Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 33

Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 33 að brjóta sér leið út á himnum, fugl- arnir vaknaðir og sungu svo fallega þarna úti í náttúrunni og gestir hússins að týnast fram hver af öðr- um. Ég var stödd á Selsundi ásamt fjórum af systkinum þínum og fjöl- skyldum þeirra, við vorum í okkar árlegu vinnuferð í bústaðnum. Sím- inn hringdi – þennan fallega morgun höfðu ekki allir vaknað. Það dró ekki bara dökkt sorgarský fyrir hjörtu okkar, það dró líka ský fyrir sólu – það var eins og himinninn gréti með okkur. Enn og aftur er maður minntur á hve lífið getur verið hverf- ult. En þótt mennirnir séu frá okkur teknir getur enginn tekið minning- arnar sem þeir skilja eftir sig– minn- ingar sem eru mér svo dýrmætar í dag – ég þakka Guði fyrir þær. Maggi var einn af sex systkinum mannsins míns. Hann var það systk- ini sem ég kynntist síðast, því ein- hvern veginn höguðu örlögin því þannig að um svipað leyti og ég fór að venja komur mínar á Lambhól fluttist Maggi erlendis og þegar hann loks kom heim bjuggum við úti á landi um tíma. En alltaf fengum við fréttir af honum í gegnum tengda- mömmu sem alla tíð hefur verið svo dugleg að halda utan um hópinn sinn og færa fréttir af hverjum og einum. Það var svo ekki fyrr en við gerð- umst nágrannar að samfundir okkar urðu tíðari og tengslin efldust. Mín- ar bestu stundir með honum voru þegar við kíktum í heimsókn á Lambhól eða hann og tengda- mamma komu í heimsókn til okkar – alltaf spunnust upp skemmtilegar umræður því það var næstum því sama hvar drepið var niður í þjóð- málum eða öðru – hann var svo víð- lesinn og hafði kynnst svo mörgu á lífshlaupi sínu sem margur annar ekki þekkti. Maggi kom mér fyrir sjónir sem einstaklega hlýr og gefandi en jafn- framt mjög viðkvæmur drengur. Maður sá það svo vel í samskiptum hans við börnin okkar hve vel hann náði til þeirra á sinn nærgætna máta. Börn voru honum mikils virði, og veit ég að þó svo honum hafi ekki hlotnast sú gæfa að ala upp litla drenginn sinn sem hann missti þá fannst honum hann vera ríkur með allan þann stóra hóp systkinabarna sem hann átti. Ríkidæmi felst ekki í veraldlegum auði heldur eru fjöl- skylda og vinir einn af fjársjóðum hvers manns. Elsku Maggi minn, í dag eru svo margir sem eiga um sárt að binda því þú gerðir líf svo margra ríkara, en minningin lifir og mun ég geyma hana í brjósti mér. Ég bið algóðan Guð að opna faðm sinn og umvefja þig sínum mjúku höndum um leið og ég vil þakka þér fyrir samfylgdina. Þín mágkona, Svava. Ferjan hefur festar losað, farþegi er einn um borð, mér er ljúft af mætti veikum mæla nokkur kveðjuorð. Þakkir fyrir hlýjan huga, handtak þétt og gleðibrag, þakkir fyrir þúsund hlátra, þakkir fyrir liðinn dag. (J. Har.) Nú í júní þegar sólargangur er sem lengstur hefur Magnús kvatt þessa jarðvist. Sorgin og söknuður haldast í hendur eftir áratuga vin- áttutengsl. En eftir lifa minningar og svipmyndir tengdar hans lífs- hlaupi. Magnús var ljós yfirlitum, töffari með kankvíst bros, lífsglaður og orðheppinn. Hann var greiðasam- ur, hafði útgeislun og góða nærveru. Hann var einnig gæfusamur að eiga góða og velviljaða fjölskyldu sem var til staðar, líka á erfiðari stundum. Það er komið að kveðjustund. Að- stæður haga því þannig að hvorugt okkar getur fylgt honum síðasta spölinn. Með hlýhug og söknuði kveðjum við Magnús og þökkum honum samleiðina löngu. Móður hans, systkinum og fjölskyldu vott- um við okkar dýpstu samúð. Megi mildi Guðs lina söknuð ykkar og auka ástvinum Magnúsar öllum styrk í sorginni. Þín minning öllu skærar skín þó skilji leið um sinn. Þó okkur byrgi sorgin sýn mun sólin brjótast inn. Við biðjum Guð að gæta þín og greiða veginn þinn. (G.Ö.) Ásdís Arnljótsdóttir og Bjarni Leifur Pétursson. Auðvitað á maður aldrei von á því að dauðann beri að höndum innan raða sinnar fjölskyldu. Hann bankar á dyrnar hjá hinum. Auðvitað kemur hann síðan við hjá fjölskyldu manns. Það segir sig sjálft, þegar maður hugsar út í það. En maður hugsar of sjaldan út í það og fyrir vikið ýtir maður sjálfsögðum, auðveldum og ánægjulegum hlutum á undan sér. Ég hitti hann á næstunni. Slæ á þráðinn innan skamms. Svo gerist það auðvitað ekki. Síðan sér maður eftir því. Fyrir tæpri viku síðan barst mér sú frétt sem er ástæða þessara skrifa. Að Maggi frændi minn væri látinn. Auðvitað kom fregnin flatt á mann. Eins og alltaf á maður ekki von á slíkum fréttum. Og eins og alltaf vekja slíkar fregnir mann til umhugsunar. Maður hugsar til þess sem dó og maður hugsar til þess sem maður sjálfur tapar. Málið er nefni- lega oft þannig að maður lítur á sjálfan sig sem þolanda, en ekki endilega þann látna. Að sjálfsögðu er slíkur þankagangur eigingjarn og egóistíkur. En er það svo slæmt? Eru ekki bestu eftirmælin þau að maður sjálfur sé að missa eitthvað; samvistir við þann sem látinn er? Til að koma sér að efninu þá finnst mér ég vera að fara á mis við eitthvað. Eitthvað gott. Eitthvað sem svo sannarlega hefði veitt mér ánægju og gleði. Núna hef ég ekki lengur möguleikann á því. Auðvitað veit ég að sjálfsagt er margt sem finna mætti að Magga frænda. Hann var enginn engill, frekar en nokkurt okkar. En sannleikanum samkvæmt á ég ekkert nema góðar minningar um hann. Aldrei fékk ég nokkuð annað frá honum en almennilegheit og þá tilfinningu að hann væri stolt- ur af litla bróðursyni sínum og þætti svo sannarlega vænt um hann. Það er ekki slæm arfleifð til að skilja eft- ir sig í huga manns. Það væri og ósk- andi að stundirnar hefðu getað verið fleiri. Hann er sannlega að fara of fljótt. En hvað getur maður gert? Ekkert nema það að votta sína virð- ingu og útmála að manni þótti vænt um hann, að hans verði saknað og að eftirsjáin eftir því að hafa ekki notið samvista hans oftar sé mikil. Farvel elsku Maggi frændi. Ólafur Guðsteinn Kristjánsson. verður til nýr kafli í lífi fólksins um sveitir landsins. Hinn bjarti nótt- lausi voraldar heimur þar sem víð- sýnið skín. Svo bætast við á vordög- um lömbin, folöld og kálfar og þá er þetta allt fær frelsi og frjálsræði verður gleðin mikil, fjölbreytt og fullkomin, bæði meðal manna og dýra. Á slíkum vordegi fæddist hann bróðir minn, 20. maí 1926, sem nú er kvaddur hér. Hann var skírður af sr. Jóni Guðnasyni sem þá var prestur á Kvennabrekku og hlaut nafnið Guðmunur Hans og bar nafn móð- urfrænda og móðurbróður. Æ síðan hefur hann verið kallaður Hansi bæði heima og af kunnugu fólki. Hann var rólyndur sem barn, fór stundum einn til að dunda sér við sína barnaleiki. Snemma kom í ljós hagleikur við smíðar og ýmis störf og vandvirkni. Hann skrifaði á ung- lingsárum fallega rithönd sem breyttist síðar í ,,erfitt“ lestrarefni þegar læknishöndin var farin að skrifa. En unglingsárin liðu fljótt. Hann starfaði í Ungmennafélaginu Æskunni meðan hann var heima og var um tíma varaformaður. Hann var vel liðtækur í þeim félagsskap og átti gott með að vinna með öðrum enda vinsæll og vel liðinn alla tíð. Þegar að háskólanámi kom var það læknirinn sem varð fyrir valinu. Það var af hugsjón frá fyrstu tíð að líkna þeim sem líða og þjást sem er svo auðvelt að taka eftir, því alla tíð er það lífsfylling að geta hjálpað og linað þjáningar líðandi manna. Þeg- ar til Svíþjóðar kom voru það skurð- lækningar sem hann vann að. Þá kom sér vel að vera handlaginn sem var ættarfylgja í ættir fram, enda hafa læknar oft þurft að leysa marg- an vanda og hafa margir íslenskir læknar sýnt í mörgum tilfellum hve hæfileikaríkir þeir eru og hafa leyst marga þraut. Um tíma var hann að hugsa til heimferðar og átti kost á stöðu við 2 sjúkrahús úti á landi en ekki varð af því, einkanlega vegna vöntunar á góðum svæfingarlækn- um sem hann taldi svo mikilvægt í þessu sambandi. Þá vann hann einn- ig við fæðingarhjálp og kvensjúk- dóma. Ég tel víst að hann hafi sýnt sínum sjúklingum hlýlegt viðmót og fengið traust þeirra margra því maðurinn var þannig gerður, heill drengskaparmaður sem engin svik voru í. Blessuð sé minning hans! Með samúðarkveðju til ekkju hans, sona og fjölskyldna Hjörtur Einarsson. Guðmundur Hans Einarsson, Hansi frændi, ætlaði að heimsækja gamla landið síðar í sumar. Til Ís- lands hafði hann ekki komið í fjölda- mörg ár. En þetta var ein af mörg- um ferðum, sem aldrei eru farnar. Hansi lést á meðan synir hans tveir, ásamt fjölskyldum, voru á ferðalagi um Eyjafjörð og Þingeyjarsýslur og heimsóttu fæðingarstað hans í Döl- unum. Guðmundur Hans bjó og starfaði í Svíþjóð í marga áratugi. Hann var læknir í orðsins fyllstu merkingu, eftirsóttur og elskaður af sjúklingum, sem til hans leituðu. Í Gautaborg rak hann læknastofu í fjöldamörg ár og honum til aðstoðar var eiginkona hans, Elísabet. Sam- band þeirra í lífi og starfi var mjög náið. Á síðustu árum glímdu þau bæði við erfiða sjúkdóma. Hansi reyndi að sinna sjúklingum sínum þegar af honum bráði. Hann lést tveimur stundum eftir að síðasti sjúklingurinn fór frá honum. Guðmundur Hans var um margt sérstakur maður. Hann var læknir af lífi og sál og fátt skipti hann meira máli en að líkna og veita að- stoð. Hann var víðlesinn, fylgdist grannt með heimsmálunum og hafði mjög ákveðnar skoðanir á flestum þeim sviðum, sem skiptu hann máli. Sænsk stjórnmál voru honum hug- leikin og voru mörg bréfa hans þétt- skrifuð um pólitík. Hansi var góður og hugulsamur faðir og afi. Synirnir tveir, Gunnar og Þorgeir, nutu mik- illar umhyggju foreldranna og var samband þeirra allra mjög náið. Í Blávík við vatnið Sommens átti fjöl- skyldan sumarhús á fögrum stað. Þar var hennar hamingjuland og þangað leitaði hún hvíldar og átti marga gleðidaga. Og þangað fer Hansi sína síðustu ferð. Útför hans fer fram frá kirkjunni í Blávík í dag. Honum fylgir þakklæti fyrir rækt- arsemi og vináttu og samverustund- ir, sem voru alltof fáar. Elísabetu, Gunnari og Þorgeiri og fjölskyldum þeirra sendum við innilegar samúð- arkveðjur. Að lokum fer vel á því að vitna í Hávamál: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Árni Gunnarsson. Mig langar með ör- fáum orðum að kveðja frænda minn, hann Ómar, hinstu kveðju. Glaðværð, skopskyn og dillandi hlátur er það fyrsta sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um hvernig ég man Ómar frá barnsárum mínum. Hann var 10 árum eldri en ég, en mér fannst hann alltaf hafa verið fullorð- inn, þessi myndarlegi frændi minn, þó hann hafi sennilega verið nýfermdur í mínum fyrstu minningum. Hann Óm- ar var með þeim kátustu í hópi glað- værra afkomenda ömmu okkar og afa, Guðrúnar Einarsdóttur og Guð- jóns Magnússonar skósmiðs í Hafn- arfirði. Þegar hann hló, sem var oft og mikið, þá var ekki hægt annað en að hlæja með, svo smitandi var hláturinn hans. Ungur eignaðist hann yndislega konu og þau eiga tvær dætur saman. Hinn 3. júlí 1984 var þessi litla fjöl- skylda að leggja af stað í sumarfrí út á land. Þau voru komin í Skagafjörð þegar ógæfan dundi yfir – þau lentu í hræðilegu bílslysi og á þeirri mínútu breyttist líf þeirra allra, varð aldrei samt aftur. Ég bjó á Sauðárkróki þegar þetta gerðist og var kölluð til þeirra þegar komið var með þau á sjúkrahúsið, við þetta tengdist ég þeim sterkari tilfinningaböndum en flestum öðrum sem ég þekki. Ómar Ómar Önfjörð Kjartansson ✝ Ómar ÖnfjörðKjartansson fæddist í Hafn- arfirði 27. júlí 1946. Hann lést á bruna- og lýtalækn- ingadeild Landspít- alans í Fossvogi að- faranótt 16. júní síðastliðins og var útför hans gerð frá Fríkirkjunni í Hafn- arfirði 22. júní. barðist við dauðann í marga mánuði eftir þetta slys og það getur ekki hafa verið einfalt mál að leggja af stað út í lífið aftur, eins og hann var illa leikinn. Áverkar hans fóru versnandi með árun- um, en alltaf kom hann á ættarmótin okkar með aðstoð dætra sinna og alltaf var hann kátur og húmorinn ekki langt undan. Ég man þegar hann var að stríða okkur við morgunverðarborðið á ættarmótinu í fyrra, honum þótti það ekki leiðinlegt og hló mikið. Um miðjan maí sl. lenti Ómar aftur í hræðilegu slysi. Skaðbrunninn eftir heitt vatn barðist hann fyrir lífi sínu í heilan mánuð, en dauðinn hafði betur í þetta skipti. Ég vil trúa því að hann hafi verið sæll og glaður að losna úr helsi síns illa farna líkama og ganga frelsaður og verkjalaus á fund Drott- ins. Ó, Jesús, það er játning mín, ég mun um síðir njóta þín, þegar þú, dýrðar Drottinn minn, dómstól í skýjum setur þinn. Frelsaður kem ég þá fyrir þinn dóm, fagnaðarsælan heyri’ eg róm. Í þínu nafni útvaldir útvalinn kalla mig hjá sér. (úr 27. Passíusálmi H.P.) Kæri frændi, um leið og ég kveð þig vil ég þakka þér fyrir allt það sem þú gafst mér og minni fjölskyldu með lífi þínu. Elsku Sigrún, Hugborg og fjöl- skyldur, Aðalbjörg og allir aðrir sem eiga um sárt að binda vegna andláts Ómars Kjartanssonar, Guð styrki ykkur. María Gréta Ólafsdóttir.                          Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Sendum myndalista Lokað Fyrirtæki okkar verður lokað í dag, fimmtudaginn 5. júlí, vegna útfarar SVERRIS NORLAND. Smith & Norland hf., Nóatúni 4, Reykjavík. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | | Minningargreinahöf- undar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir grein- unum. Myndir | Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráð- legt að senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.