Morgunblaðið - 05.07.2007, Page 16

Morgunblaðið - 05.07.2007, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING f Vörður tryggingar hf. I Borgartúni 25 I sími 514 1000 I www.vordur.is TÓMAS Guðni Eggertsson, organisti Grundarfjarðar og Stykkishólms, leikur á Klais- orgelið í Hallgrímskirkju á há- degistónleikum tónleikarað- arinnar Alþjóðlegt orgelsumar í dag. Tónleikarnir, sem hefj- ast kl. 12 og standa í hálftíma, eru skipulagðir í samvinnu við Félag íslenskra orgelleikara. Á efnisskrá Tómasar eru þrjú verk. Það fyrsta er Pre- lúdía í g-moll eftir Dietrich Buxtehude og annað verkið er hinn frægi Kórall nr. 3 í a-moll eftir Cés- ar Franck. Þriðja og síðasta verkið er síðan eftir franska 20. aldar tónskáldið Olivier Messiaen. Tónleikar Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju Tómas Guðni Eggertsson Í KVÖLD kl. 20 verða tónleik- arnir í Hafnarborg, menning- ar- og listastofnun Hafn- arfjarðar, með Joachim Kjelsaas Kwetzinsky píanó- leikara og Unni Løvlid þjóð- lagasöngkonu. Tónleikarnir bera yfirskrift- ina Grieg í Jötunheimum og eru haldnir í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá andláti norska tónskáldsins Edvards Griegs (1843-1907). Það eru norska sendiráðið í samstarfi við Hafn- arborg og Þjóðlagahátíðina á Siglufirði sem standa að tónleikunum. Aðgangur er ókeypis. Tónleikar Til minningar um Edvard Grieg Hluti af Pi-Kap kvartettinum. Í JÚLÍ og ágúst stendur Tónlistarfélag Ísafjarðar fyr- ir nýrri röð sumartónleika í tónlistarsalnum Hömrum á Ísafirði sem hlotið hefur yf- irskriftina Sumar í Hömrum. Þessi sumartónleikaröð hefst í dag kl. 20 með tónleikum tékkneska strengjakvartetts- ins Pi-Kap ásamt Eydísi Franzdóttur óbóleikara. Kvartettinn hefur haldið fjölda tónleika víða um Evrópu og fengið mikið lof gagnrýnenda fyrir vandaðan og ekki síst tilfinn- ingaríkan flutning. Sjá má dagskrá tónleikanna á www.tonis.is. Tónleikar Pi-Kap á Sumar í Hömrum á Ísafirði Norðmaðurinn Edvard Grieg. FJÓRTÁN vatns- litamyndir eftir einn þekktasta listamann sem Bretland hefur alið, Joseph Tur- ner, seldust fyrir metfé á uppboði Sothebys í Lond- on í gær. Helmingur verkanna seldist dýrar en matsmenn höfðu áætlað og var heildarsöluverð verkanna fjórtán 10,8 milljónir punda, eða 1,4 milljarðar króna. Seljandinn var Belginn Guy Ul- lens, sem sagði við fréttamenn: „Við hjónin höfum notið þeirra for- réttinda að búa um árabil um- kringd snilld Turners. En vissan um að nú munu aðrir safnarar njóta þeirra auðveldar okkur aðskiln- aðinn við þessi meistaraverk.“ Ef- laust hjálpa milljónirnar líka til. Metverð fæst fyrir Turner Joseph Turner enn vinsæll meðal Breta Sjálfsmynd Þessi var ekki til sölu. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is NÝLEGA lagði Anima-myndlist- argallerí, sem starfrækt hefur verið í miðborg Reykjavíkur seinasta eina og hálfa árið, upp laupana vegna fjárhagserfiðleika. Í kjölfar þess hefur skapast nokkur umræða um rekstrargrundvöll slíkra gall- ería á Íslandi. Sveinn Þórhallsson, eigandi Gall- ery Turpentine í Ingólfsstræti, seg- ir reksturinn hjá sér ganga sam- kvæmt áætlun. „Við opnuðum 2004 og þurftum að berjast í bökkum fyrsta árið. Það tekur alltaf tíma að komast yfir erfiðasta hjallann en ég hafði alltaf trú á þessu og í dag selst vel af verkum á sýningum,“ segir Sveinn. Nýlega urðu breytingar á eign- arhaldi á hlutabréfum í Turpentine þegar Sindri Sindrason, stjórn- armaður í Actavis Group hf., keypti hlut í galleríinu, ásamt fjölskyldu sinni. „Það kom áhugasamur fjárfestir inn hjá okkur en það breytir ekki rekstrarfyrirkomulagi gallerísins. Hér á landi er mikið af efnuðu fólki sem hefur áhuga á myndlist og af hverju ekki að fjárfesta í henni eins og öðru?“ spyr Sveinn. Mikil áskorun í byrjun Spurður hvort erfitt sé að reka gallerí í Reykjavík segir Sveinn það ekki vera. „Það á ekki að vera erfitt ef þú ert með réttu listamennina og góð- an kúnnahóp. En það er aldrei sjálfgefið að hlutirnir gangi upp og það var mikil áskorun í byrjun að fara út í þennan rekstur. Gall- erísrekstur er ekkert annað en við- skipti og 100% vinna. Okkur hefur alltaf gengið vel að fá listamenn til liðs við okkur, enda erum við með flottan sýningarsal og góða um- gjörð,“ segir Sveinn sem á galleríið ásamt konu sinni, Guðrúnu Gunn- arsdóttur, og fyrrnefndum fjár- festum. Engar rekstrarbreytingar „Það eru ellefu ár síðan galleríið var opnað og reksturinn hefur gengið nokkuð vel, en við þurftum auðvitað að berjast í byrjun eins og flestir sem opna slíkt fyrirtæki,“ segir Börkur Arnarson sem rekur gallerí i8 á Klapparstíg ásamt móð- ur sinni Eddu Jónsdóttur. „Þetta er fyrirtæki sem ég og móðir mín eigum og rekum og hef- ur það verið þannig alla tíð. Okkar einkahlutafélag og engir fjárfestar sem hafa komið inn í okkar rekst- ur.“ Börkur segir að þau hafi getað rekið galleríið með þessu móti og það hafi gengið ágætlega svo ekki er breytinga von á rekstrarforminu. „Á hverju tímabili þarf auðvitað að fara yfir hvernig rekstrarformið er. Okkar viðskipti eru tiltölulega landamæralaus, með álíka fram- kvæmdir og fjölda viðskiptavina hér á landi og annars staðar.“ Að sögn Barkar er heljarinnar kúnst að reka gallerí í Reykjavík. „Við höfum verið það heppin og far- sæl að vinna með frábærum lista- mönnum, gott gallerí er sjaldnast meira en listamennirnir sem þar eru.“ Börkur segir að gallerísrekstur krefjist þolinmæði og vinnu langt fram í tímann. „Öll samskipti, vinna og plön eru langtíma. Þetta snýst um að vera með mjög skýra hugmynd um hvað þú vilt sýna og hvaða listamönnum þú vilt vinna með og klárlega snýst þetta um að selja myndlistina.“ Reksturinn hjá Gallery Turpentine og galleríi i8 gengur vel en fyrstu árin voru erfið Tekur tíma að komast yfir erf- iðasta hjallann Fagleg Gallerí i8 á Klapparstíg í Reykjavík varð fyrsta galleríið á Íslandi til að vera rekið eftir faglegum alþjóðlegum viðmiðum. Í HNOTSKURN » Anima-gallerí í Ingólfs-stræti hætti nýlega rekstri eftir eitt og hálft ár. »Eigendur þess sögðu mjögerfitt að reka gallerí í Reykjavík og vinnuna sem í það er lagt ekki skila sér til baka fjárhagslega. » Engin verk voru keypt ígalleríinu nokkrar sýn- ingar í röð. » Eigendur Gallery Turp-entine og gallerí i8 segja fyrsta árið í rekstri hafa verið erfitt en í dag gangi vel. Þeir segja báðir gallerísrekstur krefjast þolinmæði og meira en 100 % vinnu. MYNDLISTAKONAN Ragna Ró- bertsdóttir tekur nú þátt í samsýn- ingunni Agitation and Repose í hinu virta Tanya Bonakdar Gallery í New York. Sýningin kallar saman verk lista- manna sem hafa sýnt víða um heim- inn, auk Rögnu sýna t.d , Roman Sig- ner frá Sviss, Via Lewandowsky frá Þýskalandi, Rainer Ganahl frá Aust- urríki og amerísku listamennirnir Holly Zausner, Jon McCafferty, Claire Watkins og Diana Al-Hadid. Sýningastjórar eru þau Sabine Russ and Gregory Volk. Sýningin stendur til 17. ágúst næstkomandi. Ragna í New York Flott Verk eftir Rögnu á sýningunni í Tanya Bonakdar Gallery.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.