Morgunblaðið - 13.08.2007, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 29
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 8-16. Félagsvist
kl. 13.30. Kl. 10-16 púttvöllurinn.
Félag eldri borgara í Kópavogi |
Skrifstofan í Gullsmára 9 er opin
mánudaga og miðvikudaga kl. 10-
11.30. S. 554 1226. Skrifstofa FEBK í
Gjábakka er opin á miðvikudögum kl.
13-14. S. 554 3438. Félagsvist er spil-
uð í Gullsmára á mánudögum kl.
20.30, en í Gjábakka á mið-
vikudögum kl. 13 og á föstudögum kl.
20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Fundur vegna ferðar í Lakagíga/
Langasjó kl. 10. Brids kl. 13.
Félag kennara á eftirlaunum | Vest-
fjarðaferðin. Lagt af stað á morgun,
þriðjudaginn 14. ágúst, kl. 8 frá Um-
ferðarmiðstöðinni.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, leiðbeinandi verður
til hádegis. Hádegisverður kl. 11.40.
Lomber kl. 13. Kanasta kl. 13.15. Heitt
á könnunni til kl. 16.
Hittingur | Hópur fyrir ungmenni á
aldrinum 16-30 ára. Hópurinn er fyrir
þá sem eiga fáa vini og vilja bæta úr
því. Upplýsingar gefur Ingibjörg í
síma 694-6281. Heimasíða:
www.blog.central.is/hittingur16-30.
Netfang: hittingur@gmail.com.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9.15-15.30 handa-
vinna. Kl. 11-12 leikfimi, Janick. Kl.
11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 14.30-
15.45 kaffiveitingar.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er op-
in frá kl. 17-22. Sr. Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir er til viðtals í kirkjunni og
eftir samkomulagi í s. 858 7282.
Kvöldbænir kl. 20. Allir velkomnir.
Hallgrímskirkja | Tónlistarandakt kl.
12. Tónlist og íhugun. Félagar úr Al-
þjóðlegu barokksveitinni í Den Haag
leika. Sr. Birgir Ásgeirsson.
60 ára afmæli. Í
dag, 13. ágúst, er
Magnús S. Jóns-
son, Túngötu 17,
Suðureyri, sex-
tugur. Eiginkona
hans er Ágústa
Gísladóttir en
hún varð sextug
hinn 4. mars sl.
Þau áttu einnig
30 ára brúð-
kaupsafmæli
hinn 9. júlí sl.
Þau eru nú á
ferðalagi.
Brúðkaup | Gefin voru saman í hjónaband
7. júlí síðastliðinn af Eiríki Jóhannssyni í
Hruna, Dögg Ásgeirsdóttir og Erling Jón
Sigurðsson. Þau eru búsett í Garðabæ.
dagbók
Í dag er mánudagur 13. ágúst, 225. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Andinn opinberast í sérhverjum til þess, sem gagnlegt er. (I.Kor. 12, 7)
Félag um átjándu aldar fræðiefnir í dag til ráðstefnu umnýjar rannsóknir á upplýs-ingunni á Norðurlöndum (sv.
Nya perspektiv på upplysningen i Nor-
den).
Ólöf Garðarsdóttir sagnfræðingur er
einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar
en hún segir mikinn áhuga meðal fræði-
manna á ýmsum sviðum á upplýsing-
arstefnunni og áhrifum hennar á Norð-
urlöndum: „Ráðstefnan er þverfagleg
og fáum við til okkar fyrirlesara af ýms-
um fræðasviðum, sagnfræði, bók-
menntafræði og guðfræði,“ segir Ólöf.
Bókmenntir og betrunarhús
Guðrún Ingólfsdóttir bókmennta-
fræðingur flytur fyrsta erindi ráðstefn-
unnar: „Hún mun fjalla um prentmál
og handrit á 18. öld og ólík viðhorf til
mismunandi prentforma,“ segir Ólöf.
„Þá mun bókmenntafræðingurinn og
málvísindamaðurinn Peter Weiss, sem
er forstöðumaður Háskólaseturs Vest-
fjarða, flytja erindi um sænska málvís-
indamanninn Carl Brunkmann, og hug-
myndir hans um réttritun og sænska
tungu. Síðan flytur Torfi K. Stefánsson
Hjaltalín guðfræðingur erindið „Upp-
lysning och modernitet“ þar sem hann
m.a. setur hugmyndir upplýsing-
arinnar í samhengi við nútímann.“
Að loknu kaffihléi flytur Elin Sús-
anna Jacobsen, lektor í sagnfræði við
Fróðskaparsetur Færeyja erindi: „Hún
ætlar að fjalla um áhrif upplýsing-
arinnar í Færeyjum og meðal annars
segja sérstaklega frá hugmyndum
manna þar um fangelsismál í eyj-
unum,“ segir Ólöf. „Að endingu ætlar
Ingi Sigurðsson, prófessor í sagnfræði
við HÍ, að fjalla um áhrif upplýsing-
arinnar á Íslandi á tímabilinu 1830-
1918, þ.e. eftir lok þess tímabils sem
hefðbundið er að kenna við stefnuna
hér á landi.“
Í lok dagskrárinnar fara fram um-
ræður á dönsku, norsku sænsku og
ensku. Útdrættir úr erindum munu
liggja frammi handa ráðstefnugestum.
Ráðstefnan er haldin í Þjóð-
arbókhlöðunni, í fyrirlestrasal á 2. hæð.
Dagskráin hefst kl. 9.15 og lýkur kl. 13,
en kaffihlé er frá 11.00 til 11.30.
Finna má nánari upplýsingar á
heimasíðu Félags um 18. aldar fræði á
slóðinni www.akademia.is/18.oldin.
Ráðstefnan er öllum opin og aðgang-
ur ókeypis.
Fræði | Norræn ráðstefna í Þjóðarbókhlöðunni í dag frá kl. 9.15 til 13
Upplýsingin og Norðurlönd
Ólöf Garðars-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1959.
Hún lauk stúdents-
prófi frá MH, lauk
námi frá KHÍ, B.A.
í sagnfræði frá Há-
skóla Íslands og
doktorsprófi frá
Háskólanum í
Umeå. Ólöf hefur starfað við kennslu
og rannsóknir og er nú deildarstjóri
mannfjöldadeildar Hagstofu Ísalnds.
Ólöf á tvær dætur.
Tónlist
Hallgrímskirkja | Christopher Herrick
kennir á Klais-orgelið í Hallgrímskirkju kl.
14-17. www.kirkjulistahatid.is.
Skálholtskirkja | Messa í h-moll eftir J.S.
Bach kl. 19. Flytjendur: Monika Frimmer,
Robin Blaze, Gerd Turk, Peter Kooij, Al-
þjóðlega barokksveitin í Den Haag og Mót-
ettukór Hallgrímskirkju. Stjórnandi Hörður
Áskelsson.
Slarkarar leika sér í eðjunni meðan á Sziget-tónlistarhátíðinni stendur. Hún er haldin á eyju við Búdapest í Ungverjalandi.
Lifir húllumhæið í heila viku.
Frá tónlistarhátíð í Ungverjalandi
Ekki velta sér bara svín í drullu
Reuters
MORGUNBLAÐIÐ birt-
ir til kynningar um af-
mæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum
sínum að kostnaðarlausu.
Tilkynningar þurfa að
ber-ast með tveggja daga
fyrirvara virka daga og
þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og
mánudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is,
eða senda tilkynn-ingu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morg-unblaðsins,
www.mbl.is, og velja lið-
inn Senda inn efni". Einn-
ig er hægt að senda vél-
ritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
FRÉTTIR
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ
hefur varið fimm milljónum
króna til að styrkja þátttöku
sérfræðinga á sviði landgræðslu
og jarðvegsbóta í 17 þróunar-
ríkjum til þess að sækja alþjóð-
legt samráðsþing um land-
græðslumál, sem haldið verður
á Selfossi í lok þessa mánaðar í
tilefni aldarafmælis lögboðins
landgræðslustarfs á Íslandi á
þessu ári.
Greint er frá þessu í Stiklum
utanríkisráðuneytisins um al-
þjóðamál. Megintilgangur
þingsins er að ræða mikilvægi
aukins landgræðslustarfs og
jarðvegsverndar í heiminum til
að ná sameiginlegum markmið-
um alþjóðasamfélagsins um
varnir gegn loftslagsbreyting-
um, uppblæstri og myndun
eyðimarka, ásamt markmiðum
um verndun líffræðilegrar fjöl-
breytni, betri landkosti og aukið
fæðuöryggi fyrir jarðarbúa.
Alþjóðlegt þing um
landgræðslu á Selfossi
HALDIÐ verður svokallað „Blint
kaffihús“ í Blindrafélagshúsinu í
Hamrahlíð 17, á annarri hæð laug-
ardaginn 18. ágúst næstkomandi
frá kl. 14:00-18:00. Fram kemur í
fréttatilkynningu að gestir muni
panta sér eitthvað að borða og
drekka og neyta þess síðan í svarta
myrkri. Munu krakkar í UngBlind
þjóna til borðs.
„Þetta gefur fólki góða innsýn
inn í heim blindra og sjónskertra og
höfum við hjá UngBlind fengið
mjög góðar undirtektir í þau skipti
sem við höfum haldið þetta áður og
hefur fólk ávallt verið mjög ánægt
með þessa reynslu,“ segir í frétt.
Blint kaffihús
RÖNG mynd
birtist með
viðtali við
Gísla Gísla-
son, formann
Hafnarsam-
bands Íslands
og hafnar-
stjóra Faxa-
flóahafna, á
bls. 18 í sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins. Eru viðkomandi
beðnir velvirðingar á þessum
mistökum.
Regla
Mölturiddara
NAFN Gunnars Arnar Ólafs-
sonar, formanns Félags kaþ-
ólskra leikmanna hér á landi,
misritaðist í frásögn í blaðinu í
gær af því er hann var vígður í
reglu Mölturiddaranna. Þá er
ekki rétt sem fram kom að þeir
sem vígðir eru í regluna þurfi
meðmæli biskups Íslands held-
ur þurfa þeir meðmæli biskups
kaþólskra.
Beðist er velvirðingar á
þessu.
LEIÐRÉTT
Gísli Gíslason
Röng mynd