Morgunblaðið - 09.09.2007, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 9. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í HNOTSKURN
»Meðalheildargreiðslurkarla í 70-100% starfshlut-
falli voru rúmar 330 þús. kr.,
en kvenna í sama starfshlut-
falli rúmar 248 þúsund.
»Að teknu tilliti til vinnu-tíma, starfsaldurs, starfs-
stéttar og menntunar minnk-
aði kynbundinn munur á
heildarlaunum í 14,7%.
»Meðalgrunnlaun fé-lagsmanna eru tæpar 222
þús. Að jafnaði voru grunn-
laun kvenna um 11% lægri en
meðalgrunnlaun karla.
»Meðalgrunnlaun karla ífullu starfi voru um 239
þús. en grunnlaun kvenna að
meðaltali um 213 þús.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ÚTRÝMING kynbundins launamun-
ar verður eitt af stóru áhersluatriðum
í komandi kjarasamningum SFR.
Hitt stóra atriðið verður að leiðrétta
kjör starfsmanna opinbera geirans í
samræmi við launaþróun á almennum
vinnumarkaði. Þetta segir Árni Stef-
án Jónsson, formaður SFR, en núver-
andi kjarasamningur félagsins gildir
út apríl 2008. Í gær var kynnt niður-
staða nýrrar launakönnunar sem
SFR hefur gert og sýnir hún að meðal
félagsmanna í fullu starfi eru konur
að jafnaði með tæplega 25% lægri
heildarlaun en karlar. Félagsmenn
SFR eru tæp 6 þúsund. 70% þeirra
eru konur.
„Þessi launakönnun staðfestir enn
og aftur að launamunurinn er geipi-
legur í heildartölum. Við munum gera
þær kröfur á stjórnvöld að það verði
gert eitthvað
raunhæft í því að
vinna á kyn-
bundnum launa-
mun,“ segir Árni
og minnir á að ný
ríkisstjórn hafi
sett óútskýrðan
kynbundinn
launamun hjá rík-
inu töluvert á odd-
inn og bæði fé-
lagsmálaráðherra og formaður
Samfylkingarinnar heitið því að vinna
að þessum málum.
Að sögn Árna var í síðustu kjara-
samningum félagsins árið 2005 við
fjármálaráðuneytið lögð mikil áhersla
á að reyna að leiðrétta launamun
kynjanna. Í því skyni var í stofnana-
samningum milli stéttarfélagsins og
stofnana ríkisins gerð tilraun til að
bera saman sambærileg störf innan
hverrar stofnunar fyrir sig, en ekki
milli stofnana. Segir Árni þá úttekt
benda til þess að launamunur ríki
fremur milli stofnana en innan sömu
stofnana, þar sem hefðbundnir
kvennavinnustaðir séu verðlagðir
lægra en hefðbundnir karlavinnu-
staðir. Í ljósi þessa segir Árni einsýnt
að hækka þurfi grunnlaun hinna
stóru kvennastétta sérstaklega. Vísar
hann þar til kvennastétta sem m.a.
vinna á svæðisskrifstofu málefna fatl-
aðra, í spítalageiranum sem og
kvenna sem vinna hin ýmsu skrif-
stofustörf hjá t.d. tollinum, trygg-
ingastofnunum, sýslumannsembætt-
um og skattstofum. „Þarna eru lágu
launin.“
En hækkun grunnlauna er ekki
nóg, að mati Árni. Bendir hann á að
óútskýrður launamunur sé „einungis“
4-7% þegar horft sé til grunnlauna, en
aukist til muna sé horft á heildarlaun.
„Karlmenn virðast enn og aftur fá
aukagreiðslur í einhverju formi.“
Félagskonur SFR með 25%
lægri heildarlaun en karlar
Krefjast þess að stjórnvöld vinni gegn kynbundnum launamun í samningum
Árni Stefán
Jónsson
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
„ELDURINN gaus rosalega hratt upp, það er
eiginlega ekki hægt að lýsa því,“ sagði Arna Arn-
arsdóttir sem í fyrrinótt varð að flýja út úr brenn-
andi raðhúsi í Njarðvík ásamt eiginmanni sínum
og fjögurra ára gömlum syni. Ekki er ljóst hver
upptök brunans eru en rannsókn hófst í gær-
morgun, laugardag.
Þrír eldri synir að heiman
Raðhúsið er á þremur hæðum og eru alls sex
íbúðir í lengjunni. Eldsins varð vart skömmu fyrir
anna og sagði Arna að það hefði varla tekið meira
en 5-10 mínútur fyrir alla að koma sér út. Á tíma-
bili óttaðist hún að eldurinn bærist út eftir þakinu
og í alla raðhúsalengjuna en slökkviliðið hefði sem
betur fer komið í veg fyrir það. Svo heppilega vildi
til að þrír eldri synir þeirra hjóna voru fjarver-
andi. Arna og fjölskylda fengu inni hjá ættingjum
eftir brunann en hún sagði óvíst hvað tæki við.
Húsið er með öllu óíbúðarhæft en neðsta hæðin
slapp þó við eldskemmdir. „En það sluppu allir
ómeiddir og það er það sem skiptir máli.“
Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum
Suðurnesja komst reykur inn í allar íbúðir nema
eina í húsinu.
klukkan eitt. Arna og eiginmaður hennar, Óskar
Magnússon, sátu í stofu á jarðhæð og horfðu á
sjónvarpið þegar Örnu fannst hún heyra umgang
á miðhæðinni og taldi helst að sonur hennar hefði
vaknað og væri kominn á stjá. Óskar fór upp til að
kanna málið en í sömu mund og hann gekk upp
stigann fór reykskynjarinn í gang. Þau hlupu þá
bæði upp og rifu drenginn út úr herberginu. Arna
sagði að þetta hefði allt gerst svo hratt að hún
hefði ekki getað áttað sig á hvar eldurinn hefði
kviknað. Reykur hefði verið á miðhæðinni og áður
en þau flýttu sér út úr húsinu hefðu þau séð að það
skíðlogaði í stiga upp á háloft.
Arna og Óskar börðu þvínæst á dyr nágrann-
Ljósmynd/HilmarBragi
Rifu drenginn upp og forð-
uðu sér út úr brennandi húsi
Bruni Raðhúsið er mikið skemmt eftir brunann, sérstaklega efri hæðirnar tvær, en neðsta hæðin skemmdist aðallega af völdum sóts og vatns.
RÚSSNESK stjórnvöld hafa boðist
til að hefja viðræður við Íslend-
inga um öryggis- og björgunarmál
á Norður-Atlantshafi.
Grétar Már Sigurðsson, ráðu-
neytisstjóri í utanríkisráðuneytinu,
staðfesti í samtali við Morgun-
blaðið í gærmorgun að sendiherra
Rússlands hefði kynnt utanrík-
isráðherra tilboðið í júní. Hann
vildi ekki greina frá því í hverju
tilboðið fælist og sagði að Rússar
hefðu aðeins sett fram ákveðnar
hugmyndir en ekki neinar mót-
aðar tillögur. Málið væri í skoðun
í ráðuneytinu.
Segjast engin svör hafa fengið
Sendiherra Rússlands á Íslandi,
Viktor I. Tatarintsev, skýrði frá
tilboðinu á opnum fundi í Mír-
salnum á fimmtudagskvöld. Gætti
nokkurrar gremju í máli sendi-
herrans vegna þess að Rússar
hafa ekki fengið svör við tilboðinu
frá íslenskum stjórnvöldum, að því
er fram kom á fréttavef ríkis-
útvarpsins.
Rússar vilja
öryggis-
samstarf
AÐ MATI framkvæmdastjóra Jafn-
réttisstofu, Kristínar Ástgeirsdótt-
ur, ætti útrýming kynbundins launa-
munar að vera aðaláhersluatriði í
komandi kjarasamningum.
„Í ljósi þess að í
sáttmála ríkis-
stjórnarinnar er
það sett sem
markmið annars
vegar að minnka
kynbundinn
launamun um
helming á kjör-
tímabilinu og hins
vegar að endur-
meta sérstaklega
kjör kvenna hjá
hinu opinbera, þá er núna tækifæri
framundan. En það gerist auðvitað
ekki öðruvísi en með samkomulagi
aðila vinnumarkaðarins og ríkis-
valdsins, sem er líka stór samninga-
aðili. Þetta er spurning um pólitísk-
an vilja og pólitískar áherslur og
hvort menn vilja virkilega taka á
þessu,“ segir Kristín. Tekur hún
fram að sjálf muni hún í vikunni eiga
fundi með fulltrúum bæði ASÍ og SA
og viðbúið sé að þetta málefni komi
til umræðu á þeim fundum.
Tækifæri
framundan
Kristín
Ástgeirsdóttir
RÁÐIST var á 15 ára gamlan
dreng fyrir utan samkomustað á
Selfossi um tvöleytið í fyrrinótt. Að
sögn lögreglu hlaut drengurinn
áverka á höfði, en árásarmaðurinn
hrinti honum í jörðina og sparkaði
í hann liggjandi. Enginn hafði í
gær verið handtekinn í tengslum
við málið en vitað er hver árásar-
maðurinn er. Kalla átti hann til yf-
irheyrslu í gær.
Ráðist á fimm-
tán ára dreng
LÖGREGLAN á Akureyri hafði af-
skipti af átta ökumönnum, sem óku
hraðar en leyft er aðfaranótt laug-
ardags. Sá sem hraðast ók mældist
á 109 km hraða á Hörgárbraut á
Akureyri laust fyrir miðnættið þar
sem hámarkshraði er 50 km. Segir
lögreglan að ökumaðurinn geti átt
von á 90 þúsund króna sekt og að
missa ökuréttindi í þrjá mánuði.
Á 109 á
Hörgárbraut