Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 19

Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 19 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eftir Unu Sighvatsdóttur unas@mbl.is ÍBÚAR í nágrenni Keilugranda eru afar ósáttir við vinnubrögð Reykjavíkurborgar vegna deili- skipulags á lóð Keilugranda 1. Morgunblaðið sagði frá því að borgarráð hefði samþykkt tillögu um breytt deiliskipulag, þar sem komið hefði verið til móts við at- hugasemdir hagsmunaaðila, að mati Hönnu Birnu Kristjánsdótt- ur, formanns skipulagsráðs. Gunnar Finnsson, talsmaður húsfélaganna við Boðagranda 2 og 2a, segir þetta alrangt, íbúar í næsta nágrenni séu mjög andsnún- ir nýju tillögunum, sem ekki hafi verið ræddar við þá. Gunnar segir að íbúum virðist sem reynt sé að gera sem minnst úr umfangi andstöðunnar, m.a. sé hvergi skráð í fundargerð að skilað hafi verið inn athugasemdum und- irrituðum af 99 íbúum á Boða- granda, Fjörugranda og Keilu- granda. Þetta sé lítilsvirðing gagnvart þessu fólki. Munum berjast fyrir okkar hagsmunum „Við drögum ekki í efa réttinn til að byggja á lóðinni. Fram- kvæmdirnar mega hins vegar ekki vera á kostnað lífsgæða og fjár- hags íbúa í nágrenninu, heldur verða yfirvöld að fylgja þeim reglum sem þau settu sjálf.“ Gunnar vísar þar í gildandi deili- og aðalskipulag sem segir að á lóð- inni megi byggja 50 íbúðir að há- marki. Samkvæmt breyttu skipulagi yrðu íbúðirnar hins vegar 130, og þótt þeim hafi þar með fækkað um 20 síðan í tillögum skipulagsráðs frá því í janúar, sem lögðu til að 150 íbúðir yrðu byggðar, þá sé þar um óverulegar breytingar að ræða og í raun aðeins sýndarmennsku. Ósáttir við hæð húsanna Auk fjölda íbúða eru nágrannar lóðarinnar einnig ennþá ósáttir við að hæð hússins yrði í engu sam- ræmi við byggðina í kring. Skipulagsyfirvöld hafi á sínum tíma takmarkað hæð húsanna á Boðagranda 2 og 2a við fimm hæð- ir í stað sjö vegna kvartana um skuggavarp. Nýja húsið verði hins vegar hæst níu hæðir og auk þess á upp- byggðum grunni svo það nemi í raun 10 hæðum. „Það vekur furðu að borgarráð skuli nú vilja breyta skipulaginu til að byggja megi hús sem er tvöföld sú hæð sem sömu yfirvöld hafa talið þolanlegt há- mark,“ segir Gunnar. „Þetta er ekki það sem fólk borgaði fyrir á sínum tíma.“ Hann segir að íbúum finnist sem væntingar eigenda lóðarinnar séu teknar framyfir hagsmuni íbúa og þeim líki ekki svona starfsaðferðir. Gera verði þá lágmarkskröfu að kjörnir fulltrúar og embættismenn geri ekki geðþóttabreytingar á reglum til að þjóna hagsmunum viðskiptaaðila, enda starfi þeir í umboði kjósenda. „Við munum berjast fyrir okkar hagsmunum með öllum ráðum.“ Einróma andstaða íbúa Nágrannar við Keilugranda óánægðir með vinnubrögð borgarráðs og segja hagsmunum fórnað fyrir gróða MotorMax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400 MotorMax Egilsstöðum - Sími 470-5080 / 470-5070 - Toyota Akureyri - Sími 460-4300 www.motormax.is Nú er einstakt tækifæri til að ná afar góðum samningum við sölumenn okkar sem eru í sólskinsskapi og veita aldeilis frábær tilboð á Camp-let tjaldvögnunum og Starcraft fellihýsunum. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Þetta er tækifæri ársins til að ná sér í kostagrip á frábæru verði! Draumavagninn þinn á frábæru sumartilboði!          Forrétta hlaðborð Sauðakjöt; Tvítaðreykt og þunnskorið. Borið fram með suðrænum ávöxtum Graflax með sinnepshunangssósu í tortillu með grænu salati og tómötum Tómata og mozzarella salat með svörtum olífum, fersku basil og dressingu hússins. Laxafiðrildi, reyktur lax á heimabökuðu rúgbrauði með pestó, kapers, ætiþistli, rauðlauk og piparrótarsósu Kr.1,000 Lambasteik, kryddleginn, bjórsteiktur lamabalærisvöðvi með hunagnssteiktu grænmeti, léttri brúnni sósu og kartöflubátum staðarins,. Kr. 3,000.- Lambastrimlar í ævintýralegri kryddrjómasósu með peruklettasalati og kartöflubátum staðarins. Kr. 2,800.- Innbökuð bleikja með tandoori-koníakslagaðri humarsósu, rjómasoðnu grænmetismauki peruklettasalati og kartöflubátum staðarins. Kr. 2,600.- Kjúklingabringa kryddlegin í austrænum legi með rísandi sólarasósu, hunangssteiktu grænmeti og kartöflubátum staðarins. Kr. 2,500.- Við leggjum okkur fram við að gera heimilislegan, stílfærðan og fer- skan mat - svo er umhverfið algerlega einstakt. sími 433 58 00 – www.fossatun.is info@steinsnar.is Kvöldmatseðill Frábærir eftirréttir - Stórgóður skyndibiti Heimabakaðar kökur, Gómsætt brauðmeti Úrvals kaffi. Það er vel þess virði að gera sér dagamun, kíkja við og njóta góðra veitinga í óviðjafnanlegu umhverfi. Opnunartími: Föstudaga - Sunnudaga. Pantanir í síma 433 5800 Aðalréttir Eignamiðlun hefur verið beðin um að óska eftir rúmgóðri 3ja herbergja íbúð á 1.hæð með góðu aðgengi fyrir aðila í hjólastól. Aðgengi þarf að vera gott bæði að íbúðinni og öll aðkoma í sameign. Baðherbergi þarf að vera rúmgott með sturtu. Nánari upplýsingar veitir Hákon Jónsson lögg. fasteignasali. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali ÍBÚÐ ÓSKAST Í REYKJAVÍK FYRIR AÐILA Í HJÓLASTÓL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.