Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 16

Morgunblaðið - 09.09.2007, Side 16
16 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ NÝ GRÍMSEYJARFERJA ars vegar lekastöðugleika skipsins og hins vegar ábendingar um frekari skoðanir á skipinu, þá var gripið til eftirfarandi aðgerða: Vegagerðin réði bresku verk- fræðistofuna Hilbre Marine Consult- ancy Ltd. til að gera nýja stöð- ugleikaútreikninga miðað við forsendur um breytingar á skipinu. Umræddir ráðgjafar voru í beinu sambandi við Siglingastofnun og eftir mikla vinnu samþykkti Sigl- ingastofnun að lokum að skipið upp- fyllti lekastöðugleikakröfur, með tölvupósti dags. 3. nóvember 2005. Tveir fulltrúar Siglingastofnunar, skoðuðu síðan skipið í Galway 10. og 11. nóvember 2005, vegna áður nefndra athugasemda í skýrslu Sigl- ingastofnunar. Gengið endanlega frá kaupunum Þar sem öðrum skilyrðum í samn- ingsdrögum um kaup á skipinu hafði verið fullnægt, þá lét Vegagerðin framkvæma botnskoðun á skipinu 12. nóvember 2005 og komu ekki fram neinir annmarkar á botni skipsins og búnaði undir sjólínu, aðrir en smá- vægilegar skemmdir á annarri skrúfu skipsins, að því er fram kemur í skýrslu köfunarfyrirtækisins frá 12. nóvember 2005. Í kjölfar framangreinds og eftir að sveitarstjórn Grímseyjar hafði veitt samþykki sitt fyrir kaupum á Oileáin Árann, ákvað Vegagerðin með sam- þykki samgönguráðuneytisins að ganga endanlega frá kaupum á skip- inu og var fallið frá fyrirvörum í kaupsamningi 14. nóvember 2005. Þar næst var gefinn út endanlegur kaupsamningur og undirritaður. Á fundi sem Jón Rögnvaldsson vegamálastjóri, Gunnar Gunnarsson aðstoðarvegamálastjóri, Jóhann Guð- mundsson skrifstofustjóri í sam- gönguráðuneytinu og Þórhallur Ara- son frá Ríkiskaupum sátu 25. nóvember 2005 kom m.a. fram sam- kvæmt fundargerð: „Fyrir virðist liggja að samanlagður kostnaður vegna nýrrar Grímseyjarferju geti numið 250 m.kr. [...] Nú er unnið að hönnun þeirra breytinga sem gera þarf á skipinu. Þær breytingar verða síðan boðnar út og nokkuð ljóst að all- margir mánuðir munu líða þar til skipið er tilbúið og hægt verður að setja eldra skip í sölumeðferð. Heild- ardæmið verður því engan veginn ljóst fyrr en að þessum tíma loknum.“ Jafnframt segir í fundargerðinni varðandi fjármögnun ferjunnar: „Vís- að er til þess að svigrúm í samgöngu- áætlun myndast ekki fyrr en að litlum hluta á árinu 2007 en síðan mun frekar á árinu 2008. Ástæða þessa er sú að þá fyrst er lokið uppí- greiðslum vegna lána er tekin voru þegar Herjólfur var smíðaður. Jafn- framt er ljóst að endurskoðun Sam- gönguáætlunar fer ekki fram fyrr en haustið 2006. Af framangreindum tveimur ástæðum var ákveðið að fjármögnun nýrrar Grímseyjarferju verði af ónot- uðum heimildum Vegagerðarinnar fram til 2007 og 2008. Hafi Vegagerð- in ekki svigrúm til þess að nýta ónot- aðar fjárheimildir mun fjármálaráðu- neytið heimila yfirdrátt sem þessari vöntun nemur.“ Alvarleg athugasemd Í greinargerð sinni gerir Ríkisend- urskoðun alvarlega athugasemd við framangreinda ákvörðun og þá að- ferð sem notuð er við að fjármagna kaup á ferjunni og telur hana á engan hátt standast ákvæði fjárreiðulaga. Árni M. Mathiesen fjármálaráð- herra vísaði þessu á bug í Morg- unblaðinu í kjölfar greinargerð- arinnar. Tilgreindi hann að heimild Grímseyingum þótti ekki haft við sig nægilega mikið samráð Í nóvemberbyrjun 2005 fór EinarHermannsson skipaverkfræð-ingur fyrir hönd Vegagerð- arinnar þess á leit við verkfræðistof- una Navis-Feng ehf (nú Navis ehf) að hún gerði útboðslýsingu og ynni kostnaðaráætlun vegna endurbóta á Oileáin Árann. Á þessu stigi málsins hafði verið ákveðið að breyta skip- inu verulega og var sú ákvörðun tekin án samráðs við skoð- unarmenn, „nema síður væri“, eins og Einar greinir frá í bréfi til full- trúa í fjárlaganefnd Alþingis 20. ágúst sl. Af þessum sökum taldi Ein- ar rétt að hann hætti afskiptum af málinu. Þessar breytingar á skipinu eru, samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins, meira og minna til- komnar vegna krafna Grímseyinga og áhafnar Sæfara. Munu þær fyrstu hafa komið fram í Grímseyj- arheimsókn samgönguráðherra í ágúst 2005 og í framhaldi af henni þegar byrjað var að tala um að kaupa skipið, endurbæta það og lag- færa, setja það í klassa og gera því almennt til góða, samkvæmt hug- myndum Einars Hermannssonar. Viðbótaróskir setja Grímseyingar fram á fundi með Navis í desember 2005 eftir að búið var að gera frum- drög að útboðslýsingu. Loks munu hafa komið fram óskir um fjölmörg minni háttar atriði í tugum liða eftir að Grímseyingar fóru að venja komur sínar til Hafn- arfjarðar og sjá framvindu mála með eigin augum í febrúar og mars á þessu ári. Langur listi varðandi viðbætur Á tvíþættum lista sem Navis fékk frá Vegagerðinni í nóvember 2005 um liði sem áttu að vera innifaldir í útboðinu var annars vegar um að ræða ýmsar lagfæringar og minni- háttar breytingar á skipinu í þáver- andi mynd til aukningar á farþega- rými; yfirferð vélbúnaðar og rafkerfis; viðgerðir á bol skipsins; endurnýjun á slitnum og skítugum innréttingum og almenn hreinsun og málun á skipinu. Hins vegar inni- hélt listinn eftirfarandi atriði er varða nýsmíði og viðbætur við skip- ið:  Smíði þilfarsyfirbyggingar sem átti að þjóna sem viðbótarlest- arrými.  Smíði og uppsetning vökvadrif- inna lúga á farmlest undir aðal- þilfari fyrir lestun og losun farms.  Smíði og uppsetning vökvadrif- innar hliðarlúgu á yfirbygginguna fyrir lestun og losun farms.  Smíði og uppsetning vökvadrif- innar lestarlúgu ofan á yfirbygg- inguna fyrir lestun og losun farms.  Smíði og uppsetning vökvadrif- inna farmhurða á afturþil yfirbygg- ingarinnar.  Smíði og uppsetning vökvadrifins skutramps fyrir 15 tonna öxulþunga á skut skipsins til aksturs á bifreið- um og þungum vinnuvélum að og frá borði.  Smíði á svokölluðu perustefni á skipið. Auk ofangreindra atriða þurfti að hækka öflugan þilfarskrana skips- ins, lagfæra neðri lest og endurnýja lestarbotn með nýjum brunnum og óskað var eftir að kannaður yrði kostnaður við að setja svokallað ýr- ingarkerfi í skipið sem fráviksatriði. Fleiri atriði bættust við Vegna eindreginna óska Gríms- eyinga bættust við, þegar verkið við gerð útboðsgagna var hafið, nokkur atriði, þ.e. skipstjóraklefi, skrif- stofu- og salernisaðstaða í návígi við brú; gagnger endurhönnun á neðra farþegarými, flutningi á eldhúsi og með endurbættri aðstöðu fyrir áhöfn. Þetta var í meginatriðum samþykkt af Vegagerðinni og því innifalið í endanlegum útboðs- gögnum. Nokkrum atriðum mun hafa verið vísað frá. Fjölmörg smærri atriði komu fram af hálfu Grímseyinga eftir að útboði lauk sem rætt hefur verið að bæta úr mörgum hverjum eftir því sem reynsla kemst á skipið og eftir því sem nauðsyn ber til. Má þar nefna endurnýjun á þiljum og inn- réttingum íbúðar áhafnar; fjarstýr- ingu á krana; fullkomið sjónvarps- og hljóðkerfi; eftirlitsmyndakerfi; kælingu í lestarrými og endurnýjun á búnaði og innréttingum í stýr- ishúsi. Í upphafi áttu Grímseyingar að koma kröfum sínum á framfæri við Vegagerðina en samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins voru þau samskipti með stirðara móti og fyrir vikið settu eyjarskeggjar kröfurnar er frá leið í auknum mæli fram fyrir milligöngu samgönguráðuneytisins. Raunar hefur Morgunblaðið heimildir fyrir því að Grímseyingum hafi ekki þótt haft við sig nægilegt samráð á þessu stigi málsins, eins og þeir töldu sér hafa verið lofað, og því hafi ýmsar kröfur þeirra komið fram síðar en ella. Í greinargerð Ríkisendurskoðunar segir um kröf- ur Grímseyinga: „Ekki er hægt að láta hjá líða að setja spurningamerki við ýmsar kröfur Grímseyinga og ekki síst kröfur þeirra og áhafnar Sæfara um eitt og annað er snýr að aðbúnaði áhafnar um borð. Svo virðist sem umræddum aðilum hafi verið mjög í mun að ný ferja yrði sem allra líkust Sæfara og komu fjölmargar kröfur fram á ýmsum stigum, bæði eftir að ferjan var keypt, útboðslýsing unnin og samningur við VOOV undirrit- aður. Eins og á stóð var brýnt að gera formlegt samkomulag við Grímseyinga um kröfur þeirra áður en til útboðslýsingar og samnings- gerðar kom í stað þess að mæta kröfum þeirra með því að semja um kostnaðarsöm aukaverk við verksal- ann. Í ljósi tiltölulega skamms ferða- tíma á milli Grímseyjar og Dalvíkur er t.d. eðlilegt að velta vöngum yfir ákvörðunum um að koma til móts við kröfur áhafnar Sæfara um sér- staka og dýra aðstöðu fyrir skip- stjóra um borð ofl.“ Heimildarmenn Morgunblaðsins áfellast ekki Grímseyinga. Það sé ósköp eðlilegt að þeir vilji gera skip- ið sem best úr garði og fyrst þeir fengu tækifæri til þess sé ekki und- arlegt að þeir hafi fært sér það í nyt. EÐLILEGT EÐA OF LANGT GENGIÐ? Morgunblaðið/ÞÖK Grímsey Eyjarskeggjar höfðu eðli málsins samkvæmt ríka skoðun á endurbótum á ferjunni. Kröfur Grímseyinga Í tillögum starfshóps samgönguráðuneytisinsum samgöngur við Grímsey frá febrúar 2004segir m.a.: „Jafnframt verði kannað hvort heppilegt sé að bjóða út rekstur Grímseyjarferju til lengri tíma og rekstraraðili útvegi skipakost til rekst- ursins.“ Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að samgönguráðherra, Vegagerðin og Samskip, sem rekið hefur Sæfara um árabil, hafi velt þessum möguleika fyrir sér. Óformlegar þreif- ingar munu hafa farið fram en ekki skilað ár- angri. Samskip munu hafa sýnt málinu áhuga en ekki verið spennt fyrir útboði; viljað semja beint við Vegagerðina. Það mun Vegagerðinni ekki hafa þótt koma til greina þar sem það stangaðist á við lög og reglur um útboðsskyldu. Þá munu Samskipsmenn hafa viljað semja til langs tíma, a.m.k. tíu ára, sem Vegagerðinni þótti óhugsandi. Helmingi ódýrara? Fleiri en einn og fleiri en tveir heimild- armenn Morgunblaðsins eru sannfærðir um að þetta sé eigi að síður rétta leiðin – Grímseyj- arsiglingum sé best borgið í höndum einkaaðila sem bæði eigi og reki ferjuna og þiggi greiðslu fyrir þjónustuna. Morgunblaðinu er ekki kunn- ugt um að Vegagerðin hafi íhugað útboð af þessu tagi af neinni alvöru vegna sérstöðu verk- efnisins og lítillar notkunar á skipinu. Segjum sem svo að Samskip hefðu hreppt hnossið. Það er auðvitað ekki sjálfgefið að fyr- irtækið hefði fest kaup á Oileáin Árann en verð- ur þó að teljast líklegt í ljósi þess hvað mark- aðurinn er þröngur og að áætlanir um nýsmíði hljóðuðu upp á 600 til 700 milljónir króna. Við þessar aðstæður hefðu kröfur Grímseyinga og áhafnar Sæfara væntanlega aldrei komið upp á borðið og skipið nær örugglega verið sent til endurbóta og viðgerða í Austursjó enda Sam- skip ekki bundin af útboðum líkt og ríkið. Óformleg könnun hefði verið gerð hjá nokkrum skipasmíðastöðvum þar sem Samskip þekkja vel til og lægsta tilboðinu tekið. Hvað hefði þessi leið kostað til að gera Oileá- in Árann haffært á Grímseyjarsundi? Morg- unblaðið bar þetta undir heimildarmann sinn hjá Samskipum. Miðað við forsendur sem lágu til grundvallar kaupum á skipinu var svarið 250 milljónir króna, þ.e. helmingi lægra verð en kostnaður hins opinbera stendur í núna. Á RÍKIÐ AÐ SJÁ UM REKSTURINN? Rekstrarform Grímseyjarferju

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.