Morgunblaðið - 05.07.2007, Page 37

Morgunblaðið - 05.07.2007, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 37 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin frá kl. 9-16.30. Boccia kl. 10. Árskógar 4 | kl. 9.30 bað. Kl. 9.30 boccia. Kl. 13.30 hjólreiðahópur. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, almenn handavinna, fótaaðgerð, morgunkaffi/dagblöð, há- degisverður, kaffi. Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefnaður kl. 9.15. Handavinnustofan opin og heitt á könnunni og heimabakað meðlæti til kl. 16. Allir velkomnir. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 10 handavinna, kl. 10 ganga, kl. 11.40 hádegisverður, kl. 13 handa- vinna. Dagblöðin, kaffi og heimabakað. Hraunsel | Bingó kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Hádegisverður kl. 11.30. Fé- lagsvist kl. 13.30, 1. og 2. verðlaun. Nýbakað með kaffinu. Allir velkomnir. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Blöðin liggja frammi. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerð- ir. Kl. 9-12 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15-15.30 handa- vinna. Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 13-14 leik- fimi, Janick (júní-ágúst). Kl. 14.30-15.45 kaffiveitingar. Kór félagsstarfs aldraða, Söngfugl- arnir, hittast kl. 14.30 og hlýða á nýútkominn geisladisk þeirra. Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgunstund kl. 9.30, handavinnustofan opin, bridds kl. 13-16.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá kl. 17- 22. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er til viðtals í kirkjunni og eftir samkomulagi í síma 858 7282. Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir. Áskirkja | Göngum frá Áskirkju kl. 14 inn í Lauga- dalinn, hlustum á andakt dagsins og fáum okkur kaffisopa. Allir velkomnir. Háteigskirkja | Taizé-messur. Lágstemmdir söngvar, bænir og Guðs orð lesið alla fimmtudaga kl. 20. Laugarneskirkja | Kl. 21 AA fundur í safnaðar- heimilinu. Vegurinn kirkja fyrir þig | Smiðjuvegi 5. Kl. 20 unglingasamkoma og fyrir þá sem eru ungir í anda. Herman Abrahams frá Suður-Afríku predik- ar, lofgjörð, fyrirbæn og samfélag. Allir velkomnir. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrða- og fyrirbæna- stund er hvert fimmtudagskvöld í Vídalínskirkju kl. 21. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundar. 60ára afmæli. Laugar-daginn 7. júlí verður Kristín Sigurðardóttir sex- tug. Hún verður á heimili sínu í Öldubakka 33c, Hvolsvelli, á afmælisdaginn og tekur á móti vinum og ættingjum. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættar- mót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. dagbók Í dag er fimmtudagur 5. júlí, 186. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Sá sem vill elska lífið og sjá góða daga, haldi tungu sinni frá vondu og vörum sínum frá að mæla svik. (1Pt. 3, 10.) Tónlist Deiglan | Narodna Musika leikur í Deiglunni í kvöld. Hljómsveitina skipa Haukur Gröndal á klarínett, Boris Zgurovski á harmóníku, Enis Ahmed á tamboura, Þor- grímur Jónsson á bassa og Erik Qvick á trommur. Á efn- iskránni eru búlgörsk þjóðlög. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30. Hallgrímskirkja | Tómas Guðni Eggertsson, organisti á norðanverðu Snæfellsnesi, leikur á hádegistónleikum kl. 12. Á efnisskránni eru verk eftir Dietrich Buxtehude, César Franck og Olivier Messiaen. Myndlist Öryrkjabandalag Íslands | Örvar Árdal, myndlistar- maður, sýnir í Jaðarleikhús- inu (Miðvangi 41, bakvið Samkaup) til 9. júlí. Opið er alla dagana frá kl. 14-18. Fyrirlestrar og fundir Café Victor | Í kvöld kl. 20 verða fluttir tveir fyrirlestrar á vegum Res Extensa, félags um hug, heila og hátterni. Hannes Högni Vilhjálmsson flytur fyrirlesturinn „Staf- rænir holdgervingar í félags- legum sýndarheimi“ og Ian Watson fjallar um samskynj- un. Nánar á www.ResEx- tensa.org. Börn Brúðubíllinn | Brúðubíllinn er nú að hefja sína aðra umferð um Reykjavík og sýnir leikrit sem heitir „Óþekktarormar“. Frumsýning í Hallargarðinum v/Fríkirkjuveg í dag kl. 14. Útivist og íþróttir Skógræktarfélag Íslands | Fimmta skógarganga skóg- ræktarfélaganna í sumar er fimmtudaginn 5. júlí kl. 20. Upphaf göngunnar er við Vígsluflöt á Heiðmörk. Nánari upplýsingar á heimasíðu Skógræktarfélags Íslands - www.skog.is. SALKA Guðmundsdóttir, 26 ára há- skólanemi, tók á móti Gaddakylfunni í gær úr hendi Stefáns Eiríkssonar lögreglustjóra. Kylfuna hlaut hún fyrir sigur í glæpasagna- keppni Mannlífs, Hins íslenska glæpafélags og Grand Rokks. Saga Sölku heitir „Við strákarnir“ en strákarnir í öðru og þriðja sæti voru Hilmar Örn Óskarsson bók- menntafræðinemi í öðru sæti með söguna „Brúður“ og Dagur Gunnarsson blaðamaður með söguna „Myndhöggvarinn“. Hæfileik- ana á Salka ekki langt að sækja en foreldrar hennar eru rithöfundarnir Olga Guðrún Árnadóttir og Guðmundur Ólafsson. Salka hlaut Gaddakylfuna Morgunblaðið/ÞÖK Bikarkeppnin í fullum gangi Bikarkeppni Bridgesambandsins fer að venju fram í sumar og hafa nokkrir leikir þegar farið fram en alls skráði 31 sveit sig til leiks. Sveit Eyktar situr yfir í fyrstu um- ferð. Úrslit leikja sem þekkt eru: Breki jarðverk – Landsbankinn 70-60 Söluf. garðyrkjum. – Gylfi Baldurss. 79-164 VÍS – Villi jr. 91-93 Rúnar Einarsson – Klofningur 63-109 Sveinbj. Eyjólfss. – Anton Hartmss. 59-114 Eðvarð Hallgrss. – Malarvinnslan 90-129 Málning – Plastprent 109-61 Frestur til að ljúka umferðum: 1. umferð 21. júlí 2. umferð 18. ágúst 3. umferð 16. sept. Undanúrslit og úrslit 22.-23. sept. Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl, fimmtud. 28.6. Spilað var á 8 borðum. Meðalskor 168 stig. Árangur N-S Bragi Björnsson - Albert Þorsteinss. 194 Helgi Hallgrímss.- Jón Hallgrímss. 183 Björn E. Péturss. - Gísli Hafliðason 178 Árangur A-V Magnús Oddss. - Sæmundur Björnss. 232 Viggó Nordqvist - Gunnar Andrésson 219 Ægir Ferdinandss. - Ármann Láruss. 183 Frá eldri borgurum í Hafnarfirði Þriðjudaginn 26. júní var spilað á 13 borðum. Meðalskor var 312. Úr- slit urðu þessi í N/S Albert Þorsteinss. – Sæmundur Björnss. 365 Bragi Björnsson – Auðunn Guðms. 363 Oliver Kristóferss. – Gísli Víglundss. 353 Jón Hallgrímss.– Bjarni Þórarinss. 350 A/V Björn Björnsson – Haukur Guðmss. 367 Kristján Þorlákss. – Jón Sævaldss. 358 Magnús Oddsson – Óli Gíslason 357 Kristín Jóhannsd. – Bergljót Gunnarsd. 354 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is FRÉTTIR FYRSTA flug Flugfélags Íslands til Narsarsuaq á Grænlandi var farið sl. þriðjudag, 3. júlí. Með fluginu fóru Kristján J. Möller samgönguráð- herra og eiginkona hans Oddný Hervör Jóhanns- dóttir ásamt föruneyti. Í fréttatilkynningu segir að flugið hafi verið þéttskipað þó flogið væri með þotu og mikil eftirvænting í farþegum enda Grænland æði sér- stakur staður og þangað er ekki sérlega langt að fljúga frá Íslandi eða í þessu tilfelli aðeins um 2 tímar. Flugið tekur hins vegar rúma 3 tíma ef flogið er með DASH 8-200. Farið var í stutta siglingu til Igaliko sem er byggð í hinu forna biskupsdæmi Garða, sem var aðalstjórn og menntasetur Grænlands fram til miðalda. Blíðskaparveður var, 16 stiga hiti og sólskin, sem dró fram feg- urð Igaliko í Einarsfirði og Qooroq ísfjarðarins þar sem margir stórfenglegir borgarísjakar reikuðu um fjörðinn. Kristján J. Möller hitti einnig fyrir Josef Motzfeld, fyrrverandi fjármálaráðherra og utanríkisráðherra Grænlands en hann býr í Igaliko yfir sumartímann og fór vel á með embættismönnunum. FÍ flýgur til Narsarsuaq Ís Á siglingu um ís- fjörðinn og skrið- jökull skammt frá. Rangt línurit með grein ÞAU mistök urðu við vinnslu greinar Páls Bergþórssonar, Tilmæli til sjávarútvegsráðherra, sem birtist í blaðinu í gær, að rangt línurit var birt með greininni. Rétt mynd birtist hér og biður Morgunblaðið hlutaðeigandi vel- virðingar á mistökunum. LEIÐRÉTT Íár eru liðin 70 ár frá stofnunNáttúrulækningafélags Íslandsog stendur félagið af því tilefnifyrir hátíðardagskrá í Heilsu- stofnun félagsins í Hveragerði í dag milli kl. 15 og 17. Gunnlaugur K. Jónsson er forseti NLFÍ: „Jónas Kristjánsson, héraðs- læknir á Sauðárkróki, var að- alhvatamaðurinn að stofnun félagsins á sínum tíma. Hann var maður langt á undan sinni samtíð, stofnaði m.a. fyrsta tób- aksvarnafélag landsins, en Nátt- úrulækningafélagið var sett á lagg- irnar til að efla umræðu um heilsu og heilbrigða lífshætti. Vildi Jónas meina að hvernig fólk hagaði sínu lífi, ekki síst hvað mataræði varðaði, hefði stór- vægileg áhrif á heilsuna.“ Meðal fyrstu baráttumála félagsins í upphafi var barátta gegn innflutningshöftum á matvöru, sérstaklega grænmeti, korn- vöru og ávöxtum sem voru mun- aðarvara á þessum tíma en sannarlega mikilvægur hluti af heilbrigðu mat- aræði. Árið 1955 var Heilsuhæli Nátt- úrulækningafélagsins í Hveragerði með gistirýmum fyrir 28 manns opn- að: „Þar rættist einn stærsti draumur félagsmanna um að eiga stað til hress- ingar, fræðslu og hvíldar,“ segir Gunnlaugur, en Heilsustofnun NLFÍ býður nú upp á 160 gistirými og starfa þar 120 manns. Gunnlaugur segir líklegt að Nátt- úrulækningafélagið standi nú á tíma- mótum: „Greina má áhuga meðal fé- lagsmanna um að félagið beiti sér í auknum mæli fyrir almennri fræðslu og umbótum í mataræði, líkt og á fyrstu árum félagsins. Ljóst er að þörf er á miklu gagnrýnni umræðu á op- inberum vettvangi og stuðla þarf að fyrirbyggjandi aðgerðum í auknum mæli í stað skyndilausna,“ segir Gunnlaugur. „Við höfum m.a. miklar áhyggjur af offituvanda landsmanna, barna sér í lagi. Sykurneysla hefur aukist upp úr öllu valdi og ýmsir aðrir þættir í mataræði og lífsvenjum kalla á tafarlausar aðgerðir.“ Finna má nánari upplýsingar um starfsemi Náttúrulækningafélags Ís- lands á slóðinni www.nlfi.is. Heilsa | Náttúrulækningafélag Íslands 70 ára í ár og efnir til hátíðar í dag Með forvarnir að leiðarljósi  Gunnlaugur K. Jónsson fæddist í Reykjavík 1956. Hann stundaði nám við Mennta- skólann við Hamrahlíð og út- skrifaðist frá Lög- regluskólanum. Gunnlaugur hefur starfað við ýmis lögreglustörf en er nú aðstoðaryfirlögregluþjónn við innri endurskoðun Lörgeglustjóraembættis höfuðborgarsvæðisins. Hann hefur verið forseti NLFÍ frá 1991. Gunn- laugur er kvæntur Auði Guðmunds- dóttur flugfreyju og eiga þau börnin Brynju og Eyþór.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.