Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 41

Morgunblaðið - 05.07.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 41 Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 5. júlí kl. 12.00: Tómas Guðni Eggertsson, orgel 7. júlí kl. 12.00: Karel Paukert, orgel 8. júlí kl. 20.00: Hinn virti orgelleikari Karel Paukert, leikur verk eftir Bach, Liszt, Franck og frumflytur verk eftir Tékkann Jiri Teml. www.listvinafelag.is Sumartónleikar í Skálholtskirkju Fimmtudagur 5. júlí 20:00 Orgeltónleikar Verk eftir H. Scheidemann, A. Andersen, D. Buxtehude, P. Møller, M. Rossi, J.P. Sweelinck, E.T. Sark, B. Pasquini og G. Frescobaldi. Vibeke Astner orgel Laugardagur 7. júlí 14:00 Erindi í Skálholtsskóla: Hvað er Apocrypha? 14:55 Tónlistarsmiðja fyrir börn og unglinga 15:00 Hugi Guðmundsson: APOCRYPHA endurtekið sunnudaginn 8. júlí kl. 15:00 Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran Barokksveitin Nordic Affect Daníel Bjarnason stjórnandi 17:00 Tónadómínó Verk eftir J. Rosenmüller, F. Couperin, T. Merula, C. Simpson, F. Durante og C. Tessarini Barokksveitin Nordic Affect Ókeypis aðgangur www.sumartonleikar.is SÝNINGAR Á SÖGULOFTI MR. SKALLAGRIMSSON - höf. og leikari Benedikt Erlingsson 5/7 kl 20 uppselt, 13/7 kl. 20 uppselt, 14/7 kl 15 laus sæti, 14/7 kl. 20 uppselt, 11/8 kl. 20 laus sæti, 12/8 kl. 20 laus sæti, 18/8 kl. 20 laus sæti, 19/8 kl. 20 laus sæti, 25/8 kl. 20 laus sæti, 26/8 kl. 20, 30/8 kl. 20 laus sæti, 31/8 kl. 20 laus sæti Miðaverð kr. 2900 - ATH! Staðfesta þarf miða með greiðslu viku fyrir sýningu Leikhústilboð í mat: Súpa, fiskréttur og kaffi kr. 2600 Súpa, kjötréttur og kaffi kr. 3200 Miða- og borðapantanir í síma 437 1600 Nánari upplýsinar www.landnamssetur.is bmvalla.is BM Vallá – stærri og sterkari BM Vallá og Límtré Vírnet hafa um langt árabil verið í fararbroddi íslenskra iðnfyrirtækja og gegnt forystuhlutverki í framleiðslu fyrir íslenskan byggingavörumarkað, hvort á sínu sviði. Sameining þessara fyrirtækja er nú orðin að veruleika undir merkjum BM Vallá. Þar er saman komin áratuga þekking og reynsla í framleiðslu og lausnum fyrir íslenska byggingaraðila. Af nógu er að taka þegar litið er á úrvalið. Nýtt símanúmer 412 5000 Ný heimasíða bmvalla.is Kynntu þér málið á nýrri og glæsilegri heimasíðu okkar bmvalla.is ar gu s 0 7 -0 4 5 6 HRÓARSKELDA, hin árlega hátíð sveittra úlnliðsbanda, tjaldborga og tónlistar, hefst formlega í dag eftir fjögurra daga upphitun og stendur fram á sunnudag. Björk er ein af fjöl- mörgum Íslendingum á hátíðinni þótt hinir láti flestir vera að fara upp á svið. Auk Bjarkar spila tónlistarmenn á borð við Red Hot Chili Peppers, Muse, Arctic Monkeys, The Who, Wilco, Arcade Fire, Beastie Boys, Peter Björn & John, My Chemical Romance og Mika sem þráir að vera eins og Mónakóprinsessan fyrrver- andi Grace Kelly. Frítt inn fyrir sextuga Uppselt er á hátíðina og var einn blaðamaður Morgunblaðsins svo heppinn að fá miða og mun flytja okk- ur fréttir beint í æð. Hins vegar er aldrei uppselt á lokadag hátíðarinnar, sunnudaginn, en aðeins þá er hægt að kaupa sér eins dags miða og þeir sem hafa aldur og reynslu til komast frítt þar sem allir sem eru svo heppnir að vera orðnir sextugir fá frítt inn. Á sunnudeginum fer einnig fram Nakta hlaupið, þar sem sigurvegarar úr karla- og kvennaflokki fá miða á hátíð næsta árs fyrir að hlaupa hraðast allra á Adams- og Evuklæðum. Hátíðargestir álíka margir og Reykvíkingar Hróarskelduhátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 1971 í bænum Roskilde í suður-Danmörku og er stærsta rokkhátíð Evrópu ásamt Gla- stonbury. Upphafsmennirnir voru háskólastúdentarnir Mogens Sand- fær og Jesper Switzer Møller og nú- orðið dregur hátíðin að sér rúmlega hundrað þúsund manns árlega, þar af hátt í tvöhundruð hljómsveitir og tón- listarmenn. Hagnaðurinn rennur all- ur til góðgerðarmála á sviði tónlistar. Hættuleg eldamennska Hátíðin er þó ekki eintóm ham- ingja. Í fyrradag brenndust fjórar ungar konur alvarlega við gasspreng- ingu. Stúlkurnar voru að elda kvöld- matinn þegar einnota gaskútur sem þær notuðu við eldamennskuna sprakk fyrirvaralaust. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten. Stúlkurnar voru fluttar á sjúkrahús í Hróarskeldu en þær hafa allar snúið heim núna. Töluverð rigning hefur verið á há- tíðarsvæðinu undanfarið og útlit er fyrir að rigningin haldi áfram - enda lítið gaman af útihátíðum í sól og sumaryl. Íslendingar fjölmenna Um helmingur gesta hátíðarinnar eru Danir. Von er á um 15 þúsund Norðmönnum og 12 þúsund Svíum auk þess sem enskir hafa verið að uppgötva hátíðina og þaðan koma tæplega 3000 gestir. Næstir koma svo Íslendingar með um 1600 gesti, örlitlu fleiri en Finnar og Þjóðverjar. Hróarskelda hefst form- lega í dag Reuters Heimskautaapi Alex Turner spilar hér á Glastonbury ásamt sveit sinni Arctic Monkeys. Næst troða þeir upp á Hróarskeldu. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.