Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 2
Í HNOTSKURN »LÍÚ hefur lagt fram til-lögu þess efnis að hval- veiðar verði stórauknar sem liður í því að byggja upp þorskstofninn. »Hrefnan er ein mesta fisk-ætan meðal skíðishvala, en algengast er að hún taki síli og loðnu. »Skv. síðustu talninguHafró telur hrefnustofn- inn við Ísland um 45 þús. dýr. Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is ÓVENJUMIKIÐ hefur í sumar ver- ið um að veiddar hrefnur séu fullar af stórum fiski eins og þorski og ýsu, en loðna sést varla lengur í maga þeirra. Hrefnan hefur auk þess verið magrari en hún áður var og segir Gunnlaugur Kon- ráðsson hrefnuveiðimaður að þar sé fæðuskorti um að kenna. „Hrefnan hefur undanfarin ár ver- ið mjög mögur, svo mögur að ég hef haft vissar efasemdir um það stund- um að sumar þeirra hafi veturinn af. Þær hafa núna verið magrari seint á haustin en þær voru á vorin hérna í gamla daga.“ Hrefnan kemur til landsins snemma á vorin í fæðuleit og safnar jafnt og þétt fituforða yfir sumarið, þar til hún tekur að hverfa um miðjan nóvember. Gunnlaugur segir ásigkomulag hrefnunnar áhyggjuefni og að m.a. verði þær kjötrýrari vegna fæðuskortsins. Hrefnan sé tækifærissinni í fæðuvali og reyni að fita sig á því sem fyrir verður, en svo virðist sem hún fái ekki næga næringu úr þeim fiski sem hún kemst í. Gunnlaugur segist hafa orðið var við að hnúfubak hafi fjölgað mjög við landið, sem jafnframt hafi slæm áhrif á hrefnuna þar sem hún fer ein- förum og verður undir í fæðubarátt- unni þegar minnkar um ætið í sjón- um. Hann segir jafnframt að bæði hvalveiðimenn sem hvalaskoðunar- skip finni fyrir því að hvalurinn sé styggari og órólegri, sem megi rekja til þess að dýrin séu svöng. „Það er beint samband á milli atferlis skepn- unnar og fæðuframboðs,“ segir Gunnlaugur og bætir við að þetta sé óheillavænleg þróun. Óvenjumagrar hrefn- ur snúa sér að þorski Hrefnuveiðimenn segja að dýrin éti meira af þorski en áður Gunnlaugur Konráðsson Magafylli „Við Íslendingar þurfum að draga verulega úr þorskveiði svo hrefnan fái sitt,“ segir á heimasíðu hrefnuveiðimanna, hrefna.is. 2 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is „ÉG get gert allt sem karlmenn geta gert og flest betur,“ hafði Hulda Dóra Styrmisdóttir eftir ömmu sinni og nöfnu, Huldu Jakobsdóttur, við opnun sýningar um þá síðarnefndu í Bókasafni Kópavogs í gær. Fimmtíu ár eru nú liðin síðan Hulda Jak- obsdóttir var kjörin bæjarstjóri í Kópavogi, fyrst íslenskra kvenna til að gegna slíku embætti. Af því tilefni standa jafnréttisnefnd Kópavogs og aðstandendur Huldu fyrir svokall- aðri örsýningu um líf og störf þess- arar merku konu og frumherja. Hulda fæddist í Reykjavík árið 1911 en varð síðar meðal frum- byggja í Kópavogi ásamt eiginmanni sínum, Finnboga Rút Valdemars- syni, og fimm börnum. Þau hjónin létu bæði mikið að sér kveða í mál- efnum sveitarfélagsins, og sagði Hulda Dóra við opnun sýning- arinnar að þau hefðu ásamt öðrum þeim sem komu að uppbyggingu Kópavogs unnið þar mikið þrekvirki. „Örugglega hefur það átt sinn þátt í velgengni Kópavogs að hann bar til þess gæfu, í upphafi tilvistar sinnar, að nýta vel krafta íbúa sinna, óháð stjórnmálaskoðunum eða kynferði.“ Skriflegar heimildir dýrmætar Á sýningunni má meðal annars sjá fjölmörg bréf og skjöl frá Héraðs- skjalasafni Kópavogs, þar á meðal fjárhagsáætlun bæjarins frá emb- ættisárum Huldu, sem sýnir glögg- lega að forgangsatriði bæjarstjóra var að tryggja börnum bæjarins skólavist. Hrafn Sveinbjarnarson, héraðsskjalavörður Kópavogs, talaði af þessu tilefni um mikilvægi þess að slíkar heimildir varðveittust, og benti á að með nýrri upplýs- ingatækni stæði skjalavörðum fram- tíðarinnar ógn af því sem kalla mætti „stafræna minnisglapasýki“. „Hulda ásamt öðrum lagði grunninn að Kópavogsbæ og minningin um það lifir í skjölum,“ sagði Hrafn. Una María Óskarsdóttir, formað- ur jafnréttisnefndar, sagði frá því að Hulda hefði risið gegn ríkjandi venju á sínum tíma og stundum mætt fordómum í starfi vegna kyn- ferðis síns, og að því miður örlaði enn á sömu viðhorfum gegn konum í stjórnunarstörfum nú 50 árum síðar. Hansína Ásta Björgvinsdóttir, fyrr- verandi bæjarstjóri Kópavogs, tók undir og sagði tímabært að bæta kynjahlutföll í embættismannakerf- inu. Sýning um Huldu Jakobsdóttur, fyrsta kvenbæjarstjóra Íslands, opnuð í Kópavogi „Hún var kvenskörungur mikill og drengur góður“ Morgunblaðið/Golli Opnun Kristín Ólafsdóttir, Una María Óskarsdóttir, Hulda Dóra Styrmisdóttir, Elín Smáradóttir, Hanna Guðrún Styrmisdóttir, Helga Guðrún Jónasdóttir og Kristín Pétursdóttir voru við opnun sýningarinnar í Kópavogi. VINIR Susie Rutar Einarsdóttur undirbúa nú fjársöfnun til að koma á fót minningarsjóði um hana. Sjóðnum er ætlað að styrkja forvarnastarf og baráttuna gegn fíkniefnum. Bolli Thoroddsen er einn þeirra sem standa að stofnun sjóðsins. „Við vinir hennar, sem þurftum að horfa upp á þessa ungu, frábæru, bráðgáf- uðu stelpu deyja svona um aldur fram, tókum þá ákvörðun fyrir nokkr- um dögum að fara í þessa söfnun.“ Susie Rut lést 18. júní síðastliðinn eftir að hafa tekið of stóran skammt eiturlyfja. Hún átti við fíkniefnavanda að stríða á unglingsárunum, en hafði verið laus við þann vanda í næstum fjögur ár. Hún komst yfir eiturlyfin hjá sjúklingi á Landspítalanum, þar sem hún var í læknismeðferð vegna óskyldra veikinda. Ekki hefur verið ákveðið til hvaða verkefna fénu verður varið, en hóp- urinn sem stendur að sjóðnum hyggst funda með Braga Guðbrandssyni, for- stjóra Barnaverndarstofu, í dag til þess að glöggva sig á því hvar þörfin er brýnust. Minningar- sjóður um Susie Rut „ÞETTA var mjög skemmtilegt, svona úr hæfilegri fjarlægð,“ sagði Hilmar Einarsson á Laugarvatni um þrumuveðrið sem gekk þar yf- ir síðdegis í gær. Að sögn Hilmars voru heil- miklar drunur, þannig að börn á svæðinu skelfdust og eldingarnar voru vel sýnilegar í dagsljósinu. Hilmar sagðist ekki vita til þess að tjón hefði orðið af veðrinu eða að eldingunum hefði slegið niður. Þrumuveðrinu fylgdu smáskúr- ir, sem bændur voru fegnir, en miklir þurrkar hafa verið á Suður- landi í sumar. Það er ekki ofsög- um sagt að tíðarfar þarf að vera harla óvenjulegt til þess að bænd- ur taki rigningu fagnandi í miðjum heyskap. Þórdunur miklar á Laugarvatni LÖGREGLAN handtók rúmlega fertugan mann í rjóðri í Breiðholti í gærkvöldi, grunaðan um af- brigðilega hegðun gagnvart börn- um. Mun hann hafa lokkað til sín börn með því að sýna þeim hamstra og var með barn í kjöltunni þegar að var komið. Grunur er um að hann hafi afklætt stúlkubarn. Lokkaði til sín börn í rjóðri ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.