Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 27

Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 27 MINNINGAR MEÐ þessum línum lýsi ég, ein- lægur Þórsari, yfir sérstakri ánægju með samkomulag sem stjórn félags- ins og bæjaryfirvöld skrifuðu undir á dögunum um upp- byggingu íþróttasvæð- is félagsins. Ég hika ekki við að fullyrða að þetta samkomulag verður talið einn merk- asti viðburður í sögu Þórs. Með því er lagð- ur grunnur að glæsi- legri aðstöðu fyrir fjöl- breytt íþrótta- og tómstundastarf á veg- um félagsins. Margar íþróttagreinar fá þar fyrsta flokks aðstæður svo sem frjálsar íþrótt- ir, knattleikir innan- húss og utan, sund og almenningsíþróttir hverskonar. Allt mynd- ar þetta glæsilega heild sem verður félag- inu og bæjarbúum til gæfu og sóma. Þegar félagið verður eitt hundrað ára eftir átta ár, munum við Þórsarar og gestir okkar fagna þeim tímamótum á glæsilegasta íþrótta- og tóm- stundasvæði landsins. Þá minnumst við þess að þar var haldið Landsmót UMFÍ árið 2009, sem bar hróður fé- lagsins og bæjarins um víðan völl og vakti jafnframt athygli á jákvæðu og markvissu starfi Þórs fyrir unga og aldna. Þá mun félagssvæðið þegar hafa laðað að sér alla aldurshópa til heilbrigðrar og uppbyggjandi lík- amsræktar og þeirrar andlegu örv- unar sem henni fylgir. Því munum við stolt geta haldið upp á aldarafmælið og horft björtum augum til framtíðar. Það er því morg- unljóst að með und- irritun áðurgreinds samnings var stigið mikilvægt skref sem ástæða er til að þakka bæði stjórn Þórs og bæjaryfirvöldum fyrir. Auðvitað má finna að einu og öðru og ekki er allt í hendi. En látum það ekki villa okkur sýn því vandamál eru ekki til að gleyma sér í þeim heldur til eyða þeim í uppbyggjandi samstarfi. Aðalatriðið er að búið er að varða veginn sem mun verða okkur Þorpurum og bæjarbúum öllum til farsældar. Að lokum vil ég einn- ig óska vinum okkar í KA til hamingju með sinn samning og velfarnaðar við að byggja upp sitt íþrótta- og tómstundasvæði. Merkur viðburður í sögu Þórs Ragnar Sverrisson þakkar samkomulag um uppbyggingu íþróttasvæðis Þórs á Akureyri »… með und-irritun áð- urgreinds samnings var stigið mikilvægt skref sem ástæða er til að þakka … Ragnar Sverrisson Höfundur er félagsmaður í Þór. ÞAÐ var athyglisvert viðtal í Kastljósi á föstudaginn, þá fékk alþjóð loks að sjá og heyra hvaða mann Tryggvi Jónsson, fyrrum að- stoðarforstjóri Baugs Group, hefur að geyma. Hann hefur lengst af haldið sig til hlés og skotið úr launsátri á mig og alla þá sem reynt hafa að aðstoða mig við að koma mínum sjón- armiðum á framfæri, vegna vanefnda Baugsmanna við mig og mitt fyrirtæki, Nordica, Inc. Það er hinsvegar rétt hjá þér, Tryggvi, að maður stofnar ekki til málaferla nema hafa augljósar van- efndar kröfur á hend- ur þeim aðila sem maður fer í mál við. Í þessu tilfelli hafði ég kröfur á hendur Baugi. Ég veit ekki betur en að útkoman úr þeim málaferlum hafi verið viðurkenning og greiðsla frá Baugi til Nordica, Inc., þvert ofan í kenningar þínar um að Nordica hafi skuldað Baugi kreditreikning- inn tilhæfislausa. Ekki kom fram af hálfu Baugs krafa um greiðslu á þessum margumtalaða, tilhæfu- lausa kreditreikningi, enda ekkert á bak við þann reikning, eins og þú veist. Ekkert nema bókhalds- fals þitt, sem einnig mátti rekja til samskonar reiknings sem forstjóri SMS í Færeyjum viðurkenndi að hafa falsað fyrir þig. Ekki var hann dæmdur! Þetta var allt svindl ykkar Jóns Ásgeirs til þess eins að rétta við bókhald Baugs og bjarga bréfum Baugs frá hruni. Þú veist að sala og tekjur Baugs voru langt undir væntingum mark- aðarins og langt undir því sem þú og stjórn Baugs höfðu tilkynnt í Kauphöll Íslands á þessum tíma. Talandi um tölvupósta, Tryggvi Jónsson! Mér þykir það skondið að þú talir um tölvupósta. Ég ætti kannski að opinbera nokkra sem fóru á milli þín og „litlu stúlk- unnar með eldspýturnar“ (Lindu Jóhannsdóttur, fjármálastjóra Baugs, póstur 23. janúar 2001). Tryggvi, ég held þú sért á hálum ís að tala um tölvupósta annarra. Þú fékkst 12 mánaða dóm í ný- felldum dómi Héraðsdóms. Það hafði ekkert að gera með pólitík eða stolin tölvugögn sem slitin voru úr samhengi, heldur það, að þið Baugsmenn eruð óheiðarlegir í við- skiptum. Ég held að stjórn Baugs ætti heldur að þakka Davíð Oddssyni fyrir að ekki fór verr. Það var hann sem varaði Hrein Loftsson við að menn hefðu áhyggjur af samráði og einokun á mat- vörumarkaðinum á Ís- landi, enda, eins og þú veist, eftir komu Hreins frá London var öll yf- irstjórn Baugs kölluð saman á fund til að fara yfir tölvusamskipti framkvæmdastjóra fyrirtækja Baugs á þessum tíma. Sú hreinsun hafði alls ekkert að gera með mig eða mitt fyritæki, Nordica, Inc. Tryggvi, til að skerpa minni þitt þá ættir þú kannski að lesa allar bókanirnar frá stjórnarfundum Baugs eftir komu Hreins frá London á þessum tíma en ekki bara það sem hentar þér. Þú talar um ofsóknir gegn ykk- ur. Ég held að þú og Baugsmenn ættuð að líta í eigin barm þegar þið talið um ofsóknir, þær hamfar- ir sem gengu yfir hér í bandarísku réttarkerfi á hendur mér og mínu fyrirtæki voru þvílíkar að orð geta vart lýst því, með lögmenn frá fimm lögfræðistofum í þremur fylkjum, að ógleymdum einka- spæjara. Skilaboðin voru skýr í tölvu- póstum frá Jóni Ásgeiri til lög- manns síns í New York. „I dońt care how much it́s going to cost, I want him finished.“ Eftir tugi milljóna í lög- fræðikostnað Baugsmanna sá dómskerfið hér í Bandaríkjunum í gegnum alla þá lygi og þvælu sem þið Baugsmenn höfðuð uppi. Og var ykkar málum endurtekið vísað frá. Við vitum hvernig þau mála- ferli enduðu, ekki satt? Fjölmiðlar á Íslandi gleymdu sér á þeirri vakt en skjölin liggja fyrir. Tryggvi Jónsson, það er ekki rétt hjá þér að ég hafi borið ábyrgð á bókhaldi þínu með korti Nordica, Inc. Það var aldrei í mín- um verkahring að sundurliða þína persónulega reikninga. Þú einn notaðir það kort og veist hvaða út- gjöld voru á því. Þín fyrirmæli voru skýr. Textinn kom frá þér og allt samþykkt af þér. Þetta mun allt koma í ljós þegar ég birti op- inberlega gögn úr málinu. Í Kastljósi á gúmískóm Jón Gerald Sullenberger skrif- ar bréf til Tryggva Jónssonar »Ég held að þú og Baugsmenn ættuð að líta í eigin barm þegar þið talið um ofsóknir … Jón Gerald Sullenberger Höfundur er framkvæmdastjóri Nordica, Inc. ✝ Hreinn Helga-son fæddist á Húsabakka í Að- aldal í S-Þing. 9. apríl 1926. Hann lést á Landakoti 27. júní síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Helga Kristjánssonar og Þuríðar Sigtryggs- dóttur, en fór í fóstur til Jónasar Péturssonar og Sigríðar Sigtryggs- dóttur á Húsavík og ólst þar upp. Systir Hreins er Sigríður Helgadóttir. Hinn 1. janúar 1951 kvæntist Hreinn Steinunni Ágústu Ólafs- dóttur, f. 8. nóvember 1932, d. 8. ágúst 2000. Synir þeirra eru: 1) Jónas Sigurður, f. 2. apríl 1951, kvæntur Valdísi Odd- geirsdóttur, f. 21. janúar 1949, sonur þeirra er Steinar Hreinn, f. 20. júní 1985. Fósturdætur Jónasar eru Guð- rún, f. 17. sept- ember 1968, Ása, f. 22. júní 1972, og Kristjana, f. 18. júní 1974. 2) Ólafur Helgi, f. 2. nóvember 1963, sambýliskona Helga Þormóðs- dóttir, f. 17. júní 1959, sonur þeirra er Elmar Helgi, f. 29. des- ember 1993. Fóst- urbörn Ólafs eru Bjarki Þór, f. 15. apríl 1976, og Kristín Ýr, f. 2. júní 1983. Hreinn og Steinunn bjuggu á Raufarhöfn til ársins 1974 og fluttust þau þá til Reykjavíkur. Hreinn var lengst af banka- maður og starfaði hjá Lands- banka Íslands. Útför Hreins fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Mig langar til að minnast afa míns með nokkrum orðum. Það var alltaf gott að koma til afa og ömmu í heimsókn. Þau tóku alltaf fagn- andi á móti mér og ein af fyrstu minningum mínum er þegar ég að labba niður í kjallara að ná mér í ís sem var alltaf passað vel upp á að væri til handa mér. Afi var mikill kvikmyndaáhuga- maður og fórum við oft saman í bíó, ég, afi og pabbi. Þessar ferðir voru skemmtilegar og lifa vel í minning- unni. Stundum hringdi ég í afa eða labbaði til hans og endaði svo dag- urinn oft með bíóferð eða með aur í vasanum. Ég er þakklátur fyrir þann tíma sem við afi áttum saman og allar góðu minningarnar sem ég á um hann. Elsku afi Hreinn og amma Stein- unn, nú eruð þið saman á ný. Steinar Hreinn Jónasson. Fyrstu kynni okkar systranna af honum Hreini okkar voru þegar mamma kynntist Jónasi fóstur- pabba og hóf með honum sambúð. Ég yngst 5 ára, Ása 7 ára og Guð- rún 11 ára. Við sem litlar hnátur vorum teknar strax upp á arma þeirra beggja, Hreins og Steinunn- ar, alveg frá byrjun eins og ekkert væri sjálfsagðara. Það var alltaf gott að koma til þeirra, það var dekrað við okkur og okkur sýnd ást og umhyggja. Margar góðar minningar koma upp í hugann þegar við hugsum til baka, margt er minnisstæðara en annað en þá er okkur minnisstæð- ast þegar við heimsóttum hann í vinnuna í Landsbankann. Þar stóð hann virðulegur í vesti með stóran peningaskáp bak við sig. Okkur fannst svo spennandi að vita til þess að hann stjórnaði öllu út- streymi frá þessum stóra skáp. Og ekki vantaði brosið sem hann gaf okkur systrunum. Þegar við heimsóttum Hrein og Steinunni var okkur ávallt vel tek- ið, iðulega sat Hreinn í stólnum sínum, hlustaði á útvarpið og las blöðin. Þetta var hans stund sem við virtum. Eftir það kom hann og spjallaði við okkur um heima og geima. Steinunn var iðulega alveg á fullu að sinna okkur. Eftir að við urðum fullorðnar og eignuðumst okkar eigin börn var þeim öllum tekið jafnvel og okkur systrunum. Hreinn hafði einstaklega gaman af öllum þessum strákahóp. Í seinni tíð fannst honum gaman að gefa þeim jólagjafir og afmælisgjafir, sem iðulega höfðu að geyma góðar myndir til að horfa á í sjónvarpi. Þrátt fyrir veikindi hjá þeim báð- um vantaði aldrei samheldnina og væntumþykjuna sem þau sýndu okkur. Við erum eilíflega þakklátar fyrir að hafa fengið að hafa Hrein og Steinunni hjá okkur og megi Guð geyma ykkur. Elsku Jónas og Óli, við sendum ykkur samúðar- kveðjur. Guðrún Pálína, Ása og Kristjana. Hreinn Helgason Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Sumarið er tíminn! Sumarið er tími tækifæra til að njóta svo margs. All- an veturinn bíðum við eftir góða veðrinu og löngum dögum og sum- arnóttum. En þessi tími líður alltaf ótrúlega hratt. Það er því mikilvægt að staldra við og ákveða hvernig við nýtum þennan dýrmæta tíma. Við foreldrar njótum þeirra for- réttinda að bera ábyrgð á börnunum okkar a.m.k. þar til þau eru 18 ára gömul. Við höfum þennan tíma til að njóta samverustunda, fylgjast með þroska þeirra, leiðbeina þeim og miðla gildum. Þessi tími kemur ekki aftur, hann verður ekki endurtekinn og ekki settur í bið. Það er ekki eftir neinu að bíða, grípum tækifærið! Mikilvægi samverustunda fjöl- skyldunnar fyrir þroska barna og vellíðan er óumdeilt. Þau börn sem fá mikinn stuðning frá fjölskyldunni, eru undir virku eftirliti foreldra og verja miklum tíma með þeim líður betur, þeim gengur betur í skóla og neyta síður áfengis og annarra vímu- efna. Börn og unglingar vilja verja meiri tíma með foreldrum sínum en þau eiga kost á í dag. Sumarið er tími tækifæra fyrir foreldra til að bæta um betur og safna góðum minningum með börnum sínum. Sundferðir, samtöl, að borða saman, spila, ferðast saman og bara hanga saman, allt skiptir máli. Það skiptir máli að slaka á og njóta stund- arinnar. Það þarf ekki alltaf að skipuleggja allt í smáatriðum, alltaf. Stundum detta frábær tækifæri til samveru í fangið á okkur, þá er gott að geta gripið! BERGÞÓRA VALSDÓTTIR fulltrúi SAMFOK í SAMAN-hópnum. Sumarið og tæki- færin Frá Bergþóru Valsdóttur ✝ Móðursystir mín, HULDA GUÐMUNDSDÓTTIR frá Gufuá, sem andaðist á dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi, sunnudaginn 1. júlí, verður jarðsungin frá Stafholtskirkju, föstudaginn 6. júlí kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Skúli Guðmundsson. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir, mágur, barnabarn og tengdasonur, MARKÚS SÆVAR GÍSLASON, Háholti 5, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, miðvikudaginn 4. júlí. Jarðarförin auglýst síðar. Svava Óskarsdóttir, Óskar Bjarmi Markússon, Gísli Sigurjónsson, Jóhanna H. Bjarnadóttir, Sæmundur H. Gíslason, Anna Lilja Sigurðardóttir, Sigurjón Már Birgisson, Lilja Hjaltadóttir, Sigurjón K. Níelsen, Elín Sæmundsdóttir, Óskar Jóhannesson, Sigrún Ingólfsdóttir og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.