Morgunblaðið - 13.08.2007, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 13.08.2007, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. OPIÐ ÞJÓÐFÉLAG Eitt helzta einkenni á þróunvestrænna lýðræðisþjóð-félaga síðustu áratugi er opn- un þeirra. Öll umfjöllun um sameig- inleg málefni borgaranna er miklu opnari en áður og vaxandi stuðningur er við hið beina lýðræði, þar sem kjósendur taka sjálfir ákvörðun um meginmál í almennum kosningum. Netið á býsna mikinn þátt í þessari þróun m.a. vegna þess að Netið gerir opinberum aðilum kleift að opna al- menningi aðgang að margvíslegum upplýsingum, sem áður voru á fárra höndum. Þannig hafa mörg sveitar- félög á Íslandi nýtt sér þessa mögu- leika Netsins til þess að greiða að- gang borgaranna að upplýsingum, sem þeir þurftu áður að hafa meira fyrir að fá. Sumir segja að flestar nýjar hug- myndir um þróun samfélaganna eigi rætur að rekja til hugmyndasmiða í Bandaríkjunum og þá sérstaklega til Kaliforníu. Þar sé að finna mestu uppsprettu nýrra hugmynda um sam- félagsþróunina auk hugmynda um nýja tækni og nýtingu hennar í þágu almennings. Nú eru Bandaríkjamenn að ganga á undan með góðu fordæmi og ganga enn lengra en áður í að nýta Netið sem upplýsingagjafa fyrir almenning um leið og þjóðfélagið verður enn opnara en það þó er nú. A.m.k. fimm ríki í Bandaríkjunum eru að lögfesta ákvæði í fylkislögum, sem kveða á um að almenningur skuli hafa enn meiri aðgang en hann hefur haft hingað til um málefni ríkjanna. Ríkisstjórinn í Texas, sem er repúblíkani hefur opnað netaðgang að upplýsingum um öll útgjöld skrif- stofu ríkisstjórans. Aðrir háttsettir embættismenn í Texas hafa fylgt í kjölfarið. Ríkisstjóri Indíana, sem einnig er repúblikani hefur sett á Netið upp- lýsingar um alla samninga, sem fylkið gerir, hverju nafni sem nefnast. Ríkisstjóri Missouri, sem kemur úr repúblikanaflokknum hefur gengið lengst og opnað mest af upplýsingum fyrir almenning. Frá þessu er sagt í athyglisverðri grein í Financial Times sl. fimmtu- dag. Þar kemur einnig fram, að auð- vitað eru til andstæðingar þessarar upplýsingagjafar, sem hafa haldið því fram, að hér væri um mjög kostnað- arsama aðferð að ræða. Það hefur þegar verið afsannað. Nú er spurningin þessi: Hvaða sveitarfélag á Íslandi verður fyrst til að galopna allt, sem varðar viðkom- andi sveitarfélag með opnum aðgangi íbúanna að öllu, hverju nafni sem nefnist, hvort sem um er að ræða samninga, sem gerðir eru við einka- aðila um margvíslega þjónustu eða risnukostnað stjórnenda sveitarfé- laganna, svo dæmi séu nefnd? Það er ekki eftir neinu að bíða. Tæknin er fyrir hendi. Þetta er bara spurning um að stíga hið endanlega skref í opnum Netaðgangi íbúa hvers sveitarfélags að upplýsingum um sameiginleg málefni. PAKISTAN OG AFGANISTAN Það hefur orðið æ ljósara á und-anförnum vikum og mánuðum, að framvinda mála í þremur ríkjum, Írak, Afganistan og Pakistan, gæti haft mikil áhrif á þróun alþjóðamála á næstu mánuðum og misserum. Í Írak er orðið nokkuð ljóst, að Bandaríkja- menn ráða ekki við að kveða niður borgarastríðið, sem þar er skollið á. Í Afganistan mæta hersveitir, sem berjast undir merkjum Atlantshafs- bandalagsins vaxandi mótspyrnu tal- ibana og varðandi Pakistan eru sterkari grunsemdir en áður um að þar sé ekki allt með felldu og að ráð- andi öfl kunni að leika tveim skjöld- um. Í gær gerðist það hins vegar, að Musharraf, forseti Pakistans, sem á undir högg að sækja heima fyrir, við- urkenndi í fyrsta sinn, að skýringin á auknum styrkleika talibana kunni að vera í Pakistan og stuðningi sem tal- ibanar og liðsmenn Osama bin Laden fái í landamærahéruðum Pakistans og Afganistans. Þessi yfirlýsing forseta Pakistans er mikilvæg vegna þess, að hún er vísbending um, að Bandaríkjamenn séu að leggja þann þrýsting á ríkis- stjórn Pakistans, að hún komizt ekki hjá því að taka afstöðu. Í fyrsta sinn í sögu utanríkismála okkar Íslendinga frá lýðveldisstofn- un skiptir það okkur beint máli hvað gerist á svo fjarlægum slóðum. Í fyrsta lagi vegna þess að við erum beinir aðilar að þeirri ákvörðun Atl- antshafsbandalagsins að blanda sér inn í átökin í Afganistan. Og í öðru lagi vegna þess að nokkrir Íslending- ar eru við störf í Afganistan og ómögulegt að vita hvenær þeir kom- ast skyndilega í meiri hættu en gert hefur verið ráð fyrir. Ef Musharraf og hans menn hætta að leika tveim skjöldum og taka af- stöðu með Bandaríkjamönnum og Atlantshafsbandalaginu getur ástandið í þessum heimshluta gjör- breytzt. Þá aukast líkurnar á því að koma megi talibönum á kné og jafn- framt verða meiri líkur á að Osama bin Laden náist en segja má að hann hafi haft voldugustu þjóð veraldar að fífli síðustu sex árin. Hver hefði trúað því eftir 11. september að Banda- ríkjamenn gætu ekki náð einum manni?! Í þessu samhengi er ljóst að yfir- lýsing forseta Pakistans í gær er mjög mikilvæg. Í krafti hennar geta miklir atburðir gerzt. Hún er vís- bending um að nánara samráð sé á milli Pakistana og Bandaríkjamanna en áður enda hafa dagblöð í Pakistan upplýst að utanríkisráðherra Banda- ríkjanna og forseti Pakistans hafi tal- að saman í síma þrisvar sinnum sama daginn núna fyrir helgi. Nú eru meiri líkur á því en fyrir viku að Atlantshafsbandalagið geti losnað úr því kviksyndi, sem það hef- ur verið að sökkva í í Pakistan. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Nokkur umræða hefur orð-ið um ofbeldi og annanólifnað sem virðist tengj-ast skemmtanahaldi í miðborg Reykjavíkur órjúfanlegum böndum. Í umræðunni hefur þó bæði skort réttar upplýsingar og raun- hæfa greiningu á stöðu mála í mið- borginni. Þar hafa ekki heldur verið kynntar raunhæfar tillögur um lausnir á þeim vanda sem við er að fást. Í þessari grein verður gerð til- raun til þess að koma staðreyndum um stöðu mála í miðborginni á fram- færi, um leið og vakið er máls á leið- um og úrræðum til að uppræta þá ómenningu sem þar því miður þrífst. Lögreglan hefur lagt og mun leggja sitt af mörkum í þeim efnum en ár- angur næst ekki án virkrar aðkomu borgaryfirvalda og þeirra sem stunda veitinga- og skemmtistað- arekstur í miðborginni og stefna þangað þúsundum einstaklinga um hverja helgi. Hin raunverulega staða Tölur upplýsinga- og áætl- anadeildar lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu sýna, að ofbeld- isbrotum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað jafnt og þétt á und- anförnum árum. Þessar tölur bera einnig með sér að minni háttar of- beldismálum hefur fjölgað á þessu ári en sú fjölgun virðist vera hlut- fallslega meiri á öðrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu en í miðborg Reykjavíkur. Að sama skapi sýna þessar tölur að alvarlegum ofbeld- isbrotum hefur fækkað umtalsvert á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við sama tímabil í fyrra, hvort heldur horft er til miðborgarinnar eða annarra svæða á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt tölunum eru flest ofbeld- isbrotin í miðborginni framin að næturlagi um helgar en þar sker miðborgin sig úr í samanburði við önnur svæði. Hlutfall of- beldisbrota í mið- borginni sem framin eru frá miðnætti fram til klukkan sex að morgni hefur hækkað á síðustu árum. Sjá nánar í meðfylgjandi töflum 1-5. Tölurnar segja okkur margt en ekki alla söguna. Ásýnd miðborgarinnar og gesta hennar síðla nætur um helgar er vægast sagt ömurleg. Rusl, glerbrot, mat- arleifar, sígarettur og tóm áfengisílát flæða um gangstéttar og götur. Um helgar fara stórar og smáar vinnuvélar yfir miðborgina á hverjum morgni til að þrífa óþrifn- aðinn eftir hina skemmtanaglöðu. Þetta reglubundna hreinsunarstarf minnir á foreldri sem fyrir löngu hefur gefist upp á því að nöldra í barninu vegna sóðaskapar og þrífur þess í stað hljóðlega upp skítinn eftir það. Margt hefur batnað á liðnum ár- um en engu að síður þarf að gera betur í miðborginni. Að því verki þurfa margir að koma, en fyrst og fremst þeir, sem stefna mannfjölda í miðborgina til skemmtanahalds um hverja helgi. Þar er ábyrgð borg- aryfirvalda og rekstraraðila veit- inga- og skemmtistaða mest. Lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu leikur þar einnig hlutverk og hefur þegar hafist handa við verkefni sem beint og óbeint hafa að markmiði að bæta stöðu mála í miðborg- inni og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Hlutverk borgaryf- irvalda Borgaryfirvöld hafa með skipulagsákvörð- unum stuðlað að mikilli fjölgun veitinga- og skemmtistaða í mið- borginni. Borgaryf- irvöld verða jafnframt að tryggja að rekst- urinn þrífist og dafni án teljandi tjóns fyrir gesti staðanna, íbúa á svæðinu og þeirra eignir. Mikilvægt er að borgaryfirvöld marki sér skýra stefnu um mannlíf í miðborginni og þar á meðal um tak- markanir vegna starf- semi veitinga- og skemmtistaða. Meta ber reynsluna af löngum afgreiðslutíma skemmtistaða í mið- borginni og breyta honum, ef matið leiðir í ljós, að þar hafi verið gengið of langt. Að sama skapi þarf að huga að fjölda og gerð skemmtistaða í miðborginni. Borgaryfirvöld þurfa að ákveða, hvort beina eigi starfsemi dansstaða og næturklúbba á önnur svæði í höf- uðborginni. Meiri dreifing skemmti- staða um borgina myndi án vafa bæði bæta ásýnd miðborgarinnar og auðvelda lögreglu hennar störf. Veitinga- og skemmtistaðir hafa ekki einungis áhrif á brag miðborg- arinnar um nætur og helgar heldur einnig virka daga. Mikið hefur borið á kvörtunum vegna ónæðis í tengslum við rekstur nokkurra veit- ingastaða í miðborginni. Bent er á, að ölvaðir gestir umræddra staða valdi verslunareigendum og við- skiptavinum þeirra ama og ónæði um miðjan dag. Eðlilegt er að borg- aryfirvöld svari þeirri spurningu hvort rétt sé að veitingast þessum toga starfi í miðbo Hlutverk skemmtistað Þeir sem eiga og reka s staði í miðborginni bera e ábyrgð á því ástandi sem ast um hverja helgi. Þeir h hagsmuni af því að leggja mörkum til að bæta borga Margir hafa í verki sýnt v axla þá ábyrgð sem rekstr fylgir og nægir að nefna s samstarf lögreglu og dyra mörgum skemmtistöðum inni. Mörgu öðru þurfa ve ingamenn þó að sinna mu gert er, þar á meðal þrifna mennri umgengni. Bæði þ auka þrif og hreinsun í kr staðina meðan þeir eru op takmarka eftir því sem ko menn beri áfengi, flöskur á gangstétt eða götu. Þá b ingamenn mikla ábyrgð þ ur að áfengisveitingum og þeirra til sölu og neyslu fí mínum huga er nauðsynle skemmtistaðir marki sér stefnu um að öll fíkniefnan Eftir Stefán Eiríksson » Þörf er á sam-hentu átaki ábyrgra aðila að bæta ástandið um helgar í mið- borg Reykjavík- ur og ekki mun standa á lögregl- unni í því sam- starfi sem fram- undan er. Stefán Eiríksson Mynd 3. Fjöldi ofbeldisbrota á hverja 10.000 íbúa á höfuðborgar áttu sér stað í janúar til júní 1998 til 2007 og tilkynnt voru til lög Mynd 5. Hlutfall ofbeldisbrota (217 og 218 gr) sem áttu sér stað á og sunnudögum í janúar til júní 1998 til 2007 og tilkynnt voru til Vandi miðbor og raunhæfar Mynd 1. Fjöldi ofbeldisbr regluog áttu sér stað í hv

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.