Morgunblaðið - 13.08.2007, Síða 24
24 MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Spádómar
Heilsa
Viltu verða ístrulaus og stinnur?
Einföld og spennandi leið. Sími
894 6009. www.SmartHerbalife.is.
Húsnæði í boði
2 herbergja - Vesturbergi 195
60 fm, sérinngangur kr. 90.000 á
mánuði. 3 mánuðir fyrirfram. Hús-
næðið er ekki samþykkt sem íbúðar-
húsnæði og þar af leiðandi fást ekki
húsaleigubætur. Langtímaleiga,
hundar og kettir velkomnir. Sími
896 0242, kl. 08.00 til 16.00 ekki á
öðrum tímum.
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði í 104 Rvk.
120 fm með innkeyrsludyrum, einnig
120 fm efri hæð, nýtist sem skrifstofa
eða íbúð. Uppl. í síma 695 0495.
Atvinnuhúsnæði.
250 fm salur um 40 mín. frá Rvk.
Bjart húsnæði með mikilli lofthæð.
Hagstæð leiga. Einnig hægt að fá
leigt samliggjandi 100 fm húsnæði,
sem nýtist sem íbúð eða skrifstofa.
Uppl. í síma 695 0495.
Sumarhús
Til sölu
fallegt heilsárshús við Herjólfsstíg í
Ásgarðslandi. Uppl. gefur Anton í
síma 699 4431.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Iðnaðarmenn
Húsbyggingar, nýsmíði og breyt-
ingar. Húsasmíðameistari getur
bætt við sig verkum bæði úti og inn.
Tild, mótauppsláttur, uppsetning á
hurðum, innréttingum, milliveggjum
o.fl. Vönduð vinna. Sími 899 4958.
Námskeið
Microsoft kerfisstjóranám.
MCSA/MCTS kerfisstjóranámið hefst
3. sept. Undirbýr fyrir MCSA 2003
og MCTS VISTA gráður. Rafiðnaðar-
skólinn. Upplýsingar á www.raf.is og
í síma 863 2186.
Þjónusta
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
s. 567 1130 og 893 6270.
Ýmislegt
580 7820
Nafnspjöld
580 7820
BannerUp
standar
Taska
fylgir
myndrenninga-
Mjög fínlegur með fallega blúndu
í BC skálum á kr. 2.350, buxur í stíl á
kr. 1.250.
Virkilega glæsilegur í BCD skálum
á kr. 2.350, buxur í stíl á kr. 1.250.
Flottur toppur í stærðum S,M,L,XL á
kr. 2.350.
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Góð þjónusta - fagleg áðgjöf.
www.misty.is.
Lokað á laugardögum í sumar.
Flottir, ótrúlega rauðir, dömu-
inniskór úr mjúku leðri. Teg. 980.
Stærðir: 26-41. Verð: 6.550.
Mjúkir og þægilegir dömu-
inniskór úr leðri. Nuddpunktar fyrir
ilina. Teg: 2071. Stærðir. 37-41.
Verð: 7.985.
Mjúkir og þægilegir dömu inni-
skór með stillanlegum böndum.
Teg: 986. Stærðir: 36-42.
Verð: 6.550.
Mjög huggulegir inniskór úr leðri.
Teg: 400. Stærðir: 36-41.
Litir: blátt og rautt. Verð: 6.885.
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Ath. verslunin er lokuð á
laugardögum í sumar.
Vélar & tæki
Til leigu með/án manns.
Gerum einnig tilboð í hellulagnir og
drenlagnir. Upplýsingar í síma
696 6580.
Bílar
Peugeot 307 SW með „glerþaki.“
Árg. 2007. Ek. 13 þ. km. Silfurgrár.
5 d. Sj.sk. 2000cc. Verð 2.550 þ. m.
bakkskynjara, cruise control og af-
tengj. dráttarbeisli. Sími 840 7080.
GMC Suburban
Gott eintak. Óbreyttur, skoðaður án
athugasemda. Ný dekk, nýjar felgur.
Sími: 897 1476.
Ökukennsla
Ökukennsla
www.okuvis.is - Síminn 663 3456.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla - akstursmat.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06.
696 0042/566 6442.
Kristófer Kristófersson
BMW.
861 3790.
Sigurður Jónasson
Toyota Rav4 ‘06.
822 4166.
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Mótorhjól
Eigum nokkrar vespur, 50cc, nú á
tilboðsverði, 129.900 með götu-
skráningu.
Mótor & Sport,
Stórhöfða 17, í sama húsi og
Glitnir og Nings að neðanverðu.
Sölusímar 567 1040 og 845 5999.
Hjólhýsi
Leiguhjólhýsi til sölu.
Nú annað árið í röð seljum við
leiguhjólhýsin okkar.
Hjólhýsin eru 5 og seljast með
300.000 kr. lækkun.
Frekari upplýsinga má finna á
heimasíðu okkar.
www.vagnasmidjan.is
og í síma 587 2200.
Þjónustuauglýsingar 5691100
Nissan 350 Z, árg. 2003.
Mjög skemmtilegur sportbíll. Ásett
verð 3,8 millj. Fæst á 2,9 staðgreitt.
100% lán mögulegt. S. 896 3677.
Smáauglýsingar
sími 569 1100
DAGANA 20.-23. júlí var haldin í
Chicago 50. heimsráðstefna La
Leche League-
samtakanna. Þetta eru
samtök fagfólks og
áhugafólks um mik-
ilvægi brjóstagjafar.
Þarna komu saman
brjóstagjafaráðgjafar,
hjálparmæður, læknar,
hjúkrunarfræðingar og
áhugafólk um brjósta-
gjöf.
Við vorum um tíu
manna hópur frá Ís-
landi, fagfólk, for-
eldrar og börn.
Meðal annars hlýdd-
um við á hjónin dr. Bill Sears barna-
lækni og konu hans Mörthu Sears
hjúkrunarfræðing. Þau hafa meðal
annars gefið út „The Discipline Bo-
ok“, Bókin um aga og „Nighttime
Parenting“, Næturumhyggja. Dr.
Sears lýsir tengslamiðuðu uppeldi
„Attachment Parenting“ sem leið til
að draga fram það besta í fari barns
og foreldris. Hann bendir á að upp-
eldisaðferðin sé ekki ný af nálinni,
heldur sé þetta leið sem hefur verið
iðkuð lengi en hafi fengið nýtt mik-
ilvægi í áreiti og aðgreiningarþörf
nútímafólks. Tengslamyndun bygg-
ist meðal annars á að vera sveigj-
anlegur og auðmjúkur í uppeldinu.
Þau leggja samt áherslu á nokkra
mikilvæga þætti sem
undirstöðu „Attach-
ment Parenting“. Í
fyrsta lagi að foreldr-
arnir leggi sig fram við
að tengjast barninu
strax, með því að móð-
irin leggi barnið á
brjóst strax eftir fæð-
ingu og það fái að vera
hjá henni (þeim) sem
mest eftir fæðingu. Ef
aðstæður leyfa ekki
þessa nálægð við móð-
urina, er mikilvægt að
láta ekki deigan síga og
vinna með tengslin strax og færi
gefst. Einnig er mikilvægt að hjúkr-
unarfólk hamli ekki mjólkurfram-
leiðslu móður með því að gefa
barninu ábót af þurrmjólk því mjólk-
urframleiðslan vex eftir því sem
barnið fær að drekka oftar hjá móð-
urinni.
Í öðru lagi leggja Sears-hjónin
mikla áherslu á að hlusta á barnið og
að bregðast strax við þegar það
grætur. Oft eru það hin náttúrulegu
viðbrögð móðurinnar að fara strax
og sinna barninu ef það grætur, en í
nútíma þjóðfélagi hefur oft verið tal-
að um að ef móðir bregst of hratt við
gráti barns, sé hún að ala upp í
barninu frekju og ofdekra það. Se-
ars-hjónin segja að þegar þú bregst
við gráti barnsins þíns læri barnið að
á það sé hlustað og að þarfir þess
séu mikilvægar.
Í þriðja lagi leggur dr. Sears
áherslu á brjóstagjöf sem bestu leið-
ina til að tengjast barninu. Ef kona
þarf að gefa þurrmjólk þá er best að
hún geri það á sem líkastan hátt og
ef hún væri að gefa brjóst.
Einnig benda Sears-hjónin á að
með því að bera barnið mikið í þar til
gerðum burðarpoka sértu að kynn-
ast og tengjast því. Rannsóknir á
fyrirburum hafa sýnt að þeir þrosk-
ist og dafni betur séu þeir bornir
svona uppvið móður eða föður.
Fimmta atriðið sem Sears-hjónin
benda á sem leið til að tengjast
barninu er að sofa nálægt því eða
hafa barnið uppi í hjónarúminu.
Þetta er leið sem foreldrar velja æ
oftar því hún gerir brjóstagjöfina
einfalda. Að sjálfsögðu er mikilvægt
að gæta fyllsta öryggis ef foreldrar
velja að láta barn sitt sofa uppí.
Við iðkun þessara tengslamynd-
andi þátta benda Sears-hjónin á að
mikilvægt sé að hafa jafnvægi og
mörk í samskiptum við barnið. Passa
þarf sérstaklega að móðir gefi ekki
svo mikið af sér til barnsins að hún
gleymi sjálfri sér og verði of þreytt.
Þessir punktar eru hugsaðir sem
styrking við tengsl foreldra og barns
og gera aga og uppeldi mun ánægju-
legri og auðvelda breytinguna frá
ungbarni í smábarn með ákveðnar
skoðanir og vaxandi færni.
Annar mjög áhugaverður fyr-
irlestur var fluttur af Christine M.
Smillie, MD.FAAP. Hún talaði m.a.
um hvernig hægt er að hjálpa mæðr-
um til að auka mjólkina hjá sér.
Christine vinnur á mæðradeild ein-
göngu við ráðgjöf handa mjólkandi
mæðrum. Hún segir að þau tilfelli
þar sem móðir geti ekki mjólkað nóg
séu mun færri en hin þar sem konur
leiti sér hjálpar við offramleiðslu
brjóstamjólkur.
Christine benti á að brjóstamjólk
sé ekki vökvi sem er framleiddur og
svo eigum við nægan lager, heldur
verður brjóstamjólk til við eft-
irspurn. Ef móðir vill auka framboð
þarf hún að fjarlægja mjólk úr
brjóstunum til að líkaminn bregðist
við og framleiði meiri mjólk. Mik-
ilvægt er að skilja þegar barnið tek-
ur vaxtarkippi og leggja barnið þá
oftar á brjóst. Langflestar mæður
geti mjólkað meira en nóg handa
barninu sínu, en það sem oftast vanti
upp á er stuðningur. Geti móðir líf-
fræðilega ekki mjólkað tengist það
oftast sjúkdómum hjá móður eða
barni svo sem lyfjataka móður eða ef
kona hefur farið í brjóstaminnk-
unaraðgerð, en oft geta þær konur
einnig mjólkað handa barninu sínu.
Barnið getur verið fyrirburi og latt
að drekka eða þjáðst af sjúkdómum
sem gerir það erfitt fyrir barnið að
ná mjólkinni hjá móðurinni. Hér er
stuðningur aftur mikilvægur.
Brjóstamjólkurframleiðsla stýrist
ekki af hægra heilahveli heldur er
hún tengd því vinstra, sem er tilfinn-
ingahliðin. Þess vegna er mikilvæg-
ast við að hjálpa móður að ná upp
mjólkurframleiðslu að gefa henni
nægilegan stuðning og hvatningu.
Christine bendir á að tilfinningar
svo sem ástin til barnsins, gleði og
ekki síst hlátur sé mjög mjólk-
urörvandi.
Að lokum bendi ég á: http://
www.askdrsears.com og http://
www.lalecheleague.org/
Brjóstagjöf og tengslamyndun
Svanborg Þórisdóttir skrifar
um heimsþing um brjóstagjöf
sem haldið var í Chicago nýlega
» Sears-hjónin leggjamikla áherslu á að
hlusta á barnið og að
bregðast strax við
þegar það grætur.
Svanborg Þórisdóttir
Höfundur er móðir og kennaranemi.