta merki með bestu
sumarkveðjum frá Reykjavík-
urborg!
Ekki er hægt að of-meta hversu
heilsusamlegt það er
að eiga hund. Allavega
hund sem þarf að
hreyfa á hverjum degi
og svo þarf hann líka
að vera vel upp alinn.
Kostir þess að eiga
hund eru margir.
Fyrst ber að nefna að
gæludýr hjálpa fólki að
slaka á og draga úr
stressi en ekki er van-
þörf á því í nútímaþjóð-
félagi.
Einnig hvetur hund-
urinn til þess að eig-
andinn fari í reglulega
göngutúra sem stuðla að bættri
heilsu. Það má sjá hundaeigendur
úti í allskonar veðri, engar afsakanir
eru teknar gildar, hundurinn þarf að
komast út að hreyfa sig og gera
þarfir sínar.
Líka er erfitt að vera einmana því
mikill félagsskapur er af hundum.
Hann sýnir eigandanum líka skilyrð-
islausa ást, sem er ekki á hverju
strái í samfélagi mannanna. Hundur
stuðlar líka að því að rjúfa félagslega
einangrun því eins og allt fólk með
hund veit gefur fólk sig mun frekar á
tal við mann úti á götu þegar hund-
urinn er manni við hlið. Fólk spyr
um hundinn, spjallar um daginn og
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Fréttir í tölvupósti
Lesandi spyr: Eru maísbaunir al-
gjörlega næringarlausar eða ef
svo er ekki, hvaða næringaefni
innihalda þær?
„Niðursoðnar maísbaunir
eru ekki næringarlausar því
þær innihalda til dæmis
nokkuð af trefjum,“ segir
Elva Gísladóttir, verkefn-
isstjóri næringar hjá
Lýðheilsustöð. „Nið-
ursoðnar
maísbaun-
ir gefa
einnig
nokkuð af
fólati, E-
vítamíni
og C-
vítamíni þótt
ekki sé hægt að segja
að maískorn séu auð af
þessum næringarefnum,“ segir
Elva.
Trefjar í
maískornum
1
$+$) $&B
FJ4%KA)
-$333&''&$'+
$$) +"#L)J
A K
&-'&JFJ
$8'& 8$
+AFJ
( !
(
L&$3&$$) A &-
@"
5 )#
"$
*&H"
$
&
:&
M7#A"+
7#A"+
H)"
9&
K-!)J
K3J
K3J
K3J
K3J
K+3J
K+3J
KN3J
K+3J