Morgunblaðið - 05.07.2007, Page 21

Morgunblaðið - 05.07.2007, Page 21
Hagkaup Gildir 5. júlí til 8. júlí verð nú verð áður mælie. verð Holta koníaksl. kjúklingabr. ......... 1.557 2.595 1.557 kr. kg Bláberjal. lambasirloin úr kjötb. .. 1.498 1.875 1.498 kr. kg New Orleans svínarif, bbq........... 1.118 1.398 1.118 kr. kg Nauta ribeye úr kjötborði ............ 2.498 3.143 2.498 kr. kg Doritos snakk ............................ 149 224 149 kr. pk. Sól appelsínusafi, ávaxtasafar .... 249 299 249 kr. ltr Lgg jógúrt, jarðarberja/bláberja... 88 98 88 kr. stk. Krónan Gildir 5. júlí til 8. júlí verð nú verð áður mælie. verð Lamba prime /ungv.krydd........... 2.249 2.998 2.249 kr. kg Grísalundir m/rj.osti&pappadew. 2.158 2.698 2.158 kr. kg Kjúklbr. m/rj.osti&sólþ.tóm. ....... 2.158 2.698 2.158 kr. kg Goða grísakótilettur, karab.......... 1.298 1.669 1.298 kr. kg Móa kjúklingabringur ................. 1.685 2.515 1.685 kr. kg Grillborgarar með brauði, 4 stk.... 398 499 398 kr. pk. Krónu hrásalat 350 gr ................ 99 140 282 kr. kg Freschetta XL, 4 tegundir ............ 398 440 780 kr. kg Egils kristall, 6 pk án bragðefna/ m.sítr. ....................................... 399 499 66 kr. stk. Super þvottaefni 3 kg................. 399 499 133 kr. kg Nóatún Gildir 5. júlí til 8. júlí verð nú verð áður mælie. verð Grísalundir m/sumarfyllingu ....... 2.198 2.698 2.198 kr. kg Nóatúns lambalæri m/kryddj. ..... 1.498 1.898 1.498 kr. kg Ungnautastrimlar í tex mex ......... 1.698 2.098 1.698 kr. kg Grísagrillsteik Miðjarðarhafs........ 998 1.298 998 kr. kg Túnfiskssteikur ........................... 2.498 2.998 2.498 kr. kg Keila í tómötum og basil............. 898 1.298 898 kr. kg Myllu fjölk.saml.brauð 770 gr ..... 199 277 258 kr. kg Brazzi 1 lítri, 5 tegundir............... 99 124 99 kr. ltr Pepsi Max 2 lítrar ....................... 99 176 49 kr. ltr Lambi satin, blár/hvítur.............. 399 499 399 kr. pk. Samkaup/Úrval Gildir 5. júlí til 8. júlí verð nú verð áður mælie. verð Kjötborð lambaframp, hryggjbitar 1.259 1.688 1.259 kr. kg Gourmet léttr. hunangs grísakótil. 1.169 1.682 1.169 kr. kg Goði grísakótilettur, karabískar.... 1.159 1.669 1.159 kr. kg Borgarnes grillpylsur .................. 699 999 699 kr. kg Freschetta brickoven al formaggi . 399 562 399 kr. stk. Góa bitar dúndur 200 gr............. 199 240 995 kr. kg Magic orkudrykkur, blár .............. 109 159 109 kr. stk. Hatting ostabrauð 2 stk. í pakka . 169 281 169 kr. stk. sætar kartöflur........................... 159 279 159 kr. kg ferskur ananas .......................... 129 219 129 kr. stk. helgartilboðin Grillborgarar og grísakjöt V erðgildi er undarlegt fyrirbrigði og oft af- stætt, enda fer verð- skyn oftast eftir því hversu mikla peninga fólk hefur til umráða í dagsins önn og striti – og reyndar lífs- gildum. Það sem einum finnst dýrt finnst öðrum ódýrt og enn öðrum á spottprís. Það virðist þó vera sammannlegt einkenni, þrátt fyrir að sumir fari beinlínis illa með peninga, að vilja gera góð kaup. Fólk gortar sig ósjaldan af því að hafa gert góð kaup, eins og það sé eftirsóknarverð gáfa eða snilld. Það er það reyndar, þ.e.a.s. ráðdeild í fjármálum heimilisins, en stundum er eins og fólk sjái beinlínis rautt og verði eins og naut í flagi þegar það sér útsölu- borða. Það ræðst á útsölugóssið eins og það sé það síðasta sem það muni komast yfir í þessum neysluheimi og straujar pen- ingakortin eins og það eigi lífið sjálft að leysa. Sumir, ekki allir. Hinir, þeir sem hugsa áður en þeir kaupa, eru skynsamir og fara eftir útsölureglunum. Útsölureglurnar þrjár En hverjar eru reglurnar? Þær eru bara þrjár og mjög einfaldar. 1. Hvað vantar þig? Á útsölum má gera frábær kaup á því sem vantar til heimilis- ins. Það á að reka heimili eins og fyrirtæki, á sem hagkvæmastan hátt, og það munar svo sann- arlega um að fá 30-70% afslátt. Hagsýnar húsfreyjur og hús- bændur skipuleggja innkaup á húsmunum, fatnaði og fleiru að sjálfsögðu fram í tímann og nýta sér útsölutímabil til þess að gera hagstæð innkaup. 2. Ertu sátt/ur við útsöluvarninginn? Algengustu mistökin sem fólk gerir á útsölum eru að kaupa hluti af því að þeir eru á svo góðu verði. Það gerir af þeim sökum oft minni kröfur um að hluturinn falli þeim fullkomlega í geð eða til gæða. Sértu ekki fullkomlega ánægð/ur með hlutinn, slepptu því þá að kaupa hann. Það er lík- legt að þú verðir aldrei alveg ánægð/ur og þá er peningum mjög illa varið, sérstaklega ef hluturinn verður sjaldan eða aldr- ei notaður. 3. Hefur þú efni á að kaupa útsöluvarninginn? Þetta er mjög mikilvæg spurn- ing. Það er til lítils að gera góð kaup ef það steypir manni í skuld- ir. Ef þú hefur ekki efni á út- söluvarningnum og ef það er heimilinu, þ.e. fyrirtækinu þínu, ekki þeim mun bráðnauðsynlegra að eignast hann, slepptu honum þá. Safnaðu frekar peningum og keyptu á næsta útsölutímabili. Til- finningin verður miklu betri. uhj@mbl.is Á útsölutrippi í neysluheimi Morgunblaðið/Kristinn Hamagangur Það er oft hamagangur í öskjunni á útsölum enda oft hægt að gera góð kaup. Kapp er þó oftast gott með forsjá. Morgunblaðið/Eyþór Freistingar Því hærri sem útsöluprósentan er því betri kaup finnst fólki það oftast vera að gera. Mikilvægast er þó að fólk hafi not fyrir kaupin. » „Það ræðst á út- sölugóssið eins og það sé það síðasta sem það muni komast yfir í þessum neyslu- heimi og straujar peningakortin eins og það eigi lífið sjálft að leysa.“ Sumir kikna í hnjá- liðunum þegar þeir sjá þær. Útsölur. Þar eru freistingar á hverju strái fyrir venjulegt fólk. Unnur H. Jóhannsdóttir velti fyrir sér hvort eitthvað væri á útsölum að græða. Í HNOTSKURN Hvað er hagstætt á sumarútsölunum? »Sumarfatnaður. Það er nógeftir af sumrinu og gera má góð kaup í léttum fatnaði sem er á allt að 80% afslætti. »Vetrarfatnaður. Á sum-arútsölunum er oft að finna heilsársfatnað og eins útifatn- að með góðum afslætti, sem er gott að fara að huga að fyrir veturinn. » Garðhúsgögn. Góður af-sláttur er veittur af send- ingum sem komu í vor, 20-80% afsláttur. »Raftæki og húsgögn. Þaðgetur munað miklu um 10- 30% afslátt af hlutum sem kosta tugi og jafnvel hundruð þúsunda. »Smávara fyrir heimilið oggjafavörur. Mikið úrval býðst af fallegum fylgihlutum fyrir heimilið og eins gjafavör- um sem fást með 20-80% af- slætti. »Nýjar vörur með afslætti. Áútsölutímabilum er víða gefinn 10% afsláttur af nýjum vörum. neytendur MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 21 mbl.is smáauglýsingar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.