Morgunblaðið - 08.06.2007, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚNÍ 2007 57
WWW.SAMBIO.IS
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:15 B.i. 7 ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 6 - 9-POWER B.i. 10 ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 6
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 5:45 - 9 B.i. 7 ára
GOAL 2 kl. 5:45-450 kr. B.i. 10 ára
eee
S.V. - MBLA.F.B - Blaðið
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Mesta ævintýri fyrr og síðar...
...byrjar við
hjara veraldar
„Besta Pirates
myndin í röðinni!
Maður einfaldlega gæti ekki
búist við meira tilvalinni
afþreyingarmynd
á sumartíma.“
tv - kvikmyndir.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.isFÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
„SANNUR SUMAR-
SMELLUR... FINASTA
AFÞREYINGARMYND“
Trausti S. - BLAÐIÐ
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
eee
LIB, Topp5.is
HILARY SWANK
44.000
GESTIR
MARGIR Íslendingar muna eftir hryllings-
myndinni Hostel sem var frumsýnd hér á landi
haustið 2005 að viðstöddum framleiðendunum
og Íslandsvinunum Eli Roth og Quentin Tarant-
ino. Hostel vakti mikla athygli víðsvegar um
heim fyrir hrottaskapinn sem hún innihélt og í
dag verður Hostel 2 frumsýnd í bíóhúsum á Ís-
landi sem og víðar um heim.
Í myndinni segir frá þremur ungum amerísk-
um konum sem eru við nám í Róm. Þær ákveða
að fara í ferðalag um Evrópu og á því rekast
þær á bekkjarfélaga sinn sem er falleg karlfyr-
irsæta. Hann er á leiðinni til Slóvakíu og platar
þær til að koma með sér með því að sannfæra
þær um að þar geti þær slakað á. Ungmennin
dvelja á farfuglaheimili í Slóvakíu og meðan á
dvölinni stendur komast þau að hrottaskapnum
sem á sér þar stað en þar hefur gestgjafinn
gaman af því að pína, nauðga og myrða.
Hostel 2 inniheldur meiri hrottaskap og
blóðsúthellingar en fyrri myndin og því alls ekki
fyrir viðkvæma.
Leikstjóri og handritshöfundur er sem fyrr
Eli Roth og aðalhlutverk eru í höndum Lauren
German, Bijou Phillips og Rogers Barts.
Hostel 2 er stranglega bönnuð innan 18 ára
og verða sérstakir dyraverðir við salina sem
munu sjá um að aldurstakmark sé virt.
Myndin verður sýnd í Smárabíói, Laug-
arásbíói, Háskólabíói og Borgarbíói Akureyri.
Hostel 2 frumsýnd í dag
Hrottaskapur og blóðsúthellingar
Óhugnaður Hryllingsmyndin Hostel 2 er
frumsýnd í dag.
KVIKMYNDIN The Hoax, eða Gabbið, segir
af rithöfundinum Clifford Irving sem gat sér
frægðar fyrir að falsa ævisögu auðkýfingsins
Howard Hughes. Litlu munaði að Irving kæm-
ist upp með þetta og tækist að blekkja fjöl-
miðla. Bókin var gefin út og Irving hélt því
fram að hún byggðist á samtölum þeirra Hug-
hes en það reyndist hrein og klár lygi.
Forsaga fölsunarinnar er sú, samkvæmt
alfræðivefnum Wikipedia, að árið 1970 hitti
Irving annan rithöfund og vin sinn, Richard
Suskind, og lögðu þeir saman á ráðin um að
rita ævisöguna. Þeir voru sannfærðir um að
Hughes myndi ekkert aðhafast þar sem hann
forðaðist fjölmiðla sem heitan eldinn. Suskind
átti að afla heimilda og Irving hófst handa við
að falsa bréf frá Hughes. Irving laug því svo að
forlaginu McGraw-Hill að hann hefði átt sam-
skipti við Hughes.
McGraw-Hill gaf bókina út og greiddi fúlgur
fjár til höfundanna og Hughes, en auðkýfing-
urinn sá aldrei það fé. Í stuttu máli, og til að
spilla ekki frekar fyrir þeim sem ætla að sjá
myndina, komst upp um Irving. Richard Gere
fer með hlutverk hans í myndinni, undir leik-
stjórn Lasse Hallström. Græna ljósið sýnir
myndina í Regnboganum og er því ekkert hlé.
Með önnur hlutverk fara Alfred Molina,
Marcia Gay Harding, Hope Davis, Stanley
Tucci og Julie Delpy.
Falsaði ævisögu Howards Hughes
Blekkingarleikur Richard Gere litaði silfrað
hárið fyrir hlutverk sitt í myndinni.
The Hoax segir af sönnum atburðum
FRUMSÝNINGAR »