Morgunblaðið - 05.07.2007, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 05.07.2007, Qupperneq 20
|fimmtudagur|5. 7. 2007| mbl.is daglegtlíf Það getur munað miklu fyrir fólk að versla á útsölum vanti það á annað borð flíkur, hús- gögn eða smávöru. »21 neytendur Svínarif, grísalundir, hamborg- arar og ýmislegt fleira á tilboði sem hentugt er að setja á grillið um helgina. »21 helgartilboð Boston hefur verið lýst sem „evrópskri“ í anda og má segja að hún sameini kostina vestan hafs og austan. »22 ferðalög Eftir Jóhönnu Ingvarsdóttur join@mbl.is Glæsilegt“ varð Margréti Þórhildi Danadrottn-ingu að orði þegar íslenski fatahönnuðurinnIngibjörg Ólafsdóttir afhenti henni fallegtsilkisjal, sem hún hannaði og saumaði á drottninguna. Borgarstjórahjónin í Holbæk komu á dögunum að máli við Ingibjörgu og báðu hana um að hanna og sauma sjalið í tilefni af heimsókn drottningar í bæinn, en Margrét drottning kom ásamt manni sínum, Hinriki prins, siglandi á drottningarsnekkjunni Dannebrog til Holbæk hinn 13. júní síðastliðinn. Ingibjörg afhenti drottningunni sjálf sjalið í móttöku, sem haldin var í Ráðhúsinu í Holbæk, og við sama tækifæri afhenti borgarstjórafrúin Hinriki prins ljósbláan hálssilkiklút með grafísku mynstri, sem líka var eftir Ingi- björgu. Gjafirnar eru saumaðar úr ítölsku gæðasilki, sem Ingibjörg kaupir í Sviss, og voru þær frá bænum. „Ég var auðvitað mjög montin af þessu, en þurfti að hugsa mig um í einn dag hvort ég tæki að mér verkið eða ekki. Sonur minn, Ólafur Elíasson, hvatti mig til að gera það og auðvitað ákvað ég að slá til og sauma gjafirnar konunglegu eftir smá umhugsun,“ segir Ingibjörg, sem hefur verið búsett í Danmörku í fjörutíu ár og rekur bæði vinnustofu og verslun í Holbæk. Blómamynstur á rauðu silki Að sögn Ingibjargar virti drottningin sjalið fyrir sér bæði vel og lengi og allir viðstaddir voru sammála um að rautt silkið og stórgert blómamynstrið færi drottningunni einstaklega vel. Ingibjörg ólst upp í Hafnarfirði. Að loknu námi á Íslandi lærði hún hönnun og saum í Tilskærer-akademiet í Kaupmannahöfn. Hún hannar og saumar föt eftir pöntun og segist aðallega taka að sér hönnun glæsikjóla og annars veislufatnaðar fyrir konur, sem leggi áherslu á stíl og útlit. Silkisjalið Drottningarsjalið er þríhyrnt að lögun, rautt með stóru blóma- mynstri. Ljósmynd/MIK/Chr.Mikkelsen Athöfnin Ingibjörg Ólafsdóttir afhenti Margréti Þórhildi Danadrottn- ingu sjalið sem hún hannaði og saumaði fyrir heimsóknina til Holbæk.. Fatahönnuðurinn Ingibjörg Ólafs- dóttir notar silki í hönnun sína. Hannaði silki- sjal á Dana- drottningu ekki síðra öryggistæki eru gleraugu til varnar flugum. Þannig háttaði til að Víkverji áttaði sig ekki á þessari leyndu hættu og hjólaði inn í ósýnilegt flugnager á fljúgandi ferð. Ein flug- an festist í auga Vík- verja og það sem eftir lifði ferðar blikkaði hann hægra auga eins og óður maður, svona til að reyna að hagræða flugunni sem barðist um og kitlaði glyrnuna í Víkverja um leið og hún sökk dýpra og dýpra ofan í augnskál- ina á leið inn í heila. Eins og nærri má geta truflaði þetta Víkverja við aksturinn svo lá við slysi. Og var það ekki dæmigert að nú þurfti að vera ótrúlega langt í næsta kyrrstæða bíl með hliðarspegli sem er nauðsynlegt tæki til að framkvæma sjálfsaugn- aðgerð og ná kvikindinu út? Loks var hægt að hefja aðgerðina og sem betur fer var Víkverji með strætó- miða í veskinu sem hann gat notað sem töng og grafið út jarðneskar leifar skorkvikindisins. Geysilegur léttir var það, þótt hún kæmi að vísu lappa- og vængjalaus út. Víkverji er þá með afganginn á heilanum en reisir ekki ágreining. Víkverji er hrifinn afstarfsliði Sýslu- mannsins í Kópavogi eftir snör handtök við afgreiðslu vegabréfs nýverið. Já, Víkverji á það til að hrósa fólki stundum. Hvað um það, sagan er svona: Víkverja vantaði nýtt vegabréf þar sem það gamla rann út í vor. Við afgreiðslu vega- bréfa hjá sýslumanni er hægt að velja á milli tveggja kosta, þ.e. venjulegrar afgreiðslu og svonefndrar hrað- afgreiðslu. Sú venju- lega kostar 5.100 og hentar auðvitað öllum sem ekki eru að flýta sér óskaplega en sú síðarnefnda kostar yfir 10 þúsund krónur. Þeir sem vilja hraðafgreiðslu hafa tvo kosti; að sækja vegabréfið út í Njarðvík innan 5 daga frá umsókn eða fá vegabréf sent í pósti sem berst í síðasta lagi innan 9 virkra daga frá umsókn. Víkverji fékk hins vegar vegabréf- ið sent í pósti að tveimur dögum liðnum og ef þetta er ekki hröð af- greiðsla, hvað þá? Og bað ekki einu sinni um hraðameðferð. Víkverji er hrifinn af hjólreiðum og hjólaði heim úr vinnunni um dag- inn. Hjálmur er gott öryggistæki en             víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Þessa dagana keppast frönsku tískuhúsin við að kynna vetrarfatn- aðinn. Í gær kynnti hönnuðurinn Pascal Millet línu vetrarins frá Carven. Kvenlegt Glæsilegur klæðnaður þar sem grái liturinn fær að njóta sín Hönnuðurinn Pascal Millet í lok sýningarinnar. Grátt, svart og hvítt í vetur Öðruvísi Efnismikill kjóll sem kæmi sér vel í vetrarkuldanum. Sígilt Svart og gyllt. Margar konur eiga eflaust eftir að gleðjast yfir pífunum á pilsinu. Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.