Morgunblaðið - 13.08.2007, Side 36
36 MÁNUDAGUR 13. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
DIG
ITAL
hlj
óð o
g m
ynd
gæð
i
í SA
Mbí
óun
um
Álfa
bak
ka o
g K
ring
lunn
i
ÞEIRRA STRÍÐ. OKKAR HEIMUR
FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG
/ KRINGLUNNI
Evan hjálpi
okkur
NANCY
DREW
YNGSTI OG KLÁRASTI EINKASPÆJARI HEIMS ER NÚ MÆTT Á HVÍTA TJALDIÐ
BYGGT Á HINUM FRÁBÆRU
NANCY DREW BÓKUM
ÓVÆNTASTA
STELPUMYND ÁRSINS!
eee
H.J. - MBL
/ ÁLFABAKKA
THE TRANSFORMERS kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára LÚXUS VIP
NANCY DREW kl. 6 - 8:10 -10:20 B.i.7.ára
GEORGIA RULE kl. 5.30 - 8 -10:30 B.i.7.ára
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára
EVAN ALMIGHTY kl. 2 LEYFÐ
BLIND DATING kl. 4 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
OCEAN´S 13 kl. 10:10 B.i.7.ára
ROBINSON FJÖLSK... m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
THE TRANSFORMERS kl. 4 - 7 - 10 B.i. 10 ára DIGITAL
NANCY DREW kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára
GEORGIA RULE kl. 10:10 B.i. 7 ára
HARRY POTTER 5 kl. 4 - 7 B.i. 10 ára DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
NÝJA
STA T
ÆKN
IBYLT
ING K
VIKM
YNDA
HÚSA
Í DAG
.
SAMB
ÍÓIN
ALLTA
F FYR
STIR
OG FR
EMST
IR eeeF.G.G. - FBL
V.I.J. – Blaðið
ÞAÐ er fátt nýtt hægt að segja um
það flóð af seinni heimsstyrjald-
arleikjum sem hefur drekkt okkur
leikjaáhugamönnum síðustu misseri.
Leikirnir snúast meira eða minna um
það sama og það er auðvelt að verða
þreyttur á þessu öllu saman. En það
er samt eitthvað skelfilega fullnægj-
andi við það að skjóta nasista af löngu
færi og kasta handsprengjum inn í
íbúðarhús sem þeir hafa tekið yfir.
Call of Duty-leikirnir sýna að það er
ennþá líf í þessum leikjum og sá þriðji
í seríunni er engin undartekning,
ólíkt Medal of Honor-leikjunum, þar
sem framleiðendur virðast hafa misst
áhuga á þessu öllu saman.
Líkt og fyrri leikir í Call of Duty-
bálkinum þá stjórnar maður mismun-
andi hermönnum frá ólíkum löndum,
svona til að minna á að það voru ekki
bara Bandaríkjamenn að berjast í
þessu stríði. Maður spilar sem Kan-
adabúi, Pólverji, Breti og Bandaríkja-
maður á móti nasistum sem hafa her-
tekið París og það er okkar verk að
bjóða þeim upp á ölið sem hann Davíð
keypti.
Verkefnin sem maður fær eru ekk-
ert sérstaklega frumleg en á móti
kemur að óvinurinn er harðskeyttur
og nánast óendanlegur þannig að það
er nóg fyrir mann að gera. Einnig er
boðið upp á að notfæra sér faratæki
ýmiss konar, jeppa og skriðdreka til
þess að komast á áfangastaði og nota
öflug vopn þeirra til þess að vinna á
óvininum.
Útlitslega lítur leikurinn frábær-
lega út, mikið um smáatriði á stríðs-
hrjáðum svæðum og nóg af hermönn-
um til þess að fylla upp í stór svæði
sem maður spilar á. Hljóðið er magn-
að en þeir sem lesa inn fyrir persón-
urnar detta í þá gildru að ofleika og
staðalímyndirnar eru nánast allar til
staðar. Þegar maður er svo búinn
með leikinn getur maður haldið orr-
ustunni áfram á netinu og spilað við
allt að 24 aðra spilara. Ekki amalegt
það.
Heyrst hefur að fjórði leikurinn í
seríunni sé væntanlegur í nóvember
en það hefur ekki verið staðfest. Það
sem hins vegar er staðfest, er að hann
mun ekki gerast í seinni heimsstyrj-
öldinni heldur einblína á nútímahern-
að sem mun væntanlega gefa þessari
seríu góða innspýtingu.
Ómar Örn Hauksson
TÖLVULEIKIR
PS3
Activision
Call of Duty 3 Call of Duty Hún er æði myrk og nöturleg myndin sem stundum ber fyrir
augu hermannsins í Call of Duty-séríunni vinsælu.
Stríðið endalausa
Eftir Ómar Örn Hauksson
mori@itn.is
ÞEIR eigendur PS3-leikjatölva sem
tengdir eru netinu og notast við Pla-
ystation-búðina, hafa væntanlega
tekið eftir nýju sýnishorni af leikn-
um Heavenly Sword sem framleið-
endur PS3 binda miklar vonir við því
Playstation 3, eins öflug og glæsileg
og hún er, hefur hingað til ekki beint
státað af neitt sérstaklega merki-
legu leikjaúrvali. Þeim fáu leikjum,
sem eingöngu hafa verið gefnir út
fyrir PS3, hefur ekki tekist að fanga
athygli kaupenda að neinu ráði fyrir
utan Motorstorm og Fall of Man, og
er þetta vandamál sem framleið-
endur hafa haft miklar áhyggjur af.
Heavenly Sword er einn af nokkrum
leikjum sem koma út með haustinu
sem eingöngu verður hægt að spila á
PS3, og hefur miklu verið til kostað
við framleiðslu á leiknum. Heavenly
Sword sver sig í ætt við God of War-
leikina en hér stjórnar maður
þokkadísinni Nariko sem er hand-
lagin með eggvopn og hikar ekki við
að láta menn finna fyrir því ef þeir
eru með eitthvert vesen. Þarf svo
stúlkan að bjarga málunum þegar
óvinur rænir föður hennar og hún
þarf að beita goðsagnakenndu sverði
sem talið er að Guð sjálfur hafi not-
ast við.
Sýnishornið er hægt að nálgast í
Playstation-búðinni og er að sjálf-
sögðu ókeypis. Leikurinn sjálfur
kemur út í september.
Sex ása tækni og drekar
Annar leikur sem Sony-menn
binda miklar vonir við er drekaleik-
urinn Lair, eða Bælið. Þar stjórnar
maður dreka sem svífur um loftin
blá og heyjar orrustu við aðrar her-
sveitir dreka og furðuskepna. Það
sem gerir þennan leik sérstakan er
að hann nýtir sér Sixaxis-tækni PS3-
stýripinnans sem gerir manni kleift
að stjórna ferðum drekans með því
að halla stýripinnanum til og frá.
Lair hefur verið beðið með mikilli
eftirvæntingu enda verður boðið upp
á glæsilega útlítandi pakka í fullri
háskerpu-upplausn sem bíður upp á
marga klukkutíma af drekaglensi.
Leikurinn átti að koma út núna í
ágúst en var nýlega frestað til sept-
ember.
Spilarar biðja Arnold um vægð
Mikil umræða hefur verið um of-
beldi í tölvuleikjum og hvort það sé
þörf á lögum sem komi í veg fyrir að
ofbeldisfullir leikir endi í tölvum
ungra krakka. Hér á landi eru leikir
merktir með ákveðinn aldurshóp í
huga en reynslan sýnir að krakkar
eiga yfirleitt greiða leið að ofbeldis-
fullum leikjum sem ættu strangt til
tekið að vera þeim bannaðir. Dómari
í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum
komst á dögunum að þeirri nið-
urstöðu að bann við sölu á ofbeldis-
leikjum til unglinga væri á skjön við
stjórnarskrána og vildi lyfta bann-
inu. Sjálfur Tortímandinn og rík-
isstjóri Kaliforníu, Arnold
Schwarzenegger, sem hefur leikið í
ófáum ofbeldismyndunum, brást
ókvæða við þessum fréttum og sór
að áfrýja úrskurði dómarans. „Ég
skrifaði undir þessi lög til þess að
tryggja að foreldrar taki þátt í því að
ákveða hvaða leikir eru við hæfi
barna þeirra.“
Video Game Voters Network, bar-
áttuhópur leikjaunnenda, hefur nú
hafið herferð gegn þessari ákvörðun
Schwarzeneggers og hvetja með-
limir alla leikjaáhugamenn um að
skrifa til ríkisstjórans. Með þessu
vilja þeir benda á að það eru ekki
foreldrar sem hafa eitthvað að gera
með þessa löggjöf heldur yfirvaldið
og að þeir séu á móti því að yfirvald-
ið sé með fingurna í uppeldi barna
þeirra. Það er foreldranna að ákveða
hvað er við hæfi fyrir hvert og eitt
barn en ekki ríkistjórnarinnar.
VGVN hefur sett á fót heimasíðu,
http://www.videogamevoters.org,
þar sem hægt er að kynna sér málið
nánar.
Átök í leikjaveröld
Reuters
Arnold Schwarzenegger Leikjaunnendur eru margir hverjir ekki par
sáttir við ríkisstjóra Kaliforníu, gamla vöðvabúntið með fallega hreiminn.