Morgunblaðið - 08.06.2007, Page 53

Morgunblaðið - 08.06.2007, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 53 TÓNLIST Iðnó – Morr Music-tónleikar: Benni Hemm Hemm, Seabear, Isan, The Go Find og Tarwater Ísland  Útlönd  ÞAÐ VAR ýmislegt skrifað um Morr Music og mikilvægi merkisins í að- draganda tónleikanna sem fram fóru í Iðnó á þriðjudagskvöld, ekki síst vegna nýlegra samninga Benna Hemm Hemm og Seabear við Morr. Hins vegar hafa fáir rætt þá stað- reynd að Morr Music er fyrir löngu komin af léttasta skeiði þótt ung sé, og þar hefur fátt markvert gerst síð- astliðin ár. Vissulega var merkið áhrifamikið í upphafi aldarinnar en í dag er svo komið að ýmsir virtir miðl- ar sjá varla ástæðu til þess að fjalla um nýjustu útgáfur Morr. Ástæðan kom berlega í ljós á tónleikum merk- isins í Iðnó. Isan, sem gaf út hina stórfenglegu plötu Lucky Cat árið 2001 (að mínu mati besta plata Morr Music frá upp- hafi), hóf leikinn fyrir nærri tómum sal. Hvor meðlimur stillti sér upp fyr- ir aftan fartölvu (þetta var ekki skóg- láp, heldur skjágláp) og sneri þar tökkum og dillaði höfðinu annað slag- ið. Á þetta horfði fólk í fjörutíu mín- útur meðan óspennandi og gam- aldags raftónlist liðaðist um salinn. Ég beið hálfvegis eftir því að einhver myndi öskra yfir salinn að keis- ararnir á sviðinu væru naktir – slík ábending hefði í öllu falli verið þörf. Gólfið var þéttara þegar Seabear hóf sína dagskrá. Sveitin lék mörg bestu lögin af nýútkominni plötu sinni en leið nokkuð fyrir vonda hljóð- blöndun. Söngvarinn Sindri er með eina flottustu röddina í bransanum í dag og styrktist hún með hverju lag- inu. Hljómsveitin var orðin vel af- slöppuð í lokalaginu „Seashell“ og skildi áhorfendur eftir klappandi og hrópandi eftir flottan lokasprett þar sem sveitin hamaðist öll við að fram- kalla hávaða meðan Sindri hélt ró sinni og endurtók sömu línuna í sí- fellu. Þá var skipt til Þýskalands, og sveitin Tarwater hóf leik sinn. Ég þekki ekki plötur Tarwater og tón- leikarnir verða örugglega til þess að ég mun ekki sækjast eftir því. Morr- hljómurinn hefur elst fremur illa og þó að Tarwater hafi gert virðing- arverða tilraun til þess að lífga upp á hann þá entist árangurinn ekki nema í tæpt lag eða svo. Salurinn var enda fljótur að tæmast og var tæplega hálfur þegar Tarwater lauk sér af. The Go Find reið fyrir vikið ekki feit- um hesti frá sínum tónleikum. Sveitin sú hljómar eins og Morr gerði þegar merkið hætti að gefa út góðar plötur; poppuðu rokki er hrært saman við smelli, hljóðgervla og suð – ætli Lali Puna og Ms. John Soda (og The Notwist) hafi ekki komist lengst með þessa pælingu. Hún er hins vegar steingeld í meðförum The Go Find þótt tónleikarnir hafi ekki verið alveg jafnvondir og tónleikar Tarwaters. Benni Hemm Hemm lauk kvöldinu með tíu manna sveit. Hann lék eitt nýtt lag auk blöndu af báðum plötum sínum. Tónleikaferðalög hafa aug- ljóslega gert Benna og félögum gott því ég man ekki eftir að hafa heyrt bandið þéttara og kraftinn svona mikinn. Tónleikarnir voru svo vel heppnaðir að maður óskaði þess næstum að Benni hefði beðið með að taka Kajak upp og spilað hana þess í stað sundur og saman áður en hann hélt í hljóðver. Við því er þó ekkert að gera, og því lygndi undirritaður aug- unum aftur og naut þess einfaldlega að komast í návígi við aðra eins sveit. Verst var að þegar hér var komið voru ekki nema um fimmtíu manns eftir í salnum. Þessir tónleikar hefðu þurft að fara fram fyrir fimm eða sex árum síðan þegar fyrstu plötur Lali Puna, Ms. John Soda, Isan, Ulrich Schnauss og múm voru að koma út. Morr- hljómurinn var þá ferskur og plötur merkisins í alvörunni góðar (og fáan- legar hér á landi). Íslensku sveitirnar báru höfuð og herðar yfir hinar sveit- irnar á þriðjudagskvöld og eru einnig að senda frá sér langbestu plötur Morr Music um þessar mundir. Það gæti hins vegar verið orðið of seint að bjarga Morr þegar gæðakröfurnar til annarra sveita eru ekki meiri en raun ber vitni. Landsliðið stendur sig, en þýska deildin er hreinlega á allt öðru og lægra plani. Fjögur-tvö fyrir Ís- land! Atli Bollason 4-2 fyrir Ísland! Morgunblaðið/Kristinn Slappir Drengirnir í The Go Find riðu ekki feitum hesti af tónleikunum að mati gagnrýnanda. Félagar Örvar Þóreyjarson Smárason hjálpaði Thomas Morr við að þeyta skífum á tónleikunum. Tarwater „Gerði virðing- arverða tilraun til þess að lífga upp á Morr-hljóminn en entist ekki nema í tæpt lag eða svo.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.