Morgunblaðið - 13.08.2007, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.08.2007, Qupperneq 30
30 MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand AÐEINS EIN MANNESKJA HÉRNA INNI FRAMDI ÞETTA MORÐ! SÚ MANNESKJA ER... JÁ... ERT ÞÚ MEÐ SPURNINGU, ÞÚ ÞARNA MEÐ ÖXINA? ÉG ÞARF AÐ FARA Á KLÓSETTIÐ OG ÉG SEM GÆTI VERIÐ AÐ HORFA Á SOKKANA HANS JÓNS SNÚAST Í ÞURRKARANUM HVAÐ Á MAÐUR AÐ GERA VIÐ EFTIRSJÁ? HMM... ÉG HELD AÐ FLEST FÓLK HALDI Í HANA... SVO GETUR ÞAÐ TEKIÐ HANA FRAM OG SKOÐAÐ. HELDUR ÞÚ Í ALLT SEM ÞÚ SÉRÐ EFTIR? JÁ, ÉG Á HEILT SAFN AF SLÍKU ÉG ER KOMINN HEIM! SNJÓRINN NÁÐI AF MÉR FALLINU ÞANNIG AÐ NÚNA GET ÉG DÁIÐ ÚR KULDA ÉG HELDAÐ ÞÚ DEYIR ÚR VÆLI ÞEIR KALLA MIG GLEYMNA RIDDARANN AF HVERJU KALLA ÞEIR ÞIG GLEYMNA RIDDARANN? ÉG MAN ÞAÐ EKKI Æ, NEI... ÉG HELD AÐ ÉG SÉ TÝNDUR EN ÉG ER VISS UM AÐ MAMMA MÍN Á EFTIR AÐ FINNA MIG ÞAÐ ER AÐ SEGJA EF HÚN VILL ÁVÍSANAHEFTIÐ SITT, FJARSTÝRINGUNA, EÐA TENNURNAR SÍNAR TAPAÐI PABBI 300.000 kr. Í PÓKER Á NETINU? ÉG VISSI AÐ ÞETTA MYNDI GERAST! ÞAÐ ER RÉTT HJÁ ÞÉR, ADDA... ÉG GET UNNIÐ ÞETTA ALLT TIL BAKA ÞÚ FÆRÐ EKKI AÐ KOMA NÁLÆGT ÞESSARI TÖLVU FRAMAR! ÉG VINN ÞETTA TIL BAKA MAÐURINN SEM FANN BÚNINGINN ER MÆTTUR Á STAÐINN ÞAR SEM MESTAR SKEMMDIR URÐU... ÉG GET EKKI FARIÐ ÞARNA INN... EKKI EFTIR AÐ KONAN MÍN LÉST Í ELDSVOÐA... ÉG GET EKKI... HJÁLP! HJÁLP! ÞAÐ ER FÓLK FAST ÞARNA INNI ÞÚ VERÐUR AÐ BJARGA ÞEIM! HVAÐ GET ÉG GERT? dagbók|velvakandi Tölvuvæðing tónlistarheimsins HÉR áður fyrr fór fólk í tónlist- arbúðir og keypti sér plötur sem það hafði heyrt að væri e.t.v. eitt gott lag á og tók með því þá áhættu að öll hin lögin væru góð. Í dag fer fólk hins vegar inn á uppá- halds niðurhalssíðuna sína og sæk- ir sér með ólöglegum hætti lagið eða lögin sem það langar að eiga. Undanfarin ár hefur mikil tölvu- væðing átt sér stað í tónlist- arheiminum eins og margir hafa orðið varir við. Ekki einungis hef- ur tónlist komist í ólöglega dreif- ingu á Netinu heldur eru flestar nútíma tónlistarstefnur gerðar mestmegnis á stafrænu formi. Auk þess hafa hip hop-, rapp-, R&B- og teknó-hljómsveitir aukist á mark- aðnum og eru meira við völd en áður. Þó þarf ekki að fara langt aftur í tímann til að sjá og heyra að öll tónlist var tekin upp á band í stórum og dýrum hljóðverum. Mörgum kann að mislíka þessi tölvuvæðing og ólöglega dreifing en þó má ekki dæma hana of hart því það opnast svo margir skemmtilegir og framandi mögu- leikar í kjölfarið. Nýjar íslenskar hljómsveitir eru sífellt að skjóta upp kollinum enda þurfa hljóðver ekki að vera stórum og þungum tækjum gædd eins og áður fyrr. Það sem þarf ef þig langar til að taka upp eða semja tónlist er ein- ungis hæfilega hraðvirk heim- ilistölva, lítið hljómborð og e.t.v. einn ágætur míkrafónn ef þú vilt taka eitthvað upp, t.d. söng, og þá er hægt að fá á góðu verði í næstu tónlistarbúð. Vitanlega er ekki allt gott við þessa þróun mála. Margir tapa stórfé, enda fer nánast allt sem gefið er út beint á Netið (þetta á einnig við um kvikmyndir). Aftur á móti fá tónlistarmenn mun meiri spilun, hvort sem það er löglegt eður ei. Ekki má gleyma öllum tónlistar- myndböndunum sem gefin eru út ár hvert, hvort sem þau eru heimagerð eða tekin upp af fag- fólki. Vefsíður eins og www.you- tube.com og www.myspace.com eru stórir þátttakendur og jafnvel vettvangur nútíma tónlistarlífs. Ragnar Þór Valgeirsson, Vesturfold 48. Hroki HJÖRLEIFUR Hallgríms skrifar ótrúlega hrokafulla grein í Morg- unblaðið 8. ágúst sl. þar sem hann ræðst með offorsi að nafn- greindum manni. Og ekki nóg með það, heldur nefnir hann starfsheiti og menntun viðkomandi fimm sinnum í greininni, sem fjallar um gerð íþróttavalla á Akureyri. Hvað kemur það þessari umræðu við að Ólafur Jónsson sé dýralæknir? Hjörleifur talar einnig um að að- komumenn séu að eyðileggja fyrir „okkur Akureyringum“ eins og hann kemst svo smekklega að orði. Getur þessi góði maður upplýst aðra landsmenn um það hverjir eru „við Akureyringar“? Mega kannski eingöngu innfæddir taka þátt í stjórnmálum á Akureyri? Eða eiga aðkomumennirnir e.t.v. að borga með sér? Ég þekki ekkert til þessa deilu- máls en ég gagnrýni efnistök Hjörleifs, sem leyfir sér m.a.s. að halda því fram að annarlegar hvat- ir ráði afstöðu kjörinna fulltrúa í sautján þúsund manna byggð- arlagi. Svona fullyrðingar dæma sig sjálfar. Hákon Hansson, Ásvegi 31. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag. Besta aukavinna sem þú getur fundið og góð hreyfing í þokkabót! Hringdu núna og sæktu um í síma 569 1440 eða á mbl.is! Sæktu um blaðberastarf – alvörupeningar í boði! ÞEIR voru vel búnir, ferðamennirnir sem örkuðu niður Bankastrætið fyrir helgi í rigningu og roki. Morgunblaðið/G.Rúnar Allra veðra von

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.