Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FJÓRTÁN unglingar í Hafnarfirði vinna við það í sumar að skemmta bæjarbúum með söng, dansi og ýmsum uppákomum. Þau eru í listahópi Vinnuskólans, sem hefur verið starfræktur í tólf ár. Það er mjög eftirsótt að starfa með hópn- um, svo færri komast að en vilja. Dominique Gyða Sigrúnardóttir flokksstjóri stjórnar listahópnum í sumar. „Fyrsta verkefnið okkar var að skemmta 17. júní, vikuna þar á eftir vorum við að undirbúa Jónsmessu- hátíð og síðan höfum við verið að heimsækja leikjanámskeið fyrir yngri börn, þar sem við kenndum meðal annars spuna.“ Dominique er rétt rúmlega tví- tug og var sjálf í listahópnum fyrir nokkrum árum. Hún segir að starf- ið hafi kennt henni ýmislegt. „Maður fór að átta sig á því hvað skipti máli og hvað skipti ekki máli. Maður hætti að hugsa mikið um það hvað öllum öðrum fannst um mann. Við vorum alltaf að koma fram og krakkarnir sem voru ekki í hópnum voru stundum að segja að við vær- um hallærisleg, en ég held að þau hafi bara öfundað okkur.“ Starfið í listahópnum er fjöl- breytt og mikil samkennd myndast meðal krakkanna. „Við tökum yf- irleitt klukkutíma á dag bara í það að ræða ýmislegt sem er að gerast í kringum þau. Þetta eru mjög heil- brigðir krakkar. Eftir þessa tvo mánuði sem hópurinn starfar eru þau orðin bestu vinir, ég held til dæmis ennþá sambandi við fólk sem var með mér í hóp á sínum tíma.“ Langar að verða leikkona Karlotta Dögg Jónasdóttir er fimmtán, að verða sextán. „Þetta er rosalega gaman. Við erum að búa til spunaverk og semja leikrit og notum heilmikið tónlist og dans. Það er alveg nóg að gera.“ Þetta er annað sumarið sem Kar- lotta starfar í hópnum. „Ég fann al- veg eftir fyrsta sumarið að ég hafði meira sjálfstraust og þorði að gera allskonar hluti sem ég þorði ekki að gera áður. Þetta er mjög góð lífs- reynsla. Maður lærir heilmikið á því að koma fram, ég mæli með þessu fyrir alla. Svo kynnist maður æðislegum krökkum, þetta er ótrú- lega skemmtilegur félagsskapur.“ Karlotta hefur mikinn áhuga á því að gera listsköpun að framtíð- arstarfi. „Mig langar rosalega mik- ið að verða leikkona, söngkona eða eitthvað þessu tengt.“ Geir Guðbrandsson er sextán ára nýliði í listahópnum. „Ég get mælt með þessu við þá sem vilja skemmta sér í vinnunni allt sumarið.“ Geir er ekki viss um að hann vilji leggja leiklistina fyrir sig, en segir að þessi reynsla nýtist öllum. „Fólk lærir að koma fram og losa sig við sviðsskrekk, feimni og álíka kvilla.“ Listrænir unglingar í Hafnarfirði skemmta sjálfum sér og bæjarbúum í sumar Eftirsótt að komast í listahópinn Morgunblaðið/Ásdís Listir Krakkar úr listahópi Vinnuskólans í Hafnarfirði skemmta sér í vinnunni í sumar. Hér sýna þau börnum á leikjanámskeiði listir sínar. Í HNOTSKURN »Ungmennin 40 hafa verið í eins konarstarfskynningu hjá fyrirtækjum en fá ekki greidd full laun. »Ekki nægt fjármagn er til og ekki þóttirétt að vísa fólki frá verkefninu. 500 þúsund til milljón krónur vantar. Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is TÆPLEGA 40 fötluð ungmenni sem unnið hafa hjá ýmsum fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu vegna verkefnis á vegum Reykjavíkurborgar hafa ekki fengið greidd full laun. Verkefnisstjóri hjá Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík segir að æskilegast hefði verið að laun hefðu verið greidd í samræmi við kjarasamninga en það hafi ekki verið mögulegt vegna mikillar aðsóknar að verkefninu. Unga fólkið, sem er á aldrinum 16-20 ára, starf- ar hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum í sjö tíma á dag en þar af er helmingurinn talinn vera vinna en hinn helmingurinn telst fræðsla. Í stað þess að fá greitt fyrir þá 17,5 tíma á viku sem talist hafa verið vinna hefur Reykjavíkurborg einungis greitt 14 tíma. „Ástæðan er sú að fjöldinn sem sækir í verkefnið var meiri en við reiknuðum með. Við höfum bara ákveðið fjármagn til að setja inn í þetta og verðum að halda okkur við það,“ segir Árni Már Björnsson, verkefnisstjóri hjá Svæðis- skrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík. Verkefnið hefur gengið framar vonum Árni Már segir að miðað hafi verið við að unga fólkið fengi greitt í samræmi við kjarasamning Eflingar og staðan nú sé ekki eins og vilji standi til. Ekki hafi verið gerðir ráðningarsamningar við fólkið en það standi til bóta. Aðspurður hvað hægt sé að gera segir Árni einkum þrennt koma til greina. „Fækka fjölda einstaklinga sem eru í þessu verkefni, endurskilgreina tímann þannig að vinnutíminn sé skemmri eða það sem mér hugnast best, að fá meira fjármagn inn í verkefnið.“ Kristinn Ingvarsson, starfsmaður hjá Íþrótta- og tómstundaráði, sér um framkvæmd verkefn- isins. Hann segir að um tilraunaverkefni sé að ræða sem sett hafi verið af stað í nokkrum flýti. Fremur sé litið svo á að um starfsfræðslu sé að ræða og því hafi ekki verið sérstaklega leitað eftir því að fyrirtækin sjálf borguðu fyrir vinnu unga fólksins. „Verkefnið hefur verið í gangi síðan 2001 en þangað til nú hafði aðeins verið boðið upp á garðvinnu. Nú erum við að reyna að hlusta eftir því hvað þau hafa áhuga á að gera í framtíðinni og reynum þá að láta drauminn rætast.“ Starfsmenn ÍTR liðsinna unga fólkinu í starfinu en hvert þeirra fær tækifæri til að starfa í fyrirtæki í sex vikur. „Þetta hefur gengið alveg stórkostlega. Ungmennin eru miklu duglegri núna en þau hafa verið áður og mér finnst vera grundvöllur fyrir því að fyrirtækin ráði fólkið til sín næsta sumar en við höldum þá bara utan um það,“ segir Kristinn. Fötluð ungmenni fá ekki full laun fyrir vinnu sína í sumar A.m.k. 500.000 krónur vantar til að unga fólkið fái greitt skv. kjarasamningum BENT Scheving Thorsteinsson færði LSH 30 milljónir að gjöf sem stofnfé í styrktar- og verð- launasjóð á sviði hjartalækninga og hjarta- og lungnaskurðlækninga í gær. Hlutverk og mark- mið sjóðsins er að veita styrki og verðlaun fyrir vísindaleg afrek, rannsóknir og ritgerðir og skylda starfsemi á því sviði og sagðist Bent færa LSH þessa gjöf að gefnu tilefni og sem þakklæti fyrir frábæra umönnun hjartalækna á LSH. „Ég vona að vel gagnist öllum sem hér starfa og öllum þeim eru hér og þeim sem hingað sækja til að endurnýja sína heilsu,“ sagði Bent eftir að hafa undirritað ásamt Magnúsi Péturssyni, for- stjóra LSH og ábyrgðarmanni sjóðsins, skipulags- skrá hans. Bent hefur áður komið á fót þremur sjóðum ásamt konu sinni Margaret Ritter Ross Wolfe, en þeir eru allir varðveittir af Háskóla Ís- lands. Morgunblaðið/Sverrir Gaf 30 milljóna sjóð til vísindastarfs „ÞETTA kemur stundum fyrir,“ segir Bent Scheving Thorsteinsson aðspurður hvaða ástæður lægju að baki gjafmildi hans. Hann gekkst undir aðgerð fyrir tveimur vikum þar sem skipt var um hjartaloku fyrir ósæð og segist ákafleg þakklátur læknunum sem um hann sáu og öllu starfs- liðinu á deildinni.. „Þeir hafa allt frá fyrstu ferð gert allt fyrir mig sem hægt er að gera og hafa í einu og öllu reynt að leysa úr öllum málum fyrir mig og ekki bara þeir heldur allt starfsliðið á deildinni,“ segir Bent. „Ég gerði góð viðskipti með verðbréf og mér fannst ég skulda samfélaginu eitthvað því ég var bara á réttum stað á réttum tíma. En þó ég sé löngu hættur verð- bréfabraski þá hafa hlutabréfin sem ég hef eignast rokið upp úr öllu valdi,“ segir Bent og tekur sem dæmi að hlutabréfin í fyrrum Íslandsbanka, nú Glitni, hafi ekki tvöfald- ast og ekki þrefaldast, að verðmæti, heldur þrjátíufaldast! Bent giskar á að hann hafi gefið samtals um 100 milljónir reiknað til núvirðis, í þá fjóra sjóði sem hann hefur nú stofnað en bætir við að ómögulegt sé að reikna það nákvæmlega út. Þakklátur hjarta- læknunum Bent Scheving Thorsteinssyni fannst hann í skuld við samfélagið ÖKUMENN sem staðnir eru að verki við hraðakstur mælast nú á minni hraða og alvarlegum umferð- arslysum fækkar miðað við fjölda ökutækja í Reykjavík og nágrenni, samkvæmt upplýsingum frá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu. Þeir ökumenn sem kærðir hafa verið fyrir hraðakstur það sem af er árinu voru að meðaltali á minni hraða en fyrirrennarar þeirra síð- ustu ár. Ef litið er til þeirra svæða þar sem hámarkshraði er 60 km/klst. sést að fjórðungur ökumanna sem náðust við hraðakstur voru á yfir 100 kílómetra hraða árið 2005. Hlutfallið var svipað í fyrra en í ár er það 9%. Hraðamælingar Vegagerðarinnar staðfesta niðurstöðuna sem er mik- ilvægt í ljósi þess að vinnubrögð við skráningu, virkni eftirlits og fleira getur haft áhrif á tölur yfir kærða ökumenn. Meðalhraði á Dalvegi hef- ur þannig lækkað úr 84 í 79 km/klst. Hraðinn hefur aðeins aukist á tveim- ur stöðum, ofan við Ártúnsbrekku og við Korpu. Fleiri ökutæki – færri slys Alvarlegum umferðarslysum hef- ur líka fækkað á höfuðborgarsvæð- inu miðað við fjölda ökutækja. Fyrstu mánuði ársins eru þau örlítið fleiri en í fyrra, en í heildina hefur þeim fækkað um 12% miðað við 2002. Heildarfjöldi slysa hefur ekki breyst mikið. Fyrstu fjóra mánuði ársins urðu á milli ellefu og sautján slys síðustu ár. Það sem munar um er að skráðum ökutækjum á höfuð- borgarsvæðinu hefur fjölgað um 50.000 á tímabilinu, án þess að það hafi sýnt sig í fjölgun slysa. Minni hraði og færri slys Ökumenn virðast hafa tekið sig á                                    

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.