Morgunblaðið - 05.07.2007, Qupperneq 23
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 23
Frelsi stöðvar
tímann
Þú borgar bara fyrir fyrstu 3 mínúturnar
en getur svo talað og talað fyrir 0 kr.
Fylltu á Frelsi með GSM símanum og njóttu þess að vera í gefandi samböndum í sumar.*
- 0 kr. mínútan eftir fyrstu 3 mínútur hvers símtals
- 0 kr. fyrir hver skilaboð eftir 3 SMS eða 3 MMS innan sólarhringsins
Til að geta fyllt á Frelsi með símanum þínum þarftu bara að skrá debet- eða kreditkortið þitt
einu sinni á Mínu Frelsi á siminn.is eða í verslunum Símans.
*Tilboðið gildir innan kerfis Símans. Nánari upplýsingar um tilboð og skilmála er að finna á siminn.is/frelsi 800 7000 – siminn.is
SONY ERICSSON K610i
Léttkaupsútborgun
1.900 kr.
1.500 kr. á mánuði í 12 mánuði.
Verð aðeins 19.900 kr.
á su
mar
tilbo
ðisím
i
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
8
5
8
9
Akureyri er umsetin. Allavega um helgar að
sumarlagi. Það var ekki þverfótað í sundlaug-
inni fyrir herðabreiðum og allt of spengilegum
keppendum á AMÍ-sundmótinu um hádeg-
isbilið síðasta laugardag. „Allt of spengileg-
um,“ hugsaði maður, spígsporaði milli heitu
pottanna og mældi nýfædda ístruna sem stefn-
ir ótrauð í eina átt.
Um næstu helgi, ferðahelgina miklu, verður
að sama skapi margt um manninn í bænum.
Nóg verður allavega um að vera. Í gær fór
nefnilega enn eitt mótið af stað: N1-mótið, sem
áður hét ESSO-mótið. Nú er spriklað á KA-
vellinum og drengir í 5. flokk víðsvegar að af
landinu leika listir sínar. 34 lið keppast um að
komast í úrslitaleikinn sem fer fram næsta
laugardag kl. 17.20.
Á föstudag og laugardag berjast svo rígfull-
orðnir pollar á Þórsvellinum. Menn af léttasta
skeiði, fornar kempur og seigluhundar mætast
á pollamótinu, þar sem keppnisskapið er
stundum jafnað með einum köldum. Á milli
leikja.
Andinn, ýmist liðsandinn eða annar, er góð-
ur á pollamótinu, og ekki ólíklegt að það sama
muni gilda í leik Dana og Íslendinga sem fer
fram á Akureyri. Þrátt fyrir söguna, einok-
unina, handritin og 14-2. Þá fer nefnilega fram
fyrsti landsleikurinn hjá Íslendingum í flokki
ellismella, og aldrei að vita nema leikurinn
færi betri tíðindi en leikir A-landsliðsins.
Í leiknum eigast við margir af „pollunum“
sem hlaupa um á Þórsvellinum: Birkir Krist-
insson, Halldór Áskelsson, Guðni Bergsson og
Þorgrímur Þráinsson svo nokkrir séu nefndir
sem keppa fyrir Íslands hönd. Nokkrir úr liði
Evrópumeistaranna frá 1992, Kim Vilfort og
jafnvel sjálfur Peter Schmeichel, munu svo
halda uppi merkjum Dana. Koma svo!
Yfir í allt annað: Fiskidagurinn mikli er
handan við hornið. Reyndar ekki fyrr en í
ágúst, en tíminn líður hvort eð er hratt á gervi-
hnattaöld. Í ár stefnir í sérlega veglegan fiski-
dag, enda er komið á daginn að KEA mun
styrkja Dalvíkinga við að veita fisk. M.a. ætlar
KEA að styrkja uppsetningu Dýranna í Hálsa-
skógi á meðan hátíðinni stendur, sem er ein-
staklega vel til fundið. Enda ófá dýr sem renna
niður hálsa gestanna á Fiskidaginn, þar sem
nýjungar á borð við saltfiskbollur, plokkfisk og
ígulker verða á boðstólum að þessu sinni.
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Efnilegir Frá N1 mótinu á Akureyri.
AKUREYRI
Hjálmar Stefán Brynjólfsson
Bryndís Halldóra Bjartmarsdóttirer af skáldakyninu frá Sandi í
Aðaldal. Hún yrkir:
Hefur hver sinn háttinn á
hirði ég lítt um trúna.
Oft hún brást, er á mér lá
og ekki dugði hún núna.
Þá bætir hún við heilræði til
kvenna:
Fríður á kodda, fer vel í rúmi
fallegur bak og stinnur að framan.
Þá eiginleika í öndvegi settu
ef þú vilt hafa af karlmanni gaman.
Og Bryndís yrkir einnig ástarvísu:
Úr einum faðmi í annan flý
aðeins til að finna
að þú varst og verður á ný
viðfang drauma minna.
Hálfdan Ármann Björnsson
bregður á leik með limruformið:
„Hundurinn heitir Nafni,“ sa damen,
og hefur nóg fyrir stafni,“ ja men?“
Hann glefsar og geltir
og gestina eltir
og jagast í Jesúnafni, amen.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Draumar
á Sandi