Morgunblaðið - 05.07.2007, Síða 10
10 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Sjáðu bara, ég er líka með svona hf. græjur.
VEÐUR
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórn-arformaður Baugs Group, spyr í
stuttri grein í Morgunblaðinu í gær,
hvort Morgunblaðið geti ekki unað
niðurstöðum dómstóla. Tilefni
spurningarinnar er frétt í Morg-
unblaðinu fyrir nokkrum dögum
um túlkun danskra dómstóla á 104.
grein hlutafélagalaga, sem hefur
komið við sögu í svonefndu Baugs-
máli.
Í grein sinni seg-ir Jón Ásgeir,
að frétt Morg-
unblaðsins að því
er hann varðar sé
röng. Þetta er
rétt hjá Jóni Ás-
geiri. Í niðurstöðu
Héraðsdóms
Reykjavíkur fyrir
skömmu í þeim
ákæruliðum í Baugsmálinu, sem
Hæstiréttur sendi aftur heim í hér-
að til efnisdóms, kemur fram í
nokkrum tilvikum að lög hafi verið
brotin en þar er ekki sagt að hann
hafi brotið lögin eins og sagt var í
fréttinni.
Í frásögn Morgunblaðsins af nið-urstöðum Héraðsdóms Reykja-
víkur daginn eftir að dómurinn féll
var hins vegar farið rétt með.
Nákvæmni skiptir sköpum ífréttaflutningi.
Þessi nákvæmni var til staðar íhinni upphaflegu frétt Morg-
unblaðsins um niðurstöður Héraðs-
dóms Reykjavíkur en ekki í frétt
blaðsins í fyrradag.
Jón Ásgeir Jóhannesson er hérmeð beðinn velvirðingar á þess-
um mistökum.
Og auðvitað unir Morgunblaðiðniðurstöðum dómstóla. Það er
hægt að hafa skoðun á niðurstöðum
dómstóla en allir þjóðfélagsþegnar
hljóta að una þeim.
STAKSTEINAR
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Morgunblaðið og dómstólar
SIGMUND
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
! ""
#
""
$"
$
""
$"
$
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
"!"
#
:
*$;< ""
!"" # "
$ %% %& ' &
*!
$$; *!
& '"
""
(
)
=2
=! =2
=! =2
& (' "*
#
+",!-
>2?
*
() ) #* *
+)
# & %,
-
.
# /
%0 %&
/
$* *
) # ) ) 1
""
23 ) *
$ %4 45
=7
6 #* *
+)
)+
+
# 6
+
$ & % # 7
7)+
./ ""00
""1
!"*
#
3'45 @4
@*=5A BC
*D./C=5A BC
,5E0D ).C
$%
2$%
23
23
23
$%2
$%2
$%
$%
$%
$22
%$ $2
2$ 2$2
3
3
3
32
23
23
23
23%
3
3
3
3
23
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Kolbrún Baldursdóttir | 3. júlí 2007
Kolefnisjafna bíla…
hvaða rugl er nú það?
Kolefnisjafna bíla með
því að gróðursetja
tré … þetta hlýtur að
vera eitt mesta bull
sem heyrst hefur í
langan tíma. Menga
bílarnir eitthvað minna
ef fleiri tré verða gróðursett?
Mér þykir auglýsingabransinn
ganga býsna langt í að reyna að laða
að sér kaupendur ef þeir ætla að
nota svona rökleysu.
Meira: kolbrunb.blog.is
Brissó B. Johannsson | 3. júlí 2007
Eldgamla sex
and the city Ísafold
Fullyrt er að Ellý sé að
bylta umræðunni um
kynlíf kvenna. Einn,
tveir og PANT EKKI
VERA KONA! Pant
ekki taka þátt í þessu!
Og hvað í andsetnum
Andrési Önd eru flestir fjölmiðlar að
pæla? Þeir eru alltaf að bjóða mér
útþynntan þankagang sinn í einföldu
og ófrumlegu máli af því þeir gera
ráð fyrir að ég sé … agúrkusneið?
Meira: brisso.blog.is
Viðar Eggertsson | 3. júlí 2007
Sagan sem aldrei
mátti segja …
Þær voru útskúfaðar,
hæddar, smáðar og
sendar á afvikinn stað
til betrunar. Stúlkur
sem urðu að sæta
óheyrilegu ofbeldi af
völdum sinna nánustu.
Þeir sem beittu þær ofbeldinu gengu
lausir, frjálsir menn. Þær voru út-
skúfaðar.
Þetta var á Íslandi á áttunda ára-
tugnum.
Stúlkur sem voru beittar kynferð-
islegu ofbeldi voru ekki húsum hæf-
ar. Þær voru sekar, en þeir sem
beittu þær ofbeldinu fengu að fara
allra sinna ferða. Það þurfti að
hegna stúlkunum, taka þær úr um-
ferð. Þær voru sendar á afskekktan
stað úti á landi.
Stúlkurnar voru vistaðar á
Breiðavík þegar vist þeirra drengja,
sem mest hefur verið fjallað um að
undanförnu, var lokið.
Meira: eggmann.blog.is
Pjetur Hafstein Lárusson | 4. júlí 2007
Smásamanburður á
frú Akureyri og
ungfrú Reykjavík
Ungfrú Reykjavík er
borg á gelgjuskeiði. Og
eins og títt er um fólk á
því æviskeiði veit hún
ekki almennilega í
hvorn fótinn hún á að
stíga. Í raun og veru er
hún ennþá sama gamla sjávarþorpið
í bland við verslun og opinberan
rekstur og hún hefur verið und-
anfarna eina og hálfa öld. En hana
langar að vera stór. Þess vegna treð-
ur hún baðmull í brjóstahaldarann.
Þessi baðmull er gerð úr kaffi-
húsum, galleríum og ýmsu öðru, sem
einkennir borgir. Og nú er verið að
tjasla saman stærsta baðmull-
arhnoðranum; tónlistarhúsinu.
Auðvitað væri þetta allt gott og
blessað, nema hvað það er einhvern
veginn eins og innistæðuna vanti.
Ég hef grun um, að kaffihúsin séu
ekki sá vettvangur frjórra umræðna
í listum, heimspeki og stjórnmálum,
sem slíkir staðir eru í alvöru borg-
um. Galleríin eru yfirfull af þokka-
legri handavinnu, sem bíður þess að
komast prúðbúin í ramma upp á
vegg hjá bankastrákum, sem borga
vel. Já, og tónlistarhúsið vænt-
anlega; kemur starfsemi þess ekki
til með að líða fyrir það, að geti landi
rekið upp sæmilega skipulagt hljóð
er hann umsvifalaust tilnefndur
snillingur á heimsmælikvarða? Með
þessu er ég hvorki að gagnrýna
myndlist, tónlist né nokkra aðra list-
grein; ég er að eins að benda á það,
að til þess að geta skapað þarf fólk
að vita, hvar það stendur. Og það
vita menn ekki í Reykjavík. Hún er
nefnilega orðin að leiksviði. Og á
slíkum stöðum velja menn sér ekki
hlutverk, þeir falla inn í þau. Þess
vegna er ungfrú Reykjavík í raun og
veru ósköp einmana og umkomulaus
stúlka, þegar öllu er á botninn
hvolft. Akureyri er aftur á móti ekk-
ert annað en það, sem hún sýnist
vera. Hún er evrópskur bær. Og sá
bær stendur stöðugur á sínum
grunni. Í sjálfu sér er ekkert spenn-
andi við Akureyri, en það er einmitt
vegna þess, að bærinn læst ekki vera
neitt annað en hann er. Meðan
ungfrú Reykjavík er ístöðulaus
krakki er frú Akureyri stöðuglynd
kona á virðulegum aldri. Svo má
auðvitað ekki gleyma því, að bærinn
sjálfur er mjög fagur, að nú ekki sé
talað um náttúrulega umgjörð hans.
Þar stenst Reykjavík engan sam-
jöfnuð.
En vonandi á Reykjavík eftir að
þroskast. Ég spái því, að eftir svo
sem eina öld verði hún orðin að sett-
legri evrópskri smáborg og roðni du-
lítið feimnislega í vöngum þegar hún
minnist gamalla drauma um að
verða eins og London, París og Róm.
Meira: hafstein.blog.is
BLOG.IS