Morgunblaðið - 03.09.2007, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. SEPTEMBER 2007 25
hlutvelta
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin kl. 9-16.30.
Viðtalstími hjúkrunarfræðings kl. 9-11. Boccia kl. 10.
Félagsvist kl. 14.
Árskógar 4 | Bað kl. 9-16, handavinna kl. 9-12,
smíði/útskurður kl. 9-16.30, félagsvist kl. 13.30,
myndlist kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, morg-
unkaffi/dagblöð, bútasaumur, fótaaðgerð, hádeg-
isverður, leikfimi, kaffi. Athygli er vakin á því að Ja-
nick Moisan byrjar með leikfimi í dag kl. 13.30. Á
morgun þriðjudag byrjar línudans kl. 13.30. Upplýs-
ingar í síma 535-2760
Café Mílanó | Sjögrenshópurinn. Fyrsti kaffifundur
haustsins verður þriðjudagskvöldið 4. september
kl. 19.30. Mætum vel.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Farið
verður í berjaferð fimmtudaginn 6. september.
Brottför frá Gullsmára kl. 13 og Gjábakka kl. 13.15.
Leitað verður berja í Hvalfirði og nágr. Eigið nesti.
Verði veður óhagstætt til berjatínslu verður farið í
óvissuferð „út í bláinn“.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferðanefnd | Farið
verður í berjaferð fimmtudaginn 6. september.
Brottför frá Gullsmára kl. 13 og Gjábakka kl. 13.15.
Leitað verður berja í Hvalfirði og nágr. Eigið nesti.
Verði veður óhagstætt til berjatínslu verður farið í
óvissuferð „út í bláinn“. Skráning í félagsmiðstöðv-
unum.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Kaffi-
tár kl. 13.30.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinnustofan opin,
leiðbeinandi við kl.9-12.30. Lomber kl. 13. Canasta
kl. 13.15. Heitt á könnunni til kl. 16.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9-16.30 vinnustofur
opnar, m.a. fjölbreytt handavinna og tréútskurður.
Frá hádegi spilasalur opinn. Kl. 14.20 kóræfing, nýir
félagar velkomnir. Á morgun kl. 9 hefst glerskurður.
Skráning á postulínsnámskeið sem byrja mánud.
10. sept. og þriðjud. 11. sept. er á staðnum og s.
575-7720.
Hraunbær 105 | Mánudaga: kl. 9-16.30. Handa-
vinna kl. 9-12. Útskurður kl. 10-1030. Bænastund kl.
12-12.30. Hádegismatur kl. 13-16. Myndlist kl. 15-
15.30. Kaffi.
Hraunsel | Félagsmiðstöðin opnar kl. 9. Orlofsferð
frá Hraunseli kl. 10. Félagsvist kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 | Sigrún er mætt aftur og
vinnustofan er opin kl. 9-16, margt í boði og allir
velkomnir. Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Frjáls spila-
mennska kl. 13-16. Böðun fyrir hádegi. Hádeg-
isverður kl. 11.30, vikumatseðill liggur fyrir.
Hæðargarður 31 | Opið öllum! M.a. skrautskrift,
Hlutavelta | Þrír
vinir héldu tombólu
á dögunum og söfn-
uðu 8.951 kr. til
styrktar ABC
barnahjálp, til upp-
byggingar í Ug-
anda. Á myndinni
eru þeir Benjamín
og Jón Borgþór en
Árna Þór vantar á
myndina. ABC
barnahjálp þakkar
kærlega fyrir
stuðninginn.
Hlutavelta | Þessir sjálfboðaliðar Rauða krossins tóku sig til á dögunum
og seldu vegfarendum á Ísafirði ýmsan varning. Varninginn fengu þær
með því að ganga í hús og verslanir auk þess að finna ýmsa hluti heima
hjá sér. Síðan héldu þær torgsölu sem gekk það vel að þeim tókst að safna
tæpum 12 þúsund krónum sem þær afhentu á svæðisskrifstofu Rauða
krossins á Ísafirði. Stelpurnar hafa áður komið að sjálfboðastarfi Rauða
krossins því þær hafa tekið þátt í landssöfnuninni Göngum til góðs og sótt
námskeiðið Börn og umhverfi. Þær eru spenntar fyrir að taka þátt í
barnastarfi sem Ísafjarðardeild Rauða krossins mun fara af stað með á
næstunni. Stelpurnar heita; frá vinstri; Heiður Embla Elvarsdóttir,
Freyja Rein Grétarsdóttir og Aðalheiður Bára Hjaltadóttir.
dagbók
Í dag er mánudagur 3. september, 246. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Mannssonurinn er ekki kominn til að tortíma mannslífum, heldur til að frelsa. (Lúk. 9, 56.)
Vetrarstarf KMK – Konur meðkonum, er að hefjast umþessar mundir. Fríða Agn-arsdóttir er einn af með-
limum hópsins, og segir margt í boði:
„KMK er skemmtifélag kvenna, eink-
um lesbía og tvíkynhneigðra, en félagið
er opið öllum fordómalausum konum,“
segir Fríða. „Tilgangur starfsins er að
þjappa hópnum saman, og gera eitt-
hvað skemmtilegt sér til dundurs, bæði
með fjölskylduviðburðum, kvenna-
kvöldum og íþróttaiðkun.“
Stór og fjörugur hópur
Hópurinn hefur starfað í meira en 16
ár, og eru um 200 manns á póstlista
KMK: „Meðal fastra viðburða í starf-
seminni er góugleðin sem haldin er í
febrúar eða mars ár hvert, og er hálf-
gerð árshátíð félagsins. Yfir sumartím-
ann skipuleggjum við útilegur og
reglulega höldum við fjölskyldudaga
þar sem börnin geta leikið sér og
mömmurnar slúðrað aðeins yfir grill-
inu,“ segir Fríða glettin.
Mjög virkt íþróttastarf er innan
KMK: „Nýverið höfum við m.a. gert til-
raun með að efna til golfnámskeiðs og
golfmóts. Endrum og sinnum er farið í
keilu eða snóker, og á sumrin er reynt
að halda reglulegar fótboltaæfingar á
Klambratúni, en þó mest til að hittast
og fíflast aðeins,“ útskýrir Fríða.
Á vegum KMK starfar líka öflugur
blakhópur: „Blakið er ákaflega
skemmtilegt og vel sótt. Blaklið KMK
er duglegt að taka þátt í hraðmótum á
Íslandi, og fer árlega utan til keppni á
alþjóðlegu blakmóti lesbía. Árangur
liðsins hefur verið ákaflega góður síð-
ustu ár, og lendum við iðulega í efstu
sætum í okkar riðli,“ segir Fríða sem
sjálf er mikill blakáhugamaður. „En þó
að mikið fjör og keppnisandi sé í hópn-
um tökum við opnum örmum öllum
konum sem vilja slást í hópinn með
okkur og á enginn að láta reynslu- eða
getuleysi í blaki aftra sér frá að mæta á
æfingu.“
Finna má nánari upplýsingar um við-
burði og starfsemi Kvenna með konum
á heimasíðu félagsins á slóðinni
www.kmk.is.
Æfingatímar hjá Blakhópnum eru
kl. 19-20 á mánudögum, með fyrirvara
um breytingar. Æft er í íþróttahúsi
Korpuskóla.
Félagasamtök | Konur með konum eru með líflegt félags- og íþróttastarf
Fjölbreytt starf hjá KMK
Fríða Agnars-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1974.
Hún lauk stúdents-
prófi frá Fjöl-
brautaskólanum í
Ármúla 1996 og
B.Ed. frá Kenn-
araháskóla Íslands
2003. Fríða starf-
aði á Bjarkarási, vinnustofu fatlaðra
og þroskaheftra, um nokkurt skeið,
og í Málmsteypu Ámunda Sig. Hún
hefur síðan 2003 verið smíðakennari í
Háteigsskóla. Fríða sat í stjórn KMK –
konur með konum árin 2003-2006.
Mannfagnaður
Samtökin ́78 | Laugavegi 3. Opið hús hvert mánudags- og
fimmtudagskvöld. Regnbogasalurinn er opinn kl. 20-23.30
en bókasafnið kl. 20-23. Stöðugt bætist nýtt og spennandi
efni við safnkostinn. Allir hjartanlega velkomnir að líta við
á bókasafninu eða bara í góðan kaffisopa.
KEPPENDUR í árlegu tómatastríði hvíla sig í bænum
Bunol nærri Valencia á Spáni um helgina. Reglurnar í
stríðinu eru einfaldar; að kasta sem flestum tómötum í
alla þá sem á vegi manns verða. Ekki er nákvæmlega
vitað hversu gömul hefð tómatastríðið er en þó er talið
að það hafi fyrst farið fram í kringum 1940 þegar
Franco hafði nýverið tekið við stjórnartaumunum á
Spáni.
Reuters
Í tómatabaði
FRÉTTIR
NÁTTÚRUSKÓLI
Reykjavíkur býður
upp á útikennslu í
Grasagarðinum í
vetur. Eftirsóknin
er mikil og komast
færri bekkir að en
óska.
Í fréttatilkynn-
ingu segir að heim-
sóknir nemenda
með kennurum í
Grasagarð Reykja-
víkur njóti mikilla
vinsælda. Í 13 heim-
sóknum á liðnu
skólaári fóru 283
börn í yngri bekkj-
um í Reykjavík í
skipulagða útikennslu í Grasagarðinn. Núna á haustmisseri eru 9
heimsóknir fyrirhugaðar.
Helena Óladóttir, verkefnastjóri Náttúruskólans, segir úti-
kennslu m.a. efla félagslega og líkamlega færni, heilbrigði og já-
kvæða reynslu af skólastarfi. Útikennslan auðveldar samþættingu
námsgreina og kennarar segja að hún bæti bekkjarandann og sam-
heldni hópsins.
Markmið Náttúruskólans er að efla útikennslu í grunn- og leik-
skólum borgarinnar enda er áhugi á útikennslunni ört vaxandi
meðal kennara í Reykjavík. Eva Þorvaldsdóttir, forstöðumaður
Grasagarðsins, segir að börnin sem komi í heimsókn fái að taka
þátt í störfum garðyrkjufræðinga og að þau læri á hvaða hátt garð-
urinn er frábrugðinn öðrum grænum svæðum borgarinnar.
Útikennsla í Grasa-
garðinum í vetur
Rangt nafn
Rangt var farið með nafn Ingunnar
Söru Loftsdóttur í myndatexta í
fréttaskýringum um Álafosskvos.
Beðist er velvirðingar á mistök-
unum.
LEIÐRÉTTING
magadans, skapandi skrif, tölvuleiðbeiningar, fram-
sagnarhópur, vöðvauppbygging 50 ára + (einstakt
tilboð) og Mullersæfingar. Kíkið við! s. 568-3132
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Handverks og bóka-
stofa kl. 13. Kaffiveitingar kl. 14.30 Söng og sam-
verustund kl. 15.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu |
Brids í kvöld í Hátúni 12. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 | Mánudagur: Kl. 9-16. Hárgreiðsla og
fótaaðgerðir kl. 9.15-15.30. Handavinna kl. 9-10.
Boccia kl. 11-12. Leikfimi kl. 11.45-12.45. Hádeg-
isverður kl. 13-15. Kóræfing kl. 14.30-15.45. Kaffi-
veitingar.
Kirkjustarf
Áskirkja | Velkomin í bænastund á Dalbraut 27 í
umsjá Margrétar djákna í Áskirkju.
Hveragerðiskirkja | Mömmumorgnar verða í vetur
á þriðjudögum kl. 10 í Safnaðarheimili Hveragerð-
iskirkju.