Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
„ÞAÐ segir sig sjálft að ef þorskkvóti
verður minnkaður um 30% hlýtur
fullt af fólki að missa vinnu, bæði í
landi og á sjó,“ segir Sævar Gunn-
arsson, formaður Sjómannafélags Ís-
lands, spurður um áhrif yfirvofandi
skerðingar á þorskkvóta á umbjóð-
endur sína.
Árið 2005 fengust tæplega 11.000
manns við fiskveiðar og fiskverkun á
landsvísu, eða tæp 6,6% af vinnufær-
um mönnum. Sjómenn voru um 4.400
og tæplega 6.400 unnu við fiskverkun.
Flestir eru sjómennirnir á Norður-
landi eystra og á höfuðborgarsvæð-
inu, en flest fiskverkafólk er á Suð-
urnesjum og í nágrenni Reykjavíkur.
Sævar segir það liggja í hlutarins
eðli að áhrifa skerðingarinnar muni
fyrst og fremst gæta í þeim byggð-
arlögum þar sem hlutfall þorsks af
heildarkvóta er hæst. „Og það er á
Vestfjörðum, það er bara þannig,“
segir Sævar en bætir þó við að ef far-
ið verði að tillögum Hafrann-
sóknastofnunar muni neikvæðra
áhrifa gæta alls staðar. „Á meðan
gengið er svona sterkt og svona áföll
ríða yfir getur ekkert annað gerst en
að tekjur sjómanna gjörsamlega
hrynji. Þá óttast ég að það leiði til
þess að menn fari bara í land. Ef
menn hafa ekki viðeigandi laun úti á
sjó eru þeir ekkert að dingla þar,
bara að gamni sínu.“
Sævar hefur ekki aðeins áhyggjur
af launamálum þeirra sjómanna sem
vinna við þorsk, heldur óttast hann
einnig að með skertum þorskkvóta
verði mun erfiðara um vik að veiða
aðrar tegundir á borð við ýsu. „Þú
leggur ekki línu eða troll og biður
bara um ýsu,“ segir Sævar til útskýr-
ingar.
Spurður um mótvægisaðgerðir
stjórnvalda kveður Sævar ekkert
fram komið um að þær muni bæta af-
komu sjómanna. „Ég hef aldrei skilið
þessar hliðarráðstafanir. Það er
vissulega hægt að hjálpa sveitarfélög-
unum sem slíkum, en ég hef aldrei
séð neinar mótvægisaðgerðir sem
koma í veg fyrir hrun í tekjum sjó-
manna eða fiskvinnslufólks. Aukið fé
til vegagerðar eða þess háttar hefur
ekkert með það að gera.“
Tillögurnar jafngilda því að
15-20 frystihús yrðu lögð niður
Aðalsteinn Á. Baldursson, sviðs-
stjóri matvælasviðs Starfsgreina-
sambands Íslands, er þungur á brún
vegna þeirrar kvótaskerðingar sem
Hafrannsóknastofnun hefur lagt til.
Hann segir að ef farið verði að til-
lögum stofnunarinnar í einu og öllu
muni aflaskerðingin samtals nema
um 100.000 tonnum, sé litið er til
þorsks, ýsu og ufsa. „Ef við gerum
ráð fyrir að allur afli sé unninn á landi
og hvert frystihús vinni um 4.000
tonn á ári, jafngildir skerðingin því að
15 til 20 frystihús yrðu lögð niður,“
segir Aðalsteinn og heldur áfram.
„700 til 1000 störf í fiskvinnslu væru í
hættu og álíka fjöldi afleiddra starfa.“
Aðalsteinn er sammála Sævari um
það að skerðingin muni bitna hvað
harðast á Vestfirðingum auk þess
sem Norðurland kæmi illa út úr
henni. Hann segir að einnig hafi verið
rætt um að skerðingin myndi koma
sér illa fyrir Suðurnesjamenn. „Þar
er ástandið hins vegar allt annað og
atvinnuhorfur mun betri en annars
staðar.“
Aðalsteinn segir að ofan á yfirvof-
andi kvótaskerðingu standi til að fella
niður skerðingarálag á gámafisk í
haust, en álagið er nú 10% og var 20%
fyrir fáeinum árum. „Það hefur auð-
vitað áhrif á landverkafólk að flytja
má út óunninn fisk án þess að til
skerðingar komi. Þetta er ákveðið
rothögg fyrir okkur og á meðan fagna
fiskverkendur í Grimsby og Hull
ákaft, þar sem þeim mun með þessu
bjóðast aukið magn af óunnum fiski
frá Íslandi til vinnslu.
Aukið fjármagn í byggðirnar
Aðalsteinn gefur, líkt og Sævar, lít-
ið fyrir mótvægisaðgerðir stjórnvalda
sem kynntar verða samhliða afla-
markstölum. „Það nægir ekki að
byggja eina brú hér og malbika tíu
kílómetra vegkafla þar. Við þurfum
miklu meira en það.“ Spurður um
hvað sé til ráða segist Aðalsteinn fyr-
ir það fyrsta eiga von á því að ekki
verði farið að tillögum Hafrann-
sóknastofnunar hvað þorskkvótann
varðar, heldur verði aflamarkið fært
niður í 150 til 160 þúsund tonn. Þá
segir hann að það myndi strax hafa
jákvæð áhrif á atvinnuhorfur land-
vinnslufólks ef horfið yrði frá fyr-
irhuguðu afnámi skerðingarálags á
gámafisk. „Það þarf svo að sjálfsögðu
að móta öfluga atvinnustefnu og setja
aukið fjármagn í byggðirnar. Menn
eru orðnir þreyttir á tali um mótvæg-
isaðgerðir. Ef fjármagnið kæmi beint
í hendur heimamanna væri eflaust
hægt að hrinda mörgum góðum hlut-
um í framkvæmd.“
1.000 störfum
við fiskvinnslu
teflt í tvísýnu
Forsvarsmenn þeirra tveggja stétta sem yfirvof-
andi kvótaskerðing mun harðast bitna á, sjó-
manna og landverkafólks, hafa þungar áhyggjur
af flótta úr stéttunum í kjölfar samdráttarins.
Morgunblaðið/ÞÖK
Fækkun Störfum í fiskvinnslu hefur fækkað mikið á undanförnum árum.
! " #
$
!
% %
" % !%
" % %
#% %
" "% " %
% ! %
% # %
% " %
%
%
! %
! %
# #%
%
%
"%
" "%
Í HNOTSKURN
»Flest fiskverkafólk er á Suð-urnesjum og í nágrenni
Reykjavíkur.
»Ef farið verður að tillögumHafrannsóknastofnunar mun
neikvæðra áhrifa gæta alls staðar.
»Mótvægisaðgerðir, eins ogaukið fé til vegagerðar, koma
ekki í veg fyrir hrun í tekjum sjó-
manna eða fiskvinnslufólks.
»Skerðing í þorskkvóta muneinnig koma illa við Suður-
nesjamenn. Þar eru þó atvinnu-
horfur mun betri en annars staðar.
STOFNAÐ hefur verið félag um
sölustarfsemi Samherja hf. Félagið
heitir Ice Fresh Seafood og er að
fullu í eigu Samherja.
Með stofnun félagsins er verið að
skerpa á áherslum í sölumálum og
auka þjónustu bæði við birgja sem
og viðskiptavini, að því er fram kem-
ur á vef Samherja. Ice Fresh Sea-
food mun sem fyrr einbeita sér að
sölu afurða Samherja og dóttur-
félaga þess. Enn fremur mun nýja
félagið halda áfram og auka sölu fyr-
ir aðra framleiðendur.
Samherji hefur verið leiðandi í
sölu á frosnum og ferskum bolfisk-
afurðum á Bretlandsmarkaði og á
mörkuðum meginlands Evrópu.
Uppbygging hefur verið mikil í sölu
uppsjávarafurða til Austur-Evrópu-
landa, meðal annars til Úkraínu,
Hvíta-Rússlands, Póllands og Rúss-
lands. Sala eldisafurða hefur vaxið
mikið á Evrópu- og sérstaklega á
Ameríkumarkaði. Asía hefur verið
og verður áfram einn mikilvægasti
markaðurinn fyrir afurðir félagsins.
Á þessum grunni viðskiptasam-
banda og markaðsþekkingar mun
Ice Fresh Seafood byggja starfsemi
sína og halda áfram frekari upp-
byggingu og markaðssókn.
Gert er ráð fyrir að Ice Fresh Sea-
food selji yfir 100.000 tonn af afurð-
um næsta árið og að velta félagsins
verði um 20 milljarðar.
Sölustarf-
semi Sam-
herja í félag