Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 245. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
SUNNUDAGUR
FLAUTU-
ROKKARI
LOFAR ÍSLENSKA
MENNINGU
IAN ANDERSON >> 72
SIÐLAUST
AFKVÆMI
RÓMUÐ BÓK UM
MAÓ FORMANN
Á BÓKMENNTAHÁTÍÐ >> 32
MAKALEIT
Í MIÐBÆ
VETTVANGUR
TILHUGALÍFSINS
AÐFERÐIRNAR >> 34
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
STURLA Böðvarsson þáverandi samgöngu-
ráðherra tók um það pólitískt upplýsta ákvörð-
un að hafa heimamenn í Grímsey með í ráðum
varðandi endurbætur á ferjunni Oileáin Árann.
Þetta gerði hann eftir að hann kynntist
óánægju Grímseyinga með kaup á ferjunni frá
fyrstu hendi í ágúst 2005, þegar hann var þar
staddur í embættiserindum.
Ríkisstjórnin hafði áður heimilað kaup á
skipinu á þeim grundvelli að heildarkostnaður
við kaup og endurbætur á því yrði 150 m.kr.
Samgönguráðuneytið fól nokkru síðar Vega-
gerðinni að leita eftir samningum við Gríms-
eyinga varðandi endurbæturnar og var kostn-
aðarviðmiðið 100 m.kr.
Heimildarmenn Morgunblaðsins eru sann-
færðir um að auðveldlega hefði mátt ganga til
samninga við litháska skipasmíðafyrirtækið
sem átti lægsta tilboðið í útboði Ríkiskaupa
varðandi breytingar á ferjunni. Litháarnir
drógu tilboð sitt til baka þar sem þeir gleymdu
að gera ráð fyrir málningu. Í stað þess að
semja við Litháana var samið við Vélsmiðju
Orms og Víglundar ehf. og var útboðslýsingu
breytt nokkuð til að koma til móts við þann að-
ila, að undirlagi fjármálaráðuneytisins.
Heimildir Morgunblaðsins herma að það sé
engum vafa undirorpið að verkinu hafi verið
stýrt hingað heim með pólitísku handafli enda
þótt forstjóri Ríkiskaupa vísi því alfarið á bug.
Talsverður núningur hefur verið milli verk-
kaupa og verksala meðan á endurbótum hefur
staðið. Samfara þessu hefur kostnaður vaxið
jafnt og þétt og verklok dregist verulega, eink-
um vegna ágreinings um aukaverk. Deilt hefur
verið um túlkun útboðslýsingar og verksali tal-
ið henni ábótavant. Í því samhengi vekur at-
hygli að Vélsmiðjan skoðaði skipið aldrei áður
en samningur var undirritaður, þrátt fyrir
ítrekuð tilmæli þar um. Taldi það ekki nauð-
synlegt þar sem nægjanlegar upplýsingar
lægju fyrir, m.a. í formi verklýsingar. | 10
Sturla mælti fyrir um samráð
Samgönguráðherra breytti um áherslu eftir Grímseyjarheimsókn Auðvelt hefði verið að semja við
Litháana Verkinu stýrt hingað heim Mikill núningur verkkaupa og verksala við endurbæturnar
Í HNOTSKURN
»Leyfi núverandi Grímseyjarferju, Sæ-fara, til siglinga á Grímseyjarsundi
rennur út um mitt ár 2009.
»Vélsmiðja Orms og Víglundar átti aðskila skipinu í október á síðasta ári. Nú
er stefnt að verklokum 28. nóvember næst-
komandi.
»Upphaflega var gert ráð fyrir að kaupog endurbætur á Oileáin Árann myndu
kosta 150 m.kr. Nú er ljóst að kostnaður
verður a.m.k. 500 m.kr.
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Í FARVEGI er hjá lögreglunni að kortleggja hvaða
menn það eru sem valda mestum vandræðum í
miðborginni, fara heim til þeirra eða á vinnustaði
og bjóða þeim úrræði og aðstoð. En ef þeir láta
ekki af háttsemi sinni verður þeim bannað að
leggja leið sína í miðborgina á tilteknum tímum.
„Þúsundir skemmta sér í miðborginni um hverja
helgi, en það eru kannski 30 til 40 manns sem bera
ábyrgð á róstum og setja aðra í hættu,“ segir Stef-
án Eiríksson lögreglustjóri.
Lagt er upp með að heimsækja vandræðasegg-
ina á virkum dögum þegar þeir eru allsgáðir og
bjóða þeim meðferðarúrræði. „Við gerðum nýver-
ið tímamótasamning við SÁÁ um að koma einum
manni á dag í meðferðarúrræði hjá þeim og ég
held að það geti verið góður kostur fyrir þessa
menn, því þeir eru oft áfengis- eða vímuefnaneyt-
endur og hafa ekki stjórn á sinni neyslu, hegðun og
framkomu,“ segir Stefán.
Ef viðkomandi einstaklingar verða áfram til
vandræða mun lögreglan bregðast við með skýrum
hætti, til dæmis með því að setja þá í miðborg-
arbann. „Við erum tilbúnir að grípa til lögreglu-
samþykktar og vísa einstaklingum í burtu úr mið-
borginni á tilteknum tímum á þeim forsendum að
þeir séu til vandræða og eigi ekki heima innan um
aðra í miðborginni.“
Lögreglan vinnur markvisst að því að taka á
miðborgarvandanum, að sögn Stefáns, sem undir-
strikar að það sé þó ekki einkamál lögreglunnar.
Lögð hefur verið áhersla á að auka sýnileika lög-
reglunnar í miðbænum frá því í sumarbyrjun.
„Með því vekjum við öryggistilfinningu hjá fólki og
með því að taka hart á öllum þeim sem gerast brot-
legir undirstrikum við að okkur sé alvara.“
Margfalt fleiri hafa verið handteknir í miðborg-
inni fyrir brot á lögreglusamþykktum en áður, en
undir það falla uppþot, áflog, óspektir eða önnur
brotleg háttsemi á almannafæri. Fólk er m.a. hand-
tekið og sektað fyrir að brjóta glas á almannafæri,
henda rusli á götuna eða kasta af sér vatni.
Um helgina beitti lögreglan sérþjálfuðu fólki í
mannfjöldastjórnun og var með fjóra sérsveit-
armenn í sínum röðum, sem bættust inn í vakt lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Blaðamaður og
ljósmyndari gengu með Stefáni og aðstoðarlög-
reglustjórunum Herði Jóhannessyni og Jóni H.B.
Snorrasyni um miðborgina og kynntu sér ástandið
þar. | 6
Vandræðaseggir í miðborgarbann
Morgunblaðið/Júlíus
Óspektir Stefán Eiríksson lögreglustjóri og aðstoðarlögreglustjórarnir Jón H.B. Snorrason og Hörð-
ur Jóhannesson handtaka mann eftir að hann reyndi að stela húfu Harðar. Það kom til snarpra átaka.
Lögreglan bregst hart við í miðborginni og mun fleiri handteknir en áður
Sonur Peters Schmeichels fetar í
sömu markvarðarsporin en gengur
í lið erkióvinarins, Manchester City.
Pilturinn þykir mikill karakter.
Verður Kasper
föðurbetrungur?
Launamunur kynjanna er ekki bara
óréttlátur því reiknað hefur verið
út að „kynjabilið“ rýri hagvöxt um
marga milljarða á ári.
Launamisréttið
óhagkvæmt
Ákvörðun leikarans Freds Thomp-
sons að sækjast eftir útnefningu
sem forsetaframbjóðandi repúblik-
ana þykir fyrirséð – og spennandi.
Í drauma-
hlutverkinu
VIKUSPEGILL